Tíminn - 17.01.1984, Blaðsíða 4
ÞRIÐJUDAGUR 17. JANUAR 19«
4
ðtmbm
fréttir
Kæran á hend-
ur Albert fyrir
hundahald:
„Tekin
fyrir eins
og hver
önnur
kæra”
— segir William
Möller, fulltrúi
lögreglustjóra
■ „Þetta mál er enn i athugun o|>
hefur sinn gang en þessi kæra verður
lekin fyrir eins og hver önnur kæra
sem keinur inn og ineðhöndluð á þeim
grunni“, sagði William Möller, fulltrúi
lögreglustjöra í samtali við Tímann er
við forvitnuðumst um stöðuna í kæru-
niálinu á hendur Albert Guðmunds-
syni fjármálaráðherra fyrir hundahald.
William átti ekki von á að langur
tími liði áður en málið yrði tekið fyrir
hjá þeim...' „þetta er svolítið viðkvæmt
mál. menn spurja um það en ekki
önnur og ömögulegt að segja fyrírfratn
um eitthvað í því áður en það er tekið
til afgreiðslu".
Þegar lögreglunni berst kæfa vegna
hundahalds, svipað og í þessu tilfelli.
er venjulega um það að ræða að ntálið
er kannað betur og ef fullljöst þykir að
viðkoinandi haldi hund er honum gef-
inn kostur á að losa sig við hann með
cinhvcrjum hætti. Ef menn hafa svo
losað sig við hann. unnaöhvort tneð
því að lóga honum, eða koma honum
út úr borginni hcfur málið ekki farið
lengra. Ef mcnn hafa viijaö Italda í
hundinn hafa málin verið scnd til
saksöknara og þar er þessum málum í
mörgum tilfellum lokið mcð dómssátt.
Ef um ítrckuð brot hefur vcrið að ræöa
er hinsvegar ákært í málinu.
-FRI
Skagafjördur:
Tveir einstakl-
ingar reisa
vatnsaflstödvar
vid býli sín
■ Tvær vatnsaflsrafstöðvar í einka-
eign hafa verið byggðar og teknar í
notkun nýlega í Skagafirði, á Vatni á
Höfðaströnd og Fremrikotum í
Norðurárdal.
Á Vatni hefur ungur bóndi. Valgeir
Þorvaldsson sem hóf búskap s.l., vor,
reist heimilísrafstöð. Leiðirhann vatn-
ið úr Gljúfurá í skurði sem myndar
uppistöðulón við stöðvarhúsið. Raf-
stööin framleiðir 14 kílóvött, sem næg-
ir til allra heimilisnota, upphitunar og
súgþurrkunar í heyhlöðu. Telur Val-
geir að stöðin tnuni borga sig niður á
2-3 árum. Svo hagaði til að bærinn
Vatn var í einskonar millistöðu við
héraðsrafveiturnar. Línan frá Skciðs-
fossi endaði við bæinn Höfða, næsta
bæ utan við Vatn, en Skagafjarðarlín-
an við bæinn Mannskaðahól næst inn-
an við Vatn.
Á Fremrikotum í Noröurárdal
byggðu þeir bræð"r Valdimar og Jón
Gunnarssynir virkjun í Strangalæk.
Rafstöðin var gangsett rétt fyrir jólin,
eða 21. dcsember s.l. Rafstöðin er 25
kílóvött og afl túrbínu 32 kílóvött. Á
Fremrikotum var olíurafstöð, enda
býlið ekki viðurkennt á samveitusvæð-
inu.
Vélavcrkstæði Braga Sigurðssonar
á Sauðárkróki smíðaði túrbínurnar í
báðar þessar virkjanir. Munu þctta
vera fyrstu vatnstúrbínurnar sem smíð-
aðar eru í Skagafirði, enda Bragi
kunnur vélsmiður og völundur.
-G.Ó/HEI
Bjarni Axelsson, stjómarform. Aðalbóls,
■ Frummælendur og fundarstjórar á fróðlegum fundi sem SUF gekkst fyrir um húsnæðismál s.l. laugardag. Frá vinstri:
Jón Rúnar Sveinsson, form. Búseta, Inga Þyrí Kjartansdóttir og Helgi Pétursson, fundarstjórar, Alexander Stefánsson, félagsmálaráðherra (í ræðustól) og
l’etur H. Blöndal, form. Húseigendafélags Reykjavíkur. Mynd Árni Sæberg.
Búseti fellur ekki
undir ákvæðin um
félagslegt húsnæði
— ad mati félagsmálaráðherra
■ „Þar sem forystumenn Búseta
skilgreina þctta nýja húsnæðisform
þannig að búseturéttur fólks eigi ekkert
að tengjast Ijárhag þess né efnahag -
eins og skýrt kom fram á þessum fundi
- þá sýnist mér alveg Ijóst að það fcllur
ekki undir þá skilgreiningu um félagslegt
húsnæði eins og það er skilgreint í
núgildandi lögum eða því fruinvarpi sem
nú er í meðförum, heldur ulmcnna
kerfið. Mér sýnist því Ijóst að þetta form
geti því ekki kontiö til greina varðandi
fjármagn úr Byggingarsjóði verkamanna
- það yrði að setja ný lög ef útvega ætti
sérstakt fjármagn til slíkra bygginga",
sagði Alexander Stefánsson, félagsmála-
ráðherra er við ræddum við hann vegna
sjónarmiða sem fram komu í umræðum
á húsnæðismálafundi SUF sem haldinn
var s.l. laugardag.
