Tíminn - 18.01.1984, Side 9
8
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1984
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1984
13
iþróttir
Einar Jón
mun þjálfa
Grindvíkinga
í 3. deildinni í knattspymu í sumar
■ Einar Jón Ólafsson íþróttakennari
hefur verið ráðinn þjálfari 3. deildar-
liðs Grindvíkinga. Einar hefur leikið
með liðinu um árabil, en lék ekki með
síöasta sumar.
Á síðasta keppnistímabili þjálfaði
Kjartan Másson lið Grindvíkinga, og
var það ofarlega í toppbaráttu 3.
deildar SV. Liðið hefur reyndar verið
í toppbaráttu 3. deildar í fjöldamörg
ár, og lék oft í úrslitum áður en 4.
deildin varð til. Nú verður sjálfsagt
svo, og spurning hvernig Einari tekst
til. Hann hefur fengist talsvert við
þjálfun, og þá aðallega þjálfað yngri
flokka Grindvíkinga í knattspyrnunni
með mjög góðum árangri. -Tóp/SÖE
KRISTfNARNAR
VORII STERKAR
— sigrudu í tvflidaleik A-flokks
á Jafnréttismóti TBR
■ Þær stöllur, Kristín Magnúsdóttir og
Kristín Berglind létu talsvert aö sér
kveða á Jafnréttismóti Tennis og Bad-
mintonfélags Reykjavíkur um síðustu
helgi. Þær nöfnur sigruðu þar í tvíliða-
leik í A-flokki, og stóð ekkert karlapar
þeim snúning. Það sama gilti reyndar
um fleiri konur í tvfliðaleiknum, en
Kristínarnar léku við þær Þórdísi
Edwald og Elísabetu Þórðardóttur í
úrslitum og sigruðu 9-15,15-8 og 15-8.
í einliðaleik í A-flokki sigraði Snorri
t>. Ingvarsson TBR allar dömurnar, þar
á meðal Kristínarnar báðar, og sigraði
Þórdísi Edwald í úrslitum 15-2 og 15-2.,
í meistaraflokki léku eingöngu karlar.
Þorsteinn Páll Hængsson TBR sigraði
Víði Bragason í A í úrslitum einliðaleiks-
ins 15-10 og 15-5. Broddi Kristjánsson
var ekki með í mótinu vegna prófa. f
tvíliðaleik sigruðu Broddi Kristjánsson
og Þorsteinn Páll Hængsson fslands-
meistarana Sigfús Ægi Árnason TBR og
Víði Bragason 15-6, 10-15 og 15-9, en
keppni var mjög jöfn og spennandi í
tvíliðaleik.
Eingöngu karlar léku í B-flokki, Har-
aldur Hinriksson ÍA sigraði Bjarka Jó-
hannesson ÍA 15-10 og 18-17 í úrslitaleik
einliðaleiksins, og þeir Haraldur og
Bjarki sigruðu svo saman í tvíliða-
leiknum, unnu Hákon Jónsson og Frí-
mann Ferdinandsson Víkingi 15-12 og
15-8 í úrslitum.
-SÖE
■ Kristín Magnúsdóttir t.v. og
Kristín Berglind, sigurvegarar í tví-
liðaleik í A-flokki á Jafnréttismóti
TBR.
Njarðvík
vann KR
■ Einn leikur var í 1. deild kvenna
í körfuknattleik um helgina. Njarð-
vík vann KR í íþróttahúsi Haga-
skóla 36-24. Staðan er nú þessi:
ÍR....... 11 9 2 532-424 18
ÍS....... 11 8 3 498-429 16
Haukar ... 10 6 4 456-321 12
Njarðvík.. 11 5 6 375-443 10
Snæfell .. 9 2 7 275-355 4
KR ...... 10 1 9 325-448 2
FRIÐBERT ENN MEÐ ÍS
- er að jafna sig eftir kinnbeinsbrot
■ Leið villa slæddist inn í frásögn hér
í blaðinu í gær af blaktÞar var sagt að
Friðbert Traustason aðaluppspilari ÍS
léki með Breiðabliki. Þetta er ekki rétt,
Friðbert leikur enn með sínu gamla
félagi ÍS, en hefur ekki getað leikið að
undanförnu vegna kinnbeinsbrots er
hann hlaut í árekstri við félaga sinn í
upphitun á æfingu.
