Tíminn - 04.08.1983, Qupperneq 20

Tíminn - 04.08.1983, Qupperneq 20
Opiö virka daga 9-19 Laugardaga 10-16 H HEDD Skemmuveg' 20 Kopavogr Srmar (9117 75 51 & 7 80 30 Varahlutir Mikið úrval Sendum um land allt Ábyrgð á öllu Kaupum nýlega bíla til niðurrifs SAMVINNU TRYGGINGAR 8c ANDVAKA ARMULA3 SIMI 81411 ,£fe T» á abriel HÖGGDEYFAR ^Jvsrshlutir sími365io. riamarshöfða 1 t/íltmro Ritstjom86300-Augfysingar 18300- Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvoldsimar 86387 og 86306 FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1983 Hver legudagur á Landakotsspítala kostaði 2.396 krónur í fyrra: DRÁTTARVEXTIR HÆRRI EN ÖLL MATARINNKAUP! i— stöðugildin á spítalanum voru 150% fleiri en meðalfjöldi sjúklinga ■ Laun lækna, hjúkrunarliðs og aðstoðarfólks námu röskum helmingi þess sem það kostaöi að liggja á Landakotsspítala á síðasta ári, að meðaltali, eða tæp 55% af heildarkostnaði. Hver legudagur á sjúkrahúsi kostar töluvert fé, eins og sjálf- sagt flestir vita, en forvítnilegt þótti að sjá í ársskýrslu Landa- kotsspítala 1982 skiptingu þess kostnaðar á einstaka liði. Með- alkostnaður á hvern legudag reyndist um 2.396 krónur á síðasta ári. Þar af námu fyrrnefndir launaliðir 1.265 krónum. Laun læknanna námu 400 kr. á hvern lcgudag á sjúkrahúsinu (16,68% af heildarkostnaði) og laun hjúkrunarliðs rúmum 450 krón- um (18,9%). Kostnaður við lyf og umbúðir nam 119 kr. (tæp 5%). Með öðrum liðum sem taldir eru til sjúkrakostnaðar fór talan upp í 1.650 krónur, eða tæp 69% af heildarkostnaði á hvern legudag. Þær 756 krónur sem þá voru cftir af heildarkostnaðinum skiptust á fjölmarga liði. At- hyglisvert er t.d. að matarefni kostaði aðeins 67,47 kr. á hvern legudag (2,8%), ekki síst þegar haft er í huga að þar mun einnig innifalinn matur fyrir starfslið sjúkrahússins, sem er mun fjöl- mennara en sjúklingarnir. Mat- arefnisliðurinn er t.d. örlitlu hærri heldur en barnaheimilis- kostnaður sjúkrahússins, sem reyndist 50 kr. á hvern legudag (2,1%) og lægri en dráttarvextir sem sjúkrahúsið þurfti að greiða af vörum og opinberum gjöldum sem reyndust rúmar 71 kr. á hvern legudag (3%). í framhaldi af umræðum um sölu eða útboð eldhúss, þvotta- húss og saumastofu ríkisspítal- anna í sparnaðarskyni má geta þess að aliur kostnaður við þessa liði nemur samtals 184 kr. eða 7,7% af heildarkostnaði. Þar af nema laun í eldhúsi og borðstofu tæpum 42 kr. á legudag og við þvotta og saum 57 kr. á legudag, eða samtals 99 kr. Laun skrifstofufólksins nema hins veg- ar 88,50 kr. á hvern legudag. Liðimir rafinagn, hitunarkostn- aður og sími eru hins vegar litlir í þessu stóra dæmi. Þeir tveir fyrrnefndu 20,50 kr. á legudag (0,85%) og síminn tæpar 8 krón- ur (0,33%). Heildarkostnaðurinn við rekst- ur Landakotsspítala á s.l. ári var tæpar 149,5 milljónir króna. Þar lögðust inn 5.149 sjúklingar í 12,1 dag að meðaltali, eða samtals 62.383 legudaga samtals, sem er um 171 sjúklingur að jafnaði á dag. Starfsmannafjöldi í árslok var 526 manns í 431 stöðugildi. -HEI Hitaveita Reykjavíkur 90 MILU- ÖNIR KOST MtHÖSH) — miðad vid núgildandi verðlag ■ „Miðað við núgildandi verð- lag kostar 90 milljónir að byggja þetta hús Hitaveitunnar í Reykjavík", sagði Ivar Þor- steinsson, yfirverkfræðingur hjá Hitaveitu Reykjavíkur í spjalli við Tímann en um næstu áramót flytur Hitavcitan í nýtt húsnæði, að Suðurlandshraut 34. „Þessi fimm hæða skrifstofu- byggingerum 13.900 rúmmetrar að stærð og um 4000 fermetrar að heildarflatarmáli. Einnig er þctta mötuneytisbygging. Neðsta hæðin er afgreiðslusalur, vesturálmanerskrifstofubygging og síðan er skrifstofurými á hæöunum íyrir ofan", sagði Ivar. „í