Tíminn - 17.01.1984, Blaðsíða 11

Tíminn - 17.01.1984, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 17. JANUAR 19U4 15 umsjón: Samúel Örn Erlingsson SKAGASniKUR VELGDU ÍR... Fram og FH unnu stórsigra í kvennahandboltanum ■ Úr leik FH og KR í Hafnarfirði á með 10 marka mun. FH-stúlkurnar voru aðgangsharðar við mark KR, og sigruðu að lokum Tímamynd Árni Sæberg. VALSMEHN A SKRH) — sigruðu Stjörnuna 28:19 í 1. deild karla í handknattleik ■ Valsmenn leika nú æ betur í 1. deild karla í handknattleik, og virðist sem liðið muni verða á toppnum í úrslitakeppninni í vor, ef marka má þá stígandi sem verið hefur hjá liðinu að undanförnu. Valsmenn unnu stóran og verðskuldaðan sigur um helgina á Stjörnunni, 28-19. „Þetta er besti leikur Vals i vetur, það er áreiðan- legt“, sagði Hilmar Björnsson þjálfari þeirra um helgina, og er hann örugglega manna færastur að úrskurða um það. Valsmenn tóku leikinn strax í sínar hendur, og höfðu undirtökin allan leikinn. Staðan í hálfieik var 13-8 Val í hag. Margir leikmenn Vals blómstruðu í leiknum, Steindór Gunnarsson fór á kosium í fyrri hálfleik og skoraði þá Staðan er nú þessi: FH . 10 10 0 0 307-098 20 Valur . 11 8 1 2 244-215 17 Víkingur . . 10 6 0 4 238-215 12 Þróttur .... . 10 4 2 4 219-232 10 KR . 10 4 1 5 117-171 9 Stjarnan .. . 11 4 1 6 213-255 9 Haukar .... . 10 1 1 8 195-249 3 KA . 10 0 2 8 176-224 2 alls 5 mörk og Jakob Sigurðsson var atkvæðamikill. Þá átti Geir Sveinsson góðan sprett í síðari hálfleik, og skor- aði þá 3 mörk. Hannes Leifsson var yfirburðamað- ur í liöi Stjörnunnar, skoraði helming marka liðsins. Eyjólfur Bragason lék með að nýju, en óvenjulítið fór fyrir honum. Vörn Vals var enda sterk, og markvörðurinn Einar Þorvarðarson stóð fyrir sínu að vanda. Mörkin: Valur: Brynjar Harðarson 6/4, Steindór Gunnarsson 6, Jakob Sigurðsson 4, Valdemar Grímsson og Geir Sveinsson 3 hvor, Júlíus Jónasson 2, og Björn Björnsson, Þorbjörn Jensson, og Jón Pétur Jónsson 1 hver. Stjarnan: Hannes Leifsson 9/3, Magn- ús Teitsson og Eyjólfur Bragason 3 hvor, Bjarni Bessason 2, og Sigurjón Guðmundsson og Gunnlaugur Jónsson I hvor. Jón Pétur Jónsson Valsmaður var útilokaður í leiknum með rauðu spjaldi. Hann mótmælti harðlegadómi Óla Ólsen dómara, og Óli vísaði honum hið snarasta útaf og útilokaði hann. Jón hafði fengið eina brottvísun áður. Valur hefur gulltryggt annað sætið í deildinni með þessum sigri, og þar ALFREÐ GERÐI 5 GEGN BARCELONA Essen úr leik á markahlutfalli ■ Frá Magnúsi Ólafssyni, íþróttafrétta- manni Tímans í V-Þýskalandi: Alfreð Gíslason skoradi 5 mörk í 15-12 sigri Essen á Barcelona frá Spáni í Evrópukeppni bikarhafa í handknatt- lcik, og er þar með Essen fallið úr kcppni, tapaði 13-19 á Spáni. Essen byrjaði mjög vel í leiknum, og var Alfreð þá mjög atkvæðamikill. Essen komst í 5-0, og skoraði Alfreð 4 þeirra marka., Síðan dró heldur af Essen, en Barcelona seig á. Aðalmað- urinn í liði BarcelOna var spánski landsliðsmaðurinn Uria, skoraði 4 mörk. Uria er íslendingum kunnur frá landsleikjum þjóðanna, og hefur oft gert íslendingum skráveifu. - Hins vegar bar ekkert á þýsku stórstjörn- unni Wunderlich, sem Barcelona fékk til sín fyrir mikið fé. -Mól/SÖE með sæti í úrslitakeppninni, Ef stíg- andi verður svipuð hjá Val þangað til og hún