Tíminn - 25.09.1983, Page 23

Tíminn - 25.09.1983, Page 23
SUNNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1983 23 umsjón: Friðrik Indriðason og Bragi Ólafsson vötnunum. Meira að segja eru hug- ljúf og áhrifamikil vangalög í endinn. Það er skrýtið að segja það núna, en þess plata er einfaldlega tilbreyting. Eins og er talað um margar kvik- myndir sem afþreyingar af því þær eru ekki nógu pældar, þá er ókey að tala um þessa plötu sem svoleiðis. Nema hvað að hún er eflaust ekkert minna pæld, en..-. æ gleymum því... Bra The Police - Synchronicity Elton John - Too low for zero/ Phonogram/ Fálkinn ■ Þessi þybbni og ólögulegi popp- ari, sem áður fyrr var einn af helstu glimmerrokkurunum, hefur síðustu ár aðallega sést í slúðurdálkunum í sambandi við hégómlegt gleraugna- safn sitt og knattspymuáhuga. Vegna þess hefur maður hálfvegis gleymt honum í sambandi við tónlist. Honum hefur ekki gengið eins vel og áður - sem er ansi skiljanlegt vegna breyttra tónlistarviðhorfa - og ég efast um að fólk bíði spennt eftir plötum hans eins og áður. Án þess að hafa heyrt síðustú plötur þessa smávaxna manns full- yrði ég að Too low for zero sé hans besta plata í langan tíma. Og það með nokkurri vissu. Þannig er mál með vexti að um daginn fékk ég í hendurnar bunka af plötum til að skrifa um. Allt var það nútímapopp þótt listamennirnir væru á öllum aldri og flest af því hafði líkt yfir- bragð. Nema þessi litli djöfull. Platan er nefnilega svo innilega venjuleg, í þeim skilningi að engum töfratrixum er beitt við upptöku, lögin eru í sama anda og þegar Elton var vinsælastur - sérstaklega rokklögin - og hljóð- færaskipunin er eins einföld og hún getur orðið í rokktónlist. Eða því sem næst. Svo er gelgjuleg, óþrosk- uð, ómeðvituð, barnsleg og sönn skólaballarómantík sem svífur yfir ■ Það var skrýtið að sjá hvað jafn stolið lag og Every breath you take malaði mikið gull fyrir sætabrauðs- drenginn Sting og hljómsveit hans. Þótt það sé víst líkt fleiri en einu lagi, dylst fáum að margt er fengið að láni úr lagi sem heitir I love you more than I can say og var sungið af öðrum jömmíjömmstrák sem heitir Leo Sayer. Hvort sem það var nú gert af ráðnum hug. Því verður þó ekki neitað að Sting er góður lagasmiður og góður bassaleikari og kann að notfæra sér ýmis brögð sér til fram- dráttar. En eftir einkaframtökum hinna meðlima The Police á þessari plötu að dæma ættu þeir ekki að koma nálægt lagasmíðum, allavega ekki innan þessarar hljómsveitar. Erum við sem hlustendur ekki búin að fá leið á þeim skít sem okkur er fyrir borð borinn? er ekki mál til komið að við síum hismið frá kjarn- anum og finnum þá tónlist sem gefur okkur meira en stundarfullnægingu? vissulega mikið af spurningum en mitt mál er að nú þurfum við að fá tónlist, fyrst við aðhyllumst þennan miðil, sem hjálpar okkur til að líta á okkur meira en vesæla neytendur sem kyngja kúknum án nokkurrar umhugsunar, hvað kemur í staðinn veit maður aldrei en það hlýtur að vera til betra drasl en þetta helvíti hættum bara að kaupa. Það hefur líka sýnt sig að plötur hafa minnkað í sölu en er það ekki bara vegna alls draslsins, við viljum lifandi tónlist ekki þennan djöfuls kúk. Bra/allonsonanfan HLUST FLYTUR I NÝTT HÚSNÆÐI ■ Hljóðupptökustudióið Hlust h.f. hefur flutt í nýtt og betra húsnæði að Skipholti 9 Reykjavík. Þarna er um að ræða lOOm2 húsnæði með 502 upptökusal sem er sérhannaður og með öllum þeim búnaði sem til þarf, og 25m2 stjórnklefa sem er búinn öllum þeim fullkomnustu átta rása tækjum sem völ er á í dag. Má þar nefna Teac Tascam átta rása segulband með DBX uniti, Revox tveggja rása master tape, tólf rása Tabco mixer borð, effect unit tæki af öllum gerðum, reverb, deley maskínu og fl. Hlust h.f. býður upp á alls konar upptökur, hvort sem það er fyrir upplest- ur - ljóðalestur - upptökur á auglýsingum í útvarp og sjónvarp - demo upptökur og plötu upptökur. Verðinu er stillt í hóf til þess að sem flestir geti notfært sér þessa þjónustu. Hlust h.f. Skipholt 9 sími 36888 eða Rafn Sigurbjörnsson sími 45887 Steinþór aftur í Q4U ■ Steinþór Stefánsson mun vera geng- inn aftur í hljómsveitina Q4U sem þá hefur fengið viðamikla andlitslyftingu, eða öfugt, eftir því hvernig litið er á dæmið. Hljómsveitina skipa nú auk hans skötuhjúin Gunnþór og Ellý og trommu- leikarinn Jóhann Ríkharðsson eða Jói Motorhead eins og hann er kallaður. Bæði Árni Daniels og Danny Pollock eru hættir og má því búast við gjör- breyttri tónlist hjá Qinu ef það á annað borð kemst aftur út úr bíl- skúrnum. _ FRI DEKK SEM GILDA ALLT ARIÐ FYRIR STÆRRI BIFREIÐAR Td. vörubíla og langferðabíla Hinar sex köntuðu Radial-blokkir eru ílangar og liggja þvert, til aukinnar spyrnu. Blokkirnar eru ískomar og veita þar af leið- andi melra grip og stöðugleika. Hin opna brún grefur sig í gegnum lausan snjó Hið þétta mynstur á mlðju dekksins gefur og aur, niður á fast og veitlr meira öryggi á aukinn snertiflöt. votum vegum. GOODFYEAR GEFUR ^RÉTTA GRIPIÐ Goodyear G124 HEKLAHF Laugavegi 170-172 Sími 21240 AUGLÝSIÐ í TÍMANUM VIIMALEGIR VEISLU- OG RÁÐSTEFNUSALIR Nýinnréttaöir veitinga- og sam- Með endurnýjun þessara salarkynna kvæmissalir okkar á annarri hæö bera hefur aöstaða Hótels Esju til aö hýsa nöfn nágrannaeyjanna á Kollafirði. fundi, ráðstefnur, veislur, þing, árs- Þar má finna Þerney, Engey, Viðey og hátíðir, móttökur og hvers konar meira að segja Viðeyjarsund. samkvæmi stórbatnað. Allt frá tíu manna fundum til tæplega tvöhundruð manna stórveislna. Leitið upplýsinga hjá veislustjóranum alla daga frá ki. 8-20 Sími: 82200 o 2

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.