Tíminn - 04.08.1983, Page 1
íslendingaþættir fylgja bladinu í dag
FJÖLBREYTTARA
OG BETRA BLAD!
Fimmtudagur 4. ágúst 1983
177. tölublað - 67. árgangur
Siðumúla 15—Pósthólf 370 Reykiavík—Ritstjorn 86300—Augtýsingar 18300— Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvóldsimar 86387 og 86306
Orkuvinnslugeta Landsvirkjunar umfram sölu áætluð 370 gfgawattsstundir:
EKKI ER MARKADUR FYRIR UM
10% AF ORKU LANDSVIRKIUNAR
■ Orkuvinnslugeta Lands-
virkjunarkerfisins er í dag 3675
Gwst. á ári og því til viðbótar
koma samningsbundin kaup frá
Kröflu og Svartsengi, alls 130
Gwst. Það má því segja að
I.andsvirkjun sé nú aflögufær
um 3805 Gwst. á ári. Orkusala
fyrirtækisins í ár er áætluð 3.535
Gwst. við stöðvarvegg. Mismun-
urinn er 370 Gwst., sem ekki er
áætlað að nýtist í ár.
Hér er ekki reiknað með því
að ÍSAL og Járnblendifélagið
nýti að fullu samningsbundinn
rétt sinn til kaupa á forgangs- og
afgangsorku og skakkar þar alls
229 Gwst. Ef þessir orkukaup-
endur keyptu alla þá orku sem
þeir eiga rétt á og aðstæður
leyfðu mundi hin ónýtta orka
Landsvirkjunarkerfisins lækka
úr 370 Gwst. í 141 Gwst., eða
úr 9,7% í 3,7% af orkuvinnslu-
getunni. Samningsbundin af-
gangsorka ÍSAL og Járnblendi-
félagsins nemur 446 Gwst. á ári
við stöðvarvegg og er Lands-
virkjun heimilt að skerða af-
hendingu hennar um allt að 50%
á einu og sama árinu, eða 223
Gwst. Hér verður þó að hafa í
huga að ekki má skerða afgangs-
orkuna um mcir en 20% á 20 ára
samningstímabili. Þessar upplýs-
ingar fengust hjá Halldóri Jóna-
tanssyni forstjóra Landsvirkj-
iunar í gær.
Halldór var spurður um nýt-
ingu á orku Hrauneyj'arfossvirkj-
unar og sagði að erfitt væri að
gefa tölur um nýtingu hvcrrar
virkjunar fyrir sig þar sem þær
væru samtcngdar og nýtingu
þeirra dreift, eftir aðstæðum í
hverri einstakri virkjun. Hins
vegar yrðu menn að gera sér Ijóst
að ávallt væri virkjað með það í
huga að eigtt afgangsorku sem
nægði þar til næsta virkjun kæm-
ist í gagnið þótt orkueftirspurnin
ykist. Því væri það gjarna svo að
rekstur nýrra orkuvera væri
óhagkvæmastur fyrstu árin mcð-
an orkan nýttist ekki til íulls, en
fjármagnskostnaður legðist á
þær með fullum þunga. Þar kæmi
einnig til að Landsvirkjun ætti
ekkert eigið fé heldur yrði að
standa undir framkvæmdum sín-
um aö öllu leyti með lánsfé og
því yröi fyrirtækið fyrir miklu
gengistapi.
- JGK
■ Það telst líklega heldur
óvenjulegt að í sama leikhúsi
gangi verk eftir föður og dóttur
í einu, bæði starfandi höfunda,
en svo mun líklega verða í
Þjóðleikhúsinu í vetur. í október
hefjast sýningar á nýju leikriti
Svövu Jakobsdóttur á litla svið-
inu í Þjóðleikhúsinu, Lokaæf-
ingu, en það verður frumsýnt í
Norræna húsinu í Þórshöfn í
Færeyjum í lok þessa mánaðar.
