Tíminn - 25.09.1983, Blaðsíða 22

Tíminn - 25.09.1983, Blaðsíða 22
22 fTtttmra SUNNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1983 nútfminn Breytingar hjá Egóí TROMM- ARINN HÆTTUR ■ Það varð nokkuð stutt stopp hjá trommuleikaranum Jökli í hljóm- sveitinni Egó því hann mun vera hættur nú, hlutur sem kemur sér nokkuð bagalega fyrir sveitina því ætlunin var að setja nýja plötu á markaðinn fyrir jólin í ár. Við erum ekki með það alveg á hreinu hversvegna Jökull (áður með BG á ísafirði) hættir nú, eftir friðar- tónleikunum að dæma var hann smollinn inn í sveitina eins og böllur í feita vinnukonu en hinsvegar leita aðrir meðlimir Egó nú um allan bæ að manni til að hlaupa í skarðið. - FRI Poppbókina vantar myndir ■ Poppbókin svokallaða, uppslátt- arrií Jens Kr. Guömundssonar um poppmúsík á íslandi, er nú komin á lokastig. I rauninni vantar ekki nema nokkrar myndir til að bókin geti farið i prentun. Þess vcgna heitir Popp- bókin á hvern þann sem á í fórum sínum myndir af íslenskum poppur- um að lána þær til birtingar íbókinni. Teiknaðar myndir eru ckki síður vel þegnar cn Ijósmyndir. Vitað er að Bubbi, Ragnhildur og fleiri popparar voru vinsælt viðfangsefni í teikni- kennslu grunnskólanna s.l. vetur. Gamlar myndir eru einnig kærkomn- ar. Það er nauðsynlegt að brugðist sé skjótt við og myndunum verði komið til bókaútgáfu Æskunnar Laugavegi 56 eða að þær séu sendar í pósthólf 14, 121 Reykjavík, helst í gær eða fyrr. Það munar um hvern dag á þessum árstíma. Öllum myndum verður aftur skilað eftir notkun. MEZZOFORTE I ÞÝSKALANDI — ,,stóra platan ekki gefin út í Englandi fyrr en í janúar” segir Steinar Bergs ■ „Þetta ár er bókað meir og minna hvað við ætlum að gera. Mezzoforte eru búnir að taka upp Ip plötuna en um hálfsmánaðarvinna er eftir í henni. Þeir fóru svo til Þýskalands núna fyrir helgina og koma aftur um mánaðamótin“ sagði Steinar Berg forstjóri Steinar í samtali við Nútímann en hann er nú staddur hér á landi og verður fram á þriðjudag. „Er þeir koma frá Þýskalandi verður platan kláruð og síðan farið til Hollands og Norðurlandanna í tónleikaför. Mán- aðamótin okt/nóv. koma þeir aftur til Englands og leika þá í breska sjónvarp- inu og halda síðan á suðurströndina á jazz-hátíð þar sem Dissy Gillespie verð- ur meðal annarra. Síðan fara þeir á British Jazzfunk Award of the Year sem haldin verður í stórum sal í London í byrjun nóvember og seinni hluta þess mánaðar munu þeir leika á Ronnie Scotts. Síðan sjáum við til“. Steinar sagði einnig að lp platan yrði ekki gefin út í Englandi fyrr en eftir áramótin, eða í janúar, en væntanlega yrði tveggja laga plata gefin út fyrir jólin. Af öðrum tónlistarmönnum á snærum Steinar verður Jóhann Helgason með stóra plötu í nóvember auk tveggja laga plötu á Englandsmarkaði og Baraflokk- urinn er með plötu í smíðum í London en Steinar Berg sagði að hugmyndin væri að setja hana á Bretlandsmarkað. Grýlurnar verða aftur á móti ekki með plötu fyrir jólin vegna manna/konuvand- ræða og veikinda hjá þeim og Egó er dottin út úr myndinni í bili samanber frétt á síðunni. Aðspurður um hvort hann teldi að aðrar íslenskar hljómsveitir en Mezzo gætu náð vinsældum ytra sagði Steinar: „Ég vona það. Til þess er leikurinn gerður og þessi bönd sem við erum með eiga ekki síður erindi á erlendann mark- að en megnið af því sem þar er fyrir“. - FRI. ■ Steinar Berg MEDNÖKTUM Á BORGINNI » ■ Úr hljómsveitunum Kukl, Haug, Þey, Spilafíflum og Hinni konunglegu flugeldarokkhljómsveit koma þeir Birgir Mogensen, Helgi Pétursson, Magnús Guðmundsson, Halldór Lárusson og Ágúst Karlsson. í sömu röð og nöfnin hér á undan er hljóðfæraskipan þess hóps bassi, hljómborð, söngur, trommur og gítar og leika drengirnir undir nafninu Með nöktum. (Ekki er til mynd af hópnum saman en