Tíminn - 17.01.1984, Blaðsíða 3

Tíminn - 17.01.1984, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 19X4 fréttir Lagarfossmálið upplýst: JATNINGAR GÆSLUVARDHALDS- FANGANNA GREIDDU ÚR MAUNU ■ „Þeir þrír menn sem setið hafa í við blaðið í gær þegar spurst var fyrir um gæsluvarðhaldi vegna þessa máls hafa Lagarfossmálið svonefnda. Einn maður allir játað að hafa verið aðilar að því situr nú inni vegna málsins en um hver á sinn hátt“, sagði Gísli Björnsson helgina var sleppt úr haldi manni sem hjá fíkniefnadeild lögreglunnar í samtali setið hafði í gæsluvarðhaldi í rúma 70 daga. Málið er í höfuðdráttum upplýst fíkniefnum. hassi, amfetamíni og kóka- að sögn Gísla, en hann kvaðst á þessu íni. 5 kg afhassi, 240grömm af amfeta- stigi ekki geta látið uppskátt hvort fleiri míni og 20 grömm af kókaíni. Söluverð- tengdust því en áðurnefndir þrír menn. mæti þessara efna er á bilinu 2.6 til 3 Lagarfossmálið snýst um smygl á milljónir miðað við gangverð eínanna á markaði um þessar mundir. Málið verður á næstunni afhent fíkni- efnadómstólnum og þaðan fer það vænt- anlega til ríkissaksóknara. -JGK íbúð full af reyk: Gleymdu að slökkva á matarofni ■ Slökkviliðið í Reykjavík var kallað út að Bergstaðastræti 50 á laugardags- morguninn en þar lagði mikinn reyk út úr einni íbúðinni. í Ijós kom að íbúarnir höfðu gleymt að slökkva á matarofni sem í voru matarleifar en íbúarnir, sem voru tveir, voru hinsvegar í fastasvefni þegar slökkviliðið bar að garði. Slökkviliðið slökkti á ofninum og loftaði út íbúðina en íbúarnir voru sendir á slysavarðstofuna vegna hugsan- legrar reykeitrunar. Þeim mun þó ekki hafa orðið meint af þessu. -FRI Dómsmálaráðuneytið vegna áskorananna frá Akureyri: Engar rétt- arheimildir — er að f inna fyrir hand- hafa framkvæmda- valdsins til afskipta af niðurstöðum dómstólanna ■ Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hef- ur sent frá sér fréttatilkynningu vegna áskorunar á sjötta hundrað Akureyr- inga þess efnis að dómsmálaráðherra hlutist til um að ekki verði framkvæmdur með útburði, a.m.k. um sinn, dómur Hæstaréttar sem skyldar tiitekna eigend- ur að íbúð í fasteign á Akureyri ti! að flytja úr húsnæði sínu þar sem sannað var talið að þeir hefðu gerst sekir um stórkostleg og ítrekuð brot gagnvart eigendum að íbúðarhúsnæði í sömu fasteign. í tilkynningunni segir m.a.: „Af þessu tilefni vill dómsmálaráðu- neytið benda á að stjórnskipun íslands er byggð á þrískiptingu ríkisvaldsins, og segir í 2. grein stjórnarskrárinnar að dómendur fari með dómsvaldið. Engar réttarheimildir er að finna fyrir handhafa framkvæmdavaldsins til afskipta af niðurstöðum dómstólanna. Dómstólarn- ir geta hinsvegar samkvæmt 60. grein stjórnarskrárinnar ógilt löglausar á- kvarðanir yfirvalda, þar sem dómstólum er falið að skera úr ágreiningi um embættistakmörk yfirvalda. Jafnframt skal á það bent, að þeir sem dóma hafa fengið fyrir máli sínu geta leitað aðstoðar fógeta sem dómara til fullnustu á dómi, og er lögreglu skylt að veita fulltingi við fullnustu úrskurðar.