Tíminn - 18.01.1984, Síða 3
MIÐVIKUÖAGUR lfi! JANÚAR 19W
fréttir
Er verðbólgan að velli lögð?
„FYRRI HLUTINN AF ISLENSKA
KRAFTAVERKINU HEFUR GERSF
— „Blossi verðbólga hér upp aftur, þá er það ný verðbólga” Bjarni
Einarsson, forstöðumaður Byggðadeildar Framkvæmdastofnunar
■ „Ég efast um að fólk átti sig fyllilega
á því ennþá, að það þjóðfélag sem við
stöndum nú frammi fyrir er allt annað
þjóðfélag en við bjuggum í s.l. vor. Sú
verðbólga sem við höfum verið að berj-
ast við undanfarin ár er nú að velli lögð.
Fyrrihlutinn af íslenska kraftaverkinu
hefur gerst. Blossi verðbólga hér upp
aftur, þá er það ný verðbólga“, sagði,
Bjami Einarsson, forstöðumaður
Byggðadeildar Framkvæmdastofnunar
á fundi nú nýlega. Tíminn bað Bjarna að
skýra nánar þessa fullyrðingu sína og
spurði jafnframt hvort hann trúi því að
verðbólgan gjósi ekki upp á ný áður en
langt um líður.
„Verðbólguvélin var tekin úr sam-
bandi sem hefur orðið til þess að vísitölu-
hækkun nú í desember jafngildir 9%
verðbólgu á ári. Þetta kjaftæði að verð-
bólgan væri hér vegna þess að seðla-
prentsmiðjan væri í gangi og svo fram-
vegis hefur ekki átt við rök að styðjast
nú undanfarin ár. Við höfum hreinlega
búið við þá verðbólgu sem þessi verð-
bólgumaskína okkar framleiddi, sem
sagt þessi samtenging. Við héldum henni
lifandi með því að taka sífellt til okkar
stærri hlut en við áttum og bjarga svo
atvinnulífinu með sífelldum gengisfell-
ingum og gengissigi. Þessi verðbólga er
nú liðin undir lok.
Það sem gæti hleypt þessu öllu af stað
aftur er af Álverksmiðjan færi að hleypa
öllum launahækkunum af stað meðan
almennur samdráttur ríkir. Og ef það
færi svo að dollarinn tæki upp á því að
snarfalla og þá Evrópumyntir að hækka,
þá gætum við einnig lent í vandræðum.
Þetta eru tvær helstu hætturnar sem nú
blasa við."
- Á þá ekki að reikna með neinum
launahækkunum?
„Atvinnulífið er frjálst að því að
hækka kaup ef það getur. Spurningin er
hvort það getur farið að hækka kaup
þegar líður á árið vegna vaxtalækkan-
anna sem fylgja eiga með í aðgerðunum.
Með þeim erum við að leggja niður
stærsta tilfærslukerfið sem hér hefur
nokkru sinni verið byggt upp í krónum
talið, þ.e. hávaxtakerfið. Þó maður átti
sig kannski ekki fyllilega á áhrifum þessa
er þó ljóst að vaxtalækkun léttir gífur-
lega á miklum hluta atvinnulífsins, þó
þess fari ekki að gæta að ráði fyrr en
kemur fram á voriðeða sumarið. Spurn-
ingin er líka hve vextirnir eiga enn eftir
að lækka.“
- Ert þú þá sammála Albert að vöru-
verð ætti að lækka?
„Það finnst manni. Maður hefur séð
fjölmarga ársreikninga fyrirtækja þar
sem vextir hafa sífellt hækkað sem
hlutfall af rekstrargjöldum og í mörgum
tilvikum farið yfir launakostnað. Inn-
flutningsverslunin hefur t.d. sagt að
vaxtagjöldin sé hennar stærsti útgjalda-
liður fyrir utan að greiða fyrir sjálfar
vörurnar. Það hlýtur því að verða meira
eftir í kössunum.“
- Þú nefndir kraftaverk áðan?
„Ég kalla þetta kraftaverk. Þjóðin
hefur staðið saman um þetta í reynd.
Næsta kraftaverk er síðan að koma
hjólunum í gang - finna raunverulegar
leiðir til að bæta lífskjörin í landinu. Það
er verkefni ríkisstjórnarinnar nú, þ.e.
