Tíminn - 17.01.1984, Blaðsíða 13

Tíminn - 17.01.1984, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 19!M 17 Pels úr sérunnum lambaskinnum og minnir helst á persneskan lambaskinnspels. ■ Herrapeysa með leðurbótum á erm- um til hlífðar. Góð peysa í vetrarkuldan- um. (Tímamyndir G.E.) ■ Sportlegur fatnaður fyrir ungt folk. ■ Iðnaðardeild Satnbandsins kynnti það nýjasta í framleiðslu sinni í ullar- og skinnavörum á tískusýningu sl. fimmtudag í Átthagasal Hótels Sögu. Þar var fyrst og fremst sýndur fatnaður, sem er fram- leiddur til útflutnings, en mun jafnt og þétt koma líka á innlendan markað. Skinnaiðnaðurinn er elsti þátturinn í starfsemi Iðnaðardeildar og byrjaði hann 1923. Tveir meginþættir í skinnaiðnaðin- um er sútunin og hins vegar fullvinnsla fatnaðar úr fullsútuðum gærum. Á 4. hundrað þúsund lambagærur voru fullunnar árlega og á sl. ári voru fram- leiddar um 6100 mokkaflíkur á skinna- saumastofunni. Á fimm árum hefur framleiðsla full- vinnslu sútunarinnar tvöfaldast, einnig er um rúmlega tvöföldun að ræða á skinna- saumastofu á sama tíma. Nýlega var gerður samningur um sölu 10.000 skinnkápa til Sovétríkjanna, en þar og í Skandinavíu og víðar í Norður- Evrópu eru meginmarkaðir fyrir fullunnin skinn og skinnavörur. Aðalframkvæmdastjóri Skinnaiðnaðar er Jón Sigurðarson en markaðsstjóri er Örn Gústafsson. Ullarvinnslan kom líka til hjá Iðnaðar- deild á fyrstu árum hennar. Ullariðnað- urinn er þannig byggður upp, að hann hefur alla þætti ullarvinnslunnar til með- ferðar, allt frá ullarlitun, þar til varan er komin fullunnin í hendur umboðsmanns, eða í hillur verslana hérlendis eða erlend- is. Aðstoðarframkvæihdastjóri Uliariðn- aðar er Sigurður Arnórsson, en markaðs- stjóri er Þórður Valdimarsson. Iðnaðardeildin á Akureyri hefur um 1000 manns í vinnu, og sagði Hjörtur Eiríksson, framkvæmdastjóri, í ávarpi á sýningunni, að framtíðarhorfur væru góðar. Mætti starfsfólk Iðnaðardeildar vera öruggt um sinn hag, þar sem allar líkur bentu til aukinnar starfsemi þar, vegna mikillar eftirspurnar eftir fram- leiðsluvörunum og markaðslöndum færi stöðugt fjölgandi. Hér á síðunni viljum við gefa lesendum Heimilistímans svolítið sýnishorn af því sem þarna var að sjá. ■ Nappa-pelsjakki fynr dómur. Hann er ofoðraður, því að loðnan snýr inn, og er mjúkur eins og mokkaskinnsflík, þó leðuráferð sé á jakkanum. 1‘etla e> nýjasta vinnsluaðferðin á skinnum hjá Iðnaðardeildinni. ■ Grár mokkaskinnsjakki fyrir herra, hlýlegur og mjög fallegur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.