Tíminn - 10.01.1984, Síða 13

Tíminn - 10.01.1984, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 10M 13 Hættulegir rafmagnshitapúðar hafa valdið dauðsföllum í Danmörku ■ „Rafmagnshitapúðar, sem uppfylla allar kröfur, sem gerðar eru til þeirra frá lagalegu sjónarmiði, geta leitt til dauða.“ Þannig hefst frétt í dönsku blaði nú rétt fyrir áramótin og er vitnað til yfirlæknis á brunaslysadeild á sjúkrahús- inu í Hvidovre, Jörgen Ebbehöj. Tilefn- ið er það, að í Ijós hefur komið að á rúmu ári hefur mátt rekja 7 dauðsföll ■ Danmörku til notkunar rafmagnshita- puða. Þegar í janúar á sl. ári var efnt til mikillar áróðursherferðar á vegum DEMKO, raffangaprófunarinnar dönsku, til að vara við notkun á raf- magnshitapúðum, án þess að fyllstu varúðar sé gætt, en reynslan hefur leitt í Ijós, að fólki hættir til að sýna andvara- leysi, t.d. sofna út frá púðunum, sem hefur leitt til brunasára og jafnvel dauða. Þrátt fyrir þessa áróðursherferð, hafði samt ekkert lát orðið á slysum af völdum þeirra nú rétt fyrir jólin, þegar málið fékk byr undir báða vængi að nýju. Einkum eru það austur-þýskir hitapúðar af vörumerkinu Ullco, sem hafa reynst hættulegir, en eins og orð yfirlæknisins hér að ofan benda til. er engum raf- magnshitapúðum algerlega treystandi. Yfirlæknirinn bendir á, að reglum um rafmagnshitapúða í Danmörku verði nauðsynlega að breyta. Hann nefnir sem dæmi, að lögin heimili púða, sem hitni upp í allt að 85 gráðum, þegar vitað sé, að menn geti hlotið alvarleg brunasár við aðeins 50 stiga hita. En hvernig er þessum málum háttað hér á landi? Við tókum Berg Jónsson, rafmagnseftirltisstjóra, tali og spurð- umst fyrir um lög og reglugerðir hér á landi. Alþjóðlegar prófunarreglur „Það gildir um flestöll rafföng, sem flutt eru til landsins, og öll þau rafföng, sem notuð eru til venjulegs heimilishalds eða á skrifstofum ,hérálandi,aðþaueru prófunarskyld. Við höfum gefið út skrá yfir prófunarskyld rafföng og þar eru m.a. taldir upp hitapúðar, hitateppi, hitakoddar o.s.frv.," sagði Bergur Jónsson. Reglurnar, sem stuðst er við, eru alþjóðlegar og í meginatriðum þær sömu alls staðar. hvað varðar hitapúða, kodda og teppi eru ekki nein frávik frá þessum reglum hérlendis, Samkvæmt þessum reglum er reyndar skylda að notkunarreglur og leiðarvísar séu á tungumáli þess lands, sem varan er seld í. En að sögn Bergs verður að taka tillit til fámennisins á íslenskum markaði og með hliðsjón af tungumálakunnáttu íslendinga, sem flestir kunna yfirleitt eitthvert Norðurlandamálanna eða ensku og jafnvel þýsku, eru ekki í öllum tilvikum gerðar kröfur til þess að leiðar- vísir sé á íslensku Hafi einhverjir Ullcohitapúða undir höndum eru þeir beðnir um að koma þeim til Rafmagnseftirlitsins Bergur lagði á það áherslu, að ef svo vill til, að einhverjir hafa Ullcohitapúða undir höndum, en það eru einmitt þeir, sem valdið hafa mestum usla í Dan- Banri á mörku ■ Sem komið er hafa 200.000 um- ræddra austur-þýskra hitapúða verið seldir í Danmörku fyrir aUs um 20 millj. króna. Hér er því ekki einungis um hcilsuspursmál að ræða, heldur líka fjárhagslegt og kemur því til kasta margra aðila. Fors.varsmenn DEMKO, en sústofn- W gEVMA skal hitak< fj.OC VKíUA HAKN CECJ* aVATNSHELDU VERt. ‘ A GÆTA SKAL J'ESS, Ai ®SAMHANDt AN CÆ2LU. M EKKÍ MÁ BIUÓTA 8 WpECAR HANN ER 1 NOT |;lf HANN NÆUJM E0A PR PAHN A ÞURBUM STAfi, uca og svita t ». tm OANN SÉ EKKI LENOI i t VEFJA HANN SAKtM ín, og ekki mA