Tíminn - 17.01.1984, Síða 10
ÍO
1'RIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 19X4
viðskiptalífið
umsjón: Skafti Jonsson
eigum líka í samkcppni viö innlenda
aðila, en einnig við erlenda, því skipa-
markaðurinn hér er opinn, þannig að
erlendir aðilar geta komið hér inn. Einn
þátturinn í okkar viðleitni er að búa
þannig um nú og í framtíðinni, að við
getum keppt við þessa erlendu aðila og
að sjálfsögðu einnig við innlenda aðila.
Ég held að samkeppnin í siglingunum sé
af hinu góða, og ég hef ekki athugasemd-
ir við hana eins og hún er í dag.“
- Eins og þú segir, þá miðast ykkar
viðleitni að því að búa í haginn fyrir
framtíðina, - viltu útfæra það aðeins
nánar?
„Við ætlum að gera það með því að
halda áfram að endurnýja skipin. Við
rekum í dag 19 til 20 skipað jafnaði. Við
eigum 15 skip, þannig að við leigjum 4
til 5 skip. Okkar markmið er það að
okkar skipafloti sé íslenskur en samt
sem áður höfum við það sjónarmið að til
þess að geta mætt árstíðarsveiflum, þá
sé eðlilegt að nota erlend skip yfir
háannatímann. Einnig höfum við farið
þá leið, að þegar við höfum verið að
þreifa okkur áfram með nýjar skipateg-
undir, þá höfum við byrjað á því að
leigja slík skip. Annar þáttur í þessu er
sá, að vió viljum með tölvuvæðingu og
endurnýjun á stjórnunarháttum tryggja
okkur það að við séum í stakk búnir að
veita þessa þjónustu. Ef ég nefni þér
nokkur dæmi um hvað er á döfinni hjá
okkur einmitt núna, þá erum við að
vinna að endurskipulagningu frystiflutn-
inganna. Við höfum unnið að þeirri
endurskipulagningu sl. tvö ár, í sam-
vinnu við Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna. Það er búið að ákveða það að allur
frystur fiskur fer á palla í útflutningnum.
Reyndar er hann kominn á pall aí
frystihúsunum að langmestu leyti, en
svo fer hann áfram á palla í skipunum.
Við gerum jafnframt ráð fyrir því að
töluvert stór hluti af frystum fiski verði
fluttur út, bæði vestur um haf og austur,
í frystigámum. Líklega verða um 40 til
45% kominn í frystigáma eftir örfá
misseri, en við erum nú búnir að kaupa
um 170 frystigáma til þess að búa okkur
betur undir þetta verkefni. Þetta þýðir
það að meira af frystum fiski fer í
áætlunarskipin, sem þýðir aftur það að
við getum tekið í hverri viku frystan fisk
til meginiandsins og á 10 daga fresti
getum við tekið frystan fisk í áætlunar-
skipin til Bandaríkjanna, og í auknum
mæli munum við safna fiski til Reykj-
avíkur af Faxaflóasvæðinu og væntan-
lega munum við einnig safna fiski af
öðrum höfnum en nú erum við að
undirbúa uppsetningu á lítilli frystigeym-
slu í Sundahöfn, fyrir 1500 tonn eða svo,
þannig að fiskurinn utan af landi komi
til Reykjavíkur í litlu frystiskipi á
pöllum, og sé síðan sorteraður þaðan út
í frystigáma eftir hendinni, eða eftir því
sem þarf að afgreiða hann. Þetta tekur
allt sinn tíma, því hér er um talsverða
breytingu að ræða, en þetta er allt á
döfinni hjá okkur. Annað sem við erum
að undirbúa er að endurnýja skipin sem
eru í Skandinavíusiglingum, þannig að
þau henti betur til gámaflutninga. Við
erum að endurskoða flutningana til
Skandinavíu í heild. Við vonumst til
þess að sigla áfram á sömu hafnir, en
með breytingum ogendurnýjun vonumst
við til þess að ná meiri hagkvæmni í
rekstrinum. Þá munum við halda áfram
uppbyggingu okkar inn í Sundahöfn, en
okkar markmið er að vöruafgreiðslan sé
sem mest þar á einum stað. Meðal
annars erum við nú að velta fyrir okkur
hvernig hægt er að auka afköst við lestun
og losun í Sundahöfn, skapa þar betra
öryggi og auka hagkvæmni. I því sam-
bandi erum við að hugleiða möguleika á
gámakrana. Þetta eru aðeins dæmi um
það sem við erum að starfa að um þessar
mundir, en að sjálfsögðu enganveginn
tæmandi upplýsingar."
- Hvað starfa margir hjá fyrirtækinu
nú?
