Tíminn - 24.08.1983, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1983
Bimhm
fréttir
NORNA-þing
í Reykjavík
■ Norræna nafnarannsóknancfnd-
in (NORNA) hcll ráðstcfnu í
Reykjavík dagana 11.-13. ágúst.
fetta cr cllcfta ráðstefnan, sem
nefndin hefur gcngist fyrir, og hin
fyrsta scm haldin er á íslandi.
Umræðuefnið að þessu sinni var
„Merking staðfræðilegra samnafna í
örncfnum", þ.c. mcrking nafnliða
eins og -fcll, —holt og -hraun. I'átt-
takcndur voru frá Danmörku, Nor-
cgi, Finnlandi, Bandaríkjunum og
íslandi. Flutt voru ellefu crindi, og
urðu um þau allmiklar umræður.
_________________-ÞB
Jóhann
Helgason
kominn á
kreik
■ Jóhann Helgason, lagasmiðurinn
og söngvarinn góðkunni, er nú byrj-
aður að koma aftur fram á dans-
lcikjum og skemmtunum, eftir að
hafa hatdið sig frá sviðsljósinu um
nokkurt skeið.
Jöhann verður fastur gcstur í
Hollywood og Broadway næstu
hclgar. Á tónlcikum sínum á þcssum
skcmmtistöðum kynnir Jóhann
nokkur lög af væntanlcgri brciðskífu
sinni og af síðustu brciðsktfu sinni,
Tass.
Eftir að nýja brciðskífan hefur
litið dagsins Ijós verða eldri lögin
tckin af dagskrá. —Jól.
Uppákoma
hjá Ólöfu
■ Vegna mikillar aðsóknar að mál-
vcrkasýningu Ólafar Emmu Kristjáns-
dóttur Wcalcr frá ísafirði sem er í
Nýja Gallertinu að Laugavegi 12
verður hún framlcngd fram á fimmtu-
dagskvöld, þann 25. n.k.1 og jafn-
framt verður Ólöf mcð uppákomu
þaö kvöld kl. 21 cn þá lcshún úrcigin
verki „Ópcran Lóretta" sem gefið
verður út í Bandaríkjunum.
Athygli skal vakin á því að að-
gangur er ókeypis tvo síðustu daga
sýningarinnar.
Húsbílaeig-
endurí
Þjórsár-
dalinn
■ Fclag húsbílacigcnda ætlar scr í
fcrð í l'jórsárdalinn á laugardaginn,
27. ágúst. Mcð húsbtlum er átt við
bíla sem fólk ætlar scr að innrétta
eða er búið að innrétta til fcrðalaga.
Húsbílar af Suðurnesjum munu
safnast saman fyrir framan Tomma-
hamborgara í Njarávík fyrir kl. 9.30.
Vcrður svo ekið til Rcykjavíkur að
Tommahamborgurum við Grcns-
ásvcg og þar munu bílar af Stór-
Reykjavíkursvæðinu safnast saman
fyrir kl. 10.30. Er stcfpan sú að lagt
verði af stað úr höfuðstaðnum kl.
11.00.
Kosin hefur verið bráðabirgða-
stjórn Félags 'húsbílaeigenda og að
sögn gjaldkera félagsins, Vals Gunn-
arssonar, er markmiðið með þessari 1
fcrð í Þjórsárdalinn að hittast og
ræða málin þannig að fólk geti skipst
á skoðunum um hvernig best sé að
innrétta húsbíla til ferðalaga og
fleira.
Vitað cr um að minnsta kosti 70-80
húsbi'la hér sunnanlands.
—Jól
MEIRAEN NÓGAF
LÍFI f MIÐBÆNUM”
— Tveir
Akureyringar
teknir tali í
Hafnarstræti
■ Miðbær Akureyrar hefur tekið
nokkrum stakkaskiptum undanfarið ár.
Hafnarstrætið er nú orðin göngugata og
fólk getur skoðað í búðarglugga í róleg-
heitum meðan ökumenn gráta rúntinn;
á Ráðhústorginu er búið að setja upp
útimarkað og pylsuvagn.
Blaðamaður Tímans var staddur á
Akureyri einn góðviðrisdag fyrir
skömmu og tók þá tali tvo Akureyrarbúa
þar sem þeir gengu eftir Hafnarstræti og
ræddu um daginn og veginn. Þetta
reyndust vera þeir Jón Arason Jónsson
húsvörður í Útvegsbankanum við Hafn-
arstræti og Frímann Guðmundsson
deildarstjóri hjá KEA. Þeir voru fyrst
spurðir að því hvernig þeim litist á
göngugötuna.
Frímann: Þetta ætti að verða alveg
ágætt, það á að hita götuna upp með
vatni og þá verður hægt að ganga hér
þurrum fótum allt árið. Mér finnst þetta
mikið skemmtilegra en það eru nú alveg
tvískiptar skoðanir með götuna.
