Tíminn - 10.01.1984, Page 15
ÞRIÐJUDAGUR 10. JANUAR 1984
krossgáta
15
~wr:' r i_
m m
77“ MjTz- —
4246.
Lárétt
1) Snúið. 6) Nonni. 8) VII. 9) Fálát. 10)
Fótavist. 11) Eydd. 12) Beita. 13) Bára.
15) Skelfd.
Lóðrétt
2) Maður. 3) Lézt. 4) Ríki. 5) Skömm.
7) Skin. 14) Kemst.
Ráðning á gátu no. 4245
Lárétt
1) Tangi. 6) Púl. 8) Lóa. 9) Auð. 10)
Tár. 11) Sóa. 12) Afl. 13) Tár. 15) Ansir.
Lóðrétt
2) Apavatns. 3) Nú. 4) Glaðari. 5)
Blása. 7) Aðall. 14) Ás.
bridge
■ í 6. og síðustu jólaþrautinni spilaði
austur vörn í 4 spöðum.
Norður
S. A93
H.G632
T. AKD7
L.82
Vestur
S. 4
H.987
T. 86542
L. KD94
Austur
S. K72
H.D1054
T. 10
L.A10653
Suður
S. DG10865
H.AK
T. G93
L.G7
Vestur spilaði út laufakóng sem austur
yfirtók með ás til að spila tígultíunni.
Suður tók á gosann heima og síðan ás og
kóng í hjarta áður en hann spilar spaða-
drottningunni. Pegar vestur lét spaða-
fjarkann stakk suður upp ásnum í borði
og spilaði hjartagosanum. Og nú var
lesendum boðið að taka við.
Það er augljóst að suður er að undir-
búa eitthvað bellibragð því spila-
mennska hans hefur verið mjög grun-
samleg til þessa. Af því þetta er spila-
þraut hafa víst flestir ákveðið að lausnin
sé að leggja ekki hjartadrottninguna á
gosann. Það er að vísu rétt eins langt og
það nær en menn fá ekki 10 fyrir
þrautina nema þeir finni forsendurnar
fyrir þessari spilamennsku.
Það ér augljóst að suður er hræddur
við tígulstunguna fyrst hann svínaði ekki
spaðanum. Gallinn við spaðasvín-
unguna er sá að austur taki á kónginn,
spili laufi á drottningu vesturs og fái
síðan tígulstungu. Þess vegna ætlar
suður frekar að spila uppá spaðann 2-2
með smá aukamöguleika sem hann er að
undirbúa. Ef hann tekur ás og kóng í
hjarta, spilar síðan spaða á ásinn og
hjartagosa úr borði, og austur leggur
drottninguna á, getur suður einfaldlega
hent laufasjöinu heima. Þar meðer hann
búinn að klippa á samganginn hjá AV og
austur kemur vestri ekki inn að gefa sér
tígulstunguna.
En ef drottningin kemur hinsvegar
ekki frá austri á hjartagosann er hættulegt
fyrir suður að henda laufgosanum
heima. Þá gæti svo farið að vestur
kæmist inn á hjartadrottninguna og spili
tígli sem austur trompar og síðan kemur
í ljós að spaðinn liggur 2-2 eftir allt saman.
Suður ætlar því að trompa hjartagosann
og spila spaða. Og þá kemur til kasta
austurs.
Þetta er því ástæðan fyrir að austur
verður að spila hjartatíunni þegar suður
spilar hjartagosanum úr blindum. Og til
viðbótar verður hann að gera það hratt
og örugglega því ef hann fer að hugsa sig
lengi um hefur komist upp um kauða.
myndasögur
Dreki
En rétt áður fór lítill bátur frá því.
Svalur
Kubbur
Með morgunkaffinu
- Ég sagði þér að þetta væri sjáflstýring.
- Er þctta nú ekki að verða fullmikið af
því góöa? Ef þú ert of taugaóstyrkur tii
að svíkja undan skatti, ættirðu bara að
láta það vera.