wnm* i lHUJJ * |l - ■■ ■ Leiðbeiningar um notkun hitapúða, -teppa og -kodda á íslensku eru ásaumaðar á gripina. Fylgið þeim út í æsar og fylgist vel með að þeir séu ekki bilaðir. Þá á öllu að vera óhætt. (Tímamynd Róbert) mörku, verði þeir beðnir um að koma þeim til Rafmagnseftirlits ríkisins. Síðu- múla 13, 105 Reykjavík. Viðvaranir á íslensku saumaðar á hitapúða Hvað varðar hitapúða, hitateppi og hitakodda hefur Rafmagnseftirlit ríkis- ins hins vegar gert kröfu um að ákveðnar viðvaranir á íslensku séu saumaðar á púðana. Það er því ófrávíkjanleg skylda að sögn rafmagnseftirlitsstjóra. Slys hafa orðið hér á landi af völdum rafmagnshitapúða Jón Gamalíelsson deildartæknifræð- ingur hjá Rafmagnseftirliti ríkisins tjáði okkur, að þess væru dæmi hér á landi, að kviknað hafi í og brunnið rúmdýnur af völdum rafmagnshitapúða en ekki mörg. í þeim tilfellum hafi komið í ljós að um bilaða púða hafi verið að ræða, eða þá að sýnt hafi verið aðgæsluleysi í notkun þeirra, cn eins og áður sagði eru greinargóðar leiðbeiningar á íslensku ásaumaðar púðunum og á að fylgja þeim. Jón kvað helst hættu á því, að þegar púðar væru orðnir gamlir og slitnir, gætu þeir farið að mishitna og það gæti leitt til íkviknunar. Eins ef hitastillir bilaði, þá gæti illa farið. Eins er rétt að brýna fyrir fólki að sofna aldrei frá rafmagnspúðum, né nota þá samanbrotna. Það þarf því að fylgjast vel nteð að púðarnir séu í góðu lagi og fara í einu og öllu eftir leiðbeiningunum, sem á þá eru saumaðar. ■ 58 ára gömlum Dana, sem hefur verið sjúkur af sykursýki síðan hann var 19 ára, var kalt á fætinum, svo að hann stakk rafmagnshitapúðanum í samband og lagði hann ofan á fótinn. Síðan gætti maðurinn ekki að sér, en blundaði. Einni klukkustundu síðar vakti kona hans hann og varð hann ekki var við, að neitt hefði gengið úrskeiðis. Morguninn eftir voru komnar á fótinn stórar brunablöðrur og nú benda allar iíkur til þess, að hann missi tvær tær. Vegna sykursýkinnar er maðurinn ekki eins tilfinninganæmur í fótunum og þeir, sem heilbrigðir eru. sölu Ullcopúðanna í Dan dregur dilk á eftir sér un svarar til raffangaprófunar Raf- magnseftirlits ríkisins hér, hafa lýst yfir því, að þeir harmi að hafa hleypt þessum gallagripum á markaðinn. Ekki vilja þeir þó fallast á að mistök hafi verið gerð á þeirra stofnun eða að hún beri nokkra fjárhagslega ábyrgð. Samt hefur sala þessara púða verið bönnuð á dönskum markaði. Einn innflytjenda púðanna hefur lagt kæru á DEMKO og Elektricitetsrádet, en þessar tvær stofnanir svara til Raf- magnseftirlits ríkisins hér, fyrir „om- budsmand" þingsins. Er búist við að sá málarekstur allur taki langan tíma, en fari svo að „ombudsmanden“ fallist á sjónarmið innflytjandans, má gera því skóna að í kjölfarið komi fjölmörg kærumál, þar sem þessi innflytjandi og aðrir fari fram á liiminháar skaðabætur frá ríkinu fyrirsölubannið á Ullcopúðun- um og þann hnekki, sem þeir hafa hlotið. Á sama tíma og „ombudsmand" þingsins fjallar um þetta mál, er „For- brugerklagenævent“ einnig að rannsaka það. Þetta ráð á að úrskurða um, hvort kaupendurnir eigi rétt á endurgreiðslu fyrir hitapúða, sem Tceyptir voru fyrir meira en 12 mánuðum. En einnig hér má búast við að langan tíma taki að komast að niðurstöðu og þegar hafa mörg þúsund kaupenda skilað púðum sínum án þess að fá endurgreiðslu, eða bara hreinlega rifið þá í tætlur og hent þeim.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.