Jón: Ja, ég er ekki með þessu eins og
það er gert. Þetta er auðvitað mikil
breyting frá því sem var, hér var rúntur-
inn, látlausir bílar allar nætur; en svo
kemur annað til, þegar göngugatan er
komin í þetta horf finnst mér meira um
að vera fyrir fólkið, það er frjálsara og
leikur sér veggjanna á milli. Og það má
koma fram að hér er ekkert lögreglu-
eftirlit.
Frímann: Jón ætti nú að þekkja þetta
manna best, hann er húsvörður hér í
bankanum.
JLón: Ég þekki þetta nókkuð vel, égi
er búinn að vera hérna í 21 ár við götuna.
BLM: Hvernig finnst ykkurbæjarlífið
hafa þróast hér undanfarna áratugi?
Jón: Mér finnst nú þegar ég kom
hingað fyrir 35 árum að ég væri að koma
í sveit miðað við hvernig þetta er núna.
Nú er allt annar bæjarbragur og öllu
lakari en var. Lætin eru það sem fer illa
í mig en ég er nú orðinn gamall maður
og kann kannski ekki að meta þetta.
Svenfriður er ekki hér í miðbænum um
nætur og þetta byrjar snemma á föstu-
dagskvöldum og heldur áfram alla helg-
ina.
Frímann: Það búa nú sárafáir við
þessa götu Jón, sárafáir.
Jón: Það eru nú ekki margir eftir, það
er rétt. Síðan er verið að tala um að það
vanti líf í miðbæinn en mér finnst vera
meira en nóg líf í honum; þá meina ég
næturlífið en það er kannski sitthvað.
Blm: Svo er verið að brydda uppá
nýjungum á Torginu, kominn útimark-
aður og pylsuvagn.
Jón: Þessi útimarkaður á ekki að vera
og ekki pylsuvagninn, þetta cr bara til
óþrifa.
Frímann: Ég er á móti pylsuvagninum,
það er helv. óþrifnaður af honum en mér
finnst lífga uppá að hafa ávaxtasalann
þarna, þetta er áhugaverður ítali.
BLM: Svo maður vendi nú kvæðinu í
kross í lokin: hafið þið ekki fengið gott
veður hér í sumar?
Jón: Hér hefur verið nokkuð gott
veður, það hefur verið þoka síðustu
daga en það er ekkert. Við viljum
endilega að sunnlendingar fái eitthvað af
þessu og við tökum þá við rigningunni á
meðan. Þá er ég sérstaklega að tala um
bændurna þvíég er nú í rauninni gamall
bóndi. Mér er sama þó það rigni dálítið
á Reykvíkinga.
GSH
Tímamynd GE
■ Jón Arason Jónsson og Frímann Guðmundsson í Hafnarstrætinu.
Lægri söluskattur á erlend símtöl en innlend, en samt ekki
sundurgreint á símreikningum:
„EKKI HÆGT AÐ SUNDUR-
GREINA SÖLUSKATTINN”
segir Gústaf Arnar, yfirverkfræðingur hjá Pósti
■ „Ástæðan fyrir mismuninum á sölu-
skatti á símtöl til útlanda og söluskatti á
símtöl innanlands er: sú að verulegur
hluti af því gjaldi sem íslenskir símnot-
endur borga fyrir símtöl til útlanda, fer
til erlendra aðila, t.di símstjórna sem
taka á móti símtölunum“, sagði Gústaf
Arnar, yfirverkfræðingur hjá Pósti og
síma, er hann var spurður í hverju
mismunurinn á söluskatti á símtöl er-
lendis og innanlands lægi. 7,5% er
söluskatturinn á erlend símtöl en 23,5%
á innanlandssímtöl.
Á símreikningum er söluskatturinn
ekki sundurgreindur og ekki heldur
umframskrefin. Eru margir óánægðir
með þetta.
„Því miður er ekki hægt að sundur-
greina söluskattinn á símreikningum1-,
sagði Gústaf. „í símakerfi því sem við
erum með hér er ekki möguleiki á að
heimfæra símtölin á notandann heldur
kemur þetta bara á hans mæli eins og ein
súpa og engir möguleikar eru á að greina
þetta í sundur. Þegar við reiknum út
hvað hver mínúta kostar við mismunandi
símtal, þá höfum við auðvitað hliðsjón
af því að söluskatturinn er lægri til
útlanda en innanlands. Menn fá því í
raun og veru bara lengri skref til útlanda
og sima
vegna þessa. Búnaður sem hefði gcrt
okkur kleift að skrifa út hvert símtal
fyrir sig, þannig að fólk sæi hvc mikið
það borgaði fyrir hvert simtal, hefði
kostað svo mikla upphæð að gjöldin
hefðu orðið miklu hærri en þau cru. og
okkur fannst nú ekki rétt að hækka
gjöldin til að fólk gæti fengið reikning-
ana“, sagði Gústaf að síðustu.
-Jól
I/IAIIO ödýr og vönduð heimiRstæki
lulilO■ 111 ii i
ARMULA 8/S:19294