Tíminn - 10.01.1984, Blaðsíða 12
ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1984
12
enska knattspyrnan
Óvænt úrslit í ensku bikarkeppninni:
SanuieJ Örn Crtingsson
1 'T—fammtmmmammmmm
AFC Boumemouth sló
Manchester Utd út!
Arsenal slegið út af Middlesborough — Manchester City lá fyrir
Blackpool — Crystal Palace lagði Leicester—QPR skellt af Huddersfield
■ Mörg tiðindi og stór gerðust í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu um helgina,
og er töluvert síðan eins mörg neðri deildarlið hafa slegið út eins mörg topplið,
eða sér ofar deilda lið. Stærstu fréttirnar voru þær, að þriðjudeildarliðið AFC
Bournemouth sló Manchester United út, verðskuldað á heimavelli 2-0, þá lá
Arsenui fyrir annarrardeildarliðinu Middlesborough, Huddersfield sló Queens
Park Rangers út og Crystal Palace sló út Leicester. Þá vakti athygli, að neðri
deildarlið sem ekki náðu sigri, náðu að halda sér stærri liðum á jafntefli, svo sem
Swindon Carlisle, Fulham Tottenham, Scunthorpe Leeds United og Sheffield Utd
Birmingham. En vindum okkur í leikina:
Peter Joncs fréttamaður BBC sagði
um leik Bournemouth og Manchcster
Utd: Jákvætt og ákveðið lið Bourne-
mouth áttu leikinn gegn stjörnunum,
og tvö mörk skoruð á 60. og 62.
mínútu af þeim Milton Graham og lan
Thompson voru verðskulduð vcrð-
laun. Bournemouth byggði mun betur
upp á miðjunni, ogmiðverðirnir Roger
Brown og Phil Brignull voru frábærir.
Frábært lið Bournemouth hafði undir-
tökin til enda, og Manchester United
var sigrað, veröskuldað." - „Þetta er
frábært, og dagurinn á laugardaginn
gleymist ekki í bænum Bournemouth.
Við höfðum alltaf undirtökin, og ég
var viss um að við mundum sigra, strax
eftir fyrsta markið," sagði fram-
kvæmdastjóri Bournemouth. Georgc
Best, gamla stjarnan hjá Manchester
United, sem var í þularstúku á
vellinum.samsinnti framkvæmdastjór-
anum.
Blackpool fékk draumabyrjun gegn
Manchestcr City á 5. mínútu. Eftir
leiftursókn upp vinstri kantinn skoraði
David McNiven með föstu skoti
framhjá Alex Williams í marki Manc-
ester City. Alex Williams þurfti að
taka á honum stóra sínum og verja
stórkostlega aftur í fyrri hálfleik, áður
en Blackpool skoraði sjálfsmark til að
jafna fyrir City. Hár bolti kom inní, og
einn varnarmannanna skallaði óvart í
mark. En Blackpool komst áfram á
sjálfsmarki Manchester City, David
McNiven gaf fastan bolta fyrir rétt
fyrir leikhlé, og Neil McNab varnar-
maður City horfði á það með skelfingu,
er boltinn fór í bláhornið á marki hans
eftir að föst fyrirgjöfin hafði hitt í fót
hans. Leikurinn var fjörlega leikinn í
síðari hálfleik, en ekki fleiri mörk
skoruð, sigur Blackpool verðskuldað-
ur að sögn fréttamanns BBC.
Middlesborough sló Arsenal út.
Jerry McDonald skoraði strax fyrir
Middlesbro á fjórðu mínútu. Tony
Woodcock náði að jafna, eftir að
Raphael Meade hafði mistekist herfi-
lega, og Charlie Nicholas jafnaði aftur
yfir Arsenal eftir að Sugrue hafði
skorað 2-1. Charlie Maid skoraði svo
sigurmark annarrardeildarliðsins, úr-
slitin 3-2 og Arsenal dottið út.
Nottingham Forest byrjaði bikar-
keppni illa þriðja árið í röð Sout-
hampton komst yfir á 76. mínútu.