hefur verið hingað til, má búast við að FH fái verðuga keppni. -SÖE ■ Handknattleiksstúlkurnar frá Akranesi vclgdu verulega einu topp- liða fyrstu deildar kvenna í handknatt- leik, IR, um hclgina. IA hafði yfir framan af leiknum, og jafnt var í hálfieik 11-11. í síðari hálfieik sigu svo IR-stúlkurnar fram tir og sigruðu 22- 16. Hin toppliðin í deildinni, Fram og FH unnu stórsigra, og virðast einungis innbyrðis viðureignir þessara liða ætla að skera úr. Ingunn Bernódusdóttir var að vanda atkvæðamest ÍR-stúlknanna í marka- skoruninni, skoraði 11/7 mörk í 22-16 sigrinum á ÍA. Ásta Óskarsdóttirskor- aði 4, Ásta B. Sveinsdóttir, Erla Rafns- dóttir og Kristín Arnþórsdóttir 2 hver, og Svanlaug Skúladóttir 1. Laufey Sigurðardóttir skoraði mest ÍA stúlkn- anna, 5/5 mörk, Ágústa Friðriksdóttir 4, Hrefna Guðjónsdóttir og Ragnheið- ur Jónasdóttir 3 hvor og Karítas Jóns- dóttir 1. Fram vann stórsigur á Val, 33-17. Leikurinn var cinstefnafrá upphafi, og staðan 17-6 í hálflcik. Oddný Sigsteins- dóttir lék mikinn afmælisleik að þessu sinni, sinn 400. leik fyrir Fram. Þá lék Guðríður Guöjónsdóttir sinn 200. leik. Þær voru enda atkvæðamestar Fram- stúlknanna í lciknum, Guðríöur mcð 11/4 niörk, og Oddný meö 8. Sigrún Blomstcrbcrg skoraði 6 mörk, Hanna Leiísdóttir 4, Margrét Blöndal 3, og Þórunn Ólafsdóttir 1. Sigurlína Bald- ursdóttirskoraði mest Valsstúlknanna, 4 mörk, Erna Lúðvíksdóttir og Karcn Guðnadóttir skoruðu 3 hvor, Hclga Lúðvíksdóttir, Elín Kristinsdóttir og Soffía Hreinsdóttir skoruðu 2 hver og Harpa Sigurðardóttir 1. FH tók KR í karphúsiö frá upphafi, komst í 6-1, og hafði yfir 14-9 í hálfleik. FH sigraði síðan 27-17. FH- liðið var jafnt í þessum leik og lék vel saman. Margrét Thcodórsdóttir og Kristjana Aradóttir voru markahæstar með 6 mörk hvor, Sigurborg Eyjólfs- dóttir skoraði 5, Katrín Danívalsdóttir og Kristín Pétursdóttir 4 hvor og Hildur Harðardóttir 2. Sigurbjörg Sig- þórsdóttir skoraði mest KR-stúlkn- anna. 6 mörk, Jóhanna Ásmundsdóttir skoraði 4, Arna Garðarsdóttir 3, og Hansína Melsted og Kristbjörg Magn- úsdóttir 2 hvor. Fylkir og Víkingur gerðu jafntefli 20-20 í hörkulcik. Fylkir hafði yfir 13-12 í hálfleik. Eva Baldursdóttir var markahæst Fylkisstúlknanna með 8/2 mörk, Rut systir hennár skoraði 4, Ágústa Hafliðadóttir 3, Helga Sigvaldadóttir og Margrét Elísabet 2 mörk hvor, og Arnheiður Bergstcins- dóttir 1. lnga L Þórisdóttir var marka- hæst Víkingsstúlknanna, skoraöi 6 mörk Eiríka Ásgrímsdóttir skoraði 4. Hclga Bragadótir 4, Svava Baldvins- dóttir 3, Valdís Birgisdóttir 2 og Sig- urrós Björnsdótir 1. Úrslit: ÍR-IA 22-16 Fram-Valur . . 33-17 FH-KR 27-17 Fylkir-Víkingur 20-20 Staðan: ÍR 8 6 2 0 175-113 14 Fram 8701 175-120 14 FH 8 6 1 1 188-137 13 KR 8 2 2 4 122-140 6 Valur 8 2 1 5 124-163 5 Fylkir 8 2 1 5 134-166 5 Víkingur .... 8 1 2 5 137-158 4 ÍA 8116 105-163 3 - SÖE. ÞRÚTTARAR SIERKARI HK var með pálmann í höndum f bikarkeppninni í blaki ■ Þróttur, íslands og bikarmeistar- arnir, tryggðu sér nánast bikarmeist- aratitilinn í blaki um helgina, er þeir sigruðu aðalkeppinaut sinn, HK í 1. umferð bikarkeppni karla. Þróttur sigraði eftir langan og erfiðan leik 3-2, eftir að HK hafði sigrað tvær fyrstu hrinurnar, og haft góða forystu í bæði Ijórðu og fimmtu hrinu. HK byrjaði leikinn afar vel, lék Þrótt sundur og saman í fyrstu hrinu, og sigraði í henni 15-3. í annarri hrinu var meira jafnræði með liðunum, en HK hafði þó tögl og hagldir. HK sigraði 15-11. I þriðju hrinu kvað við annan tón, Þróttarar náðu sér vel á strik, en HK menn virtusti dasaðir. Þróttur vann 15-4. í fjórðu hrinu hafði HK undirtökin framan af, og leiddi allt þar til í lok hrinunnar, að Þróttarar komust yfir og sigruðu 15-12. Svipað var uppi .