„Hér starfa um 700 manns. Um 300
eru skipverjar, um 280 eru starfsmenn í
Sundahöfn, þ.e.a.s. bæði verkamenn og
iðnaðarmenn, og hér á skrifstofu starfa
um 120 manns, og þá er allt starfsfólk
skrifstofunnar talið. Hér hefur fækkað
starfsfólki á undanförnum árum, þannig
að fyrir nokkrum árum var hér flest
rúmlega 900. í því sambandi má geta
þess að í dag erum við að flytja um 660
þúsund tonn með um 20 skipum, en
skipin hafa verið upp í 26, þannig að í
dag erum við að flytja sama magn eða
meira en áður með færri skipum en áður
var.“ -AB
tryggja stofnun félagsins, en í hlutaút-
boðinu skoraði bráðabirgðastjórnin sem
kjörin var til þess aö undirbúa stofnun
félagsins á íslendinga að kaupa hlut í'
hinu nýja félagi fyrir 385 þúsund krúnur,
en það var sú fjárhæö sem stjórnin taldi
þurfa til að byggja tvö skip og hefja
rekstur þeirra. Stofnfundir félagsins
urðu tveir, 17. og 22. janúar, 1914, og í
þcim síðari kom fram að innborgaö
hlutafé var samtals 365 þúsund krónur
og í árslok 1915 var innborgað hlutafé
liðlega 711 þúsund krónur. I árslok 1917
nam hlutafé félagsins samtals 1.673.351
króna. Hlutatjárcigendur voru þegar
þcir voru flestir um 14 þúsund, sem er
geysilega góð þátttaka.
Fyrstu skip félagsins voru Gulifoss,
sem kom til landsins 15. apríl 1915 og
Goðafoss sein kom til landsins 29. júní
1915. Hófu skipin þegar reglubundnar
siglingar.
1 upphufi hlutaútboðsins segir svo:
Islcndingar! Navigarc neccsse (siglingar
cru nauösyn). Orð þessi ciga máske
frekar viö oss Islcndinga cn um nokkra
aðra þjóö Norðurálfunnar. Oss eru sigl-
ingar fremur öörum nauðsyn vegna þcss
að vér byggjum eyland, sem cigi liggja
að aðrar lciðir en sjórinn. Okkar sam-
göngumál eru því og verða fyrst og
fremst skipamál."
Á þessum merku tímamótum í sögu
eins stærsta og rótgrónasta fyrirtækis
landsins þótti Tímanum við hæfi að taka
forstjóra Eimskips, Hörð Sigurgestsson
tali. og spyrja nokkurra spurninga um
fyrirtækið og stöðu þess í dag.
- Hvcrnig er staða Eimskipafélags
íslands í dag?
„Aö mínu mati stöndum við þokka-
lcga í dag. Við erum hér í miðju kafi að
breyta í samræmi við nýja flutninga-
hætti. Það hafa orðið miklar hreytingar
í flutningum á stykkjavöru, og reyndar
á allri vöru á undanförnum 10 til 15
árum, og meðal annars erum við að
breyta skipastólnum vegna þess. Við
erum komnir út í einingaflutninga á
stykkjavörum til landsins, sem er mjög
þýðingarmikill hluti af flutningunum. Á
sl. ári fluttum við í kringum 660 þúsund
tonn til og frá landinu og innanlands.
Við crum cnnþá einu sinni að aðlaga
okkur að nýrri tækni, endurnýja skipa-
flotann og endurnýja og bæta aðstöðuna
í landi, þannig að hún dugi okkur til
nokkurrar framtíðar."
20 skip í förum
- I lversu mörg skip eru í förurn hjá
fyrirtækinu?
„Við siglum með 19 til 20 skipum.
Hclmingurinn af þeim er í áætlunarsigl-
ingum og hin eru í alls konar stórflutn-
ingum. 10 af þessum 20 skipum eru á sjö
áætlunarleiðum í föstum siglingum með
viðkomu í 23 höfnum í 15 löndum. Við
fylgjum viðskiptunum við ísland, því
■ Stjórnarformenn og framkvæmdastjórar félagsins, að undanskildum þeim HalldóriH. Jónssyni núvcrandi stjómar
formanni og Herði Sigurgestssyni, forstjóra. Tíniamyndir - G.E.
við erum að sjálfsögðu að flytja til og frá
þeim löndum sem cru okkar helstu
viðskiptalönd. Þcssi skipafloti þarfnast
að sjálfsögðu endurnýjunar við, cn það
er sífcllt verkefni í fyrirtæki eins og
þessu að endunýja og við leggjum
áhcrslu á það núna að endurnýja skipa-
tlotann, því mcðalaldur skipa okkar er
nú um 11 ár.en það teljum viðof hátt."
- Er rekstur fyrirtækisins með svipuðu
sniði og verið hefur, cða hafa einhverjar
áberandi breytingar vcrið gerðar?
„Viö höfum á undanförnum árum gert
talsvcrðar skipulagsbreytingar. Við
höfum dreift valdinu innanhúss, þannig
að í dag eru flciri aðilar sem hafa
mögulcika á að taka ákvarðanir og
afgreiða mál en áður. Auk þess erum við
hér í miðju kafi tölvuvæðingar. Um
áramótin voru t.d. tekin hér í notkun
tvö ný tölvukerfi. Hér er um farntskrár-
kerfi að ræða, sem felur það í sér, að
þegar vara einu sinni er komin í okkar
hendur, þá er hún bókuð inn í þessa
tölvu og síðan er hægt að fylgjast með
vörunni í gegnum tölvuna og tölvan
gctur veitt hvers konar upplýsingar um
þessa vöruscndingu. Þá erum við að
endurnýja skip okkar til þess að gera
flutningana hagkvæmari og til þcss að
standa okkur bctur í stykkinu til þess að
flutningarnir henti okkar viðskiptavin-
um sem best."
