Tíminn - 25.09.1983, Side 10

Tíminn - 25.09.1983, Side 10
10__________ kvikmyndasjá SUNNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1983 Wwwm Jean-Jacques Beineix — höfundnr ,,Diva” — fær hirtingu franskra gagnrýnenda fyrir nýjustn kvikmynd sína: . i PnMamr—u ^I§S1 p jjiysi íKtl % |QkP* ú ■Eymdarlegt hafnarhverfi er sviðið í „Tunglinu i göturæsinu". Hér sést hafnarverkamaðurinq (Depardieu) i þvi umhverfi... „Tunglið í götnræsinu” ■ Jean-Jacques Beineix varð heimsfrægur kvikmyndaleikstjóri með fyrstu kvikmynd sinni í fullri lengd. Sú heitir „Diva“ eða „Stór- söngkonan" og var sýnd hér á landi á síðustu kvikmyndahátíð. Þessi glæsilega kvikmynd hlaut miklar vinsældir meðal áhorfenda í Frakk- landi og víðar, og viðurkenningu gagnrýnenda I ýmsum löndum. Sumir franskir gagnrýnendur létu sér þó fátt um finnast, og þeir hafa nú hakkað Beineix i sig fyrir nýjustu kvikmynd hans, sem var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Þessi önnur kvikmynd Beineix nefnist „La lune dans le Daniveau“, sem kannski mætti útleggja á íslensku: „Tunglið í göturxsinu“. Nafniö sjálft hefur orðið sumum tilefni til gamansemi. Aðalleikarinn í myndinni, franska stór- stirnið Gérard Depardieu", sagði t.d.: „Það er kvikmyndin sjálf sem er í göturæsinu". Gefur það nokkuð til kynna tóninn í andstæðingum myndar- innar. „Að varpa undirmeðvit- undinni á hvíta tjaldið” Kvikmyndin er byggð á sögu eftir David Goodis, sem áður hefur orðið kvikmyndaleikstjörum uppspretta, m.a. Truffaut. Sumir gagnrýnendur hafa sak- að Beineix um að fara illa með skáld- söguna og jafnframt fyrir að gera kvikmynd, sem hafi í reynd engan sögu- þráð. Beineixsvarar sjálfurfullum hálsi. „Skáldsagan, sem var skrifuð fyrir 30 árum síðan, lýsir raunverulegu kreppu- ástandi, sem ég get vel skihð, og fjallar um það þjóðfélag sem ég lifi í“, segir hann. „Kvikmyndin segir frá manni (Gérard Depardieu), sem er sokkinn til botns, bæði í raunverulegri og táknrænni merkingu. Þetta er saga magnaðrar nætur, þar sem innviðir persónuleikans eru kannaðir, þar á meðal sektartilfinn- ing hans vegna kynferðislegs sambands við systur sína... Ég sá þessa sögu sem líkingu, táknmynd um líf okkar. Ég get aldrei sagt hlutina beint út, því ég er svo hrifinn af táknum og krókaleiðum, og þess vegna hlaut ég að verða hrifinn af þessari sögu. Ég sá hana líka sem fund með undirmeðvitundinni, og kannski er það þess vegna sem sumir afneituðu myndinni svo hrakalega... André Mal- raux sagði einu sinni að kvikmyndin hefði ekki enn sýnt undirmeðvitundina, hinn innri heim, eins og bókmenntirnar. Ég hugsaði mikið um þessa fullyrðingu og leit á hana sem ögrun. Ég vildi láta undirmeðvitundina birtast á hvíta tjald- inu. Ég vildi ckki þjóna rökhyggjunni, raunveruleikanum. Kvikmyndin hefur tengi þjónað frásögninni, en ég tel að myndmálið hafi öðru hlutverki að gegna. Ég vildi kanna það hlutverk." Innri veruleiki „Kjami sögunnar er skapgerð hafnar- verkamannsins (Depardieu), og það er innri raunverulciki hans sem fyllir út í myndrammann, en aðrar persónur eru endurvarp hugaróra hans og drauma. Konurnar tvær, sem hann komst í kynni við, eru endurvarp af draumakonum hans, þeirri hugmynd sem hann gerir sér um konuna. Baudelaire sagði að það væru ávallt tvenns konar konur; sú Ijóshærða, kynríka og synduga (leikin af Victoria Abril í myndinni) og hin dökka, hreina og fjarlæga (leikin af Nastassia Kinski). Þær eru fulltrúar andstæðra póla í hugsun okkar. Þessar konur eru súrrealískar; þær eru ekki til - þær eru goðsagnir en ekki persónuleikar, sem eiga sér stoð í raunvcruleikanum. Bróðirinn í myndinni er sú mynd sem aðalpersónan gerir sér um bróður, og faðirinn er ekki endilega foreldri hans heldur Faðirinn í víðtækari merkingu. Saga Goodis cr í reynd ödepísk; fjallar um þríhyrninginn móðir, faðir og sonur- inn á milli þeirra. Þetta er kvikmynd, sem fjallar um hina ríku og fátæku, án þess að hafa áhuga á ríkidæmi eða fátækt. Hún sýnir cxistensíalískar þjáningar tveggja mann- vera (Depardieu og Kinski), sem leiðir af bilinu sem er á milli þeirra- hans, sem lifir í göturæsinu, og hennar, s,em kemur frá draumalandinu. Skáldsaga Goodis hefur ekki meiri söguþráð en kvikmyndin mín. Og þarað auki er það ekki söguþráðurinn, sem er áhugaverður, heldur leiðin í gegnum undirmeðvitund mannsins. Við vitum að undirmeðvitundin cndurskapar hlutina eftir táknrænni þýðingu þeirra, á grund- velli ástríðna okkar og ótta. Undirmeð- vitundin lítur þannig allt öðrum augum á samhengi hlutanna en mcðvitundin, þar sem hlutirnir hafa ástæðu, skipulag.