Tíminn - 24.11.1983, Side 15

Tíminn - 24.11.1983, Side 15
FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983 TÖLVUR 15 Kristján Ó. Skagfjörð með tæki frá Ericsson Information Systems: „SVÍARGERA GÍFURLEGAR KRÖFUR UM HÖNNUN TÆKJANNA” ■ Tölvudeild Kristján Ó. Skagfjörð kynnti á tölvusýningunni á Bfldshöfða nýtt töivukerfi frá Ericsson Information Systems í Sviþjóð en það var Alfaskop System 41 og hefur hið fyrsta þeirra verið sett upp hjá Ríkisspítölunum. Uppistaða Ericsson Information fyrir- tækisins er DataSaab sem sænska stór- fyrirtækið L >1 Ericsson keypti um áramótin 81/82. Aðalframleiðsla þess eru skjáir og tengibúnaður á stærri IBM vélar og að sögn þeirra Frosta Bergsson- ar og Hákons Guðmundssonar verða það hlutir sem þeir leggja áherslu á hérlendis. „Kerfíð sem sett hefur verið upp á Rlkisspítölunum er fyrst og fremst skjáir tengdir heila en System 41 býður upp á möguleika á eigin vinnslu, má þar nefna Alfaword sem er ritvinnslukerfí, og hægt er að fá búnað sem gerir S/41 að einkatölvu auk þess sem hægt er að tengja litskjá við kerfið“, sögðu þeir Frosti og Hákon hjá Tölvudeild KOS. „Svíar gera gífurlegar kröfur um hönnun þessara tækja og er mikið hugs- að um notandann í því sambandi, skjár- inn er stærri og það er annar litur á honum en venjulega, hugsað út frá læknisfræðilegu sjónarmiði hvað varðar glampa í augun frá skjánum“, sögðu þeir. Hvað varðar tæknilega eiginleika Alfaskop þá er það hugbúnaðarstýrt þannig að auðvelt er að breyta kerfinu og aðlaga það að öllu sem er mikill kostur. Því fylgir diskadrif sem þú getur t.d. nýtt ritvinnsluna á án þess að vera tengdur heilanum og létt þannig á stóru vélinni. HÖFUM HELLT OKKUR í EINKATÖLYU- SLAGINN í máli þeirra Frosta og Hákons kom fram að meginuppistaðan hjá tölvudeild Kristjáns Ó. Skagfjörð eru tæki frá Digital og þar hafa þeir hellt sér út í einkatölvuslaginn vopnaðir vélum á borð við Rainbow-100 sem hvarvetna hefur hlotið mikið lof í tölvutímaritum erlendis auk Professional 300 og 350 sém eru töluvert öflugri. Rainbow-100 er hentug fyrir fyrirtæki sem vilja tölvu- væða hjá sér bókhaldið og þá aðila sem ekki hafa þörf fyrir margar útstöðvar og mjög mikið er til af erlendum hugbúnaði fyrir hana þar sem stýrikerfi hennar eru mjög vinsæl á erlendum mörkuðum. -FRI ■ Hákon Guðmundsson og Frosti Bergsson í tölvudeild KÓS. Tímamynd Ámi Sæberg. ■ Tölvudeild Kristjáns Ó. Skagfjörð hefur nýlega aukið húsnæði sitt um helming, úr 300 fm. og í 600 fm. Hér sést nýi salurinn sem bráðlega verður tekinn í notkun. Með þeim Frosta og Hákoni á myndinni er Hálfdán Karlsson. lölvan sem vex meó vaxandi ö TeléVldeo Einkaaöilinn velur TeleVideo einkatölv- una, grunneiningu TeleVideo tölvukerfisins, til aö annast fjármálin og framtíðarspána. Hann getur treyst því aö hversu mikið sem umsvif hans aukast getur einkatölv- an vaxið í samræmi við það. Sjóríyrirtcekö velur einnig TeleVideo tölv- una í bókhaldið, á lagerinn, í vörueftirlitið, rekstrayfirlitið, afgreiðsluna og alla aðra töl- fræðilega þætti rekstursins. Þegar fyrirtækið stækkar, getur TeleVideo einfaldlega vaxið með þvi upp í kerfi án þess að nokkur hluti þess verði úreltur. velur að sjálfsögðu Tele- Video tölvukerfið með öllu tilheyrandi, enda fylgir því öll sú tækni og hæfni sem hæfir stórfyrirtækjum og stofnun- um. Og gleymum því ekki að grunneiningin er enn sú sama. ib SKRIFSTOFUVELAR H.F. Hverfisgötu 33 — Sími 20560 — Pósthólf 377 og áratugs reynsla íkaupbæti I tölvudeild okkar er hópur sér- menntaðra starfsmanna sem eingöngu vinnur viö gerð, þróun og viðhald forrita fyrir okkar stóra viöskiptamanna- hóp. Þannig getum viö boöið þrautreynd forrit sem löguö eru aö þörfum hvers fyrirtækis. Vel er fylgst meö öllum nýjungum og þeim miölað til vióskiptavinar- ins. Hafóu samband viö okkur, ef þú ætlar aö fylgjast meó. ] rekstrartækni sf. J Tækniþekking og tölvuþjónusta. Síðumúli 37, 105 fíeykjavik, simi 85311 Halnargötu 37A , 230 Kellavik, sími 92-1277

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.