Hins vegar þjálfar Friðbert bæði Fram
og Breiðablik, þrátt fyrir að hann hafi
ekki getað sinnt því undanfarið vegna
meiðslanna og læknisaðgerða sem fylgt
hafa. „Ég mun leika áfram með ÍS í
vetur, og vonast til að geta farið að æfa
aftur“, sagði Friðbert í samtali við
Tímann í gær.
-SÖE
Valsmenn
kærðu Pétur
- telja hann ólöglegan
með ÍR
■ Valsmenn hafa kært úrslit leiks
þeirra gegn ÍR síðastliðinn sunnu-
dag, á þeim forsendum að Pétur
Guðmundsson hafi leikið ólöglegur
með ÍR. Segja Valsmenn að Pétur
hafl leikið með öðru liði síðastliðið I
sumar erlendis, og sé því ólöglegur ■
með ÍR. I
ÍR-ingar telja sig örugglega í I
rétti, það hafi verið athugaðgaum- ■
gæfilega fyrir Pétur, hvort hann I
væri löglegur með ÍR enn, áður en I
hann tók að leika með ÍR á ný. .
Munu Kristinn Jörundsson formað- |
ur Körfuknattleiksdeildar ÍR og |
Þórdís Anna Kristjánsdóttir for- ■
maður Körfuknattleikssambands- I
ins hafa kannað málið, og komist !
að þeirri niðurstöðu að Pétur væri I
löglegur með ÍR, því hann hafi •
aldrei tilkynnt félagaskipti úr ÍR |
síðan hann lék þar á síðasta vetri. I
Hann hafi því verið ólöglegur með ■
hvaða liði sem hann hafi leikið með I
, hafi hann gert það. BL/SÖEj
STÓRIEKIR f HAND-
BOLTANUM f KVÖLD
j — r Laugardalshöll — Víkingur-FH og Þróttur-KR
síðan,
■ I kvöld eru tveir leiklr í fyrstu deild
karla á Islandsmótinu í handknattleik,
báðir í Laugardalshöll. Klukkan 20.00
eigast við Islandsmeistarar Víkings og
FH, sem nú er efst í 1. deild og hefur
ekki tapað leik í mótinu í vetur. Klukkan
21.15 keppa svo KR og Þróttur, og
ræður sá leikur sennilega fremur öðrum
úrslitum um, hvort liðið mun komast í
úrslitakeppnina í vor.
FH og Víkingur léku í Hafnarfirði í
október. Þá sigruðu FH-ingar 28-21 eftir
hörkuleik. Höfðu FH-ingar haft yfir
15-11 í háifleik, en Víkingar gengið á
lagið í síðari hálfleik, og aðeins tveggja
marka munur var um miðjan hálfleik.
Þá tóku FH-ingar mikinn lokasprett,
sem endaði í áðurnefndum tölum. Síðan
er töluvert vatn runnið til sjávar, FH
hefur 20 stig á toppi deildarinnar eftir 10
leiki, en Víkingar eru í þriðja sæti með
12 stig eftir jafnmarga leiki. Víkingar
hafa skipt um þjálfara síðan þá, og
spurningin er sem sagt, tekst Víkingum
að stöðva sigurgöngu FH?—Stigin kæmu
Víkingi örugglega vel, því þótt þeir séu
í þriðja sæti eru þeir engan veginn
öruggir í úrslitakeppnina.
Þróttur og KR berjast nú hatrammri
baráttu um að komast í úrslitakeppnina.
Þróttarar standa örlítið betur að vígi, og
verður áreiðanlega barist til þrautar fyrir
stigunum í kvöld. Liðið sem vinnur í
þessum leik á góða möguleika á að
komast í úrslitakeppnina, en það sem
tapar aftur á móti minni möguleika. Þó
er sá möguleiki fyrir hendi að þessi tvö
lið komist í úrslitakeppnina, en Víkingur
ekki, en telja verður það þó ólíklegra en
hitt.
Þróttur og KR mættust í október í
fyrri leik sínum. Þá sigruðu KR-ingar
20-14, eftir að jafnt hafði verið í hálfleik
8-8. í síðari hálfleik tóku KR-ingar
mikinn sprett og Gísli Felix varði
grimmt, og tryggði það þeim sigur.