“ í tilkynningunni er ennfremur vakin athygli á því að umfjöllun um þetta mál í fjölmiðlum hefur mótast mjög af til- finningaafstöðu og þyki því rétt að benda á að dómar og úrskurðir með samskonar niðurstöðu hafa a.m.k. þrí- vegis gengið hér á landi. -FRI í vöruafgreiðslu notar EIMSKIP tæki til að flytja vörur á milli staða. Þessi tæki heita a) Flytjarar b) Slakarar c) Lyftarar 2. EIMSKIP lestar og losar skipin og hefur vöruafgreiðslu í Reykjavík í nýlegri höfn. Hún heitir a) Nýhöfn b) Sundahöfn c) Friðarhöfn 5. Hvað vinna margir hjá —í Or, 3. Hvað er EIMSKIP meö mörg skip í siglingum? a) 5 b) 20 c) 40 4. Fyrsti formaður EIMSKIPS varð síðan fyrsti forsefi lýðveldis íslands. Hann hét a) Sveinn Björnsson b) Ásgeir Ásgeirsson c) Jón Sigurðsson EIMSKIPS samtals 1.068.000 sjómílna vegalengd sem a. jafngildir a) Siglingu frá Reykjavík til Japan b) Ferð 7 sinnum kringum hnöttinn c) Siglingu 5 sinnum til tungslins •TTvT . EIMSKIP veitirviðskiptavinum sínum margs konar þjónustu. Það sem vakið hefur sérstaka athygli er a) Heimakstur á vörum til viðskiptavina - Flutningur heim í hlað. b) Sérstakar skyndiferðir með hraðbátum milli landa. c) Hnattferðir fyrir farþega Hvað hét fyrsta skip EIMSKIPS? a) Dettifoss b) Gullfoss c) Fyrstifoss 9. Mikið af vörum sem EIMSKIP flytur er flutt í sérstökum geymslum. Þær eru kallaðar a) Hámar b) Gámar c) Tankar 10. Halldór Laxness kom með bókmenntaverðlaun Nóbels til (slands með Gullfossi árið EIMSKIP býOur bömunum í spennandi spurnlngalelk Þriðjudaginn 17. janúar eigum við í Eimskip stórafmæli. Þann dag höfum við annast farsælar siglingar og flutningsþjónustu fyrir íslensku þjóðina I sjö áratugi. Eins og venja er á merkum tímamótum bryddum við upp á ýmsu skemmtilegu til hátíðabrigða, bæði fyrir börn og fullorðna. í dag bjóðum við öllum krökkum á grunnskólaaldri I spurningakeppni þar sem vegleg verðlaun eru í boði. Við tengjum spurningarnar, sem eru krossaspurningar, sögu Eimskips í sjötíu ár og bendum ykkur á að leita ráðlegginga hjá eldri kynslóðinni ef eitthvað reynist erfitt. Gangi ykkur vel - og góða skemmtun! Svarseðill Krossið við réttan bókstaf □ a Da Da Da Da 1) □ b 2) □ b 3) Db 4) □ b 5) Db □ c 'Oc Dc Qc Dc □ a Qa Qa Oa Qa 6) Db 7) □ b 8) Db 9) Db 10) Db □ c Qc Dc Qc Qc Nafn . Heimilisfang Sími_________ . Aldur . Verðlaunin 1. Hringferð fyrir tvo með Álafossi eða Eyrarfossi til Englands, Hollands, Belgíu og Þýskalands næsta sumar. 2. Hringferð fyrir fvo með Dettifossi eða Mánafossi til Noregs, Svíþjóðar og Danmerkur næsta sumar. 3.-10. Vandaðar sjálfvirkar myndavélar. 10.-50. Bókaverðlaun. Utanáskriflin er: EIMSKIP Pósthússtræti 2 Afmælisgetraun 101 Reykjavík Skilafrestur er til 1. febrúar 1984. Flutningur er okkar fag i EIMSKIP 0 0 Sírni 27100 *

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.