Tíminn - 13.10.1983, Page 8

Tíminn - 13.10.1983, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1983 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Gisli Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason. Skrifstofustjóri: Ragnar Snorri Magnússon. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elías Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrimsson. Umsjónarmaður Helgar-Tfmans: Atli Magnússon. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Baldur Kristjánsson, Friðrik Indriðason, Guðmundur Sv . Hermannsson, Heiður Helgadóttir, Jón Guðni Kristjánsson, Jón Ólafsson, Kristin Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (íþróttir), Skafti Jónsson, Sonja Jónsdóttir, Þorvaldur Bragason. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnssson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Kristín Þorbjarnardóttir, Sigurður Jónsson. Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar: Síðumúla 15, Reykjavík. Sími: 86300. Augiýsingasími 18300. Kvöldsimar: 86387 og 86306. Verð i lausasölu 20.00, en 22.00 um helgar. Áskrift á mánuði kr. 250.00. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent hf. Aflatregda og samdráttur ■ Samdráttur og aðhald er einkenni þess fjárlagafrumvarps sem nú hefur verið lagt fram. Það efast enginn um að það er réttmæt stefna og nauðsynleg að draga úr ríkisútgjöldum enda þjóðarbúið þannig leikið, að ekki kemur annað til greina en að viðurkenna staðreyndir og haga búskapnum samkvæmt þeim. Það sem menn greinir á um er hvar skorið er niður og hvaða liðir eiga að hljóta forgang. En hvernig svo sem að er staðið hljóta skoðanir ávallt að vera skiptar um hvar eigi að spara og í hvað eigi að eyða. Sama daginn og fjárlagafrumvarpið var lagt fram birti Fiskifélag íslands bráðabirgðatölur um aflabrögð á þessu ári. Þar er sannarlega svört skýrsla á ferðinni og sýnir sig að afli fer enn minnkandi og tekjur þjóðarbúsins að sama skapi. í fyrra varð alvarlegur aflabrestur, sem kom fram í ört minnkandi þjóðartekjum og taprekstri útgerðar. Þessu var mætt með erlendum lántökum og öll áhersla lögð á að halda fullri atvinnu og kaupmætti. Þetta gat ekki gengið til lengdar og skömmu eftir að núverandi stjórn var mynduð var höggvið á hnútinn og bráðabirgðalög sett um efnahagsaðgerðir með þeim árangri að falskur kaupmáttur magnaði ekki lengur óðaverðbólguna sem var á góðri leið með að leggja efnahagslífið í rúst. Dæminu var snúið við með þeim árangri að verðbólgufjandinn er á hröðu undanhaldi og vonandi tekst áður en langt um líður að koma á hann þeim böndum er duga. Þegar nú enn kemur í ljós að aflabrögð fara þverrandi og það svo um munar, liggur í augum uppi að rétt var að farið í vor og hvert stefndi ef látið hefði verið reka á reiðanum. Eins og horfir stefnir í það að þorskafli verði um 100 þúsund lestum minni á þessu ári en því síðasta og 50 þúsund lestum minni en áætlað er að leyfa að veiða. Þetta eru ógnvænlegar tölur því hér er um að ræða þriðjungs minnkun á þorskafla. Að vísu hefur afli annarra tegunda ekki minnkað að sama skapi, en sá fiskur er mun verðminni en þorskurinn og fæst minna fyrir hann bæði fyrir útgerðina og til útflutnings. í fyrra minnkaði þorskafli