Síðan hefur margt breyst, bæði liðin eru
nú sterkari en þau voru þá, en Þrótturum
líklega farið mun meira fram þrátt fyrir
allt. Þróttarar hafa tekið mikinn sprett
upp stigatöfluna undanfarnar vikur, og
safnað stigum grimmt. Eru þeir nú
komnir upp fyrir KR. Það er því útlit
fyrir spennandi leik í Höllinni í kvöld.
Staðan í 1. deild er nú þessi:
0 307-098 20
2 244-215 17
4 238-215 12
4 219-232 10
5 117-171 9
6 213-255 9
8 195-249 3
8 176-224 2
-SÖE
GETRAUNALEIKUR TIMANS
Umsjón:
Jón Ólafsson
23.1eikvika
2
Garðar Bergendal
(2)
Arsenal/
Notts County
Ég ætla nú að gerast svo djarfur að tippa á
County sigur, ha???
Helgi Hilmarsson
háskólanemi
Watford/
Stoke
Alltaf hef ég stutt við bakið á Watford og
geri það enn. Heimasigur.
Guðjón Ben.
Sigurðsson (2)
í talstöð: „Everton"
Everton/
Tottenham
Kristín Jónsdóttir
skrifstofumær
Wolves/
Luton
Úlfarnir sigra liðið frá Hattaborginni frægu,
Luton
X
Eiríkur Jónsson Leicester/
safnvörður (1) Coventry
Ég held mig bara við jafnteflin.
Kristin Gunnarsd.
skrifstofumær
Blackburn/
Man. City
Blackburn er svo fallegt nafn, þeir vinna.
Hannes Hilmars- Man. Utd/
son Toppmaður (1) Southampton
Giskum bara á einn, og enn kalla ég mig
Þorvarð sem lukkumerki.
X
Helgi Daníelsson Chelsea/
Sheff.Wed
Erfiður leikur þetta, tippa þó á Lundúnalið-
ið Chelsea.
JónÞór Víglunds- NoU. Forest/
son nemi (1) Norwich
Forest taka á honum risastóra sínum og
vinna stórsigur. Einn, einn...
X
Eysteinn Helgason Cr. Palace/
framkvæmdastjóri Newcastle
Það verður erfitt fyrir strákana frá kolaborg-
inni Newcastle. Jafntefli.
Ólafur Haraldsson
bassi (1)
Sunderland/
QPR
Hucker markvörður QPR er enginn aukvisi
og ég spái útisigri.
Jón Diðrik Jónsson Oldham/
félagsfræðinemi Derby
Derby án Charlie George er sem höfuðlaus
her...
Hvað gerist í úrslitakeppninni???
Enn er getraunaleikurinn á sínum stað,
ykkur vonandi til óblandinnar ánægju, les-
endur góðir. í dag er miðvikudagur, sé
klukkan min rétt, og vonandi líður ykkur
jafnvel og mér líður núna.
Sex manns halda nú áfram frá þvi síðast,
en aðrir sex þurfa að bíta í súrt epli og falla
út, en þó með heiðri og sæmd. Þó það nú
væri... Garðar Bergendal og Guðjón Ben,
standa sig með prýði enda góðir menn
sjálfsagt. Guðjón tippaði meira að segja í
gegnum talstöð með þriðja mann sem
millilið. Veit ég ekki betur en hann sé fyrsti
maðurinn til að tippa i gegnum falstöð í
Getraunaleiknum og óskar undirritaður
honum innilega til hamingju með þennan
áfanga. Guðjón lengi lifi, húrra, húrra,
húrra...
Eiríkur á DV er enn með enda sagðist
hann ekki hafa búist við neinu öðru. Greind-
ur maður Eiríkur. Jón Þór og Ólafur Haralds-
son slógu rækilega í gegnum og komust
áfram þeim sjálfum að óvörum. Hannes er
vinur minn og kemst auðvitað áfram þess
vegna (Nú er ég að grínast). Nei, annars
hann spáði barasta rétt og mér finnst það
gott hjá honum. Nýju mennirnir koma
héðan og þaðan, en þó aðallega þaðan.
