Tíminn - 24.08.1983, Page 10
STAÐAN
■ Stadan í fyrstu deild cftir leikinn í
gær er nú þessi:
Akranes.......
KR ...........
Þór...........
Breiðablik ....
Víkingur......
Þróttur.......
Keflavík......
ÍBV...........
ÍBÍ ..........
Valur.........
15 9 2 4 28-11 20
15 5 8 2 17-17 18
15 5 6 4 18-14 16
15 5 6 4 17-14 16
15 4 7 4 17-16 15
15 5 4 6 19-26 14
15 6 1 8 21-25 13
13 4 4 5 21-18 12
15 2 8 5 14-21 12
15 4 4 7 21-29 12
Skagamcnn viröast hafa alla burði til
að tryggja sér íslandsmcistaratitilinn í
ár, en fallbaráttan er aftur mjög hörð.
Valur og ísafjörður eru í mestu fallhætt-
unni, og Keflavík og Þróttur eru einnig
í hættu, Þróttur vegna mjög óhagstæðrar
markatölu. Vestmannaeyingar eiga tvo
leiki inni, og því aukna mögulcika á að
þoka sér upp á við, en allt getur gerst og
ekkert er öruggt. Þrjár umferðir eru
eftir, og líklega aðeins Akranes og KR
sem eru tölfræðilega örugg á að haga
uppi.
Slagur í kvöld
I kvöld er mikill slagur í knattspyrn-
unni hér á landi, fjórir fyrstu deildarleik-
ir-, toppuppgjör í annarri deild, og
kvennalandsliðið keppir við Svía. Leikur
íslands og Svíþjóðar hefst í Svíþjóð
klukkan 16.00 að íslcnskum tíma, en
klukkan 18:30 hefjast hinir leikirnir
fimm. ísfirðingar fá KR-inga í heim-
sókn, Keflvíkingar Skagamenn, Þróttar-
ar og Víkingar etja kappi á Laugardals-
velli, og Breiðabliksmenn lljúga til Vest-
mannaeyja. Á Akureyri kcppa KA og
Fram.
■ Besti maður leiksins í gær, Þorsteinn Ólafsson markvörður Þórs grípur snilldarlega fyrirgjöf Valsmanna. Ingi Bjöm
Albertsson sækir þarna að, og var þetta hvorki í fyrsta né síðasta skipti sem þeir börðust um boltann í þessum leik, enda
báðir gamalgrónir afreksmenn í vítateignum. Tímamynd ARI
HÐHAMEHN VORU SHRMM
f ROKINU Á HLfDARENDA
Valsmenn sigruðu Þórsara 2-0 í gær
■ Valsmenn náðu sér í umtalsverð stig
í gærkvöld, þcgar þeir náðu að leggja
Þór að vclli 2-0 í hávaðaroki og rigningu
á Hlíðarenda. Kærkominn sigur, á
öðrum leik félagsins á heimavelli sínum,
enda var greinilegt að Valsmennirnir
ætluðu ekki að láta það sem kom fyrir
gegn Þrótti um daginn cndurtaka sig. En
það sýnir best hve knattspyrnan er
furðuleg, úrslitin í gær og úrslit beggja
gegn Þrótti nú nýlega, Valur Þróttur
1-4, Þór-Þróttur 4-0, V'alur Þór 2-0!
- Það var Ingi Björn Albertsson aðal-
markaskorari þeirra Valsmanna, sem
kom þeim á sporið í gær með fallegu
skallamarki, en Ingi hafði áður látið
vcrja hjá sér vítaspyrnu, sem reyndar
var í meira lagi vafasöm, og Hilmar
Sighvatsson skoraði annað mark Vals úr
annarri vafasamri vífaspyrnu.