þegar menn verða búnir að finna ein-
hverjar aðferðir til að laga um fyrir
lítilmögnunum. Eini raunveruiegi
grundvöllurinn fyrir bættum lífskjörum
er aukin framleiðsla, framleiðniaukning,
og svo ef við fáum betra verð fyrir okkar
afurðir en verðið er á þeim vörum sem
við kaupum." -HEI
■ 60 bifreiðaeftirlitsmenn og ökukennarar sóttu fund í Domus Medica á laugardaginn, þar sem hin nýja reglugerð og
námsskrá fyrir ökukennslu voru kynntar. Fundarstjóri var Guðmundur Þorsteinsson námsstjóri umferðarfræðslu.
Timamynd Árni Sæberg
Ný reglugerd tekur gildi um ökukennslu:
ÖKUKENNSLA VALFAG í
FRAMHALDSSKÓLUNUM?
Borgarrád
samþykkir:
Hitaveit-
an hækk-
ar gjald-
skrá um
25%
— husaleiga í
borgarhúsnædi
hækkar um 4%
og rafmagn
og hiti til þess
um 44%
■ Borgarráð samþykkti á fundi
sínum í gær 25% hækkun á
gjaldskrá Hitaveitu Reykjavíkur.
Þrír fulltrúar Sjáifstæðisflokksins
greiddu atkvæði með tillögunni,
en fulltrúar minnihlutans, Krist-
ján Benediktsson og Sigurjón
Pétursson greiddu atkvæði gegn
hækkuninni. Þessi hækkun er í
samræmi við fjárhagsáætlun
borgarinnar sem samþykkt var
fyrir tæpum hálfum mánuði, en
þar var gert ráð fyrir að gjald-
skráin hækkaði í byrjun ársins
um 25% eða 15 krónur pr. tonn.
Ekki er gert ráð fyrir að um
frekari hækkanir verði að ræða á
gjaldskrá hitaveitunnar á þessu
ári.
Fulltrúar minnihlutans bentu
á til áréttingar afstöðu sinni að
gjaldskrá hitaveitunnar hefði
hækkað mjög mikið undanfarið
ár. í desember 1982 kostaði tonn-
ið af heitu vatni 5.50, en kostar
eftir þessa hækkun 15. krónur
eins og fyrr segir, hækkunin hefur
þannig numið 272.7% á rúmu ári.
Þá var samþykkt í borgarráði
að hækka húsaleigu í borgarhús-
næði um 4% og rafmagn og hita
til þess húsnæðis um 44%, en að
sögn Kristjáns Benediktssonar
jafngildir þetta hækkun húsaieigu
um 25%. Atkvæðagreiðsla um
þetta mál fór á sama veg og um
gjaldskrá hitaveitunnar og koma
þessar hækkanir allar því til
endanlegrar afgreiðslu hjá borg-
arstjórn á morgun.
- JGK.
■ „Hin nýja námsskrá stefnir aö því að
efla viðhorf ökunemandans til að sjá þörf
fyrir reglur og fá betri yflrsýn yfir
umferðina. Námsskráin er einnig veru-
legt skref í að samræma prófin og einnig
væntir skólakerfið þess að geta nýtt
þessa námsskrá líka í framhaldsskólun-
um þannig að hægt verði að hafa ökunám
sem valfag“, sagði Guðmundur Þor-
steinsson námsstjóri umferðarfræðslu
hjá menntamálaráðuneytinu um nýja
■ Samkvæmt bráðabirgðatölum þá
fluttu Flugleiðir 228 þúsund farþega yfir
Norður-Atlantshafið á s.l. ári, og er þar
um 24.5% aukningu að ræða frá því á
árinu 1982, en þá voru 183 þúsund
farþegar fluttir á þessari leið.
Evrópuflugið, að Luxemburg undan-
skilinni, en farþegar þangað eru inni í
Atlantshafsflugtölunni, voru á sl. ári 133
þúsund, en voru árið 1982 143 þúsund,
þannig að farþegafjöldi dróst saman um
7% á þesum leiðum. Flugleiðamenn
höfðu í ársbyrjun í fyrra gert ráð fyrir
að farþegum í Evrópufluginu myndi á sl.
ári fækka um 10%, og voru þá með í
huga farþegaferjur sem nýja samkeppn-
reglugerð og námsskrá um ökukennslu
sem gefin var út 13. desember s.l. af
dómsmálaráðuneytinu og tekur gildi 1.
febrúar.
Guðmundur sagði að aðalbreytingarn-
ar á ökukennslunni samkvæmt þessari
reglugerð fælust m.a. í að hætt verður.
við munnleg próf en í stað þess kemur
skriflegt krossapróf. Þá er í sumum
tilvikum leyfilegt að taka próf á sjálf-
isaðila, svo og slæmt efnahagsástand sl.