Helgi Hilmarsson, bróðir Hannesar, er fínn
piltur og nemur nú lögfræði við þá frómu
stofnun, Háskóla íslands. Stínumar tvær
eru algjörar dúllur og vinna á Samvinnu-
ferðum og það gerir grínarinn Helgi Dan.
líka. Eysteinn er land- og lýð kunnur og
kommentið hans er gáfulegt, ekki satt,
enda Eysteinn alvanur Tippari. Jón Diðrik
veit ég ekki hvort ég eigi nokkuð að tala
um, ég held ekki, hans vegna og fjölskyldu
hans.
Þegar tíu umferðir eru eftir í Ensku
fyrstudeildarkeppninni koma inn í Getr-
aunaleikinn þeir 12 sem oftast hafa getað
verið. Séu margir jafnir þá verður einfald-
lega dregið. Kem ég þá til með að setja
miðana inn í lúffumar minar og láta ein-
hverja sæta stelpu eða kött draga úr
lúffunum. Ég kýs að hafa þann hátt á í
úrslitakeppninni að menn njóti góðs af
tipp-hæfileikum sínum í undankeppninni
og taki með sér stigin í úrshtakeppnina.
Segjum t.d. að einhver maður, segjum bara
Bjarni Rósa einhver, hafi getað 3svar rétt i
undankeppninni áður en hann féll út, þá
fær hann þessi 3 skipti metin í úrslitakeppn-
inni, þ.e. þau telja með. Sá sem síðan er
með flest skiptin rétt eftir að keppninni er
„Hver er nú óþekkur strákur,
ha?“
lokið hann fær vegleg verðlaun, afar vegleg
verðlaun, sem em nú reyndar enn leynd-
armál. Þeir sem í úrslitakeppnina komast
falla ekkert úr henni þó þeir geti ekki rétt.
Þeir eru bara áfram með allan tímann.
Sikhð, nei ég meina Skhð, nei Skihð??? Fínt.
Ég kveð þá í bih og vona að allir hafi það
gott þar til ég hitti ykkur næst að máli og
myndum. Bæó... _j^i
2 raðir með 12 rétta í 19.
leikviku
í 19. leikviku komu fram tvær raðir með 12
rétta og var vinningur fyrir hvora röð kr.
190.010,- og 90 raðir komu fram með 11
rétta og vmningur fyrir hverja röð kr.
1.809.-.
Synd að Liverpool - Wolves skyldi ekki
vera með á seðlinum - eða hvað?
John McEnroe í stuði
WILANDER OG
LENDL LÁGU
1 STAÐAN
Staðan í efstu deildunum á 1
I Englandi eftir leiki á laugar-1
dag.
1.DEILD:
Liverpool ...23 13 6 4 37-18 46
Man. Utd ...23 12 7 4 41-26 43
West Ham .... ...23 12 4 7 37-24 40
NottFor ...22 12 3 7 41-29 39
Southampton ... 22 11 6 5 26-18 39
Coventry ...23 10 7 6 32-27 37
Q.P.R ...22 11 3 8 34-22 36
A. Villa ... 23 10 6 7 36-36 36
Luton ... 23 11 2 10 39-35 35
Norwich ... 24 9 8 7 30-26 35
Arsenal .. 23 10 3 10 40-33 33
Tottenham .... ... 23 9 6 8 37-38 33
WBA ,.. 23 9 3 11 28-35 30
Sunderland... ... 23 8 6 9 25-32 30
Ipswich .. 23 8 5 10 32-31 29
Watford ... 23 8 4 11 38-41 28
Leicester ... 24 7 7 10 37-42 28
Everton ..23 7 7 9 14-24 28
Birmingham ... -.23 6 4 13 20-28 22
Notts C ..23 5 4 14 3147 19
Stoke -.22 3 8 11 21-36 17
Wolves ...23 4 5 14 20-50 17
2.DEILD:
Sheíf.Wed ..24 15 6 3 47-21 51
Chelsea ..26 13 9 4 53-29 48
Man.City ..24 14 5 5 42-25 47
Newcastle .. 23 14 3 6 46-32 45
Grimsby -.24 12 8 4 37-26 44
Carlisle .. 24 11 9 4 28-16 42
Blackburn ..24 11 9 4 33-29 42
Charlton -.24 11 7 6 29-29 40
Huddersfíeld ...,24 10 8 6 34-29 38
Shrewsbury ... ..24 8 8 8 30-31 32
Portsmouth .... 24 9 4 11 40-31 31
Middlesboro ... ..24 8 7 9 28-27 31
Brighton ..24 8 6 10 39-37 30
Barnsley .. 24 8 5 11 34-33 29
Cardiff -.22 8 1 13 27-33 25
Oldham -.24 7 4 13 26-45 25
Leeds .. 22 6 6 10 29-35 24
Fulham .. 24 5 8 11 27-36 23
CÞalace ..23 6 5 12 23-32 23
Derby ..24 6 5 13 22-44 23
Cambridge .... 24 2 7 15 18-44 13
Swansea ..24 3 4 17 20-48 13
■ Bandaríkjamaðurinn Jolin
McEnroe sigraði Svíann Mats
Wilander í undanúrslitum
Grand-Prix keppninnar í tenn-
is í New York um helgina.
