Tíminn - 12.01.1984, Page 1
BSRB vil! strax 5% grunnkaupshækkun — Sjá baksíðy
FJÖLBREYTTARA
OG BETRA BLAÐ!
Fimmtudagur 12. janúar 1984
10. tölublað - 68. árgangur
Siðumúla 15—Pósthólf 370Reykjavík—Ritstjórn86300—Auglýsingar 18300— Afgreidsla og áskrift 86300 — Kvoldsimar 86387 og 86306
VERKFAIL ER BODAÐ í AL-
VERINU EFTIR TVÆR VIKUR
— kröfurnar hljóða upp á sama kaupmátt og 1982 og mánadarlega verðbóta-
útreikninga — „Hvorugt kemur til greina” segir Ragnar S. Halldórsson
■ Fclagar í 10 stéttarfélögum í
Álverinu ■ Straumsvík hafa boð-
að verkfall frá 27. janúar, ef ekki
hefur samist fyrir þann tíma.
Það eru aðeins félagar í Rafíðn-
aðarsambandinu og Verslun-
armannafélagi Hafnarfjarðar
sem ekki hafa lýst yfír þátttöku í
verkfallinu en í báðum félögum
verða fundir í dag.
Að sögn Arnar Friðrikssonar
trúnaðarmanns starfsfólks í ál-
verinu hafa samningaumleitanir
staðið yfir síðan í september,
síðasti sáttafundur var haldinn
rétt fyrir áramót og eftir þann
fund hefðu menn metið málin
þannig að ekki væri ástæða til
frekari fundahalda að óbreyttum
aðstæðum. Starfsfólk við álverið
hefur alltaf gert sérstaka samn-
inga án samflots við önnur verka-
lýðsfélög eða starfshópa og
runnu samningar við ísal út í
október síðastliðnum.
Örn vildi ekki greina frá kröfu-
gerðinni, en að sögn Ragnars S.
Halldórssonar eru höfuðatriði
hennar endurheimt kaupmáttar
ársins 1982 og mánaðarlegar
leiðréttingar vegna verðlags-
breytinga. „Hvorugt er til um-
ræðu af okkar hálfu," sagði
Ragnar í samtali við blaðið í
gærkvöldi. Hann sagðist ekki
hafa neitt um verkfallsboðunina
að segja, „Þeir ganga þá út ef
þeir kjósa svo,“ sagði hann en
bætti við að málið hefði ekki
ennþá komið til kasta sáttasemj-
ara ríkisins. Ef rafiðnaðarmenn
í álverinu og félagar í Verslunar-
mannafélagi Hafnarfjarðar taka
undir verkfallsboðunina verða
það um 500 manns sem lcggja
niður vinnu þann 27. janúar,
hafi samningar ekki tekist.
- JGK
f m
Heimilisraf-
magn hækkad
í H veragerði en
lækkað á at-
vinnurekstri:
íbuum bent
á að spara
með því að
leggj'a frysti-
kistum
■ „Með þessari hreytingu eru
það 100 þús. krónur á mánuði
sem ihaldið í Hveragerði fíerir
atvinnurekendum á kostnað
heimilanna. miðað við taxtana
eins og þeir voru áður. Ihaldið
þekkir sina og vill verðlauna
þá, enda eru 3 af þcssum 4
hrcppsnefndurfulllrúum þeirra
i húpi atvinnurekenda", sagði
Garðar Hannesson einn af 3
hreppsnefndarfulltrúum
minnihlutans í Hverageröi.
A hreppsnefndarfundi í
Hveragerði var í fyrradag sam-
þykkt af mcirihluta hrepps-
nefndar að breyta töxtum Raf-
magnsveitu Hveragcrðis á
þann veg að luekka heimilis-
taxtana um 8,13% og lækka
taxta atvinnufyrirtækjanna um
svipaða próscntu, að siign
Garðars. Garðar sagði haröar
deilur hafa orðið á fundinum,
M.a. hefði þá einn af fulltrúum
Sjálfstæðisfíokksins sagt aö
fólk gæti sparaö rafmagn á
heimilum, t.d. meö því að vera
ekki með frystikistur.
Breyting þessi var köiluð
samræming á töxtum. Að sögn
Garðars hafa tckjur
Ralmagnsveitu Hveragerðis til
þessa að hálfu komið frá heimil-
unum og að hálfu l'rá atvinnu-
rekendum. Miðaö viö sömu
notkun breytast nú að hlutföll-
in þannig að 58% teknanna
komi frá heimilunum en aðeins
um 42% frá atvinnurekendun-
um.
-HEl
■ Brim við Örfirisey
Tímamynd Róbert
Fólksfjölgun á íslandi á síðasta ári varð öll á Suður- og Suðvesturlandi:
ÍBÚUM HAFÐI AÐEINS FJðLGAD
UM131 ðBRUM IANDSHLUTUM!
■ Fólksfjölgun á íslandi á
síðasta ári varð öll á Suður-
og Suövesturlandi. Alls
fjölgaði íslendingum um
2.914 manns frá 1. des. 1982
til 1. des. 1983 samkvæmt
bráðabirgðatölum Hag-
stofunnar, er það 1,24%
fjölgun, sem er nokkru
minna en árið 1982, en ann-
ars meiri en á árinu 1974.
Af þessari 2.914 manna
fjölgun eru 2.357 á höfuð-
borgarsvæðinu, þar af 1.324
í Reykjavík. Á Reykjanesi
fjölgaði um 262 og á Suður-
landi um 275. Á öllu landinu
utan þessa svæðis fjölgaði
íbúum aðeins um 13 manns.
Þótt mannfjöldi á lands-
byggðinni standi nánast í
stað hefur töluverð breyting
orðið milli staða. í sveitar-
félögum með yfir 1.000 íbúa
varð fækkun hlutfallslega
mest 2,5% í Bolungarvík
(38 manns), 1,5% á Siglu-
firði (24) 1,3% í Ólafsvík
(13), 1,2% á Eskifirði (16
manns) og minni fækkun á
Patreksfirði, Höfn og ísa-
firði. Á Seyðisfirði, Nes -
kaupstað, Blönduósi,Akttr-
eyri og Akranesi stóð mann-
fjöldi svo að segja í stað.
Sýslur þar sem fólki fækkaði
eru: Borgarfjarðar-, Dala-,
V-Barð.-, N-ís.-, Stranda-,
Vestur- og Austur Hún.-,
N-Þing. og A-Skaftafellss.
Af sveitarfélögum utan
höfuðborgarsvæðisins með
yfir 1.000 íbúa fjölgaði hins
vegar mest í Hveragerði
5,9% (81 íbúa), um 3,7% í
Stykkishólmi (43) og á
Egilsstöðum (51).
-HEI