“ „Innri eldur11 Beineix hefur í viðtölum m.a. verið spurður um, hvernighann stjórni leikur- um í myndum sínurn og sérstaklega hvernig honum hafi tekist að starfa með Nastassia Kinski og Gérard Depardieu, sem fara með aðalhlutverkin í nýju myndinni. „Ég er andvígur því að skilgreina hlutina of mikið fyrir leikaranum. Ein mikilhæf leikkona spurði eitt sinn kvik- myndaleikstjóra um hvað hún ætti að hugsa, þegar hún væri að lcika tiltekið atriði, og hann svaraði: „Hugsaðu um að komast frá punkti A til B“. Eða, sem er enn betra, að hugsa um launaávísun- ina... Það sem ég hef mestan áhuga á- varðandi leikara er að fá þá til að afhjúpa sjálfa sig, til að sýna hliðar sem þcir hafa en vita ekki af sjálfir. Til þess þarf að ciga við skapgerð þeirra, en ekki þær persónur, sem þeir eru að leika,það gerir þú með því að hlusta á fólk og egna það - með ást og góðvilja en einnig með ofbeldi. Ekki líkamlegu ofbeldi, nema leikarinn þurfi á því að halda! Nastassia hefur geysilegan innri eld, mikla gjafmildi og ef til vill of mikla einfeldni. Hún hefur ekki enn lært að fjarlægja sig nægilega frá því, sem hún og síðar með draumastúlkunni (Kinski) í rauðum Ferrari. ■ Depardieu með tunglið í baksýn... ... og Kinski í Ferraribílnum. er að gera. Hún leitar eftir fullkomnun, en það getur leitt til sjálfstortímingar. Ég var ekki sérlega hrifinn af henni í „Tess“ en ég var undrandi á hversu langt hún gekk í „One From the Heart“. Þá vildi ég strax fá hana í „Tunglið" mitt. Hún nær því yfirleitt í fyrsta sinn að leika atriði rétt, en viil samt sem áður bæta það,-og í því liggur hættan. Það var hvetjandi að vinna með henni. Depardieu er geysilega sterkur leikari, en samt er hann þreyttur og það þarf að hjálpa honum til að brjótast út úr rútínu sinni. Ég tel að hann hafi sýnt frábæran leik í „Tunglinu," kannski það besta sem hann hefur sýnt“. „Ég hataði skólann“ Beineix er nú í þann veginn að hefja gerð kvikmyndar í Bandaríkjunum - „brjálæðislega vampírumynd" eins og hann orðar það sjálfur, og það er Ijóst, að margar kvikmyndir eiga eftir að koma frá honum næstu árin. En hvers vegna ákvað hann að snúa sér að kvik- myrtdagerð? „Það var á æskuárunum. Sennilega var það leið til þess að flýja veröld hinna fullorðnu. Þetta er aðferð til að sýna hlutina frá mínu eigin sjónarhorni í stað þess að taka veröldina eins og hún er. Ég var mjög hrifinn af alls konar leikjum, sem fólu í sér einhverja leynd- ardóma - fjársjóðaleit, eltingarleik eða eitthvað annað, sem leiddi mig frá raunveruleikanum. Það skrítna er hins vegar að kvik- myndin var eini glugginn minn að hinu raunverulega lífi. Ég fékk reynslu af lífinu gegnum kvikmyndirnar en ekki veruleikann. Ég varð t.d. fyrsta sinn ástfanginn af stúlku á hvíta tjaldinu - það var japanska leikkonan Keiko Kishi í „Fellibyl yfir Nagasaki". Mér fannst kvikmyndin sýna sannleikann. Að öðru leyti var æska mín eins og annarra listamanna; ég vildi flýja á vit drauma, skapa nýja veröld vegna þess, að sú sem ég lifði í, var ekki eins og ég vildi hafa hana. Ég var óhamingjusamur, en þó veit ég ekki hvers vegna. Ég hataði skólann, og mér var varpað út úr mörgum þeirra. Ég stundaði læknisfræði um hríð, en lauk ekki prófi. Ég fór aldrei í kvikmyndaskóla, en las bækur um kvikmyndir. Ég skildi þær oft ekki en hélt samt áfram að lesa. Sem námsmaður fékk ég sumarvinnu við að hjálpa til við gerð sjónvarpsþátta. Þar lærði ég mikið. Ég vissi ekkert um hvernig kvikmynd verður til. Ég vissi ekki að það er bæði einfalt og flókið - einfalt vegna þess að að það er nóg að setja myndavél fyrir framan eitthvað og setja í gang. En umhverfið og fólkið, það er mjög flókið. Á þessum árum var ég mikill kjáni; ég vissi aðeins að bera þurfti inn kafftð og að búningamir urðu að vera tilbúnir á réttum tíma. Ég aðstoðaði svo við gerð ýmissa kvikmynda þar til ég fékk loks að gera stutta kvikmynd árið 1977. Hún vann fyrstu verðlaun á kvikmyndahátíð fyrir unga leikstjóra í Trouville. Þremur árum síðar gerði ég „Diva.“ Framleiðandinn, írene Silberman, hafði séð stuttu mynd- ina mína og boðið mér að gera leynilög- reglumynd. Hún hafði trú á mér, en ekkert varð af þeirri mynd. Það tók eitt ár að sannfæra hana um að ég gæti gert kvikmyndina um stórsöngkonuna“. - ESJ tók saman. ■ Leikstjorinn, Jean-Jacques Beineix, undirbýr töku atriðis. Kinski í bilnum góða.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.