Tíminn - 13.10.1983, Blaðsíða 17

Tíminn - 13.10.1983, Blaðsíða 17
FIMMTUÐAGUR 13. OKTÓBER 1983 ÍWtw 17 umsjún: B.St. og K.L. flokksstarf andlát Jón Stefánsson, Skaftafelli í Öræfum, lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Höfn 11. okt. sl. Guðbjörg Björnsdóttir, frá Gafli, lést 10. þessa mán. Ragnar Ingiþórsson, Pingholti 10, Kefla- vík, andaðist í Sjúkrahúsi Keflavíkur, mánudaginn 10. október. Jón Ferdinand Björnsson, fyrrv. tollfull- trúi, Bólstaðarhlíð 68, Rvk., andaðist þann 7. október. brúðkaup Brúðhjón í Kaupmannahöfn ■ Hjá sendiráðsprestinum í Kaupmanna- höfn hafa eftirtalin brúðhjón verið -gefin saman í vor og sumar: Óttarr Guðmundsson læknir í Gautaborg. og Ása Ólafsdóttir listamaður hinn 6. apríl í Jónsstofu í Islands Kulturhus. Gísli Engilbertsson vélsmiður og Margrét Guðmundsdóttir stud. arc. í dómkirkjunni í Lundi hinn 12. maí. Sveinn Kr. Pétursson framkvæmdastj. í Hamborg og Guðrún Iðunn Jónsdóttir hinn 4. júní í Marktkirche í Hamborg. Vilhelm Daði Kristjánsson trésm. á Seyðis- firði og Helena Lind Birgisdóttir í Jónsstofu hinn 22. júlí. Stefán Scheving Sigurjónsson sjúkraliði i Kaupmannahöfn og Margrethe Milde iðn- rekandi í Sct. Paulskirkju hinn 23. júlí. Hinn 29. júlí hjón frá Málmey. Nafnleynd. Elís Kristjánsson verslunarm. í Keflavtk og Guðrún Benediktsdóttir skrifstofumaður í Jónsstofu 30. júlí. Sigurjón Bjarnason bifreiðaeftirlitsm. í Reykjavík og Gyða Sigríður Halldórsdóttir skrifstofumaður í Jónsstofu hinn 4. ágúst. Palle Skals Pedersen trésmm. í Kaupmanna- höfn og Sæunn Elfa Karlsdóttir uppeldis- fræðingur í Jónsstofu 15. september. Hermann Wilhelm Borger múrari í Flens- borg og Brynhildur Georgía Björnsson kenn- ari í Jónsstofu hinn 21. september. sundstadir Reykjavík: Sundhöllin, Laugardalslaugin og Sundlaug Vesturbæjar eru opnar frá kl. 7.20-20.30. (Sundhöllin þó lokuð á milli kl.13—15.45). Laugardaga kl. 7.20-17.30. Sunnudaga kl. 8-17.30. Kvennatimar i Sundhöllinni á fimmtudagskvöldum kl. 21-22. Gufuböð I Vestubæjarlaug og Laugar- dalslaug. Opnunartima skipt milli kvenna og karla. Uppl. í Vesturbæjarlaug í síma 15004, i Laugardalslaug í síma 34039. Kópavogur: Sundlaugin er opin virka daga kl. 7-9 og 14.30 til 20, á laugardögum kl. 8-19 og á sunnudögum kl. 9-13. Miðasölu lýkur klst. fyrir lokun. Kvennatimar þriðjudaga og miðvikudaga. Hafnarfjörður: Sundhöllin er opin á virkum dögum kl. 7-8.30 og kl. 17.15-19.15 á laugardögum 9-16.15 og á sunnudögum kl. 9-12. Varmárlaug í Mosfellssveit er opin mánud. til föstud. kl. 7-8 og kl. 17-18.30. Kvennatími á þriðjud. og fimmtud. kl. 19-21.30. Karlatim- ar á miðvikud. kl. 19-21.30. Laugardaga opið kl. 14-18, sunnudaga kl. 10-12.30. Sauna, kvennatímar á þriðjud. og fimmtud. kl. 17-21.30, karlatímar miðvd. kl. 17-21.30 og laugard. kl. 14.30-18. Almennir saunatímar í baðfötum sunnud. kl. 10.30-12.30. Sundlaug Breiðholts er opin alla virka daga frá kl. 7.20-9 og 17-20.30. Sunnudaga kl.8-13.30. áætlun akraborgar Frá Akranesi Kl. 8.30 kl. 11.30 kl. 14.30 kl. 17.30 Frá Reykjavík Kl. 10.00 kl. 13.00 kl. 16.00 kl. 19.00 I apríl og október verða kvöldferðir á sunnudögum. — I maí, júní og september verða kvöldferðir á föstudögum og sunnu- dögum. - I júlí og ágúst verða kvöldferðir alla daga nema laugardaga. Kvöldferðir eru frá Akranesi kl. 20.30 og frá Reykjavik kl. 22.00. Afgreiðsla Akranesi sími 2275. Skrifstof- an Akranesi simi 1095. Afgreiðsla Reykajvík, sími 16050. Sím- svari í Rvík, sími 16420. FÍKNIEFNI - Lögreglan í Reykjavík, mót- taka upplýsinga, sími 14377 Til London með SUF Þann 2. nóvember efnir SUF til vikuferðar til London. Dvalið verður á London Metopole Hotel í 7 nætur. Innifalið í verði: Flug frá Keflavík til London og til baka aftur. Gisting á framangreindu hóteli ásamt continental morgunverði. Akstur frá flugvelli að hóteli og til baka aftur þann 9. nóvember. Verð: 11.980. Greiðsluskilmálar. Það er ferðaskrifstofan Samvinnuferðir/Landsýn sem annast ferðina og eru væntanlegir þátttakendur