Tíminn - 10.01.1984, Qupperneq 9

Tíminn - 10.01.1984, Qupperneq 9
, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1984 9 Ráðgjöf fyrir fyrir- tæki í matvælaiðnaði ■ Nýlega hóf störf hjá Iðntæknistofnun íslands pólskur verkfræðingur, Irek Klonowski og mun hann hafa með höndum ráðgjöf við val á vélum og tækjum, skipulagningu og hagræðingu í tengslum við framleiðslubtínað og enn- fremur vöruþróun og gæðaeftirlit. írek er verkfræðingur frá Landbúnaðar- háskólanum í Wroclaw í Póllandi. Hann starfaði áður í Wroclaw, fyrst sem kenn- ari í háskólanum og síðan sem sérfræð- ingur búvöruiðnaðarins. ■ Standandi frá vinstrí: Emst Hemmingsen (sölustjóri), Mikheil Strelgsov (sendi- herra), Steinar Jónasson (sölustjóri). Sitjandi frá vinstri: Guðjón Hjartarson (framkvæmdastjóri), Pétur Eiríksson (forstjóri), Boris A. Umansky og Vladimir P. Andriyashin fulltrúar viðskiptaskrifstofu Sovétríkjanna. Álafoss selur fyrir 4,3 milljónir dala til Sovétríkjanna — einn stærsti samningur um sölu á ull- arvöru sem íslenskt fyrirtæki hefurgert ■ Álafoss hf. og sovéska fyritækið Raznoexport hafa undirritað samning um sölu á 1.500.000 ullartreflum og 20.000 ullarpeysum til Sovétríkjanna. Þessi samningur er sá stærsti sem Álafoss hf. hefur gert og mun vera einn stærsti samningur sem íslenskt fyrirtæki hefur gert um sölu á ullarvörum. Samtals er verðmæti söluvörunnar um 4,3 milljónir bandaríkjadala, eða 123 milljónir ís- lenskra króna. Framleiðsla er þegar hafin í verk- smiðju Álafoss í Mosfellssveit og mun verkefnið taka 11 mánuði. Við fram- leiðsluna munu starfa að meðaltali um 110 manns. Með þessum samningi múnu Sovétríkin vera stærsti kaupandi ullar- vöru frá Álafossi árið 1984. Salan í fyrra nam um 1,3 milljónum bandaríkjadala og er hér um að ræða meira en þreföldun á sölu til ráðstjórnarríkjanna frá ári til árs. Til fróðleiks má geta þess, að ef allir treflarnir væri lagðir saman myndu þeir ná næstum frá Mosfellssveit til Moskvu, eða um 2.800 kílómetra. Áætlanadeild Álafoss hf. hefur reiknað út, að á næstu 11 mánuðum þurfi að framleiða 9 og ]h trefil á mínútu allan sólarhringinn. Til að anna verkefninu þarf Álafoss að bæta við 100 starfsmönnum. •Undirbúningur samningsins fór fram í Moskvu í byrjun desember. Þar voru fyrir hönd Álafoss þeir Steinar Jónsson og Ernest Hemmingsen. í frétt frá Álafoss, segir að íslenskar ullarvörur njóti mikilla vinsælda í Sov- étríkjunum og telja forsvarsmenn fyrir- tækisins, að í framtíðinni verði Sovétrík- in góður markaður fyrir íslenskar ullar- vörur, aðallega trefla og værðarvoðir. Upp- arinur Olnbogi ■ Róbótinn er bandarískur og verður fyrst og fremst notaður til tilrauna og kennslu. > Iðntæknistofnun kaupir vélmenni ■ Iðntæknistofnun íslands hefur ný- lega í samvinu við Tækniskóla Islands fest kaup á róbóta, sem einkum er ætlaður til kennslu og tilrauna á sviði róbótatækni, og er til dæmis mögulegt að líkja eftir iðnferli við notkun róbóta. Róbótinn er framleiddur af Microbot Inc. í Bandaríkjunum og er stýrt með innra örtölvukerfi. Hægt er að tengja stýrikerfi róbótans' við stærri stýritölvu og gera fyrir hann forrit í æðra forritun- armáli, svo sem Pascal eða Basic. 100% — 75% ~ 50% r— 100% — 75% 50% ■ Frá því að farið var að mæla markaðshlutdeild innlendrar málningarvöru 1978 hefur hún verið eins og taflan að ofan sýnir. Markaðskönnun Félags íslenskra iðnrekenda: _ i t NUNDMAIMMG EYKUR HLUIDEHD — sælgæti, hreinlætisvörur og kaffíbrennsla halda ekki sínu ■ Markaðshlutdeild innlendrar kaffibrennslu, hreinlætisvörufram- leiðslu og sælgætisframleiðslu dróst aðeins saman á þriðja árs- fjórðungi i fyrra samkvæmt könnun Félags íslenskra iðnrekenda. Hins vegar jókst markaðshlutdeild inn- lendrar málningarvöru á ársfjórð- ungnum, en könnunin náði til fjög- urra tegunda. Hlutdeild innlendrar málningar mæld- ist 60,4%, sem er 4,5 prósentustigum meira en á öðrum ársfjórðungi. Hins vegar er um að ræða samdrátt ef miðað er við þriðja ársfjórðung 1982, en þá var markaðshlutdeildin 63,5%. Hlutdeild sælgætisframleiðslunnar mældist 43,3% á þriðja ársfjórðungi í ' fyrra, sem er svipað og á sama tíma árið áður, en þá var hlutdeildin 44,1% Hins vegar er um nokkurn samdrátt að ræða frá öðrum ársfjórðungi, en þá mældist markaðshlutdeildin 49,3%. Fyrir árið í heild gæti orðið um aukningu að ræða samanber eftirfarandi ársmeðaltöl: 1980 43,8%, 1981 49,4%, 1982 47,8%, en áætlað að hlutdeildin í fyrra hafi verið tæplega 51%. í fyrra dróst markaðshlutdeild inn- lendrar kaffibrennslu á þriðjá ársfjórð- ungi saman um 8,5% miðað við annan ársfjórðung. Um svipaðan samdrátt er að ræða ef tekið er mið af þriðja ársfjórðungi 1982. í fréttabréfi FÍI. segir, að þrátt fyrir þennan samdrátt í markaðshlutdeild kaffibrennslunnar, hafi kaffibrennsla verið meiri í fyrra en 1982, en heildar- markaðurinn hafi aukist hlutfallslega meira og hlutdeild innlendrar brennslu því minnkað. Markaðshlutdeild innlendrar hrein- lætisvöruframleiðslu var 60,1% á þriðja ársfjórðungi í fyrra, en var á sama tíma 1982 63%. Fyrstu níu mánuði ársins var meðaltal markaðshlutdeildarinnar 62,7%, sem er þremur prósentustigum hærra en 1982. 100% — 50% — 0% — 100% - 50% ■ A árinu 1983 í heild gæli orðið um að ræða nokkra aukningu á hlutdeild innlendrar sælgætisframleiðslu miðað við 1982. 100%—I 75 % I— 100% — 75% — 50% ■ Eins og myndin sýnir glögglega hefur hlutdeild innlendrar kaffibrennslu verið að minnka ár frá ári, frá 93,5% 1978 niður í tæp 78% í fyrra. 100%—, 75 % — 50%— — 100% — 75% — 50% ■ Hlutdeild innlendrar hreinlætisvöru á markaði hérlendis hefur minnkað um tæp 10% frá 1978, en þó var hún nokkru meiri í fýrra en 1982.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.