Valsmenn lcku gegn hávaðaroki, sem
stóð horn í horn, í fyrri hálfleik, en það
var ekki sjáanlegt á leik þeirra. Þórsarar
áttu ekki eitt einasta færi í þessum leik,
komust aldrei nógu langt. Fyrri hálf-
leikur var einstefna Valsmanna, en illa
■ Markhæstu leikmenn í 1. deild karla
eru þessir:
Ingi Björn Albertsson Val..........10
Sigurður Grétarsson UBK.............9
Hlynur Stefánsson ÍBV...............7
Heimir Karlsson Víkingi.............7
Sigþór Ómarsson í A ................7
Guðjón Guðmundsson Þór.............6
Kristinn Kristjánsson IBI ..........6
Sigurður Björgvinsson IBK...........6
gekk að setja mark. Þorsteinn Ólafsson
markvörður Þórs hélt liðinu á floti, varði
stórglæsilega oft og tíðum í leiknum. Á
11. mínútu varði Þorsteinn þrumuskot
Inga Bjarnar. Aftur varði Þorsteinn fast
skot af stuttu færi frá Hilmari Sighvats á
26. mín. og þriðja sinni stórkostlega
nokkru síðar aukaspyrnu Hilmars. Þá
átti Guðmundur Þorhjörnsson þrumu-
skot rétt framhjá á þessum tíma, og Nói
Björnsson var rétt búinn að skora sjálfs-
mark er hann ætlaði að hreinsa frá eftir
fyrirgjöf Hilmars, en boltinn fór rétt
framhjá Þórsmarkinu.
Leikurinn var lengst af viðureign Þor-
steins og Valsmanna. Þorsteinn greip oft
vel inn í, og úthlaúp hans góð, meðal
annars út fyrir vítateig einu sinni þegar
Ingi Björn hafði fengið langa sendingu
inn fyrir.
Ekkert brcytti gangi mála þó Þór léki
móti vindi í síðari hálfleik, þó léttist
pressa Valsmanna aðeins. Á 48. mínútu
„klippti" Ingi Björn fallega fyrirgjöf
Hilmars, en fjórða sinni kom sniild
Þorsteins berlega í Ijós, þrumuskot Inga
Markhæstir í annarri dcild eru þessir:
Hinrik Þórhallsson KA.............9
Pálmi Jónsson FH..................9
Guðmundur Torfason Fram ....... 7
Gunnar Gíslason KA................7
Jón Halldórsson Njarðvík...........6
Jónas Hallgrímsson Völsungi......6
Halldór Arason Fram...............5
Ilaukur Jóhannsson Njarðvík......5
Jón Erling Ragnarsson FH ..........5
var af markteig, en Þorsteinn greip.
Skömmu síðar skoraði Ingi Björn mark
sem dæmt var réttilega af vegna rang-
stöðu, og fór nú að draga til tíðinda.
Það kom nokkuð á óvart þegar Kjart-
an Ólafsson dómari benti á vítapunktinn
á 59. mínútu. Þorsteinn Ólafsson hafði
sótt boltann með góðu úthlaupi en átti í
höggi við Inga Björn, sem sótti að.
Kjartan dæmdi á Þorstein, sem þó virtist
á undan í boltann, vítaspyrnu sem Ingi
Björn tók sjálfur. - Þorsteinn lét sig
ekki muna um að verja þó ákveðna
spyrnu Inga.sló boltann ístöngogíhorn
en skot Inga var fast um einn og hálfan
metra frá stönginni. Ingi hafði betur
augnabliki síðar, úr hornspyrnunni skall-
aði Ingi fallega í mark. Eftir þetta var
leikurinn mest rokslagur á miðjunni, en
þó átti Þorgrímur Þráinsson þrumuskalla
yfir Þórsmarkið, og Valsmenn aðrávíta-
spyrnu 10. mínútum fyrir leikslok.
Kjartan dæntdi vítaspyrnu, eftir að
Árni Stefánsson Þórsari hafði hindrað
Hilmar í vítateignum, en á slíkt er
vanalega dæmd óbein aukaspyrna.
í þriðju deild eru þessir markahæstir:
Gústaf Björnsson Tindastóli .... 17
Sigurlás Þorleifsson Selfossi.....15
Bjarni Kristjánsson Austra .........12
Sigurður Friðjónsson Þrótti.......12
Guðbrandur Guðhrands. Tindastóli . 9
Gústaf Ómarsson Val..................8
Aliir þessir hafa lokið leikjum sínum í
3. deiid, nema Sigurður sem á eftir einn
leik með Þrótti gegn Hugin.
Hilmar skoraði sjálfur örugglega úr
spyrnunni, en ekki dæmdi Kjartan víti
nokkrum mínútum síðar, þegar Árni
stjakaði Inga Birni duglega burt frá
boltanum í vítateignum.
Leikurinn var eyðilagður af roki, og
því ekki mjög skemmtilegur. Þó gladdi
augað stórkostlegur leikur Þorsteins
Ólafssonar. Hann var besti maður vallar-
ins, og eini Þórsarinn sem eitthvað kvað
að, en Hilmar og Ingi Björn voru
atkvæðamestir Valsmanna.