Bandaríkjamaðurinn vann ör-
ugglega, 6-2 og 6-4. Wilander
hefur unnið McEnroe í þremur
síðustu viðureignum þeirra, og
var Bandaríkjamaðurinn orð-
inn langeygur eftir sigri.
í hinum undanúrslitunum
sigraði Tékkinn Ivan Lendl
Jimmy Connors frá Bandaríkj-
unum 6-3 og 6-4.
- I úrslitaleiknum á sunnu-
dag sigraði svo McEnroe Tékk-
annörugglega, 6-2,6-4 og 6-4.
Verðlaun í keppninni voru
alls um 400 þúsund dollarar,
sem jafngildir um 12 milljónum
tsl. króna. McEnroe lagði því
heilmikið inn á reikninginn
sinn eftir keppnina, og einnig
. inn á reikning sinn hjá þeim
sem útnefna besta tennis-
leikara heims, en það val mun
verða endanlega ákveðið fljót-
lega.
- SÖE.
MEIÐSLI HRIÁ ÍR
■ Meiðsli hrjá nú úrvals-
deildarlið ÍR mjög. Fyrir
skömmu var Jón Jörundson
skorinn upp í hné, og í dag
verður Ragnar Torfason skor-
inn upp vegna rifins liðþófa í
hné. Þeir leika því hvorugur
meir í vetur. - Þá hefur Hirfi
Oddssyni, hinum efnilega bak-
verði liðsins verið ráðlagt að
hætta að leika körfuknattleik
vegna veikinda í hnjáliðum.
Sveitakeppni Júdó-
sambandsins
ÁRMANN A SIGRADI
■ A-sveit Ármanns sigraði í
Sveitakeppni Júdósambands
Islands um síðustu helgi, en
keppnin var haldin í íþrótt-
ahúsi Kennaraháskólans á
laugardag. Fjórar sveitir
kepptu, A og B sveitir
Ármanns, sveit Gerplu og sveit
UMFK. Athygli vakti að engin
sveit mætti til leiks frá hinu
gamalgróna félagi, Júdófélagi
Reykjavíkur, og er manneklu
kennt um.
A-sveit Ármanns sigraði ör-
ugglega í keppninni. I öðru sæti
varð sveit Keflvíkinga,
UMFK, og í þriðja sæti B-sveit
Ármanns. í A-sveit Ármanns
glímdu eftirtaldir glímumenn,
talið frá 60 kg flokki og.upp úr:
Þorsteinn Jóhannesson, Örn
Arnarson, Hilmar Jónsson,
Gísli Wiium, Garðar Skapta-
son, Bjarni Friðriksson og Kol-
beinn Gíslason.
Keppt var um skjöld sem
gefinn var til keppninnar fyrir
tíu árum, og hefur verið keppt
um síðan. Þau ákvæði fylgdu
þessum skildi í upphafi, að
hann skyldi verða verðlauna-
gripur í keppninni í tíu ár, og
það félag sem ynni hann oftast
á þeim tíma fengi hann til
eignar að tíu árunum liðnum.
Það er Júdófélag Reykjavíkur
sem fær skjóldinn til eignar,
að loknu því ári sem Ármann
mun nú varðveita skjöldinn.
