Tíminn - 13.10.1983, Blaðsíða 1
Komnir af stað í formannsslaginn - Sjá bls. 2
FJÖLBREYTTARA
OG BETRA BLAÐ!
Fimmtudagur 13. október 1983
237. tölublað - 67. árgangur
Sidumula 15-Pósthólf 370Reykjavik-Ritstjorn86300- Augiysingar 18300- Afgreidsla og askrift 86300 - Kvöidsimar 86387 og 86306
Fjögurra ára gamalt barn:
LÉT LÍFIÐ EFTIR RAFMAGNS-
STUÐ l)R SIÓNVARPSLOFTNETI
■ Hörmulegt slys varð í
Reykjavík um sexleytið í
gær er fjögurra ára gamalt
barn fékk í sig straum af
inniloftneti fyrir sjónvarp.
Barnið lést á Landakots-
spítala skömmu síðar af
völdum brunasára sem það
fékk.
Samkvæmt upplýsingum
Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins mun barnið hafa fengið
rafstraum í sig er það stakk
kló inniloftnets í samband
við rafmagnsinnstungu í
vegg. Barnið var flutt í
skyndi á Landakotsspítala
með neyðarbíl þeim sem
staðsettur er á Borgarspítal-
anum.
Barnið lést þegar þangað
var komið.
Ekki er hægt að skýra frá
nafni barnsins að svo
stöddu.
Slys af svipuðum toga
hafa nokkrum sinnum kom-
ið fyrir áður og er ástæða til
þess að vara fólk við inni-
loftnetum þessum sem eru
gamallar gerðar.
-BK/GSH
Fjárlagafrumvarp Alberts:
Ríkisstyrkur
til dagblaða
felldur niður
— „Ekki með samþykki okkar’% segir
forsætisráðherra
■ í brýnu getur slegið á næstu
dögum vegna þess að í fjárlaga-
frumvarpi því sem Albert Guð-
mundsson fjármálaráðherra
lagði fram á Alþingi í fyrradag,
er felldur niður ríkisstyrkur til
dagblaðanna, en í fyrra varstyrk-
urinn til blaðanna samtals fjórar
milljónir króna. Hefur það verið
yfirlýstur vilji fjármálaráðherra
að fella niður þennan styrk, en
svo hefur ekki verið með þing-
menn Framsóknarflokksins.
„Það er ekki með okkar sam-
þykki að þessi ríkisstyrkur er
felldur út,“ sagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra
er Tíminn innti hann álits á
þessu máli. „Fjármálaráðherra
hefur verið því andmæltur að
dagblöðunum verði veittur þessi
styrkur," sagði forsætisráð-
herra,“ en honum er fyllilega
ljóst að við munum fylgja því
eftir, að slíkur styrkur verði
áfram inni á fjárlögum."
Forsætisráðherra sagði að því
myndu þingmenn Framsóknar-
flokksins annað hvort flytja eða
fylgja breytingartillögu í með-
förum þingsins á fjárlagafrum-
varpinu.
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra sem var formaður
blaðstjórnar Tímans þar til hann
tók við embætti sjávarútvegsráð-
herra var einnig spurður álits á
þessu máli: „Þessi breytinghefur
ekki verið samþykkt af mér, og
ég hef látið hið gagnstæða koma
fram í viðræðum mínum við
fjármálaráðherra. Ég á því von
á því að þessu máli verði breytt
í meðförum þingsins."
Albert Guðmundsson
fjármálaráðherra sagðist í gær
eiga von á því að í meðförum
Alþingis kæmi upp tillaga um að
setja þennan ríkisstyrk handa
blöðunum inn á nýjan leik, og
sagðist Albert telja að meirihluta
fylgi væri á Alþingi við slíka
tillögu. Hann sagðist ávallt hafa
verið á móti þessum styrk við
blöðin og væri svo enn, en hann
hefði ekki haft marga skoðana-
bræður á þingi í því máli. -AB
Einni af frystigeymslum Af-
urðasölu Sambandsins lokað:
jsxum EKKI
SVIKNA VÖRU
segir Steinþór Þorsteins-
son, framkvæmdastjóri
■ „Kjötiðerekkiskemmt. Við
erum ekki að selja svikna vöru.