- SÖE
Bogdan kominn
■ Bogdan Kovalczyk, nýráðinn lands-
liðsþjálfari íslands í handknattleik kom
til Islands í fyrra dag. Þar með er lokið
magapínu margra handknattleiksunn-
enda, sem óttuðust að hann mundi ekki
koma aftur frá heimalandi sínu. Pól-
landi. Bogdan fékk þó að likum öll
tilskilin Icvfi, og er kominn til starfa.
-SÖE
Þeir eru markahæstir
Kristine fékk
Fannarsbikarinn
■ Kristine Eide NK sigraði í golf-
keppninni um Fannarsbikarinn sem
haldin var um síðustu helgi í Grafar-
holti. Keppnin var opin kvennakeppni
með forgjafar fyrirkomulagi. Að
keppninni standa Hanna og Valur
Fannar og gefa þau öll verðlaun til
hennar. Veitt voru verðlaun fyrir þrjú
fyrstu sætin, hálsmen, og fyrir að vera
næst holu á 2. braut var veitt úr í
verðlaun. Úrslit urðu þcssi:
Kristine Eide NK .........93-21=72
Lóa Sigurbjörnsd. GK . . 89-17=72
Ágústa Dúa Jónsd. GR . 86-13=73
Margrét Guðjónsd. GK . 91-18=73
Ágústa Guðmundsd. GR var næst
holu á annarri braut, 92 cm.
Eggert bestur í
nýliðakeppninni
■ Eggert Steingrímsson varð hlut-
skarpastur í nýliðakeppni í golfi sem
fór fram á vegum Golfklúbbs Reykja-
víkur um miðjan ágúst. Keppendur
voru 18, en keppt var á Korpúlfs-
stöðum. Úrslit urðu þessi:
Eggert Steingrímsson .. . 80-27=53
Olafur Tómasson..... 78-24=54
Haukur Otterstedt... 87-28=59
Hörður Sigurðsson... 87-28=59
Besta skori náði Eyjólfur Bergþórs-
son 77 höggum.
United sigraði
■ Manchester United sigraði Liver-
pool í góðgerðaleik ensku knattspym-
unnar um helgina, keppninni um góð-
gerðaskjöldinn, FA Charily Shield.
Leikur United vakti bjartsýni áhang-
enda liðsins, liðið lék betur en Liver-
pool. Brian Robsonskoraðibæðimörk
United, citt í hvorum hálflcik, og voru
sóknarlotur hans og Rav Wilkins sér-
lega hættulegar. Vafi lék reyndar á að
Wilkins kæmist t liðið, en liann sýndi
og sannaði að hann á þar heima.
Liverpool átti góðar sóknarlotur í
leiknum, Kenny Dalglish var þar allt í
öllu, skaut m.a. í stöng Unitedmarks-
ins, en allt kom fyrir ekki. -SÖE
Arnór góður
■ Arnór Guðjohnsen átti góðan lcik |
með liði sinu, Anderlecht í belgísku
fyrstu deildinni urú siðustu helgj. Gerði
Arnór mikinn uslá i vörn andstæðing-
anna Gent, en Arnór lék sem miðfram-
herji. Arnór lagði upp annað mark
Anderlccht í 2-1 sigri. Það voru Verc-
auteren og Grun sem skoruðu mörkin.
Aberdeen byr jar vel
■ Skoska úrvalsdeildin í knattspyrnu
byrjaði utn síðustu helgi. Bikar og
Evrópubikarmeistararnir Aberdeen,
sem leika mun gegn Skagamönnum í
Evrópukeppni bikarhafa í haust byrj-
uðu vel, sigruðu Dundee 3-0. Þá
sigraði Dundee United, Skotlands-
mcistarinn, lið Jóhannesar Eðvalds-
sonar, Mothenvell stórt, 4-0. Önnur
úrslit urðu: Rangers-StMirren 1-1, Hi-
bernian-Celtic 0-2, SUohnstone-He-
arts 0-1.
Heimsmet í sundi
■ Vestur Þjóðverjinn Michael Gross
setti í fyrradag nýtt heimsmet í 200
metra skriðsundi karla. Gross synti á
1:47,87 mínútum, en gamla metið átti
hann sjálfur, 1:48,28 mín. Á sama
móti setti a-þýska kvennasveitin
heimsmet í 4x200 metra skriðsundi,
synti á 8:02,27 mín. -SÖE
■ Strákarnir í 6. flokki Breiðabliks sigruðu í öllum flokkum, A,B,C, ogD
á UMSK-mótinu í 6. flokki í fótbolta á dögunum. Á myndinni eru þeir koninir
ailir saman í markið, stór hópur af dugnaðarstrákum.
