Tíminn - 26.10.1983, Side 1

Tíminn - 26.10.1983, Side 1
ísleridingaþættir fylgja blaðinu í dag FJÖLBREYTTARA OG BETRA BLAÐ! Miðvikudagur 26. október 1983 248. tölublað - 67. árgangur Sidumúla 15—Pósthólf 370Reykjavik—RitstiorTn86300—Auglysingar 18300— Afgreiðslia og askrift 86300 - Kvoldsimar 86387 og 86306 Hugsanlegt að tugmilljónatjón hafi orðið á sýruverksmiðju Áburðarverksmiðjunnar: KOMST ,$YRA INN A VÉIARN- AR ER ORYGGISLOKI GAF SIG? „Viðteljum aðfranskafyrirtækið sé ábyrgtf%segir einn stjórnarmanna verksmiðjunnar ■ Hugsanlegt er að um tugmill j(- ónatjón sé að ræða í Áburðar- verksmiðjunni í Gufunesi, en eins og Tíminn hefur skýrt frá, þá bilaði þar fyrir viku síðan nýleg sýruverksmiðja er rafmagn fór af verksmiðjunni og hún stöðvaðist. Strax við gangsetningu verk- smiðjunnar í vor komu fram gallar í svipuðum aðstæðum og þarna voru fyrir hendi. Þá voru úrbætur gerðar og settur sjálf- virkur loki sem átti að koma í veg fyrir að sýra rynni inn á : vélarnar, ef rafmagnsbilun yrði og verksmiðjan stöðvaðist. Sam- I kvæmt heimildum Tímans er tal- | ið líklegt að þessi öryggisloki hafi bilað og sýra farið inn á vélarnar og étið upp málminn í vélunum. Þetta er þó ekki fullkannað j ennþá og enn síður vita menn hversu útbreidd skemmdin er. Ef hún er útbreidd getur verið ' þarna um tugmilljóna króna tjón að ræða þar sem verksmiðjan í heild sinni kostar nú vel yfir 200 ! milljónir íslenskra króna. „Við teljum að franska fyrir- tækið sé ábyrgt", sagði Gunnar Guðbjartsson, einn stjórnar- manna í verksmiðjunni í samtali! við Tímann, „þar sem ábyrgðar- tíma er ekki lokið, en oft getur verið erfitt að framfylgja slíkri ábyrgð. Þeir geta kannski fundið upp á því að kenna gæslu um eða einhverju sem er þeim óviðkom- andi“. i Fyrir helgi komu hingað sér-| fræðingar frá frönsku verksmiðj- j unni og í gær bættist einn í hópinn, þannig að málið er greinilega vandasamt. Fram- leiðsla Áburðarverksmiðjunnar stöðvaðist í 4 daga. Þá tókst að koma gömlu sýruverksmiðjunni í gang, en hún afkastar aðeins helmingi á við þá biluðu. BK ■ Fulltrúar verkalýðshreyfing-' arinnar gengu í eftirmiðdaginn af samráðsfundi þeim sem for- sætisráðherra hafði boðað til með j þeim, atvinnurekendum og efna- hagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar og sérfræðingi Þjóðhagsstofnun- ar, eftir að þjóðhagsáætlun hafði verið kynnt og forsætisráðherra hafði svarað einni fyrirspurn Ás- mundar Stefánssonar, forseta ASÍ. Tíminn spurði Steingrím Her- mannsson forsætisráðherra álits á þessum atburði í gær: „Það var nú búið að segja okkur það fyrir fundinn, að fulltrúar launþega hefðu boðað til blaðamanna- fundar kl. 18, þannig að ljóst var að það var nokkuð sama hvað við hefðum sagt eða gert. Full- trúar launþega hefðu hvort sem. er gengið af fundi.“ Steingrímur sagði að þjóð- hagsáætlun hefði verið skýrð í upphafi fundarins, og þegar al- mennar umræður hefðu hafist, þá hefði Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍjkrafist svars við þeirri spurningu hvort ríkisstjórnin væri reiðubúin til þess að fella niður ákvæðið um bann á samninga fram til 31. janúar, og sagðist forsætisráðherra hafa svarað þeirri spurningu á sama máta og hann hefði gert í þing- ræðu í fyrradag, en þar sagðist hann telja sjálfsagt að þingið skoðaði þann möguleika, og að ríkisstjórnin legði áherslu á meg- inmarkmiðið, að koma verð- bólgunni niður í 30%. Ef það væri tryggt, þá teldi ríkisstjómin vel koma til greina athugun á breytingu sem þessa á lögunum. „Ég tel því að ég hafi verið mjög jákvæður í þessu svari mínu,“ sagði forsætisráðherra, „en það dugði ekki til, enda búið að boða blaðamannafundinn." Ásmundur tilkynnti, eftir að forsætisráðherra hafði svarað fyrirspurn hans, að hann teldi þetta ófullnægjandi svör og gekk út og aðrir fulltrúar launþega í kjölfar hans. Eftir sátu fulltrúar vinnuveitenda, Vinnumálasam- bands samvinnufélaganna og fulltrúar bænda. „Ég verð að segja það,“ sagði forsætisráðherra, „að ég harma þetta, þvf ef mönnunum er al- ■ í upphafi fundar áður en fulltrúar stéttarfélaganna gengu út. Ásmundur Stefánsson gengur af samráðsfundinum. Tímamyndir Árni Sæberg Fulltrúar launþega gengu út af samráds- fundi rlkisstjóm* arinnar: „LfT A ÞENNAN AIBURÐ SEM ÁKVEBINN ÞATTISÝNINGU” — segir Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra vara um að ná samningum sem fyrst, þá veitir ekkert af að hefja viðræður. Það er ekkert sem bannar það að viðræður séu hafnar,' enda hef ég og reyndar: fleiri ráðherrar lagt áherslu á að þær þyrftu að byrja. f öðru lagi þá hefur ríkisstjórnin tekið mjög jákvætt í tillögur ASÍ og BSRB, og óskað eftir því hvað eftir annað að fá frá þeim tillögur um það hvemig viðræður um fjár- festingarmál, opinbera geirann og fleira gæti best farið fram, en við höfum engar ábendingar fengið um það“. Forsætisráðherra sagði jafnframt: „Ég lít á þennan at- burð sem ákveðinn þátt í sýningu og vona að þegar sýningunni er lokið, þá átti menn sig á því að það er alltaf réttast að ræðast við og reyna að leysa málin með samkomulagi." Sjá nánar bls. 3

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.