Tíminn - 04.08.1983, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 4. AGUST 1983
SveHana er sest
að í Englandi
■ Þaö varð mikið fjaðrafok
um víðan heim fyrir rúmum 15
árum, þegar það vitnaðist að
Svetlana, dóttir Stalíns, hefði
skotið upp kollinum í Banda-
ríkjunum og leitað þar hælis
sem flóttamaður. A skömmum
tíma ritaði hún svo tvær bækur,
sem seldust í stríðum straum-
um, giftist þekktum arkitekt,
ól honum dóttur og skildi síðan
við hann. Ekkert af þessu fór
fram hjá alheimi. En síðan
hefur verið hljótt um Svetlönu.
Nú hefur Svetlana aftur
skotið upp kollinum á óvænt-
um stað. Hún er nú sest að í
enska háskólabænum Cam-
bridge, ásamt dóttur sinni,
Olgu, sem orðin er 11 ára.
Astæðuna segir Svetlana ein-
faldlega vera þá, að hana hafi
alltaf dreymt um að Olga gæti
gengið í skóla í Englandi, þar
sem hún hafi mikla trú á
skólakerfínu þar. Nú hefur sú
ósk ræst. Olga hefur fengið
inngöngu i skóla, sem kvckarar
reka í Cambridge. I skólagjöld
þarf að greiða meira en 3000
dollara á ári.
Svetlana auðgaðist vel á
bókum sínum og er því haldið
fram, að hún hafí alls lilotið
eina milljón dollara fyrir. En
vegna rangra fjárfestinga á
meðan hún var gift arkitekt-
inum, sem reyndar var hennar
5. ciginmaður, fóru mestallir
peningarnir í súginn. Eftir hélt
hún þó um 200.000 dollurum
og kemst af á rentunum af
þeím, með ýtrustu sparsemi
þó.
Svetlana er orðin 57 ára og
algráhærð. Hún kallarsig núna
Lana Peters og er hlédræg og
vill láta lítið á sér bera. í fyrra
lét hún tilleiðast að eiga viðtal
við breska rithöfundinn og út-
varpsmanninn fræga, Malcolm
Muggeridge, en síðan hefur
hún alfarið neitað að eiga opin-
ber viðtöl við nokkurn mann. í
viðtalinu við Muggeridge
skýrði hún svo frá, að eftir því
sem hún eltist, hefði henni
staðiö meiri og meiri ógn af
föður sínum. Hún hefði forðast
hann eftir megni, og þegar
fundum þeirra hefði borið
saman, hefðu þau lítið haft að
segja hvort við annað. Það
liefði því verið henni léttir,
þcgar liann féll frá.
I Sovétríkjunum á Olga 2
uppkomin börn, Iosif, 37 ára
gamlan lækni, og Yekaterina,
sem er 33 ára. A.m.k. eitt
barnabarn Svetlönu er eldra en
Olga. En hætt er við, að ef það
ætti einhvern tíma fyrir Olgu
að liggja að hitta hálfsystkin
sín, muni henni ganga illa að
skilja þau og gera sig skiljun-
lega. Hún kann nefnilega enga
rússnesku og þykir reyndar
alveg dæmigerður Amerikani
í fasi og klæðaburði.
■ Josef gamli Stalm, sem svo margir litu upp til með ást og
virðingu, naut hvorugs hjá börnum sínum. Hér er liann með
Svetlönu dóttur sína í fanginu, en hún segir að sér hafí staðiö
æ meir ógn af honum eftir því sem hún eltist.
inn, til móts við gönguna um
daginn og frá göngunni í bæinn
aftur fyrir þá sem þess þurfa
með.
Þá þarf að fjármagna fyrir-
tækið, þetta er mjög dýr fram-
kvæmd og við þurfum að leita
fjárstuðnings eins víða og við
getum. Við höfum látið gera
merki göngunnar og það verð-
ur selt og eins seljum við
sérstaka áritaða boli. Við
stefnum að því að gangan geti
borið sig og treystum sem sagt
á fjárstuðning ýmissa aðila í
því sambandi og þar á meðal
auðvitað göngumenn sjálfa.
Það þarf einnig að huga að
líkamlegum þrörfum fólks,
það þarf að fá næringu og við
verðum með sérstakan eld-
húsbíl í Straumi þar sem hægt
verður að fá keypta heita súpu
og ýmislegt annað matarkyns.
Læknir verður með í göngunni
til að líkna sárfættum og vera
til taks ef eitthvað kemur upp
á að öðru leyti.
Það hefur líka mikil vinna
farið í það af okkar hálfu að
kynna gönguna, tilgang hennar
og tilhögun og auglýsinga-
kostnaður hefur eðlilega orðið
mikill. Ég má annars til að taka
það fram að það hefur verið
mikið um það að fólk hefur
komið við á skrifstofunni hjá
okkur og látið fé af hendi
rakna til að styrkja okkur.
