Tíminn - 10.02.1984, Blaðsíða 2

Tíminn - 10.02.1984, Blaðsíða 2
FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1984 Skýringar: Jóhann Örn Sigurjónsson 10. umferd: Verðug úrslitaskák Jóhann Hjartarson og Helgi Ólafsson í upphafl skákar sinnar í gær. Tímamvnd Róbert ■ Þeir sem viðstaddir vora næst síð- ustu umferð Búnaðarbankamótsins í gærkvöldi voru allir sammála um eitt, að skákin milli tveggja efstu manna mótsins, Jóhanns Hjartarsonar og Helga Ólafssonar hefði verið verðug úrslitaskák. Báðir tefldu af geysilegri hörku og lögðu allt sitt undir, enda höfðu báðir allt að vinna, ekki síst Helgi sem náði aðeins jafntefli í biðskákinni fyrr í gær. Eftir miklar sviftingar í lok setunnar, þar sem Helgi virtist vera að yflrspila andstæðinginn með svörtu mönnum fór skákin í bið og er ekki vitað um úrslit þegar þetta /2\ BÍNAÐARBANKA ý!ív 1&/SKÁKMÓT m 1984 er skrifað, en fljótt á litið virtist Jóhann hafa náð heldur betri stöðu. Hvað um það skákin var báðum tfl sóma, þama mættust þeir tveir sem hafa sýnt besta og ömggasta tafl- mennsku á mótinu. Það segja þeir sem gerst mega vita að mikill munur sé á taflmennsku Piu Cramling eftir því hvort hún teflir hvítu eða svörtu, árásargjarn stíll hennar njóti sín betur þegar hún stýrir hvítu mönnunum, en byrjunarkunnátta sé ekki hennar sterkasta hlið. Hún hafði hvítt í gærkvöldi móti Margeiri Péturs- syni og eyddi geysilegum tíma í að byggja upp sóknarstöðu í byrjuninni. Hún virtist vera að uppskera árangur erfiðisins í miðtaflinu, en átti þá aðeins hálftíma á 20 leiki. Margeir komst í vandræði og eyddi í um klukkutíma á tvo leiki og náði gagnfærum og biðstað- an er óljós, en gæti jafnvel verið heldur hagstæðari fyrir Margeir. En undirrit- aður er illa svikinn ef ekki á eftir að koma í ljós að Pia hafi einhvers staðar misst af öruggri vinningsleið, það var eins og hik kæmi í taflmennsku hennar þegar allir bjuggust við að hún léti til skarar skríða. Guðmundur Sigurjónsson komst ekki áleiðis gegn Knezevic og sömdu þeir um jafntefli. „Þetta er einhver mesta jafnteflisstaða sem ég hef séð,“ varð sessunaut mínum að orði, þegar hann virti fyrir sér lokastöðuna á sýningartöflunni. Skák Sævars og de Firmian var afar áhugaverð. Sú árátta grípur áhorfend- ur á skákmótum um það bil sem skákir eru hálfnaðar að fara að spá ákaft um gang mála næsta klukkutímann eða svo og um áttaleytið í gærkvöldi hefði Sævar átt að fara heim og hætta ef hann hefði tekið mark á spádómum. Það gerði hann hins vegar ekki, skákin fór í bið og eru jafnmörg peð á borðinu, en Sævar hefur tvo hróka móti drottningu Bandaríkjamannsins. Líklega jafntefli, en slíkar stöður þykja vandtefldar með afbrigðum. Skák Shamkovic og Alburts fór einnig í bið, hinn rúmlega sextugi Sham- kovic þreyttur eftir tvær átakabiðskák- ir sem hann tefldi í 7 tíma í fyrradag og áfram í gær var peði undir í endatafli þar sem mislitir biskupar eru á borðinu. Það er aðeins að geta um skák Jóns L. Árnasonar og Jóns Kristinssonar, en þeir nafnar sömdu um jafntefli fremur snemma kvölds. - JGK Sýnishorn frá gærkvöldinu Hvítur: Pia Cramling Svartur: Margeir Pétursson Sikileyj aleikur 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 g6 5. c4 (Maroczy-bindingurinn svo- nefndi. Svipaðar stöður koma oft upp í enska leiknum.) 5. . Bg7 6. Be3 Rf6 7. Rc3 0-0 8. Be2 d6 9.0-0 Bd710. Hcl Rxd4 (Önnur leið er 10. . a6 11. Rb3 Re5, Darga: Taimanov, Havana 1964.) 