Gamla brýnið Frank Worthington gaf
hreint frábæra sendingu á Steve
Moran, sem skoraði með góðu skoti.
Forest barðist mjög, og náði loks að
jafna, þegar Paul Hart skallaði inn
eftir hornspyrnu Colin Walsh. En
þremur mínútum síðar var Steve Mor-
I an aftur á ferðinni, skoraði sitt fimmta
mark í þremur leikjum, en þá stóð
hann upp úr meiðslum. Lengra komst
ekki Forest, og Brian Clough fram-
kvæmdastjóri og hans menn eru út úr
keppninnni.
Fulham var án sex manna úr byrjun-
arliði, er liðið mætti Tottenham Hot-
spur á Craven Cottage, en þrátt fyrir
að annarrardeildarliðið væri fullt af
unglingum, hafði fyrstudeildarliðið
ekki erindi sem erfiði. Barátta Fulham
var mikil, og það var eins og Tottenham
brotnaði við það Ray Clemence mark-
vörður Tottenham varð að fara af
leikvelli þegar 25 mínútur voru til
leiksloka, og allt virtist búið hjá
Tottenham. En svo var nú aldeilis
ekki. Varnarjaxlinn Graham Roberts
fór í markið, og hann hafði nóg að
gera, og sýndi góða markmannstakta.
Fulham skaut grimmt, en ekki einu
sinni frábært skot Tony Gale, beint úr
aukaspyrnu, fór inn, Roberts varði
eins og herforingi. Tottenham barðist
líka vel, þá mest í vörnini eftir að
Clemence leið, og jafnvel Glenn
Hoddle var orðinn aftasti maður í vörn
á köflum, lék vel í leiknum, en fékk
lítinn frið.
Brighton sló Swansea út, en þessi
tvö fyrstudeildarlið í fyrra áttu í basli í
annarri deildinni framan af vetri,
Swansea er reyndar á botninum enn.
Brighton komst áfram og getur þakkað
fyrir að Manchester United, sem varð
eina liðið til að vinna þá í bikarnum í
fyrra, verður ekki til þess nú. Brighton
hafði yfirburði, en Swansea barðist vel
og virtist ætla að hanga á jafnteflinu.
Jafntefli
hjá Motherwell og Celtic - óbreytt
ástand í Skotlandi
■ Jóhannes Eðvaldsson og félagar í
Motherwel! í Skotlandi gerðu um helg-
ina jafntefli við Celtic, er þeir græn-
röndóttu komu í heimsókn á Fir Park.
Motherwell var óheppið að vinna ekki
leikinn, átti mörg góð færi. Forysta
Aberdeen jókst ekki við þetta jafntefli
Celtic, Aberdeen rétt náði jafntefli á
Ibrox gegn Rangers.
Stuart Rafferty skoraði fyrst fyrir
Motherwell, en Frank McGarvey jafn-
aði glæsilega með þrumuskoti. Pao!
McStay skoraði 2-1 fyrir Celtic í
upphafi síðari hálfleiks, en Andy Conn
jafnaði mínútu síðar.
Fyrst á 82. mínútu kom mark hjá St.
Johnstone gegn meisturum Dundee
Utd, en tvö gullfalleg mörk í lokin frá
Davie Dodds tryggðu meisturunum
sigurinn, og þeir sigu aðeins á toppliðin
tvö.
Greg Harvey skoraði fyrir Hiberni-
an í fyrri hálfleik gegn St. Mirren, en
Michael Venney skoraði fyrir St. Mirr-
en í síðari hálfleik.
Dundee var 3-0 yfir í hálfleik gegn
Haarts, og hvort lið skoraði eitt í síðari
hálfleik. Hearts virðist á niðurleið eftir
frábæra byrjun í haust, en Dundee að
verða laust við fræðilega fallhættu.
-SÖE
■ Eríc Gates var sá sem skoraði flest mörk um helgina, hann átti heiðurinn
af sigri Ipswich á Cardiff, skoraði öll þrjú mörk Ipswich.