Alexander sagði lög og rcglur um
félagslegt íbúðakerfi alltaf hafa byggst á
því að með því væri verið að auðvelda
þcim sem lægstar hefðu tekjurnar og
eignirnar að komast inn í húsnæði. Það
hafi því alltaf miðast við viss tekju- og
eignamörk, hvort sem það sé hið eina
rétta form eða ekki. „Forystumenn Bú-
seta hafa aldrei fyrr talað svo í okkar
eyru að það ætti að sleppa þessum
skilningi á hugtakinu félagslegar íbúðir,
þ.e. að þetta nyja kerfi miðaðist við það
að hjálpa þeim sem verstar aðstæður
hefðu og gætu því á engan- hátt eignast
eigið húsnæði. Ef skilningur þeirra sem
eru að berjast fyrir þessu nýja fornti er
hins vegar sá að efnahagur fólks skipti
þarna ekki máli þá er auðvitað kominn
upp allt annar flötur á þessu máli. Til
hvers er þá verið að setja tekju og
eignamörk þegar fólk sækir um að
komast inn í verkamannabústaði eða
leiguíbúðir sveitafélaga ef allt í einu ætti
að koma inn í lögin þar um nýtt kerfi sem
hendir þessu öllu fyrir borð"?, sagði
Alexander. Samkvæmt því sem fram
hefði komið hjá formanni Búseta gæti
bankastjóri allt eins farið inn í búsetu-
réttarrbúð og hver annar.
Umræður á þessum húsnæðismála-
fundi SUF snérust mest um þetta nýja
húsnæðisform, sem eðlilegt er, komu
þar bæði fram skiptar skoðanir og fjöl-
margar fyrirspurnir. Sumt voru margir
þó nær sammála unt, t.d. að bankakcrfið
sé úrelt, eða eins og Pétur H. Blöndai
orðaði það. „Hér er enginn banki - þeir
cru bara fyrirgreiðslustofnanir". Þeir
Pétur og Jón Rúnar voru og sammála um
það að eitt höfuðmálið sé að fá fólk til
að spara, þótt þeir hefðu skiptar skoðan-
irá því hvernig ætti að koma því í kring.
-HEI
Fjórdungssjúkrahúsiö
á ísafirdi:
sónartæki
■ Kvenlélagið Hlíf á Ísafírði afhenti
fjórðungssjúkrahúsinu á ísafirði sónar-
tæki að gjöf í siðustu viku. Að sögn
Einars Hjaltasonar, yfirlæknis er
sónartæki þetta það fimnita af sömu
gcrð sem tekiö er í notkun hér á landi,
enda sé stefnt að því að hægt sé að hafa
sameiginlega þjónustu og kennslu fyrir
þessi tæki.
Tækið var afhent af Helgu Sigurðar-
dóttur, formanni Hlífar. Sagði hún
kaupin hafa verið ákveðin í samráði við
lækna á fjórðungssjúkrahúsinu á ísafirði
s.l. vor og þá samþykkt á fundi í
félaginu. Tækið kostaði rösklega 500
þús. krónurántolla. Kvenfélagiðsafnaði
peningum til kaupanna með blómasölu,
barnaskemmtun og glæsilegum jólabas-
ar. Tekjur af þessu nægðu þó ekki til svo
félagið gekk cinnig á byggingarsjóð sinn
til að endar næðu saman. Helga kvað
fjáröflun þó hafa gengið vel vegna þess
hve bæjarbúar bæru góðan hug til Kven-
félagsins Hlífar.
Að sögn Samúcls Samúelssonar læknis
eru kostir þessa tækis m.a. þeir að það
sýnir vel mjúka vefi oger jafnframt talið
hættulaust. í tækinu má sjá hreyfingar
fósturs - hvort þau eru fleiri en eitt -
stærð fósturs og aldur svo og ef um
vansköpun er að ræða. Einar Hjaltason
sýndi gestum á mynd hvernig tækið
greinir fóstur. Hann hrósaði dugnaði
Hlífarkvenna, sem hefðu nú gert lækn-
um á ísafirði kleyft að vinna við sömu
tæki og læknar í Reykjavík. Auk þess að
tækið sparaði vestfirskum konum
Reykjavíkurferðir í framtíðinni gæti það
stuðlað að því að læknar héldust betur
þarvestra. F.K./HEI
■ Magnús Reynir Guðmundsson tekur við sónartækinu af Helgu Sigurðardóttur
formanni Hlífar (Mynd Finnbogi).