Hitt er aftur á móti rétt, að við
erum að selja tólf mánaða gamalt
kjöt á niðursettu verði, sem
yfirleitt cr ekki sama gæðavara
og nýtt kjöt."
Þetta sagði Steinþór Þorsteins-
son, framkvæmdastjóri Afurða-
sölu Sambandsins, þegar hann
var spurður hvernig það gæti
gerst, að mikið af kjöti, sem
vafamál er að standist gæða-
kröfur. hefur verið sett á.
markað. Kjötið kemur allt úr
einni af frystigeymslum Afurða-
sölunnar, sem hún hefur á leigu
í gamla ísbjarnarfrystihúsinu á
Seltjarnarnesi. Heilbrigðiscftir-
lit Reykjavíkur hefur nú látið
loka geymslunni vegna ítrekaðra
kvartana frá neytcndum og
kaupmönum í höfuðborginni.
Ekki hefur fengist uppgefið
hversu mikið af þessu umrædda
kjöti hefur verið sett á markað.
Hins vegar liggur Ijóst fyrir að
geymslan rúmar um 300 tonn og
að hún var full eftir sláturtíð í
fyrra. Steinþór segir, að kjötið
hafi ekki allt farið úr geymslunni
í einu, þannigað ekki nema hluti
af því hafi verið orðið frostþurrt
þegar það var sett á markað.
Enn eru um eða yfir 50 tonn í,
geymslunni.
„Við kröfðumst endurmats á
kjötinu vegna þcss að það var
óeðlilega frostþurrt," sagði
Guðmundur ingólfsson. heil-
brigðisfulltrúi, í samtali við
Tímann.
Yfirkjötmat ríkisins mun í dag
skera úr um hvort um gallaða
vöru var að ræða eða ckki í dag.
þegar niðurstöður rannsókna
undanfarinna daga líggja fyrir.
Sjú nánar bls. 5. _SJÓ
■ Death or a glory, dauði eða dýrð hefur einhver táningurinn krotað á vegg þessa húss við norðanverðan
Austurvöll, en víst er um það að ekki taka allir undir það að mótsögn sé þarna á rnillí. En hvað sem því
líður þá njóta þessir reykvísku heimsborgarar lífsins í ríkum mæli á dýrlegum haustdegi, og við sjáum ekki
betur en að hópurinn sé að skiptast í tvennt. Tíminn - Róbert.
Kjaradómur ákveður hækkuri á
launakjörum alþingismanna:
DAGPENINGAR TIL MNG-
MANNA HÆKKA NU UM 72%
■ Þingfararkaup hækkaði um
4% um síðustu mánaðamót, eins
og laun annarra landsmanna.
Þingmannslaunin nú eru 38.356
krónur. Kjaradómur hefur nú
fjallað um aðra kostnaðarliði
þingmanna og úrskurðað að
húsnæðiskostnaður þingmanna
utan af landi skuli hækkaður úr
6.500 krónum í 7.400 krónur, og
dagpeningar þingmanna utan ,af
landi hafa hækkað úr 145 krón-
um í 250 krónur eða um 72%.
Þá fá þingmenn greiddan ferða-
kostnað innan kjördæmis utan
Reykjavíkur og Reykjaness, og
hækkar hann úr 5.600 krónum í
8.700 krónur, sem er 56%
hækkun. Þingmaður utan
tveggja stærstu kjördæmanna fær
þvf greiddar mánaðarlega um 62
þúsund krónur, í laun, húsnæðis-,
ferða- og blaðakostnað. Þar að
auki fá þingmenn greiddan síma
og ferðir í kjördæmi eftir reikn-
ingi.
Tíminn snéri sér til Alberts
Guðmundssonar fjármálaráð-
herra í gærkveldi og spurði hann
hvort hann teldi ekki að þessi
mikla hækkun á kostnaðarliðum
þingmanna mæltist illa fyrir, á
sama tíma og hann hefði lagt
fram aðhalds og niðurskurðar-
fjárlagafrumvarp: „Það má ekki
horfa framhjá því að þingmenn
utan af landi, þurfa að halda tvö
heimili, sem er mjög dýrt, svo
það er eðlilegt að tekið sé tillit til
þess af kjaradómr. Þessi hækkan-
ir koma ekkert til meðferðar í
mínu ráðuneyti." - AB