Gekk svo þar til, Mike Hewes varn-
armaður Svanannahetja þangað til hann
missti af góðri fyrirgjöf Steve Penny,
og Pat Mcqueelan varð það á að pota
boltanum óvart í eigið mark. Jerry
Conor skoraði fallegt mark með skalla
skömmu síðar, og úrslitin urðu 2-0.
Rotherham hélt West Bromwich Albi-
on á jöfnu 0-0 heima. Rotherham,
þriðjudeildarlið, sýndi fyrstu deildar-
liðinu hvernig á að leika á blautum og
erfiðum velli, og liðið fékk sjö sinnum
góð tækifæri á að komast í fjórðu
umferð. Albion fékk líka tækifæri, en
mun að líkindum fá þau fleiri heima
næst.
Sheffield United hélt Birmingham á
jöfnu 1-1 í Sheffield, Birmingham átti
allan fyrri hálfleikinn, en Billy Wright
skoraði þá úr vítaspyrnu. í síðari
hálfleik var hins vegar United yfir-
burðarlið, Brazil jafnaði, en Birming-
ham hékk á jafnteflinu, 1-1.
Chrystal Palace slú út fyrstu deild-
arlið Leicester. Hetja dagsins var Billy
Gilbert, sem skoraði með þrumuskalla
eftir hornspyrnu þegar 8 mínútur voru
til leiksloka. Palace var þó ekki að sjá
hættulegra liðið, og Leicester sótti
mun meira. Leicester notaði ekki
færin, Kevin McDonald skaut í stöng,
Smith, Peake og Hazel skutu allir rétt
framhjá, og George Wood markvörður
Palace varði einu sinni stórkostlega
frá Steve Lynex. En í lokin sótti
Palace, Andy McCulloch skaut í stöng,
Gilbert skoraði, og í lokin var Gilbert
aftur á ferðinni, bjargaði á línu með
skalla, skoti frá Ian Banks.
Luton og Watford skildu jöfn í
Luton, 2-2. Luton komst ósanngjarnt
í 2-0 þegar bæði skot frá Brian Stein og
öðrum til breyttu um stefnu af vörninni
og fóru inn. Steve Shearwood mark-
vörður Watford, sem hafði átt svo
góðan ,leik, réð ekki við slíkt. En
Watford jafnaði með mörkum John
Bames og Maurice Johnstone úr víti.
Alan Clarke kom heim til Leeds, en
C'arke stjórnar Scunthorpe Utd. Sá
gamli og hans menn voru heldur til
vandræða en hitt fyrir Leeds, Leeds
komst yfir 1-0 með marki Andie Rit-
chie, en Steve Cammack jafnaði.
Bróðir Alans Clarke, Wayne, mis-
notaði vítaspyrnu í Coventry. Hann
skoraði þó jöfnunarmark Úlfanna, eft-
ir að Coventry hafði komist yfir 1-0
með marki Whitheys.
Eric Gates skoraði hat-trick,
þrennu, fyrir Ipswich í Cardiff. Gates
var hetja dagsins, og sérstaklega þótti
fyrsta mark hans glæsilegt, þrumuskot
í bláhornið efst.
Stewart Houston, fyrrum leikmaður
Manchester United, sem nú leikur
með Colchester United varð svo
óheppinn að tryggja Charlton sigur
með sjálfsmarki.
Nokkrir leikmenn skoruðu gegn sín-
um gömlu félögum á laugardag. John ;
Deehan skoraði til að mynda fyrir
Norwich gegn Aston Villa, Peter :
Withe jafnaði. ,
Wilson, Plummer og McCall
skoruðu fyrir Derby í Cambridge, en
Cambridge hefur ekki sigrað í síðustu
19 leikjum á heimavelli.
Stevens, McLaren og Robinson
skoruðu fyrir Shrewsbury gegn
Oldham, í 3-1 sigri heimamanna.
Lee Chapman skoraði sitt fyrsta
mark fyrir Sunderland gegn Bolton, en
Colin West og Gary Rowell skoruðu
hin.
Andy Gray skoraði annað mark
Everton gegn Stoke, Alan Irvin skor-
aði hitt.
