Tíminn - 24.11.1983, Page 4

Tíminn - 24.11.1983, Page 4
FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983 TOLVUR Ætlunin að koma upp almennu tölvuneti á fslandi 1985: STOfNKOSTNAÐUR ER A BIL- INII 20-30 MILUÚNIR KR. — sex erlend fyrirtæki hafa gert tilbod í verkið Ætlunin er að koma upp almennu tölvuneti á íslandi fyrrihluta ársins 1985 og er stofnkostnað- ur þess á bilinu 20 til 30 milljónir króna en alls hafa sex erlend fyrirtæki gert tilboð í verkið. Það er Póstur og sími sem hefur umsjón með þessu verki og við ræddum við Þorvarð Jónsson yfirverkfræð- ing hjá þeim um málið. „Forsaga málsins cr sú að almenn tölvunet eru nú komin upp víðsvegar í Evrópu og Bandaríkjunum og slíkt net kom á öllum Norðurlöndunum á árunum 1978-79. Okkur var boðið að vera með í því og við gerðum þá könnun meðal íslenskra fyrirtækja til að kanna áhuga þeirra. Við vorum með 70 fyrirtæki í takinu og skiptum þeim í fjóra hópa eftir starfsemi og héldum fundi með hverjum hóp fyrir sig. Auk þess fengum við hingað þrjá Dani sem héldu fyrirlestur um málið í Háskólanum. Á fundum með fyrrtækjunum var málið rækilega kynnt og þau látin fylla út spurningalista um málið. Þá kom í ljós að 2 fyrirtækjanna vildu tengjast svona neti og eitt var á báðum áttum. I'etta var áhuginn 1979- 80“, sagði Þorvarður í samtali við Tímann. Það næsta í málinu var svo að Póstur og sími hélt fund með fjórum fyrirtækj- um hérlendis sem hafa mikið tölvusam- band en það voru fyrirtækin, SKÝRR, Reiknistofa bankanna, Flugleiðir og Sambandið en áður höfðu þau fengið sérfræðing til að gera skýrslu um tölvu- notkun þeirra fram í tímann og ráðleggja þeim hvernig þau gætu á sem hagkvæm- astan hátt hagnýtt sér þetta og hvort þau hefðu gagn af samvinnu sín á milli á þessu sviði. „Við könnuðum þessa skýrslu og héld- um svo annan fund seinna um haustið og lýstum því þá yfir að við værum tilbúnir að fara af stað með að setja upp almennt tölvunet hérlendis og leysa málið á þann hátt“, segir Þorvarður. „Það mundi vera betri lausn að mörgu leyti heldur en að sameina net þeirra sem var önnur tillaga, því að með almennu tölvuneti kæmi líka möguleiki á sambandi til útlanda fyrir þá og aðra, eins væri þetta almenn lausn fyrir önnur fyrirtæki sem áhuga hefðu á að tengjast svona neti og tengja sínar tölvur eða skjái við tölvur annarsstaðar í netinu eða erlendis." Ýmis not eru af netinu „Ef við lítum á það sem verið hefur að gerast hjá þessum fjórum fyrirtækjum sem ég nefndi þá hefur SKÝRR gert samkomulag við ríkisbókhaldið um að setja upp net um allt land og tengja allar ríkiseiningar víðsvegar um landið, sýslu- menn, innheimtur, bílaskoðun, trygg- ingar o.fl. Á sama tíma var Reiknistofa bankanna að tengja, með sjálfvirku vali gegnum símanetið, öll bankaútibú, þannig að útibúin sendu Reiknistofunni allar tékkfærslur á kvöldin og fengu nýja útskrift á öllum reikningum næsta morgun. Þá gekk ekki lengur gúmmí- tékkaútgáfan í sama mæli og áður. Sambandið var einnig með áætlanir um svona net. Eru fyrir þó nokkru síðan komnir með samband milli Reykjavíkur og Akureyrar og voru að kanna hvernig þeir gætu tengt saman iðnaðarfyrirtæki og verslunarfyrirtæki kaupfélaganna. Flugleiðir eru mcð nokkuð öðruvísi notkun á þessu, hafa stutt skeyti sem þurfa að ganga fljótt fyrir sig og eru mörg. Hin fyrirtækin eru yfirleitt með umfangsmeiri sendingar. Hjá Flug- leiðum var mikilvægt að geta sent á milli flugvalla og staða sem þeir hafa ein- hverja starfsemi á víðsvegar um landið. Það er komin tölva hjá Reiknistofnun Háskólans, hjá IBM og ýmsum öðrum og nú er hægt að fá uplýsingar í tölvubönkum erlendis, um eiginlega hvað sem er, verkfræðileg efni, læknis- fræðileg, hagfræðileg o.s.frv. og því hafa fleiri sýnt þessu áhuga," sagði Þorvarð- ur. Hjá honum kom fram að nú virðist mjög mikill áhugi á þessu máli hérlendis. Sérstaklega mikill hjá Skýrslutæknifélagi íslands. „Þá er einnig áhugi á þessu hjá Stjórnunarfélagi íslands sem upp á síðkastið hefur farið mikið inn á tölvu- námskeið, enda er stefnan sú núna að allskonar fyrirtæki eru meira og minna að fara út í tölvuvæðingu á öllu mögu- legu, ritvinnslu, skýrslum, bókhald o.fl.“ Áætlun um ÍOO tengingar Hvað varðar fjölda þeirra sem áhuga hafa á málinu nú sagði Þorvarður að í skýrslu þeirri sem þeirfengu til athugun- ar hjá þessum fjórum fyrirtækjum var áætlun um 100 tengingar, eða innganga, en það geta verið mörg tæki á einum inngang. Þannig voru þessi fyrirtæki t.d. ekki með nema einn inngang á stöðum eins og Akureyri og Egilsstöðum en þetta var samt 100 inngangar samanlagt. „Okkar áætlun er að fara af stað með 300 innganga" sagði Þorvarður. Hvað varðaði þá vinnu sem Póstur og sími þyrfti að leggja frám sagði Þorvarður að almenna tölvunetið væri alveg eins og talsíma- og telexnetið þ.e. fullkomið fjarskiptanet þar sem notendur væru tölvur eða tölvuskjáir eins og telextækin á telexnetinu og símatækin og einka- stöðvarnar á símanetinu. Þarna yrði um þriðja netið að ræða og það sem Póstur og sími þarf að gera er að kaupa miðstöð sem staðsett yrði í Reykjavík og útstöðvar sem staðsettar yrðu á nokkrum stöðum á Iandsbyggð- inni. Þannig að hægt verði að tengja notendur hvar sem er á landinu með tiltölulega stuttum leiðslum. Til dæmis við útstöðina á Akureyri yrði hægt að tengja notendur á Akureyri, Dalvík, Húsavík, Siglufirði, sem sagt á svæðinu í kringum Akureyri. Á þann hátt væri hægt að tryggja villulausa og hraða sendingu fyrir gögn. Aðalmunurinn á notkun tölvunetsins og símanetsins eins og það er gert í dag er að þegar maður sendir í gegnum tölvunetið þá er það byggt þannig að villur komi ekki, þær upgötvast sjaffvirkt og netið endurtekur sendinguna ef villa kemur í ljós. Öryggið er miklu meira en í símnetinu. Þannig er eftirlitsstöð í Reykjavík sem fylgist með öllu sem gerist allstaðar á netinu og minnsta bilun uppgötvast eftir nokkrar sekúndur og jafnvel er hægt að gera við hana án þess að notandi verði þess var að nokkuð hafi bilað," sagði Þorvarður, og bætti því við

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.