talsvert frá árinu 1981, en enn meira munaði um að í fyrra var ekki leyft að veiða loðnu og skerti það tekjur útgerðar og þjóðabúsins yfirleitt verulega. Enn er allt á huldu um hvort nokkur loðnuveiði verður í vetur svo að þar er hvorki sýnd veiði né gefin. Um þessar nýju aflatölur sagði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra í Tímanum í gær: „Þetta eru mjög alvarlegar fréttir, og ef svo heldur áfram eins og nú er, þá er ljóst að grundvöllur áætlunar fyrir næsta ár kann að raskast og það mjög alvarlega. Þetta sýnir okkur náttúrlega fyrst og fremst hvað við erum í stóralvarlegri stöðu til þess að spenna upp kostnað innanlands, hvort sem er um laun eða annað að ræða. í þjóðhagsáætlun er gert ráð fyrir 300 til 320 þúsund tonnum af þorski á næsta ári og vil ég ekki gera því skóna að hann verði lægri en það. Ég hygg að ef þorskaflinn verður um 50 þúsund tonnum minni en gert er ráð fyrir, þá jafngildl það um 2% þjóðarframleiðslu, sem myndi aftur samsvara um' 6% samdrætti gjaldeyristekna.“ Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra sagði um afla- brestinn: „Það kemur alltaf betur og betur í ljós að við vorum komin fram á hengiflug, og þau skilyrði sem við höfum núna í sjávarútvegi eru mjög erfið. Eg hef auðvitað miklar áhyggjur af því hvernig flotinn kemst af, miðað við þann afla sem nú er, en því miður eru ekki til neinar einfaldar lausnir á því.“ Sá vandi sem af aflarýrnuninni stafar er margþættur. Sjávarútvegurinn er illa farinn vegna aflatregðu og fjármagns- og olíukostnaðar og enn hallar undan fæti. Kjör sjómanna versna og fiskvinnslan og þeir sem við hana vinna missa tekjur. Gjaldeyristekjur minnka og þjóðarframleiðsla dregst saman. Það er rétt hjá sjávarútvegsráðherra að við þessu eru ekki til nein einföld ráð. En fólki ber að gjalda varhug við því lýðskrumi að kjörin hafi verið skert að ósekju og að það sé sjálfsagt og einfalt mál að krefjast nú hærri launa og framlaga til þessa og hins. Eina tryggingin fyrir raunverulegum og bættum lífskjörum er aukin framleiðsla og meiri þjóðartekjur, en óvilhöll skýrsla Fiskifélagsins sýnir því miður að enn minna verður til skiptanna en vonir stóðu til. OO Rósrauð óskaský ■ Björgvin Jónsson útgerð- armaður flutti yfirlit um vanda skreiðarverkenda á fundi þeirra fyrir skömmu. Hann taldi að sölumenn skreiðar í útlöndum geri of lítið úr vandanum og gefi vanhugsaðar og fljót- færnislegar yfirlýsingar um málin. Meðal þess sem Björgvin hafði fram að færa var eftirfarandi: „Þegar er séð, hvernig sem til tekst, að birgðahaldið verður sennilega nær tveimur árum en einu, og að tjón framleiðenda er þegar orðið svo stórkostlegt, að það er á einskis færi að bæta það. Mér er sagt að til sé skýrsla hjá íslenskum stjórnvöldum frá ábyrgum aðilum um að ávöxtun fjármagns í skreið nálgist ávöxtun í spariskír- teinum og að í þeirri skýrslu sé meðal annars byggð til hneiging stjórnvalda til að kroppa í skreiðina. Sé þetta rétt, held ég að stjórnvöld ættu að láta athuga hvort ekki er víðar pottur brotinn í þeim áætlunum, sem eftir er unnið. Þessi fundur er haldinn til að reyna að bjarga í horn því sem bjargaðverður í málinu. Við framleiðendur förum fram á vinsamlegt samstarf