Tíminn - 10.01.1984, Qupperneq 1

Tíminn - 10.01.1984, Qupperneq 1
Allt um íþróttir helgarinnar - bls. 10—12 FJ( OG ÍLBREYTTARA BETRA BLAÐ! Þr 8. ðjudagur 10. janúar 1984 tölublað - 68. árgangur Sidumula 15-Postholf 370Reykjavík-Ritstjorn86300-Auglysingar 18300- Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvóldsimar 86387 og 8S306 Ovedur á Fáskrúðsfirdi: SKEMMUÞAK TÖKST A LOFT OG EYÐILAGÐI BAT OG BÍL! — reif í leidinni þak af ibúdarhúsi og sleit rafmagnslínur ■ Skemmuþak tókst á loft í miklu hvassviðri sem gerði á Fáskrúðsfirði í fyrrinótt. Þakið olli síðan mildum skemmdum á því sem fyrir því varð þar til það stöðvaðist í trjágróðri um 50 til 100 metra frá þeim stað er það tókst á loft. Fyrst lenti þakið á íbúðarhúsi og reif af því þakið, þá á bát er var þar nærri og síðan bfl sem hvort tveggja skemmdist töluvert. Einnig sleit það raf- magnslínur innst í bænum, sem varð til þess að heimili þar í nágrenninu urðu rafmagnslaus og þá jafnframt hitalaus, því flest hús á Fáskrúðsfirði eru hituð upp með rafmagni. Að sögn Steinþórs Pétursson- ar, lögregluþjóns á Fáskrúðsfirði var veðrið verst milli kl. 12 og 2 í fyrrinótt. Þakið sem fauk var af skemmu og áhaldahúsi fisk- vinnslunnar Pólarsíldar. Auk þess sem að framan er nefnt sagði Steinþór töluvert hafa ver- ið um að þakplötur losnuðu af húsum svo og rúðubrot. Vinnu- flokkar hafi því verið á ferðinni um nóttina um allan bæ við að festa lausar plötur og gera við aðrar skemmdir. Eitthvað var líka um að bílar fykju í þessu suðaustan roki. Steinþór vissi um einn sem fauk á Fáskrúðsfirði og annan. á Reyðarfirði.fólk íbílunumslapp ómeitt, en hann vissi ekki um skemmdir á bílunum. Rafmagnslaust var enn í innstu húsunum í bænum í gærkvöldi þegar við töluðum við Steinþór, en búist við að hægt yrði að koma straumnum á seint um kvöldið eða í nótt. -HEI Komið upp um þrjá bruggara ■ Þrír mcnn á Akranesi viðurkenndu við yfirheyrslur •hjá lögreglunni um helgina að hafa starfrækt bruggverk- smiðju hátt á annað ár og selt talsvcrt inagn af landu. Við húsleit heima hjá einunt þeirra fundust eimingartæki og á ann- áð hundrað lítrar af sykur- bruggi. Að sögn lögreglunnar á Akranesi hefur leikið á því grunur undanfarið að þar í bænum væri stunduð sala á landa. Nýjarupplýsingarkomu fram í málinu á laugardags- kvöldið og var í framhaldi af þeim fengin húsleitarheimild þar sem tækin fundust. Mennirnir þrír áttu eimingar- tækin sameiginlega en að öðru leyti hafði hver þeirra sjálf- stæðan eimingaratvinnurekst- ur. - GSH YFIR TVð HUNDRUÐ MANNS ATVINNULAUS- IR A GRUNDARFIRÐI ■ Það fer að verða heimilislegt í Reykjavík, veðrið og færðin kunnugleg. „Þetta er bara eins og í fyrra,“ segja vcgfarendur hver við annan og ösla áfram ríghaldandi í höfuðfötin. Tímamynd: Róbert. Otköllum slökkviuðs FÆKKADIA SfÐASTA ÁRI ■ í Grundarfirði hefur fólk komið hópum saman til atvinnu- leysisskráningar undanfarna daga, samkvæmt upplýsingum hreppsskrifstofu. Nákvæmar tölur voru ekki fyrir hendi í gær. Vinna lagðist niður í Hrað- Hæstiréttur grynnkar á málafiöldanum ■ Hæstiréttur dæmdi í mun fleiri málum á síðastliðnu ári en árinu 1982 og einnig bárust Hæstarétti nokkuð færri mál árið 1983 en 1982 þannig að verulega hefur grynnkað á málafjöldanum sem bíður flutnings. 