Svo ætlið þið að mynda
keðju milli sovéska og banda-
ríska sendiráðsins, þegar þið
komið í bæinn. Haldið þið að
þið fáið nægilega marga þátt-
akendur til þess?
Já, gangan kemur niður
Bankastrætið og fer inn Lækj-
argötu og klofnar við Iðnó,
annar hlutinn fer í áttina að
Garðastræti þar sem sovéska
sendiráðið er til húsa og hinn á
Laufásveginn að því Banda-
ríska. Þetta eru nú ekki nema
800 metrar svo ég reikna með
því að við getum myndað
margfalda keðju. Það verða
afhent ávörp á báðum stöð-
unum og síðan endað með
fundi við Miðbæjarskólann þar
sem sr. Rögnvaldur Finnboga-
son ávarpar göngufólkið.
- JGK
erlent yfirlit
■ ÞAÐ kom ekki á óvart. að
viðræður Richards B. Stone,
sérstaks sendiherra Reagans
forseta í Mið-Ameríku, og Ru-
bens Zamora. formanns stjórn-
málasamtaka fimm skæruliða-
hreyfinga í E1 Salvador, skyldu
farafram íhöfuðborgCólombíu,
Bógóta.
Stone hafði um nokkurt skeið
reynt að ná fundi einhvers af
leiðtogum skæruliða í El Salva-
dor. en ekki tekizt það. m.a.
vegna þess. að þeir vildu ekki
viðurkenna bandarískan sendi-
fulltrúa sem eins konar sátta-
semjara, þar sem Bandaríkin
gætu síður en svo talizt hlutlaus
aðili í borgarastyrjöldinni í El
Salvador.
Þegar þessar ráðgerðu við-
ræður virtust alveg strandaðar,
skarst forseti Cólombíu. Belisar-
io Betancur. í leikinn. Skærulið-
ar í El Salvador meta hann
ntikils, því að hann hefur reynzt
þeim hliðhollur. Fyrir milligöngu
hans fóru viðræður Stones og
Zamora fram.
Nákvæmar fregnir hafa ekki
borizt af þessum viðræðum,
nema bæði Stonc og Zamora
hafa látið í Ijós. að þær hefðu
verið gagnlegar og sennilega
myndi þeim haldið áfram. Talið
er, að þær hafi fyrst og fremst
snúizt um hugsanlega þátttöku
skæruliða eða samtaka þeirra í
kosningum í E1 Salvador.
■ Betancur forseti
hefur gagnrýnt afskipti Banda-
ríkjanna í Mið-Ameríku, eins
og komið hefur fram hér á
undan.
Breytingin hefur ekki orðið
minni inn á við. Skæruliðar hafa
um langt skeið látið til sín taka í
Cólombíu og hefur hernum ekki
tekizt að vinna bug á þeim.
Skæruliðarnir eru taldir vinstri
sinnaðir og hafa hægri menn
myndað samtök gegn þeim og
oft tekið dómsvaldið í sínar
hendur, þegar skæruliði hefur
verið tekinn höndum.
Betancur boðaði í forseta-
kosningunum, að hann myndi
bjóða skæruliðum sakaruppgjöf
og reyna að útrýma skæruliðum
á þann hátt. Hann lét það verða
eitt fyrsta verk sitt eftir að hann
tók við forsetaembættinu að aug-
lýsa untrædda sakaruppgjöf, en
hingað til hefur það ekki borið
mikinn árangur.
Hitt er líklcgra til að bera
árangur, að hann lét rannsaka
ákærur, sem höfðu beinzt gegn
hernum og hægri mönnum um
aö myrða og pína skæruliða án
dóms og laga.
Þessi rannsókn lciddi til Itess,
að mál v;tr höfðað gegn um 60
hermönnum, aðallega foringjum,
lyrir að hafa gerzt brotlcgir á
þennan hátt. Herinn hcfur tekið
þessu illa og hægri mcnn enn
Betancur ávítaði Reagan
opinberlega í borðræðu
Hann kom á viðræðum Stones og Zamora
Þar standa mörg ljón í vegin-
um og mun það áreiðanlega
þurfa miklar viðræður, ef sam-
komulag á að nást milli stjórnar
E1 Salvador og skæruliða um
frantkvæmd kosninga, sem
skæruliðar treysta sér til að taka
þátt í vegna ótta við, að þær
verði ekki frjálsar.
Eftir að Stone hafði rætt við
Zamora, hélt hann til Nicaragua,
þar sem hann ræddi við aðalleið-
toga Sandinista, Daniel .Ortega
Saavedra, og utanríkisráðherr-
ann, Migucl d'Escoto
Brockman. Báðir aðilar sögðu
það eitt eftir viðræðurnar, að
þær hefðu verið gagnlegar.