við ríkisstjórn og banka til að reyna að koma í veg fyrir að tugir fyrirtækja í fiskvinnslu komist í algjör þrot. Þrot, sem tafarlaust leiða til at- vinnuleysis þúsunda verka- fólks. Árangri náum við ekki nema við sýnum órofa sam- stöðu og leggjum af allar ótímabærar yfirlýsingar um að málin séu að leysast af sjálfu sér. Snúum okkur held- ur á skipulegan hátt að lausn vandans. Ef við gerðum þetta ekki, þá tekur ekki nein 7-10 ár að þjóðnýta íslenskan fiskiðnað og útgerð, eins og Ólafur vinur minn Gunnarsson, Kristján Ragnarsson og stjórn LÍÚ telja, heldur ger- ist það að mestu þegar á næsta ári. Ég dreg mjög í efa að ríkisstjórnin okkarhafi heim- ild þjóðarinnar til þess. Vandamál skreiðarvinnsl- unnar hafa hingað til verið umfjölluð eins og allt of al- gengt er að fjalla um at- vinnumál og fjármál á þessu landi. Öll umfjöllunin er uppi í einhverjum rósrauðum óska- skýjum. Nú ríða hetjur um héruð til þess að sýna landslýð fram á hvað núverandi ríkisstjórn sé vond hinum vinnandi manni. Flest orkar tvímælis sem gert er. Hitt er staðreynd, að neyðarhemlarnir í fjármálum voru settir á á síðustu stundu. Ef þeir hefðu ekki verið settir á, væri engin atvinna á íslandi í dag, nema hjá starfs- mönnum uppboðs- og skipta- réttar. Um aðferðina við hemlun- ina geta menn svo deilt. Stærsti skreiðar- markaður í heiminum Skreiðarbirgðir í landinu í dag eru nær eingöngu Níger- íuskreið. Hvað er Nígería? Nígería er talin frá náttúr- unnar hálfu auðugasta ríki Afírku og er þá Suður-Afrika meðtalin. Nígería er fjórða stærsta lýðræðisland heims með yfir 100 milljónir íbúa. Nígería er eitt af 10 mestu olíuframleiðsluríkjum heims. Talið er að landgæði séu svo mikil að landið geti j brauðfætt alla Afríku. Nígería er árum saman fjórða mesta viðskiptaland íslands. í Nígeríu er stærsti skreið- armarkaður heims og þegar allt er eðlilegt er neysla nær 1 milljón pakka af skreið á ári. Vegna efnasamsetningar er skreiðin íbúunum lífs- nauðsyn. Vaxtarverkir sjálfstjórnar, eftir langt nýlendutímabil, ásamt þeirri efnahagskreppu, sem riðið hefur yfir heiminn á síðustu árum, hafa orðið Nígeríu erfiðir. Erlendar lausaskuldir eru miklar og heildarskuldir þjóðarinnar litlar. Framkvæmdagleði, byggð á framreikningi reikni- meistara hefir orðið þjóðinni þung í skauti. Við þurfum í raun ekki til Nígeríu til að finna sambærileg dæmi. Hver eru samskipti okkar við þetta þýðíngarmikla land? Sendiherra okkar í Nígeríu býr í London. Sérstakur full- trúi fyrir Nígeríuviðskipti er staðsettur þar. Báðir þessir menn hafa unnið mjög gott starf. Bein bankaviðskipti við þetta þýðingarmikla við- skiptaland eru lítil. Islenskir ráðherrar hafa aldrei komið til Nígeríu. Hér er brotalöm, sem verður að bæta. Ég er nú búinn að vera í atvinnurekstri í áratugi. í | gegnum þetta langa tímabil þekki ég nokkuð til í kerfinu, bæði hérlendis og nokkuð erlendis. Ég fullyrði að stjórnendur íslenska bankakerfisins standa í engu að baki því sem best gerist erlendis. Níger- íumálið hefur hins vegar lent á milli stafs og hurðar. Á þessu verður að ráða tafar- lausa bót. Ég þekki líka nokkuð til í viðskiptaráðuneytinu. Ráðu- neytisstjórinn þar hefur víð- tækari þekkingu í utanrík- isviðskiptum en flestir