Sigurður sigraði
á Hitachi mótinu
■ Sigurður Héðinsson GK sigraði á
opna Hitachimótinu í golfi sem haldið
var á Alviðruvellinum um síðustu
helgi. Sigurður lék á 83 höggum 18
holurnar, en sigurvegari með forgjöf
varð Ægir Magnússon Selfossi á 70
höggum nettó. Úrslit urðu þessi:
Án forgjafar:
Sigurður Héðinsson GK...........83
lngólfur Bárðarson GOS..........85
Öskar Pálsson GHR ...............87
Með forgjöf:
Ægir Magnússon GOS................70
Sveinn Sveinsson GOS..............71
Ólafur H Ólafsson GK..............76
Glaésiverðlaun voru fyrir holu í
höggi á 6. og 9. holu, en eins og oftast
við slíkar aðstæður tókst cngum að
hreppa hnossið. Aukaverðlaun í sára-
bætur fyrir sjónvarps- og myndbands
tækin sem í verðlaun voru, vorít veitt
ferðaútvarpstæki þeim sem næstir voru
þessum holum. Þau hlutu Elías Einars-
son GK á 6. holu 2,84 metra frá holu,
og Árni Oskarsson GOS á 9. holu,
4,81 metra frá Holu. -SOE
Bayern Múnchen VfKINGAR.
*a,n"'" VIGAHUG....
gegn Dusseldorf
Stuttgart gerði jafntefli í gær
við nýliðana
■ - Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn:
Fjórir leikir í þriðju umferð Búndes-
lígunnar hér í Þýskalandi voru spilaðir í
gærkvöld. íslendingaliðin, Fortuna
Dússeldorf og VFB Stuttgart gerðu bæði
jafntefii, Dússeldorf úti gegn Bayern
Múnchen, og þar náði Bayern jafntefli,
því Dússeldorf skoraði fyrst, en Stuttgart
gegn nýliðanum Waldhof.
Urslit leikjanna urðu:
Bayern Múnchen-Dússeldorf .... 1-1
Stuttgart-Waldhof.................0-0
Núrnberg Bielefeld ...............2-0
Bochum-Braunscweig................3-1
Úrslitin í Múnchen verða að teljast
sanngjörn. Wenzel skoraði fyrir gestina
á 21. mín með hjólhestaspyrnu, en
Grobe jafnaði fyrir Bayern á 52. mín.
Atli og Pétur virtust hafa átt ágætan leik,
ef marka má þá kafla sem sýndir voru í
sjónvarpinu.
Stuttgart sótti stíft og átti ófá mark-
tækifæri, en nýliðarnir börðust vel, en
þó harkalega. Einum þeirra var vikið af
velli, þeim fyrsta á tímabilinu. 55 þúsund
áhorfendur sáu leikinn.
I annarri deild töpuðu Janus Guð-
laugsson og félagar í Fortuna Köln fyrir
Duisburg 2-3.
Þorbjörn
lék hæð ofar
■ Gamli golfmeistarinn Þorbjörn
Kjærbo var hæð fyrir ofan keppinauta
sína á Grandos öldungamótinu í golfi
sem haldin varð á Hólmsvelli í Leiru um
síðustu helgi. Þorbjörn lét sig ekki muna
um að leika völlinn á höggi undir pari í
keppninni, og sýndi að hann lumar enn
á gamla neistanum.
Keppt var í tveimur flokkum á mót-
inu, 50-54 ára og 55 ára og eldri.
Þorbjörn lék í eldri flokknum. Keppni
var ahnars mjög jöfn og spennandi, og
átt það jafnt við um keppni með og án
forgjafar. Úrslit urðu þessi:
Flokkur 50-54 ára:
Knútur Björnsson GK ............ 81
Jóhann Benediktsson.............82
Sigurður Þ. Guðmundsson NK ... 84
Með forgjöf
Ástþór Valgcirsson GS . . . 74
Albert K. Sanders GS ... 77
Jón Árnason NK 79
Flokkur 55 ára og cldri:
án forgjafar:
Þorbjörn Kjærbo GS .... 71
Sveinn Smárason GK .... 85
Ólafur Ág. Ólafsson GR • • 85
Sveinn varð annar, náði betri árangri
á þremur síðustu holum.
Með forgjöf:
Sigurður Steindórsson GS . 72
Gunnar Stefánsson NK . . . 74
Ólafur Jónsson GR 74
Gunnar hafði betra skor á þremur
síðustu holum og varð því annar.