Að lokum hélt Stone svo til E1
Salvador og gaf stjórnarleið-
togum þar skýrslu um viðræð-
urnar. Alvaro Magana forseti lét
í Ijós á eftir, að honum þættu
þessar viðræður hafa verið upp-
örvandi.
Sennilega er það réttur dómur
um þessar viðræður, sem Zam-
ora lét hafa eftir sér, en hann var
á þá leið, að þær hefðu verið lítið
skref, en skref í rétta átt.
BETANCUR forseti vakti
sérstaka athygli alþjóðlegra fjöl-
miðla, þegar Reagan forseti
heimsótti Bógóta í desember-
mánuði síðastliðnum. Þá var
Betancur búinn að gegna for-
setaembættinu í fjóra mánuði.
en hann tók við því 7. ágúst í
fyrra.
í veizlu, sem Betancur hélt
Reagan, flutti hann ræðu, sem
áður hafði verið afhent blaða-
mönnum, þar sem hann lét í ljós
óánægju yfir afskiptum Banda-
ríkjanna í Mið-Ameríku og of
naumum framlögum þeirra til
alþjóðlega gjaldeyrisvarasjóðs-
ins, sem yllu því að sjóðurinn
gæti ekki veitt ríkjum þriðja
heimsins næga aðstoð.
Betancur hefur fengið það
orð á sig að vera óformlegur,
eins og sýndi sig við þetta tæki-
færi. Hann lét það verða fyrsta
verk sitt sem forseta að skipta
um forsetabíl, sem var Merc-
cdes-Benz, því að hann væri of
tildurslegur, og jafnframt fékk
bílstjóri hans fyrirmæli um að
■ Ruben Zamora
fylgja götuljósum, en áður naut
forsetinn sérstakra forréttinda í
þeim efnum. Varðandi fjölmargt
annað hefur Betancur tckið upp
óbrotnari og alþýðlegri siðavenj-
ur.
Það þykir þó meira máli
skipta, að veruleg breyting hefur
orðið á stjórnarstefnunni, bæði
inn á við og út á við. Fráfarandi
forseti hafði hallazt mjög að
Bandaríkjunum og m.a. fylgt
afstöðu þeirra í Falklandseyja-
stríöinu. Betancur hefur tekið
upp miklu hlutlausari stefnu og
hefur haft við orð að láfa Cól-
ombí.u ganga í samtök óháðra
ríkja.
Flann vill að Kúba fái aðild að
samtökum Ameríkuríkja og
Þórarinn
Þórarinsson, 3
ritstjóri, skrifar wftm
verr. Mcðal hcrsins hefur farið
fram fjársöfnun til að kosta máls-
vörn hinna ákærðu. Jafnvel hef-
ur komizt á kreik orðróntur um
að hcrinn hyggi á byltingu.
Þctta hefur liins vcgar unnið
Betancur mikilar vinsældir og
þykir því ólíklegt, að herinn
rcyni að steypa honum að sinni.
HERNAÐARLEG bylting
hcfur ekki orðið í Cólombíu
síðan 1957. Á árunum 1948 til
1957 ríkti eins konar borgara-
styrjöld ntilli lhaldsflokksins og
Frjálslynda flokksins og er talið,
að um 200 þúsund manns hafi
falliö í henni. Árið 1957 náðist
samkomulag ntilli flokkanna á
þann hátt, að þeir skyldu fara
meö forsetaembættið til skiptis.
Þctta samkontulag hélzt til 1974,
cn þá var ákveðiö að flokkarnir
skyldu kcppa um forsctaembætt-
ið i frjálsum kosningum, báðir
flokkarnir skyldu þó eiga fulltrúa
í ríkisstjórninni.
Fyrirrennari Bctancur í for-
setacmbættinu tilheyrði Frjáls-
lynda flokknunt, cn var þó mjög
íhaldssantur. Betancurvarfram-
bjóðandi íhaldsflokksins.
Hann var þó ntun frjálslyndari
cn fyrirrennari hans. I reynd er
lítill munur orðinn á flokkunum,
og byggist það mest á því, hver
forsetinn er, hvort heldur skuli
telja stjórnina til vinstri eða
hægri.
Betancur er rétt sextugur að
aldri. Hann er kominn af fá-
tækum ættum og var systkina-
hópur hans stór, en alls átti hann
22 systkini. Hann brauzt til
mennta með aðstoð kirkjunnar
og lauk lögfræðiprófi 1947.
Þremur árum síðar náði hann
kosningu til fulltrúadeildar
þingsins. Árið 1958 náði hann
svo kosningu til öldungadeildar-
innar. Þar átti hann sæti síðan,
að undanskildum árunum 1963-
1964, þegar hann var verkalýðs-
málaráðherra, og 1975-1976,
þegar hann var sendiherra á
Spáni.
Það vakti nokkra eftirtekt, að
þegar Betancur myndaði stjórn
sína, skipaði hann konur í öll
aðstoðarráðherraembætti n.