árs.
Sæmundur Guðvinsson fréttafulltrúi
Flugleiða upplýsti Tímann jafnframt í
gær, að farþegafjöldi í innanlandsfluginu
á liðnu ári hefði einnig dregist saman, -
hann hefði sl. ár verið 203 þúsund
farþegar, en 221 þúsund árið 1982, en
það jafngilti 8.5% samdrætti. Aðspurður
um hverjar þeir teldur ástæðurnar vera
fyrir svo miklum samdrætti í innan-
landsfluginu svaraði Sæmundur: „Það
kemur fleira ein eitt til, en t.d. lá flug
niðri í janúar 1983 dögum saman, og
okkur telst til að við höfum tapað um 4
þús. farþegum í janúar einum í fyrra.
skipta bíla. Þá stendur til að'fækka
prófstöðum til að hægt verði að sam-
ræma prófin betur og auka fræðilega
kennslu á námsskeiðum, t.d. meðmynd-
böndum.
Guðmundur sagði einnig að nýkomin
væri út bók, Akstur og umferð, sem
gefin er út af ökukennarafélaginu, í
samræmi við nýju reglugerðina sem
tekur gildi 1. febrúar.
Auk þess hafði fækkun á flugferðum til
Vestmannaeyja sitt að segja og þar
töpuðum við miklu vegna þess að þar var
svo oft ófært sl. sumar vegna rigningar
og slæms skyggnis. Það er einnig skýring
á þessaii fækkun, að ferðalög virtust
almennt dragast saman á liðnu ári,
a.m.k. innanlanda."
Þótt að um samdrátt sé að ræða í
innanlandsflugi og Evrópuflugi á liðnu
ári, þá er aukningin svo mikil á Banda-
ríkjafluginu, að farþegar í heild hjá
Flugleiðum í áætlanaflugi á liðnu ári eru
um 18 þúsud fleiri en á árinu áður, eða
564 þúsund á móti 546 þúsund farþegum.
- AB.
Alþýðubankinn
telur sig hafa
ioforð fyrir
opnun utibús
á Akureyri:
„ÞflÐ HEFIIR EKKI
VERIÐ LOFflÐ
NEINU”
— segir banka-
málaráðherra
■ „Það hefur ekki verið lofað
neinum um leyfisveitingum fyrir
bankaútibúum. Eg bíð þess nú að
fá í hendur frumvörp þau sem eru
í vinnslu hjá bankamálanefndinni,
til þess að sjá hvaða framtíðarmús-
ík nefndin telur rétt að spila í
þessum efnum,“ sagði Matthías
Á. Mathiesen viðskipta- og banka-
málaráðherra, þegar Tíminn
spurði hann í gær hvort hann hefði
gefið Alþýðubankanum loforð um
leyfiseitingu fyrir rekstri á útibúi
því sem Alþýðubankinn hefur nú
tilbúið á Akureyri, en bíður með
opnun á, þar til rekstrarleyfi liggur
fyrir.
Stefán Gunnarsson, bankastjóri
Alþýðubankans, sagði í samtali
við Tímann í gær. „Við teljum
okkur hafa loforð fyrir því að fá
leyfi fyrir rekstri útibúss á Akur-
eyri og við búumst við því að fá
það leyfi núna hvaða dag sem er.“
Stefán var spurður að því hvort
hann teldi það eðlilegt að bankar
réðust fyrst í það að reisa eða
standsetja bankaútibú, og síðan í
að sækja um rekstrarleyfi: „Já,
mér finnst það mjög eðlilegt, því
það hefur því miður sýnt sig í
gegnum árin að það hefur ekki
verið besta aðferðin að sækja fyrst
um leyfi og ráðast svo í fram-
kvæmdir. Ef menn kynna sér það
hvernig leyfisveitingum til bank-
anna hefur verið háttað, þá sést
það og getur skýrt ýmsa hluti, svo
sem þá hvers vegna Alþýðubank-
inn hefur alltaf verið látinn sitja
eftir,“ sagði Stefán.
Stefán ítrekaði að þeir í Alþýðu-
bankanum teldu sig hafa loforð
fyrir rekstrarleyfi á bankaútibúi á
Akureyri, en þeir hefðu hins vegar
ekki neitt loforð fyrir því hvenær
það leyfi yrði veitt, en hann sagðist
telja að þar væri svolítill munur á.
- AB.
-GSH
Farþegum Flugleiða:
Fjölgadi um 18 þúsund á s.l. ári