á teningnum í síðustu hrin- unni, HK hafði yfir 13-10, en seigla og leikreynsla Þróttara kom þeim mjög að haldi er þeir mjötluðu fram sigur 15-13, eftir langar og spennandi skorpur. Unnu liðin boltann á víxl, og vannst aðeins eitt stig í einu hjá Þrótti. Það var liðsheildin sem færði Þrótti þennan sigur. Þegar þreyta gerði vart við sig hjá leikmönnum, var liðsheild Þróttar sterkari, enda sami kjarninn í liðinu nú og hefur unnið til allra titla með félaginu síðustu þrjú árin eða svo. HK, sem er skipað ungum og efni- legum leikmönnum ásamt eldri og reyndari, stóð ekki undir þeirri pressu sem á liðinu var. GuðmundurE. Pálsson varsterkasti maður Þróttar í þessum leik, og þá kom hinn ungi og cfnilegi Guðmundur Kjærnested sterkur út. Aörir voru góðir, sérstaklega þegar leið á. Lið HK var mjög jafnt, Benedikt Höskuldsson stjórnaði uppspilinu eins og hcrforingi framan af, og Ástvaldur Arthúrsson átti mjög góða spretti. Fram sigraði Breiðablik 3-1 í Kópa- vogi á eftir leik HK og Þróttar. Ekki er vitað hvort Friðbert Traustason var úrslitunum feginn eður ei, hann þjálfar bæði liðin, cn leikur með Breiðabliki. Tvcir leikir voru í bikarkeppni kvenna, Breiðablik sló ÍS út í hörku- leik 3-2. Leikið var í Hagaskóla, heimaleikur Stúdínanna. Úrslit í hrin- um urðu 4-15, 15-4, 15-12, 13-15, og 12-15. Þá sigraði Þróttur Víking 3-0, 15-13, 15-6, og 15-7. -SÖE Fram og Þór V — á sigurbraut í 2. deild karla ■ Fram hcldur áfram sigurgöngu sinni í 2. deild karla í handknattlcik, sigraði HK 20-16 í Digranesi á laugar- dag. Þór Vestmannacyjum sigraði ÍR í Eyjum, 26-20, þannig að þessi lið halda forystu sinni. HK-menn mættu reifir til leiks gegn Fram, og höfðu undirtökin í leiknum framan af, höfðu yfir 8-7 í hálfleik. Fram var svo sterkara í síðari hálfleik. HK-menn voru mjög óhressir með dómgæsluna í leiknum og töldu hana sér mjög í óhag. Talsmenn Framara voru á öðru máli. Óslar Þorsteinsson var atkvæða- mestur Framara í lciknum, skoraði 7 mörk, cn Hermann Björnsson skoraði 5. Guðni Guðfinnsson var markahæst- ur HK manna með 5 mörk, en þcir Gunnar og Rúnar Einarssynir skoruðu 3 mörk hvor. Þór í Vestmannaeyjum sigraði IR 25-20 í Eyjum í hörkuleik. Þórarar höfðu yfir 14-8 í hálfleik, en ÍR-ingar bitu töluvert frá sér í síðari. Gylfi Birgisson var atkvæðamestur Þórara í leiknum með 8 mörk, en Ragnar Hilmarsson skoraði 5. Atli Þorvalds- son var langmarkahæstur ÍR-inga, skoraði 12 mörk. Breiðablik sótti sigur í Sandgcrði, 27-24. Ólafur Bjömsson var atkvæða- mestur Blikanna þar, skoraði 7 mörk, en Björn Jónsson skoraði 5. Daníel Einarsson skoraði mest Sandgerðinga, 9 mörk. Fylkismenn náðu jafntefii 21-21 af miklu harðfylgi á Seltjarnarnesi, Grótta hafði yfir 21-18. en Árbæ- ingarnir náðu að jafna. -sjá stöðu bls. 12-13

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.