Fram sigraði
Stjörnuna 8-0!
■ Framarar urðu á sunnudaginn ís-
landsmeistarar í 3. flokki íslandsmótsins
í knattspyrnu. Þeir sigruðu þá Stjörnuna
í úrslitaleik með átta mörkum gegn engu
og eins og tölurnar gefa til kynna voru
yfirburðir Framara miklir í þessum leik.
Framarar spiluðu á móti vindi í fyrri
hálfleik og skoruðu þá tvö mörk. Þegar
þeir voru svo komnir með vindinn í
bakið í síðari hálfleik þá var ekki að sökum
að spyrja. Framarar tættu vörn Stjörn-
unnar sundur og saman með mjög góðu
samspili og áður en flautað var til
leiksloka voru þeir búnir að bæta við sex
mörkum og endaði því leikurinn 8-0 eins
og fyrr segir. Framliðið bar höfuð og
herðar yfir önnur iið í keppninni, en lið
Stjörnunnar kom á óvart. Úrslitakcppn-
in fór mjög vel fram, og er forráða-
mönnum Knattspyrnuráðs Keflavíkur til
mikils sóma.
Besti leikmaður mótsins var kjörinn
Jónas Guðbjörnsson Fram. Hann var
vel að því kontinn, maður leiksins í
úrslitaleiknum, og varð markahæstur
leikmanna í úrslitakeppninni.
Úrslit leikja og lokastaðan í riðlakeppn-
inni.
ÍK-Bolungarvfk.....................4-1
Stjarnan-IBK ......................4-3
Stjarnan-IK .......................0-3
jBK-Bolungarvík....................9-0
ÍBK-ÍK.............................3-0
Stjarnan-Bolungarvík...............2-0
Lokastaðan í riölinum:
Stjarnan..................3300 9-36
ÍBK.................. 3 2 0 1 15- 4 4
ÍK................... 3 1 0 2 4-7 2
Bolungarvík .........3 0 0 3 1-15 0
Fram-KR............................4-0
KA-Sindri .........................3-0
Fram-KA........'...................1-1
KR-Sindri .........................6-0
Frara-Sindri.......................7-0
KR-KA..............................5-2
Lokastaðan í riðlinum:
Fram ................3 2 1 0 12- 1 5
KR ................. 3 2 0 1 11- 6 4
KA ..................3 111 6-6 3
Sindri...............3 0 0 3 0-16 0
Úrslitaieikir:
um 7. sæti:
Sindri-Bolungarvík.................5-1
um 5. sxti:
KA-ÍK .............................3-2
um 3. sæti:
ÍBK-KR ............................1-0
um 1. sæti:
Fram-Stjaman ......................8-0
TÓP/Úlfar Harri/Jón Hersir
■ Víkingur, Islandsmeistaraliðiö frá í fyrra og hittiðfyrra náðu sér loks af heitasta
svæði fyrstu dcildarinnarí knattspyrnu á sunnudaginn, þegar þeirsigruðu Vestmanna-
eyinga 2-0 á Laugardalsvelli í tvísýnum leik. Á myndinni hér að ofan sjást þeir
Víkingar fagna Sigurði Aðalsteinssyni, sem kont inn á sem varamaður og skoraði eftir
10 mínútur, innilega. Aðalsteinn Aðalsteinsson kreistir Sigurö duglega, Heimir
Karlsson er að hefja slíkt hið sama, Omar Torfason að baki hans er ánægður á svip,
og Jóhann Þorvarðarson, sem kemur á fullri fcrð með hendur hátt á lofti virðist ekki
ætla að láta silt eftir liggja. Það var svo Hcimir Karlsson, markakóngur
íslandsmótsins í fyrra, sem tryggði sigur Víkinga ineð gullfallegu marki skömmu síðar,
eins og sjá má á myndasyrpu ARA hér að neðan...
...Heimir hcfur haft betur í harðvítugri baráttu við Valþór Sigþórsson Eyjamann um
boltann, Valþór liggur eftir...
...næsti, Aðalsteinn Eyjamarkvörður kemur út á móti, skellir sér fyrir Heimi, en
Heimir breytir um stefnu...
...,,þa er það af, hvar er nú markið, já þarna“, gæti Heimir hafa hugsað. - Skömmu
síðar lá knötturinn í netinu hjá Eyjamönnum, 2-0 og úrslit leiksins ráðin.
SÖE/Tímamyndir ARI