beðnir um að panta far sem fyrst. Síminn hjá Samvinnuferðum/Landsýn í Reykjavík er 27077 og 28899. Umboðsmenn eru líka víða utan Reykjavíkur. Þátttaka i ferðinni er ekki bundin við þá sem eru flokksmenn og allir aldurshópar eru hjartanlega velkomnnir. SUF Þing Landssambands framsóknarkvenna verður haldið á Hótel Húsavík síðustu helgina í október. Allar konur sem áhuga hafa á stefnu og starfi Framsóknarflokksins eru velkomnar. Beint flug verður til Húsavíkur frá Reykjavík, ísafirði og Egilsstöðum. Þingið hefst föstudagskvöld 28. okt. og stendur fram á sunnudaginn 30. okt. Rætt verður um stjórnmálaástandið, störf og stöðu Framsóknarflokks- ins, konur og stjórnmál, aðstöðu framsóknarkvenna til aukinnar stjórnmálaþátttöku, friðarmál, launamál kvenna, fjölskyldupólitík og stefnuskrá Framsóknarflokksins. Gestur þingsins verður Eysteinn Jónsson fyrrverandi ráðherra. Tilkynniö þátttöku sem allra fyrst. Allar nánari uþplkýsingar hjá Ingu Þyri Kjartansdóttur á skrifstofu Framsóknarflokksins sími 91-24480. Stjórnin. Sauðárkróksbúar Skagfirðingar Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra verður á almennum stjórn- málafundi í Framsóknarhúsinu Suðurgötu 3 Sauðárkróki fimmtudag- kl. 20.30. Allir velkomnir. Framsóknarfélögin. Húnvetningar Sameiginlegur haustfagnaður framsóknarmanna í Húnavatnssýslu verður haldinn í Félagsheimilinu á Hvammstanga föstudaginn 14. okt. kl. 21. Dagskrá: Kaffiveitingar Ávörp: Halldór Ásgrímsson og Arnþrúður Karlsdóttir, Jóhann Már Jóhannsson syngur við undirleik Guðjóns Pálssonar. Jóhannes Kristjánsson hermir eftir hinum og þessum en þó aðallega þessum. Hljómsveit Geirmundar leikur fyrir dansi. sætaferðir frá Skagaströnd og Biönduósi. Framsóknarfélag V.-Hún. Framsóknarfélag A.-Hún. FUF A-Hún og framsóknarfélag Blönduós. Viðtalstímar Borgarfulltrúar og varafulltrúar Framsóknarflokksins í Reykjavík verða til viðtals næstu laugardaga að Rauðarárstig 18 kl. 10.30-12. N.k. laugardag 15. okt. munu Gerður Steinþórsdóttir og Sigrún Magnúsdóttir verða til viðtals. Geröur á sæti í fræðsluráði og félagsmálaráði. Sigrún í stjórn Innkauþastofnunar Reykjavíkurborgar. Félag framsóknarkvenna í Reykjavík heldur fund um fræðslumál á Hótel Heklu mánudaginn 17. okt. kl. 20.30. Dagskrá: Hvað er að gerast í fræðslumálum? Áslaug Brynjólfsdóttir fræðslustjóri. Stiklað á sögu menntamála og stefnu Framsóknarflokksins: Ingvar Gislason alþingismaður. Fundarstjóri verður Gerður Steinþórsdóttir. Kaffiveitingar. Stjórnin. Kópavogur Framsóknarfélögin í Kópavogi halda fund að Hamraborg 5, miðvik- udaginn 17. október kl. 20.30. Fundarefni: Bæjarmálin. Stjórnir félaganna. Kópavogur Aðalfundur Freyju félags framsóknarkvenna verður haldinn 18. okt. kl. 20.40 í Hamraborg 5, 3. hæð. Dagskrá: 1. Hefðbundin aðalfundarstörf. 2. Hópumræður um vetrarstarfið. 3. Sólveig Runólfsdóttir segir frá aðalfundi Kvenfélagasambands íslands. 4. Katrín Oddsdóttirsegirfrá orlofsdvöl húsmæðra að Laugarvatni. 5. Önnur mál. Stjórnin. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi Karl E. Norðdahl böndi á Hólmi verður jarösunginn frá Fríkirkjunni föstudaginn 14. okt. kl. 10.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagiö. Salbjörg G. Norðdahl, börn, tengdabörn og barnabörn. Móðir okkar Katrín Jónasdóttir frá Núpi í Fljótshlíð verður jarðsungin frá Breiðabólstaðarkirkju laugardaginn 15. okt. kl. 14. Börnin. Eiginkona mín Jónína S. Ásbjörnsdóttir Holtagerði 6, Kópavogi verður jarðsungin frá Kópavogskirkju föstudaginn 14. október kl. 3.00 e.h. fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna Magnús Loftsson Alúðarþakkir til allra þeirra sem vottuðu okkur samúð við fráfall og jarðarför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa Friðriks Ólafssonar Dalbraut 10 Bíldudal / Sérstakar þakkir til sóknarprests og alls starfsfólks á Vífilsstaðaspítala fyrir frábæra umönnun og viðmót allt. Gíslína Guðmundsdóttir börn, tengdabörn og barnabörn

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.