- SÖE.
umsjón: Samuel Örn Erlingsson
Laugdælir unnu
Skallagrím
■ Laugdælir sigruðu lið Skalla-
gríms í 1. deildinni í körfuknatt-
leik á Selfossi á sunnudaginn með
86 stigum gegn 62, eftir að staðan
í hálfleik var 43-27 Laugdælunt í
vil. Stigahæstir hjá Laugdælum
voru Sigurður Matthíasson með
23 stig og Ellert Magnússon með
20. Hjá Skallagrímsmönnum skor-
aði Guðmundur Kr. Guðmunds-
son 24 stig en Hafsteinn Þórisson
skoraði 11. _BL
Atli skoraði 14
■ í frétt um leiki helgarinnar í
annarri deild karla í blaðinu í gær
misritaðist fjöldi marka þeirra sem
Atli Þorvaldsson ÍR-ingur skoraði
gcgn Þór í Vestmannaeyjum. Atli
skoraði 14 mörk, þar af 8 úr
vítum, ekki 12 eins og stóð í
blaöinu í gær. -SGG/SÖE
Fyrirtækjakeppni
Badminton-
sambandsins
■ Fyrirtækjakeppni Badminton-
sambands íslands fer fram sunnu-
daginn 29. janúar í húsi Tennis- og
Badtnintonfélags Reykjavíkur
(T.B.R.) við Álfheima, og hefst
kl. 13.30.
Aðeins er spilaður tvíliðalcikur,
og er gert ráðfyrir að a.m.k. annar
keppandinn sé frá viðkomandi
fyrirtæki eða stofnun. Ekki mega
tveir meistaraflokksmenn spila
saman ncma annar þeirra sé yfir
40 ára, og sé annar aðilinn kona,
verður hún að véra neðar en í öðru
sæti á styrkleikalista B.S.Í. Er
þetta gcrt til að jafnagetu liðanna.
Hvert lið sem tapar fyrsta leik er
sett í „heiðursflokk'* og fær þar
annað tækifæri.
Fyrirtæki og stofnanir og/eða
fulltrúar þeirra, scm áhuga hafa á
þátttöku, eru beðnir um að skrá
sig sem fyrst hjá Vildísi Kr. Guð-
mundsson, sem einnig veitir nán-
ari upplýsingar, í símum 13743 og
15833 á daginn, en 41449 á
kvöldin.
JafntefliáAkureyri
hjá Tý og Þór -
Týrarar efstir
■ 5 leikir voru í þriðju deild
karla í handknattleik um helgina.
Týr frá Vestmannaeyjum kom til
lands, og lék einn leik á Akureyri,
og einn í Reykjavík. Uppskeran
varð þrjú stig, jafntefli 18-18 á
Akureyri, og stórsigur 36-6 á
Ögra. Staðan f hálfleik í þeint lcik
var 16-1. Ármann sigraði Aftur-
eldingu 24-21 í Laugardalshöll, og
er nú Ármann vísastur til að veita
Tý harða keppni um sigurinn í
dcildinni, þar eð þjálfari og aðal-
sprauta Týs, Sigurlás Þorleifsson
er farinn til Svíþjóðar til knatt-
spyrnuiðkunar.
Heimir Tómasson var marka-
hæstur Mosfellinga í leiknum gegn
Ármanni, skoraði 9 mörk. Óskar
Ármannsson var bestur Ármenn-
inga í þcssum sigri, skoraði hvorki
meira né minna en 11 mörk.
Knattspyrnukappar eru at-
kvæðamiklir í liði Týs. Þannig
skoraði Kári Þorleifsson 7 mörk
gegn Ögra, og það gerði Benedikt
Guðbjörnsson einnig. Hlynur
Stefánsson skoraði 5 niörk.
Úrslit urðu þessi:
í A - Selfoss..........28-15
ÞórAk-Týr............. 18-18
Keflavík - Skallagrímur . 22-9
Ármann - Afturelding . . 24-21
Ögri - Týr............. 6-36
Staðan:
Týr....... 11 9 2 0 264-157 20
Ármann.... 11 9 0 2 322-243 18
Afturelding .. 10 7 0 3 250-167 14
Þór Ak.... 9 6 1 2 228-150 13
Akranes... 10 6 1 3 245-196 13
Keflavík.. 10 6 0 6 235-310 10
Selfoss... 11 2 0 9 187-235 4
Skallagrímur. 11 1 0 10 157-297 2
Ögri...... 11 0 0 11 152-385 0