Tíminn - 26.10.1983, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1983
22
kvikmyndir
Dauðagildra
LÍFSHÁSKI (DEATHTRAP). Leik-
stjóri: Sidney Lumet. Handrit: Jay
Presson Allen eftir lcikriti Ira Levin.
Aðalhlutverk: Michael Caine, Christ-
opher Reeve, Dyan Cannon. Sýning-
arstaður: Austurbæjarbíó.
■ Leikritið „Deathtrap" eða
„Dauðagildran" eftir Ira Levin, sem
annars er þekktastur fyrir handritið að
hrollvekjunni „Rosemary’s Baby“,
hefur gengið árum saman í leikhúsum
í London og New York, enda mjög
haganlega gert sviðsverk þar sem bæði
er lögð áhersla á spennandi atburðarás
og fyndin uppátæki.
Sidney Lumet, sem hefur oft áður
kvikmyndað verk sem samin cru fyrir
leiksvið, fer hér ósköp hefðbundnar
leiðir. Kvikmyndin ber því alltaf sterk
einkenni þess að um kvikmyndað
leikrit er að ræða en ekki frumsamið
myndverk.
Þeir, sem hafa séð „Lífsháska" á
sviði - og þeir eru vafalaust margir,
því verkið hefur verið fært upp hér á
landi - geta notið þfess að sjá afbragðs-
leikara í helstu hlutverkum - Michael
Caine sem leikritahöfundinn Sidney
Bruhl, Christopher Reeve sem ungan
lærisvein hans og Dyan Cannon sem
eiginkonu Bruhls. Caine og Reeve
setja á svið ógnvænlega atburði, sem
eiga að hræða hjartveika ejginkonu
Bruhls svo mjög að hún fái hjartaslag,
og þeim verður að ósk sinni. En þá
eiga þeir enn óleyst vandamál: sem sé
hvorn annan, og er óþarfi að upplýsa
hér hvernig sú viðureign endar.
Það var út af fyrir sig ánægjulegt að
endurnýja kynni af „Deathtrap", en
myndræn útfærsla eða kyikmyndalegt
gildi fer fyrir lítið, þar sem leikstjórinn
er alltof fastur í formi sviðsverksins.
Það hlýtur alltaf að valda vonbrigðum,
að sjá kvikmynd, sem er svo rígbundin
allt öðrum miðli.
-ESJ
■ Michael Caine tekur Christopher
Reeve ómjókum tökum.
VIÐGERÐIR
á öllum smá rafstöðvum og
rafmótorum
Einnig litlum bensín- og
dieselmótorum.
Getum bætt við okkur viðgerðaþjón-
ustu fyrir innflutningsfyrirtæki.
R/VÉLINS.F.
^ Súðarvogi 18 (Kænuvogsmegin)
sími 85128.
Allskonar
smáprentun
Umslög - Bréfsefni - Reikninga -
Frumbækur - Vinnulista - Kort.
Hverskonar eyðublöð önnur í einum eða
fleiri litum - allar tegundir af pappír og umslögum.
Sjálfkalkerandi pappír - Rúðustrikaðar blokkir A-4
og A-5 á lager, einnig með sérprentuðu firmamerki
ef óskað er. Sjáum einnig um hönnun á nýjum
eyðublöðum o.þ.h. Hringið og við veitum
allar upplýsingar eða komum til yðar.
BOLHOLTI 6 REYKJAVIK
SIMI 82143
Ferða stereotæki á kostaverði
með kostakjörum
.
i
%■ # #
r 1
- Éaiif
©AUTO R€V6RSe
RT-150S
Stereo kasettuferðaútvarp
Með: FM-, mið-, stutt- og langbylgju.
Hringspólun á kasettu (Auto reverse)
Verð kr. 8.775.-
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTADASTRÆTI I0A - SlMI 16995
Sfmi 44566
RAFLAGNIR
Kvikmyndir
SALUR 1
Frumsýnir
grínmyndina
Herra mamma
(Hr.Mom)
Splunnuný og jafnframt traDær
grínmynd sem er ein aðsóknar-
mesta myndin í Bandarikjunum
þetta árið. Mr. Mom er talin vera
grinmynd ársins 1983. Jack missir
vinnuna og verður að taka að sér
heimilisstórfin, sem er ekki beint
við hans hæfi, en á skoplegan hátt
kraflar hann sig tram úr þvi.
Aðalhlutverk: Michael Keaton,
Teri Garr, Martin Hull, Ann Jillian
Leikstjóri: Stan Dragoti
Sýnd kl 5,7,9 og 11
SALUR2
í Heljargreipum
(Split Image)
Ted Kotcheff (Rrst Blood) hefur
hér tekist aftur að gera frábæra
mynd. Fyrir Dany var þar ekkert
mál að fara til Hometartd, en ferð
hans átti eftir að hafa alvartegar
afieiðingar í för með sér. Ert.
Biaðaskhf: Meö svona samstöðu
eru góðar myndir gerðar. Variety
Split Image er þrumusterk mynd.
Hollywood Reporter.
Aðalhlutverk: Michael 0‘Keefe,
Karen Allen, Peter Fonda, Jam-
es Wood^Brian Dennehy
Leikstjóri: Ted Kotcheff
Bönnuð bðmum Innan 12 ára
Svndkl. 5,7,9.og 11.05
SALUR3
Flóttinn
(Pursuit)
Spennandi og bráðsmellin mynd
um djarfan tlugræningja sem
framkvæmir ránið al mikilli útsjón-
arsemi, enda fyrrverandi hermaður
í úrvalssveitum Bandaríkjahers í
Viet-Nam.
Aðalhlutv: Robert Duvall, Treat
Williams, Kathryn Harrold.
Sýndkl. 5,7, 9 og 11
SALUR4
Upp með fjörið
Sýnd kl. 5 og 7
Utangarðsdrengir
Sýndkl. 9 og 11