Ray Stewart var bjargvættur West
Ham gegn Wigan, skoraði eina mark
leiksins úr vítaspyrnu.
Fyrrum leikmaður West Ham,
Nicky Morgan, skoraði annað mark
Portsmouth gegn Grimsby, Mark Ha-
tely fyrrum leikmaður Coventry skor-
aði hitt.
***TTfflrfagMayTTiTr
Noel Brotherstone skoraði mark
Blackburn gegn Chelsea, á þriðju
mínútu og það mark réði úrslitum
leiksins.
Teleford United, utandeildalið, sigr-
aði Rochdale, fjórðudeildarlið sann-
færandi 4-1. Evans skoraði fyrsta
markið fyrir Rochdale, en síðan tóku
þeir deildarlausu völdin og Edmunds,
Bailey, Hennessy og Williams
skoruðu.
Huddersfield sló Queens Park
Rangers út, annarrardeildarlið þar
sterkara en fyrstudeildarlið. Sam Ellis
og Kevin Stonehouse skoruðu, en
John Gregory minnkaði muninn allt of
seint. -SÖE
Úrslit
■ Úrslit urðu þessi í ensku bikar-
keppninni um helgina:
Aston Villa - Norwich ........ 1-1
Blackburn-Chelsea............. 1-0
Blackpool-Man. City.......... 2-1
Bolton-Sunderland............. 0-3
Boumemouth-Man. Utd..........2-0
Brighton-Swansea.............. 2-0
Burnley-Oxford................ 0-0
Cambridge-Derby............... 0-3
CardilT-Ipswich............... 0-3
Carlisle-Swindon.............. 1-1
Colchester-Carlton............ 0-1
Coventry-Wolverhampton .... 1-1
C.Palace-Leicestcr............ 1-0
Darlington-Maidstone Utd. ... 4-1
Fulham-Tottenham ............. 0-0
Gillinghani-Brentford......... 5-3
Huddersfield-Q.P.R............ 2-1
Leeds Utd.-Scunthorpe........ 1-1
Luton-Watford................. 2-2
Middlesbro-Arsenal............ 3-2
Nott.For.-Southampton ........ 1-2
Notts C. Bristol City ........ 2-2
Plymouth-Newport ............. 2-2
Portsinouth-Grimsby........... 2-1
Rochdale-Teleford Utd......... 1-4
Rotherham-W.B.A............... 0-0
Sheffield Utd-Birmingham ... 1-1
Sheffield Wed.-Barnsley...... 1-0
Shrcwsbury-Oldham............. 3-0
Stoke-Everton ................ 0-2
W’est Ham-Wigan .............. 1-0
Liverpool-Newcaslle .......... 4-0
3. deild:
Bradford-Wlmbledon............ 5-2
Orient-Walsall ............... 0-1
4. deild:
Aldershot-Hartlepool.......... 2-1
Chesterfield-Crewe Alexandra . 1-3
Doncastcr-Glennfield.......... 3-1
Halifax-Hereford.............. 2-1
Peterborough-Wrexham ......... 0-1
Tranmere-Torquay ............. 3-0
SKOTLAND
Skoska úrvalsdeildin:
Dundee-Hearts.................. 4-1
Hibernian-St. Mirren........... 1-1
Motherwell-Celtic.............. 2-2
Rangers-Aberdeen............... 1-1
St. Johnstone-Dundee Utd. ... 1-2
í siðustu viku:
Motherwcll-St. Mirren......... 1-2
Staðan:
Aberdeen .... 20 15
Celtic........20 12
Dundee Utd. .. 19 11
Hearts .......21 7
Rangers......20 8
St. Mirren .... 20 5
Hibemian .... 21 8
Dundee ...... 20 7
St. Johnstone . 20 5
Motherwell ... 21 1
3 2 51-12 33
5 3 46-22 29
4 4 36-18 26
7 7 23-29 21
4 8 29-27 20
9 6 28-30 19
3 10 28-34 19
2 11 29-39 16
0 15 19-54 10
7 13 16-42 9