húsinu verða fjármáladeild, innlagnadeild, tæknideild, inn- kaupa- og birgðadeild og aðal- skrifstoía'Lsagði ívarað lokum. -Jól. 90 milljún króna bygging Hitaveitunnar í Reykjavik. Tímamynd: Róbert. dropar Kerfishraðinn ■ Málin ganga oft ósköp hægt fyrir sig i opinbera kerf- inu, og ekki síst þegar nefndir eru skipaðar til aö vinna að hlutunum. Nýlegt dæmi um þvtta má sjá í Arbók menntamálaráöu- neytisins 1983, en hún var að koma út fyrir nokkrum dögum. Þar er m.a. yfírlit um ráð, stjórnir og nefndir í málefnum, sem heyra á einn eða annan hátt undir menntamálaráðu- neytið. Þar er gert grein fyrir verksyiöi nefndanna og skipan þeirra. Meðal annars má þar lesa um nefnd til að „kanna stöðu og þýðingu íþróttanna í þjóðfclaginu og fjárþörf íþróttastarfseminnar". Um þcssa nefnd segir m.a.: „Þess er bciöst að nefndin Ijúki störf- um svo fljótt sem unnt er og cigi síðar en innan eins árs“, og mætti ætla af þessari oröanna hljóðan að þetta væri tekið beint upp úr skipunarbréfí nefndarinnar. En áður en menn kætast yfir þessum skjútlegu vinnu- brögðum er rétt að minna á, að fram kemur að nefnd þessi var skipuð árið 1975 - þ.e. fyrir átta árum síðan! Þetta er víst það sem kalla má kerfíshraða. „Verðbólguhraði í hjónaskilnuðum“ Islendingur birtir nýlega frétt með ofangreindri fyrir- sögn og fjallar þar um hjóna- skilnaði á Akurcyri, sem blað- ið segir að hafi „þvi sem næst fylgt verðbólguhraðanum og gott betur,,!! Þar segir, að það sem af sé þessu ári hafi 26 hjónaskilnaðir að borði og sæng verið skráöir í bækur fógetans á Akureyri, en i fyrra hafí skilnaðir á sama tíma árs- ins verið 12. Hér er þvi um rúmlega tvöföldun að ræða, sem á máli íslendings heitir nú reyndar „rösklega helmings fjölgun hjónaskilnaða“; Nú er bara að vita hvort Kostnaður við ráð- herrabíla og rádherra- bflstjóra: „ÓTTALfGUR IfYNDAR- DÓMUR?” ■ Hvað kostar það kerfi ráð- herrabíla og ráðherrabílstjóra, sem verið hefur við lýði undan- farin ár? Tíminn leitaði upplýsinga um þetta atriði eftir að hafa borist sögusagnir um ótrúlegár fjárhæðir í þessu sambandi, en þá kom í ljós, að cmbættis- menn í stjórnarráðinu virtust telja þessar upplýsingar til „hernaðarlcyndarmála" og vísuðu hver á annan. „Ráðherrabílstjórarnir eru ráðnir á vegum forsætisráðu- neytisins og því cr rétt að þú talir við t.d. skrifstofustjórann þar, því hann hefur afrit af launaskrám o.fl. og ætti að gcta frætt þig um þetta", sagði Höskuldur Jónasson-, ráðu- neytisstjóri í fjármálaráðu- neytinu. Þá varbara að tala við skrifstofustjórann. „Það er ekki venja mín að gefa upp taun einseða neinsog hef ég ckki gerl það að vana mínum að láta taka við mig blaðaviðtöl um slík mál. En þar sem þú ert sjálfsagt að fiska eftir yfirvinnunni gct ég aðeins sagt þér að hún er mismikil hjá bílstjórunum. Annars er það launadeildár fjármálaráðuneytisins aö gefa þcr þetta upp". sagði Gísli Árnason, skrifstofustjóri hjá forsætisráðuneytinu. Aftur var hringt í fjármála- ráðuneytið og nú talað við launadeiHina. Deildarstjórinn var farinn í frí, og Sigrún V. Ásgeirsdóttir, launaskrárrit- ari, þvertók algjörlega fyrir að gefa umbeðnar upplýsingar og vísaði blaðamanni á forsætis- ráðuncytið. Blaðamaður reyndi þá árangurslaust að ná til fjármálaráðherra. Meira síðar. -Jól. fylgni vcrður áfram á millil: hjónaskilnaöa á Akureyri og| verðbólgunnar i landinu. Kannski hægt verði í framtíð- inni að byggja á því verðbólgu-; spá sem reynist traustari en' sumar slíkar? Krummi ...er að velta því fyrir sér, I hvort ríkisstjórnin muni; kannski líka telja niður hjóna- skilnaði á Akureyri... 'mrnm

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.