meðfylgjandi mynd ætti að gefa einhverja hugmynd um hljómsveitina þar sem hún segist spila og vera fyrir nekt alls. Mikið erum við ógeðsleg ef vel er að gáð.) Með nöktum mun spila á Borginni næstkomandi flmmtudag í fyrsta skipti og einnig kemur fram nýlistamaðurinn Óskar Valdimarsson. Að sögn Magnúsar Guðmunds- sonar ætlar hljómsveitin að taka upp plötu fljótlega. Án efa verður það eitthvað skrautleg útkoma og spennandi ef litið er á hvar meðlimir hljómsveitarinnar hafa fengið „tónlistaruppeldi“ sitt! FÁRANLEG SAMKOMA Tappi Tíkarrass og Samkór Lögreglufélagsins - Borgin ■ Það var mjög fámennt þetta kvöld. Undir lokin voru reyndar bara nokkrar hræður eftir og held ég að allir hafi gert sér grein fyrir að svo hlaut að gerast. Það voru nefnilega stór mistök að láta Sam- kórinn enda kvöldið. Tappi Tíkar- rass lék mjög blandað prógramm, mest ný lög en gömul lög inn á milli. Eyþór Arnalds, sá sem söng með hljómsveitinni í upphafi og hefur verið viðloðandi hana síðan sem „laus“ meðlimur, hélt uppi ægilegu hrey filistasj ói allan tímann og það var mjög kúnstugt að sjá hann og Björk saman. Eyþór hreyfði sig eins og tuskubrúða en Björk lét eins og hún væri spastísk. Þrátt fyrir mjög góð lög og mikinn kraft tókst Tappanum ekki að ná mikilli stemmningu því prógramm- ið varíeraði svo mikið, það mátti heyra allt frá mjúkustu sýru upp í svæsnasta fönk og heildarsvipurinn varð eins og línurit teiknað af tveggja ára krakka. En hljómsveit- in hefur náð feikna vel saman og satt að segja get ég ekki alveg ímyndað mér hvernig rétt óútkom- in plata hennar, Miranda, kemur til með að hljóma. Ég var hreint ekki viss hvort seinni hljómsveitin, SKLF, var að grínast eða ekki. Sjálf hljómsveitin sem spilaði mjög kröftuglega og vel átti akkúrat ekkert sameigin- legt með söngvaranum sem greini- lega hefur eytt meiri tíma í útlitið en að syngja og koma einfaldlega afkáranlega fyrir sjónir. Próg- ramm þessarar austfirsku hljóm- sveitar brotnaði hálfvegis í sundur skömmu fyrir kl. eitt vegna þess að söngkerfið þoldi ekki undurþýðu rödd þessarar glæstu rock’n’roll hetju. Það var ekki þess virði að bíða eftir að kerfið kæmist í lag. Bra. OPNIR ■ „Heitasta fönkbandið í bænum“ lýsti einn meðlimur Frakkanna hljómsveit sinni og vissulega vqru þeir það er skipinu var hleypt af stokkunum. í Safari í síðustu viku kom þaö svo aftur að landi, með laumufarþegann Björgvin Gislason um borð, en sökk við bryggjusporðinn. Það er, aðeins tvö fönkkennd lög eru eftir í prógrammi þcirra, hlutur sem manni finnst miður því með fönkívafinu í rokktónlist þeirra voru þeir um murgt nokkuð sérstakir á markaðinum hér. Fönklögin sem eftir standa í prógramminu eru New York og Boogie man. áberandi best af þeim scm þeir tóku fimmtudagskvöldiö í sfðustu viku en tónlistin var að öðru leyti ágætlega leikið rokk þar sem gftarýlfur Björgvins Gíslasonar naut sín vel en hann var gestur þeirra. Raunar höfum við hcyrt að Björgvin sé meirá og minna orðinn fastur maður f þessari hljómsvcit nú og tekur hann þar sæti Þorsteins Magnússonar sem hortið hefur handan við móðuna miklu um stund. Aðeins um 70 hræður voru mættar þetta kvöld sem er nokkuð furðulegt þegar tillit er tekið til þess að Frakkarnir hafa fengið orð á sig fyrir að vera hljómsveit þeirra sem eru „hip“, „kúl“, „með“, „in‘‘, okkar ylhýra móðurmál hefur ekki til að bera nógu beitt orð til að lýsa þessu, sem þýðir að vita nákvæmlega hvað er að gerast. Vegna fámennisins var bergmálið frá áheyrendum í lágmarki og Frakkarnir af þeim sökum nokkuð inni í eigin skel... „til að róa ykkurbetur niðurtökum við næsta lagið Relax" sagði Mike í miðju prógramminu, og af hverju ekki, enginn tilgangur í að leggja sig íram ef ekkert kemur á móti. - FRI FRAKKAR

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.