Hagnaður á síðasta ári
- Hvernig var afkorna fyrirtækisins á
síðasta ári?
„Afkoman var þokkaleg. Við erum
ekki búnir að ganga frá okkar ársrcikn-
ingum, en veltan á sl. ári var 1780
milljónir króna, scm er veltuaukning á
milli ára upp á 86% Við munum svo gera
grein fyrir afkomunni á okkar aðalfundi
en þó liggur það ljóst fyrir nú, að
hagnaður var á rekstri fyrirtækisins sl.
ár."
- Er það ekki einkennilcgt að á sama
tíma og flutningar til og frá landinu fara
minnkandi, skuli skipaflutningarfyrir-
tækin skila auknum hagnaði?
■ Eimskipafélag íslands er 70 ára í
dag, en það var stnfnað þann 17. janúar,
1914. Eimskipafélagið hefur í tilefni
ufmælisins ákveðið aö láta Ijósprenta
lítið upplag af hlutaútboðinu sem gefiö
var út 1913, þar sem skoraö er á
landsmenn að fylkja liði og kaupa hiut í
fyrihuguðu gufuskipafélagi. í formáls-
orðum er aðdragandinn að stofnun fé-
lagsins m.a. rakinn. Þar segir m.a.
„Engum einum veröureignuðhugmynd-
in að stofnun íslensks eimskipaféiags.
Umræður um hugmyndina höföu verið
margar og langar á Alþingi og einnig
meðal almennings. Frumkvæðið að því
að hefjast handa iná rekja til hóps
athafnamanna." Síöar í formálanum
kemur fram, að til þess hóps töldust þeir
Sveinn Björnsson, yfirdómslögmaður,
Björn Kristjánsson, bankastjóri Lands-
bankans, Ludvig Kaaber, stórkaupmað-
ur, Garðar Gíslason, stórkaupmaður og
Thor Jensen, kaupmaður. Hófu þeir
undirbúning að stofnun félagsins 1912,
en héldu honuin lcyndum til að byrja
með. Um mitt sumar 1913 var Ijóst orðið
að nægt hlutafé myndi safnast til að
Hörður Sigurgestsson forstjóri Eimskipafélags íslands hf. á skrifstofu sinni.
Tímamyndir - G.E. •
höfum verið að hrinda í framkvæmd,
orðið til þess að styrkja okkar rekstrar-
stöðu. Þá nefni ég þær efnahagsráðstaf-
anir sem komu til framkvæmda hér um
og eftir mitt árið 1983, sem hafa orðið til
þess að hjálpa til að skapa jafnvægi og
átt þátt í því að afkoman batnar. Ég
nefni einnig erlenda þætti eins og olíu.
og erlenda vexti - sem hafa lækkað á
undanförnum misserum. Þetta kemur
okkur að sjálfsögðu til góða, því stór hluti
af okkar fjármögnun er á erlendum
mörkuðum, eins og kaup á skipum og
tækjum."
Samkeppnin er veruleg
- Hvaða augum lítur .þú samkeppni
skipafélaganna?
„Það er veruleg samkeppni á milli
félaganna, og það má út af fyrir sig
skipta henni í tvennt. Það er annars
vegar samkeppnin í áætlanasiglingum,
þar sent við eigum í samkeppni við tvo
innlenda aðila og síðan er það sam-
keppni í stórflutningunum, þar sem við
■ Hús Eimskipafélags íslands.
„Ée get ekki taiaö nema fyrir okkur.
Okkar flutningar fóru ekki minnkandi á
sl. ári. Við liuttum ú sl. ári meiri vörur
til og frá landinu heldur en nokkru sinni
áður. Það var um 4% aukning. Það
hefur orðið svolítil breyting á samsetn-
ingunni í okkar flutningum. þannig að
flutningar á heföbundinni neysluvöru
drógust saman, í samræmi við samdrátt
þann sem varð í efnahagsmálum. Hins
vegar hefur verulegur útflutningur veriö
á árinu, en við fluttum t.d. út meira af
frystum fiski sl. ár, heldur en árið áður.
Auk þess gerðist það á síðasta ári. að
fjörkippur kom í framleiðslu stóriðjufyr-
irtækjanna, bæði álversins og járn-
blendiverksmiðjunnar. þannig að við
fluttum fyrir ÍSAL sl. ár meira magn
hcldur en nokkru sinni áður og sömu
sögu er að segja af Járnblendiverksmiðj-
unni á Grundartanga, en við fluttum
fyrir þá meira magn, en undanfarin ár.
Þannig að það hefur orðið aukning í
stórflutningunum hjá okkur og þá m.a.
fyrir þessa aðila sem ég nefndi. Auk þess
hafa hagræðingaraðgerðir sem við
EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
Á 70 ÁRA AFMÆLI í DAG