En jólaleikrit Þjóðleikhússins í
ár verður verk eftir föður Svövu,
sr. Jakob Jónsson dr. theol,
Tyrkja Gudda, í endurbættri
gerð höfundar, cn verkið var
sýnt í Þjóðleikhúsinu á upphafs-
árum þess. En ekki nóg með
það. Sonur sr. Jakobs og bróðir
Svövu var leikskáldið Jökull J ak-
obsson og L.R. mun sýna eitt
verka hans, Hart í bak í vetur í
tilefni þess að höfundurinn hefði
orðið fimmtugur 14. september
á þessu ári ef honum hefði enst
aldur. Verk allra feðginanna
þriggja verða því á fjölunum í
Reykjavík í vetur.
Leikárið hefst í Þjóöleikhús-
inu með gamanleiknum Skvald-
ur eftir Bretann Michael Frayn
og um miðjan september verður
frumsýnt nýtt leikrit eftir Odd
Björnsson, Eftir konsertinn og
mun höfundurinn sjálfur leik-
stýra. Þriðja verkefnið verður
leikrit Jóns Laxdal Halldórsson-
ar leikara, Návígi, en það er
skrifað á þýsku og þýtt af Hall-
grími Helgasyni. Meðal verka
sem tekin verða til sýninga eftir
nýár verður hið þekkta leikrit
Bertholts Brechts, Góði dátinn
Sveijk í seinni heimsstyrjöldinni
í þýðingu Þorsteins Þorsteins-
sonar og Þórarins Eldjárns.
-JGK
Sverrir um stóridju við
Eyjafjörð:
UNDIRBÚNINGSRANN-
SÓKNUM VERÐI FLÝTT
Ríkið tók af
ráðherra-
launum
Alberts
upp I
skattana:
HEIMTAÐI
OG FÉKK
ENDUR-
GREIÐSLU!
■ „Það er rétt að Albert
Guðmundsson hcfur fengið
endurgreidd þau gjöld sem tek-
in voru af honum sem ríkis-
starfsmanni samkvæmt ríkis-
innheimtukerfi. Það byggist á
því aó hann vill frckar hafa
þann hátt á sem hafður var á
áður en hann fékk launa-
greiðslur frá ríkiiru að inn-
heimta opinberra gjalda færi í
gegnum það fyrirtæki scm
hann á,“ sagði Guðmundur
Vignir Jósefsson, gjaldheimtu-
stjóri, þegar Tíminn spurði
hann hvort rétt værj að Albert
Guðmundsson fjármálaráð-
herra hefði fengið endur-
greidda þá upphæð scm dregin
var af ráðherralaunum hans
nú um mánaðamótin.
„Gjaldheimtan hefur í sjálfu
sér ekkert við þaö að athuga
svo lcrtgi sern greiöslur koma á
löglegan hátt og það má segja
að hann eigi að hafa frjálst val
um hjá hvorum staðnum cigi
að taka opinber gjöld af
faunum ef hann vinnur hjá
tveim launagreiðendum."
Aðspurður sagöist Guð-
ntundur Vignir ekki muna eftir
þvt að svona dæmi hefði komið
upp áður.
' - GSH
■ „Ég hef beðið stóriðjunefnd
að huga sérstaklega að Eyja-
fjarðarsvæðinu, að það er veikt
og er að veikjast atvinnulega
séð,“ sagði Sverrir Hermannsson
iðnaðarráðherra í samtali við
blaðið í gær.
„Það eru ýmsir þættir sem
eftir er að athuga, og við vitum
ekki hvort við eigum þessa kost,
það þarf að kanna mengunarað-
stæður, loftslag og dreifingu úr-
gangsefna og þess háttar. Það er
sem sagt allur undirbúningur á
frumstigi og ekkert verið hugað
eignaraðilum, en menn hallast
að því að þarna væri heppilegt
að byggja álverksmiðju af með-
alstærð sem væntanlega yrði
staðsett við Arnarnes vestan
Eyjafjarðar. Og ég hef beðið
sérstaklega um að rannsóknum
verði hraðað.
Sverrir sagði að það gætu liðið
allmörg ár frá'því að undirbún-
ingur hæfist, þar til rekstur kæm-
ist í gang.
- JGK
■ Flugeldasýning Hjálparsveitar skáta er fastur liður á Þjóðhátíðinni
tilkomumikil sjón eins og sjá má á þessari mynd. Sjá nánar á bls. 2.
Vestmannaeyjum og
VERK ÞRIGGJA
FEÐGINA Á FJÖL-
UNUM SAMTÍMIS!