Tíminn - 10.02.1984, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1984
m
f réttir
VARÐSKIPSMENN FUNDU 1V0
BROT ÚR ÞYRLUSPAÐA TF-RAN
■ Varðskipið Týr hefur undan-
farið verið á Jökulfjörðum að
leit að braki úr TF Rán sem þar
fórst fyrir þrem mánuðum. Varð-
skipsmönnum tókst að ná upp
tveim brotum úr þyrluspaða vél-
arinnar, með aðstoð neðansjá-
varmyndavéla og kom skipið til
hafnar í Reykjavík á miðviku-
dag.
Að sögn Kristjáns Jónssonar
stýrimanns á Tý var skipið úti á
Jökulfjörðum í viku en vegna
veðurs var ekki hægt að sinna
leitinni nenia þrjá samfellda
daga. Hann sagði að leit á
Jökulfjörðum yrði haldið áfram
og lögð áhersla á að fínna hurð
þyrlunnar en hugsanlegt er talið
að þar megi fínna skýringar á
slysinu þegar þyrlan fórst.
■ Stefán Hjartarson með neðansjá-
varmyndavél sína. Myndavélin sendir
mynd á sjónvarpsskerm og upptökutæki
sem tekur upp myndirnar.
Tímamynd Árni Sæberg
■ Róbert D. Jensen sjómælingarmaður, setur upp mælingartæki, svokallaða
míniraggera, á Höfðaströnd, með hjálp varðsliðsmanna. Mælingatækin eru notuð til
að mæla fjarlægðir og eru mjög nákvæm. Sett eru upp tvö slík tæki og móðurstöð í
varðskipinu mælir síðan fjarlægðina á milli þeirra.
■ Brakið úr þyrluspaðanum sem varðskipsmenn náðu upp af Jökulfjörðum.
Tímamynd Árni Sæberg
■ Mælingarbátur frá varðskipinu var notaður til að draga neðansjávarmyndavélina eftir botninum og sjást víramir úr henni til nægri.
vélarinnar stendur til hægri.
Stefán Hjartarson, eigandi
Tímamynd Kristján Jónsson
Putte Pan fær að sigla:
Utgerðin
lagði fram
tryggingu
— fyrir ógreiddum launum
íslenskra sjómanna
■ Útgerð Putte Pan, danska sand-
dæluskipsins sem kyrrsett var í Hafn-
arfjarðarhöfn fyrir um tveimur vikum
að kröfu Sjómannasambands íslands,
hefur nú lagt fram 1,2 milljón króna
tryggingu fyrir launum 10 íslenskra
sjómanna, sem ekki höfðu fengið laun
sín greidd fyrir vinnu um borð. Par
með er farbanni aflétt af skipinu og
búist er við að það láti úr höfn von
bráðar og haldi áleiðis til Danmerkur.
Skipið hefur verið hér á landi í tæp
tvö ár og var það fyrst í leigu hjá
fyrirtækinu Djúpverki, sem notaði það
til að dæla sandi víðs vegar um landið.
Djúpverk hf. stóð ekki í skilum við
áhöfn skipsins og höfðaði hún mál
gegn fyrirtækinu í haust sem leið.
Námu kröfurnar tæpri milljón.
Sjóveðréttur fylgir ráðningum á skip
hvort sem eigandi þess eða einhver
annar ræður áhöfn. Þess vegna þurfti
danska útgerðin að leggja fram trygg-
inguna til að aflétta farbanninu þótt
skuldarinn væri íslenskt fyrirtæki.
-Sjó
SINDRA
O II .
Rafsuðu
vélar
BOC TFANSARC [X300 OG 400
Jafnstraumsrafsuðuvélar, 300 og 400 A.
Nota þriggja fasa straum 220/380/420 V
Sjóða rafsuðuvír allt að 6.3 mm
Auðvelt að breyta í hlífðargasrafsuðuvélar með
föstu skauti TIG.
Akaflega auðveld suða, jafnvel fyrir byrjendur
vegna góðs kveikjueiginleika
Vélarnar eru á hjólum og með handföngum
— ótrúlega smávaxnar vélar
Pósthólf 881, Borgartúni 31, 105 Reykjavlk, slmi: 27222, bein llna: 11711.
Kvöld og helgarsfmi: 77988.