em- bættismenn, hvar sem leitað er. Ráðherrar viðskipta- og sjávarútvegsmála, sem þessi vandi brennur nú heitast á, ef frá eru taldir framleiðendur, eru aðeins búnir að sitja í stólum sínum í rúma fjóra mánuði. Báðir eru þetta dugnaðar- forkar, sem hafa þann höfuð- . kost, að þeir standa nær út- gerð og fiskvinnslu en sam- bærilegir ráðherrar hafa gert um árabil. Ríkisstjórn og bankakerfi verða að taka upp eðlilegt samband við þetta þýðingar- mikla viðskiptaland. Jafn- framt verða þessir aðilar að taka höndum saman við söluaðila skreiðar um að koma skreiðinni til Nígeríu, þó að lána þurfi hana með vöxtum eitthvert tímabil. Verði þetta gert, á ég von á því, að verulegur hluti vand- ans sé leysanlegur á næstu 12-18 mánuðum. Vitleysan í Reykjavík Dagur á Akureyri er ómyrkur í máli um verslunar- 1 vitleysuna í Reykjavík og segir um hana: „Að margra mati er eitt höfuðvandamál íslensks efnahagslífs offjárfesting. Fyrst og fremst hefur spjót- um verið beint gegn offjár- festingu í sjávarútvegi - of mörgum skuttogurum og fleiru í þeim dúr. Ekki skal dregið úr því að miðað við ástand fiskistofna eru fiski- skip hér við land of mörg. Sækja mætti sama aflamagn með miklu færri skipum. Ef önnur viðmiðun er hins vegar notuð, þ.e. heppileg dreifing flotans um landið og nýting starfskrafta og tækja í fisk- vinnsluverum út um allt land, lítur dæmið nokkuð öðruvísi út. Ef fækka á skipum án þess að komi verulega niður á einstökum sjávarplássum verður að koma til samnýting aflans úr skipunum. Sam- vinna kann að vera lausnar- orðið á þessum vanda, eins og á svo mörgum öðrum sviðum. En það hefur víðar verið offjárfest en í fiskiskipum. Þau eru forvitnileg ummælin scm Þjóðviljinn hefur eftir formanni Kaupmannasam- takanna, Sigurði E. Haralds- syni, en hann segir m.a. um fjárfestinguna í verslunar- húsnæði á höfðuborgarsvæð- inu: „Ég er hræddur um að það stefni í algjört óefni með svo mikilli fjárfestingu í verslun... Þáð er engan veg- inn grundvöliur fyrir svona stóru verslunarkerfi hér... Ástandið hér er tvímælalaust komið út í eitthvert vitleys- iskapphlaup. Hérvirðastallir ætla að gera allt í einu. Það er ekki hægt að sjá að nokkur skipuleg stjórnun sé á þessum málum... Ef þetta nær allt að ganga fram þá er ekki annað framundan en skrapdaga- kerfi í verslun líkt og í sjávarútvegi," sagði formað- ur Kaupmannasamtakanna meðal annars. Það hefur stundum verið minnst á það hér í þessu blaði að fjárfestingar í þjónustu- greinum á höfðuborgarsvæð- inu væru með eindæmum. Þó að formaður Kaupmanna- samtakanna sé að nokkru j leyti að vekja athygli á þessu ástandi með hagsmuni |smærri kaupmanna í huga, þá hljóta ummæli hans að Ivega nokkuð þungt. Það sem hann bendir á er að innan skamms verði á stuttum tíma búið að opna stórmarkaði á höfuðborgarsvæðinu sem samkvæmt öllum venjulegum stöðlum ættu að nægja öllum íslendingum. Fermetrar í verslun á hvern íbúa Reykja- víkur eru nú nær tvöfalt fieiri en á hvern íbúa í borg af svipaðri stærð og Reykjavík. íhaldsblöðin sem hvað mest hafa andskotast út í landbúnað og sjávarútveg og offjárfestingu á fiskiskipum út um landið mættu gjarnan taka á þessu máli.“

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.