217 mál bárust Hæstarétti á síðasta ári en 237 árið 1982. !>ar af voru 175 áfrýjanir og 42 kærur. Af áfrýjunum voru 123 í einkamálum og 52 í opinber- um málum. Kærur í cinkamál- um voru 20 og 22 í opinberum málum. 246 mál voru dæmd árið 1983 en 206 árið 1982. 166 áfrýjunarmál voru dæmd og 42 kærumál. Útivistardómar voru 18. í árslok biðu 130 einka- mál og 5 opinber mál flutnings en í árslok 1982 beið 191 mál flutnings. Eitt kærumál frá síð- asta ári crenn óáfgreitt. - GSH frystihúsi Grundarfjarðar s.l. fimmtudag en þar hafa starfað 80 til 100 manns, sem eru því atvinnulausir nú. Einnig hefur vinna stöðvast í Sæfangi, þar sem starfsmenn munu vera 50-60 talsins. Þar við bætist að togari og flestir bátar róa ekki, þannig að ekki er ólíklegt að um eða yfir 200 manns séu nú atvinnulausir í Grundarfirði. Guðni Jónsson, framkvæmda- stjóri Hraðfrystihússins kvaðst ekki reikna með að vinna kæmist þar í gang á ný fyrr en um eða kannski upp úr næstu mánaða- mótum.„Enda ekkert vit í því, þar sem enginn rekstrargrund- völlur er fyrir skipin, hvorki bátana né togarann", sagði Guðni. Hann kvað útgerðina hafa verið rekna með bullandi tapi í allt haust. Auk þess að útgerðarmenn bíði nú eftir nýju fiskverði sjái þeir einnig fram á kvóta og þyki því ekkert liggja á að hefja veiðar eins og er. Til þess að bæta ástandið kvað Guðni þá hjá Hraðfrystihúsinu hafa verið að berjast fyrir því að viðskiptabátar hússins fengju að veiða skel, sem síðan fengist að vinna í húsinu. „Hraðfrystihús Grundarfjarðar er einn stærsti vinnuveitandinn á Snæfellsnesi. Við höfum alla aðstöðu til að vinna skel án þess að leggja í nema mjög lítinn tilkostnað til að starta og þykir því hart ef það á að útiloka okkur frá skelvinnsl- unni“, sagði Guðni. í dag mun von á þingmönnum kjördæmisins til Grundarfjarðar til viðræðna við atvinnumála- nefnd og fleiri heimaaðila um hvað til bragðs skuli taka í atvinnumálum Grundarfjarðar. -HEI ■ Útköll slokkviliðsin's í Reykjavík voru talsvert færri á nýliðnu ári en á árinu 1982 og hafa aðeins einu sinni orðið færri útköll s.l. tvo áratugi. Slökkvilið- ið var kallað út 328 sinnum á síðasta ári, þar af voru útköll þar sem slökkva þurfti eld 233. Árið 1982 voru sambærilegat tölur 360 og 276. Einnig varð fækkun á sjúkraflutningum milli áranna eða 10400 á móti 11184. Til jafnaðar þurfti slökkviliðið að sinna 28,49 sjúkra og slysaflutn- ingum á dag árið 1983. Af þeim 233 eldsvoðum sem slökkviliðið þurfti að sinna er ókunnugt um upptök 99, sam- kvæmt skýrslu frá slökkviliðs- stjóranum í Reykjavík. í 74 eldsvoðum var orsökin íkveikja, 32svar kviknaði út frá rafmagns- tækjum, 10 sinnum út frá raf- lögnum, 3svar út frá eldfærum, einu sinni út frá reykháíum og olíukynditækjum og 13 sinnum féll orsök eldsvoða undir „ýmis- legt“. Tjón í þessum 233 eldsvoðum var ekkert í 169 tilfellum, lítið i 50 tilfellum, töluvert í 13 tilfell um og mikið í einu tilfelli en þat er um að ræða brunann í Álafoss- verksmiðjunum í maí í vor. Tvö ungmenni fórust í eldsvoða árið 1983 á brunavarnarsvæði slökkviliðs Reykjavíkur. -GSH

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.