11. Bxd4 Bc6 12. Dd3 (12. f3 tekur allt útsýni frá biskupnum á e2.) 12.. a5 13. f4 a414. Khl Da5 15. De3 Rd7 16. Bxg7 Kxg7 17. Bg4 Dc5 18. De2 Rf619. Bh3 (Eftir 19. Bf3 væri e5 enn öflugri leikur.) 19. . e5 20. f5 g5 (Djarflega leikið, en svartur vill ekki opna f-línuna) 21. Bg4 h6 22. h4I? Hh8! 23. Bh5 Kf8 24. Rd5 Bxd5 25. cxd5 Da5 26. Hc4 b5 27. Hc3 Ke7 28. Hf-cl Ha7 29. Bf3 Hd7 30. a3 Hb8 31. Hc6 (Hindrar 31. . b4? 32. Ha6.) 31.. Dd8 32. Del Dg8 33. Db4 Hb-d8 (Hótunin var 34. Hxd6 Hxd6 35. Hc7t Rd7 36. Hc6.) 34. Be2 gxh4 35. Hb-c3 Dg5 36. Bxb5 Hg8 37. Bfl Df4 38. Hc7 Hg-d8 39. Del Rxe4 40. H7-c4 Rg3t 41. Kgl og svartur lék biðleik. Hvítur: Jóhann Hjartarson Svartur: Helgi Ólafsson Spánski leikurinn. 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. d4 (Tilbreyting frá 6. Hel sem er löng og mikil teoría, oft upp í eina 20-25 leiki.) 6. . exd4 7. e5 Re4 8. Rxd4 0-0 9. Rf5 d5 10. Bxc6 bxc6 11. Rxe7t Dxe7 12. Hel (Enn fylgja þeir félagar bókinni. Hér er gjarnan leikið 12. . f6 13. G Rg5 14. Rc3 Bf5 15. exf6, en Helgi breytir til). 12.. He8 13.13 Rd6 14. b3 f6 15. Bb2 RI7 16. f4 fxe5 17. fxe5 Bf5 18. Rc3 Ha-d8 (Ekki dugði 18.. Rxe5 19. Rxd5 cxd5 20. Dxd5t og hvítur vinnur lið.) 19. Dd4 Rg5 20. Ra4 Re6 (Ef 20. . Bxc221. Ha-cl, oghvíturvinnurpeðið aftur, og fær gott spil eftir c-línunni.) 21. Dd2 d4! (Kemur betra lagi á nokkuð tætingslega peðastöðuna, og eykur svigrúm svarta biskupsins.) 22. Hfl Hf8 23. Ha-el Bg6 24. Bcl! (Nú skal riddarinn á a4 komast í spilið, með Rb2-d3.) 24.. Hxflt 25. Hxfl h6 26. Rb2 Rg5 27. Rd3 Re4 28. Da5! (Hart gegn hörðu. Hvítur hefur auga- stað á a6-peðinu, en við fall þess fengi hvítur hættulegt frípeð á línunni.) 28. . Rc3 29. Rf4 Be4 (Svartur lætur c2-peðið eiga sig, enda farinn að tefla upp á kóngssókn, með góðan sóknar- biskup.) 30. Hel c5 31. Dxa6 Dxe5 32. Bd2 Kh7 33. a4 Hd6 34. Dc8 Hf6 35. g3 Dd6 (Nú virðist 36. Bxc3 dxc3? 37. Hxe4 vinna mann, en svartur leikur 36.. Hxf4, og er kominn með vinnandi sókn.) 36. a5 Bc6 37. He6! (Trúlega eini varnarleikurinn, fundinn í miklu tímahraki beggjá keppenda.) 37. . Hxf4! (Ef nú 38. Hxd6?? Re2 mát!) 38. Bxf4 Dd5 39. Hxc6 Dxc6 40. Df5t Kg8 og hvítur lék biðleik. Hvítt: Shamkovic Svart: Alburt Hvítur lék biðleik Hvítt: Sævar Bjamason Svart: de Firmian Hvítur lék biðleik abcdefgn SÍÐUSTU FRÉTTIR ■ Margeir Pétursson vann Piu Cramling, í gærkvöldi þegar biðskákir voru tefldar. Shamkovic og Alburt gerðu jafntefli, en skák Sævars og de Firmian fór aftur í bið, sömuleiðis skák Jóhanns og Helga. Staðan í skák þeirra síðastnefndu var þá þannig: Hvítur lék biðleik. Taflið verður tekið upp aftur kl. 13.00 í dag. Staðan í Búnaðarbankamotinu fyrir síðustu umferðina Búnaðarbankaskákmót 1984 1 2 3 4 5 6 i 8 9 10 n 12 Vinn. Röð 1 Pia Gramling 'U / % •U Yz 0 / 0 0 / € 2 Knezewich •tz Vz Vz Yz 0 Yz O 'k / •u V'/z 3 Shamkowich O Yz Yz 1 h Vz Vz Yl / lk 5>/z 4 Johann Hjartarson U h Vz t 1 l h •u 1 VktB 5 Sævar Bjarnason lk % 0 0 'iz o •k 0 D Zí3 6 de Firmian liz l Vz o h t •iz 0 1 5+6 7 Helgi Olafsson l Vt h l/z ^S •k •it h t / 8 Alburt Ú l 'k *h ,o Vi h •/t v« o 9 Guðmundur Sigurjonsson / Vz 0 V •h ]tz 'lz •u / 'U 10 Margeir Pétursson 1 •tz XU lh l •/? 'lz •/t / 'U uu 11 Jon Kristinsson O 0 '/* / 0 o (/z o 0 •u ZVz 12 Jón L. Arnason 0 lk Vi o / ö l h •k ‘k V'/í

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.