Tíminn - 26.10.1983, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTOBER 1983
17
■ Álgengt og vel þekkt er að mynda
einhvers konar rnyndir úr smjörinu á meðan
það er hæfdega lint og láta það kólna þannig.
■ Sinnepssmjör
■ Hvítlaukssmjör - grænt smjör - tómata-paprikusmjör ■ Tóinatasmjör
Smjör með tilbrigðum
■ Smjör er á borðum flestra íslendinga á
degi hverjum. Oftast látum við okkur nægja
að smyrja því á brauðið eins og það kemur
fyrir úr pakkanum, cða við höfum svo mikið
við að setja það í skál fyrst. En það má bera
smjör fram á ýmsa vegu, bæði hreint og eitt
sér og blandað ýmsum kryddtegundum, á
þann hátt, að það kitli bragðlaukana og ýti
undir aukna neyslu þess. Hér á eftir fara
nokkrar hugmyndir um, hvernig mögulegt
er að hafa tilbreytingu hvernig smjör er
borið fram.
Hvítlaukssmjör
Hrærið 125 g af smjöri þar til freyðir.
Hrærið út í 1 flysjað og pressað hvílauks-
rif, 1 tsk. sítrónusafa og 14 tsk. Ijósan
pipar. Myndið úr þessu hleif og vefjið
álpappír utan um. Stingið inn í ísskáp, þar
til það er orðið hart.
Grænt smjör
Hrærið 125 g af smjöri þar til frcyðir. 2
msk. spínatsafi, 1 tsk. sellerísalt, Ijós
pipar á hnífsoddi og múskat á mílli
fingurgóma hrært út í. Setjið í rjóma-
sprautu og sprautið á álpappír í fallégt
mynstur. Vefjið álpappírnum laust utan
um og látið harðna í ísskápnum. Fallegt og
gott er að strá hakkaðri steinsclju yfir.
Tómata — papriku smjör
125 g af smjöri hrært þar til frcyöir.
Smám saman er bætt út ítsk. strásykri,
lítilli dós tómatkrafti, 'A tsk. salt,
cayennepipar og paprika á hnífsoddi og
hrært vel. Smyrjið á álpappír í 2 cm þykkt
lag. Pakkið inn í álpappírinn og setjið inn
í ísskáp. þar til orðið er hart. Skeriö niður
í sneiðar og veltið upp úr paprikudufti.
Sinnepssmjör
50 g mjúkt smjörer hrært. Út í það eru
sett 30 g sinnep, salt og sykur á milli
fingurgóma. Hrært vel. Setjiö í litla skál.
breiðiö yfir og stjngið inn í ísskáp.
Smjörkúlurnar. sem myndin sýnir, eru
lagaðar til milli tveggja tréspaða, þegar
smjörið er orðið kalt.
Tómatasmjör
50 g mjúkt smjör hrært vel saman við
40 g tómatkraft, salt á milli fingurgóma og
annað eins af sykri. Gaman er að setja
þessa hræru í rjómasprautu og gera
fallegar skreytingar á álpappír. Pakkið
laust inn í álpappírinn og látið kólna í
ísskápnum. Þetta tekur sig mjög vel út á
soðnum hrísgrjónum, steikum, kótelett-
um og steiktum fiski.
Rúðótt golftreyja
Stærð: 36 (40)
Brjóstvídd: 98 (104) cm
Sídd: 58 (60) cm
Efni: 11 (12) hnoturgarn. Hringprjónar
nr. 4'A. 6 smelluhnappar. 2 axlapúðar.
Munstur: rúður
1. prjónn (frá réttunni): 18 (19) lykkjur
brugðnar x 16 (17) lykkjur réttar, 16(17)
l.br. Endurtakið frá x fjórum sinnum
enn og endið með 18 (19) l.r.
Prjónið alls 21 (22) prjóna með sl. yfir
sl. og br. yfir br.
Á næsta prjóni breytið þið rúðunum
þannig, að br. er prjónað yfir sl. og sl.
yfirbr. Þannig prjónið þið 21 (22) prjóna
beint áfram.
Endurtakið þessar tvær munsturraðir
með 21 (22) prjóna í hverri rúðu.
Prjónafesta: 20 1. og 25 prjónar rúða =
10 x 10 cm.
Ef prjónafestan passar ekki, verður
að reyna fínni eða grófari prjóna.
Bak- og frantstykki: Prjónið á hring-
prjón fram og aftur til að komast hjá
hliðarsaumum. Fitjið upp 206 (218) 1. á
hringprjón nr. 4'A og prjónið fram og
aftur - fyrstu og síðustu 5 1. eru prjónað-
ar slétt, en þær mynda fald á framkönt-
unum. Hinar lykkjurnar eru prjónaðar í
garðaprjóni fyrstu 2 cm. en síðan er farið
yfir í rúðumynstrið, eins og lýst er hér
að ofan.
Þegar stykkið er orðið 35 (36) cm, eru
gerðar úrtökur fyrir handvegum og hver
hluti prjónaður sér. Setjið fyrstu og
síðustu 55 (58) lykkjurnar á þráð fyrir
boðungana og prjónið bakstykkið fyrst.
Bakstykkið: Haldið áfram að prjóna
rúðumynstrið á 96 (102) lykkjurnar í
miðjunni og fellið af fyrir handvegi
báðum megin 3-2-1-1-1 l.= 80 (86) 1.
Prjónið nú beint áfram þar til hand-
vegurinn erorðinn 21 (22) cm. Fellið þá
af 22 (26) 1. í miðjunni fyrir hálsmál og
prjónið hvorn hluta síðan fyrirsig. Fellið
af við hálsmálið 3-21. Fellið nú af 24 (25)
1., sem eftir eru fyrir axlir.
Hægra framstykki: Haldið át'ram að
prjóna mynstur þær 55 (58) 1., sem eru
hægra megin við bakstykkið og fellið af
í handvegi vinstra megin á stykkinu eins
og bakstykkinu = 47 (50) 1.
Þegar handvegurinn mælist 16 (17) cm
er fellt af fyrir hálsmálinu frá fremri brún
stykkisins, fyrst 13 (15) 1., síðan 3-2-2-1-
Rúðótt peysa
1-1-1. Fellið afsíðustu 24 (25)
hæð og á bakstykkinu.
Vinstra framstykki: Prjónið eins og
hægra framstykki, öfugt.
Ermar: Fitjið upp 64 (68) 1, og prjónið 2
cm garðaprjón. Skiptið nú yfir í rúðu-
mynstur með til skiptis 16 (17) 1, sl., .16
(17) 1, br. skiptið um rúður eftir 21 (22)
prjóna eins og á bak- og framstykkjun-
um.
Aukið 11., hvorum megin með tveggja
sentímetra millibili, alls 14 sinnum = 92
(96) I., - nýju lykkjurnar eru líka
prjónaðar í mynstri.
Þegar stykkið er orðið 31 cm á lengd,
er tekið úr fyrir öxlinni báðum megin á
eftirfarandi hátt: 4-4-3-2-2-2-2-2-2-3-3-4-
5 I.
Fellið af lykkjurnar 16 (20), sem eftir
eru.
Frágangur ug hálsmál: Saumiö axla-
saumana, Faldið framkantana.
Hálsmál. Veiðið upp 84 (90) I. meöfram
hálsmálinu og núið réttunni á.peysunni
upp. Prjóniðgarðaprjón í-2cm. Felliðaf.
Saumið saman ermasaumana. Saumið
ermarnar í.
Smejjjð 6 smelluhnappa á framkant-
ana méð jöfnu millibili.
Saumið axlapúðana í.