Tíminn - 17.01.1984, Blaðsíða 1
. Allt um íþróttir helgarinnar — Sjá bls. 11-15
.. '___________' _ •- ' •
FJÖLBREYTTflRA
OG BETRA BLAÐ!
Þriðjudagur 17. janúar 1984
14. tölublað - 68. árgangur
■ Þyrla Landhclgisgæslunn-
ar TF-GRÓ sótti 2ja ára stelpu
Herdísi Jónsdóttur norður í
Munaðarnes í Ámeshreppi á
Ströndum en sú litla þjáðist af
kviðsliti og þurfti að komast
undir læknishendur hér í borg-
inni.
Að sögn Benóní Ásgríms-
sonar flugstjóra íleiðangrinum
höfðu þeir tvisvar áður frá
jólum reynt að ná í stelpuna,
en orðið frá að hverfa vegna
veðurs og snjóa.
„Þessi staður er mjög ein-
angraður og því urðum við að
nota þyrluna til að ná í stelp-
una“, sagði hann.
Fiogið var héðan kl. 10 í
gærmorgun og komið aftur um
kl. 12.30 cn mjög gott veður
var alla leiðina. Og hvernig bar
sú stutta sig í þyrlunni?
„Mjög vel" sagði Benóní...
„hún svaf alla leiðina".
Með í förinni suður var faðir
stelpunnar Jón Elfas Jónsson.
-FRI
■ Einar Bjarnason flugvirki
ber Herdísi út úr þyrlunni.
Tímamynd Árni Sæberg.
Sidumula 15 - Postholf 370 Reykjavik - Ritstjom 86300 - Augtysingar 18300 - Afgreidsla og askrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86306
TF-GRÓ þyrla Landhelgis-
gæslunnar:
SÓTT12JA
ÁRASIELPU
ÁSIRANDR
VÐCHR LÆKKA UM
6% í VIKULOKIN
■ Enn ein vaxtalækkunin verð-
ur nú þann 21. janúar og munu
vgxtir lækka að meðaltali um ca.
6 prósentustig samkvæmt heim-
ildum Tímans, þannig að vextir
verða eftir þann 21. þessa mán-
aðar í kringum 20%.
Þetta er fjórða almenna vaxta-
lækkunin, frá því að vextir byrj-
uðu að lækka í september sl.
Vextir hafa lækkað gífurlega frá
því í september, því þá voru
vextir t.d. á almerinum skulda-
bréfum 47%, þeir er.u í dag 27%
og samkvæmt heimildum Tím-
ans verða þeir komnir niöur í
21% þann 21. þessá mánaðar.
Þessi vaxtalækkun nú er ákveðin
m.a. vegna þess að menn hafa
vcrið ntjög varkárir í lækkun
vaxtanna miöað við verðbólgu-
þróuriina.
-AB
Sker Verðlagsráð upp herör gegn greiðslukortunum?
„ÞEIR SEMSTflÐ-
GREIÐA FAI STflÐ-
GREIÐSLUAFSLÁTT“
— segir forseti ASÍ, sem f lutt hef ur tillögu þess ef nis
í ráðinu
Skaftamálið:
DÓMSRANNSÓKN
MUN HEFJAST
í ÞESSARI VIKU
■ „Ég lagði fram tillögu á
fundi verðlagsráðs þess efnis að
sú mismunun sem nú tíðkast á
milli þeirra sem nota greiðslu-
kort og þeirra sem staðgreiða,
verði afnumin," sagði Ásmund-
ur Stefánsson, forseti ASI, er
Tíminn ræddi við hann í gær,
eftir að hann hafði verið á fundi
verðlagsráðs.
„Ég lagði til,“ sagði Ásmund-
ur, „að þeim söluaðilum sem
veita greiðslukortaþjónustu
verði gert skylt að veita við-
skiptavinum sem staðgreiða
staðgreiðsluafslátt, sem sé hið
minnsta hinn sami og kostnaður
söluaðilans er vegna greiðslu-
kortaþjónustunnar, sem er að
líkindum einhvers staðar á milli
5 og 8%“.
Ásmundur sagði að sér þætti
það skipta miklu máli að sú
mismunun sem þarna tíðkast
væri afnumin. Ef þetta kerfi,
eins og það er í dag, héldi áfram
óbreytt, þá myndi það leiða til
þess að þeir sem staðgreiða,
greiddu alltaf hærra verð, en
þeir sem notfærðu sér greiðslu-
kortaþjónustuna. Slíkt væri að
hans viti alveg fráleitur hlutur,
auk þess sem það væri Ijóst, að
slíkt fyrirkomulag myndi nær
óhjákvæmilega leiða til verðlags-
hækkunar, sem væri tæpast
nokkrum í hag.
-AB
Eimskip
70 ára
— sjá bls.
10
■ Dómsrannsókn í hinu svo-
kallaða Skaftamáli mun hefjast í
þessari viku og hefur Bragi Stein-
arsson vararikissaksóknari þegar
fengið tilkynningu þess efnis frá
dómaranum í málinu Ágústi
Jónssyni.
Ágúst Jónsson sagði í samtali
við Tímann að Ijóst væri að í
upphafi myndu kærandinn og
hinir ákærðu í málinu verða
kallaðir fyrir dóminn en síðan
ylti það á því hvað fram kæmi,
um framhaldið.
„Það er ríkissaksóknari sem
gerir þessa kröfu og hann gerir
þá jafnframt grein fyrir því
hverja hann vill láta kalla fyrir,
dómurinn á ekki neitt frumkvæði
í þessu. Rannsókninni verður
haldið innan þeirra marka sem
beiðni ríkissaksóknara segir til
um", sagði Ágúst.
Agúst sagði ennfjremur að ekki
væri á þessu stigi málsins hægt að
segja til um hve langan tíma
dómsránnsóknin tæki, það ylti á
því hvernig hún þróaðist.
-FRI