Tíminn - 19.02.1984, Blaðsíða 12

Tíminn - 19.02.1984, Blaðsíða 12
SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1984 SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1984 ið. Um daginn var ég úti í sjoppu og þar var hópur unglinga. Þau fóru að tala á mjög ófeiminn hátt um mig, hvernig ég væri klædd og að ég væri meö þennan sjónvarpsþátt, hvernig hár ég væri með . o.s.frv. Ég býst við að ég hefði varla lent í svona meðferð ef þau hefðu ekki kannast við andlitið. Svo rekst ég líka stundum á það að fólk kannast við andlitið en veit ekki alveg hvaðan, það heilsar mér líka en ég veit að ég þekki það alls ekki neitt. í slíkum tilvikum heilsa ég bara á móti. Annars tek égekki mikið eftir þessu núorðið, eins og ég sagði áðan. Ég er heldur alls ekkert fræg, langt því frá þó að andlitið sé kannski orðið þekkt. Litlir krakkar bregðast stundum skemmtilega við, þeg- ar þeir hitta mig. Um daginn var ég t.d. spurð af lítilli stelpu hvort ég væri eitthvað skyld konunni í Skonrokki“, ég væri nefnilega svolítið lík henni. Flosi Ólafsson: „Ég er að eðlisfari frekar feiminn” Þegar Flosi Ólafsson var spurður um sætindi frægðarinnar svaraði hann á Flosískan hátt með annarri spurningu: „Á þetta að vera í löngu máli eða stuttu? Sko, það eru margir, sem halda að frægðin sé bæði ljúf og eftirsóknarverð, en það er þó ekki alveg hægt að ganga út frá því sem vísu. Það getur verið ósköp þreytandi að vera frægur eða nafntogaður. Ég veit satt að segja ekki hvort það er erfiðara að vera frægur að endemum eða frægur af afrekum sínum. Maður má t.d. ekki vera jafn ókurteis og Jónína Benediksdótfir: „Vil heldur láta eitthvað gott af mér leiða” „Ég tek nú sem betur fer voðalega lítið eftir því svona dags daglega, að ég sé þekkt andlit," segir Jónína Benedikts- dóttir, þegar við berum spurninguna undir hana. „Ætli röddin sé ekki þekkt- ari en andlitið í gegnum útvarpið. Svo er ég heldur ekkert að sækjast eftir því að vera neitt endilega þekkt. Ég vil heldur reyna að láta eitthvað gott af mér leiða. Það var nú eiginlega bara tilviljun að ég er í þeim hópi að teljast þekkt andlit og þá vinnu minnar vegna. Ég verð að viðurkenna að mér finnst það miklu þægilegra að fólk komi og ræði við mig í stað þess að vera að glápa á mig, ég kann betur að meta svoleiðis og ég lifi mig ekkert inn í það hlutverk að vera fræg. Það er líka voðalega auðvelt að verða það á Islandi. Fyrir okkur, sem stöðugt erum að tala um heilsufar og líkamsrækt þá getur það stundum verið dálítið erfitt að þekkjast þegar maður er að svindla á því og stelast út í sjoppu eftir einhverju, sem ekki telst heilsusam- legt. Annars finn ég ekki mikið fyrir þessu. Ég hef alla tíð verið frekar opin og átt auðvelt með að vera innan um fólk. Ef svo væri ekki hefði ég e.t.v. orðið meira vör við þetta en þá hefði ég kannski heldur aldrei lent í því að teljast þekkt andlit," segir Jónína ofurlítið heilsusamlega. Magdalena Schram: „Maður er jú alltaf að rífa kjaft” Hermann Gnnnarsson: „Gerði mig stundum einmana” „Það kitlaði náttúrulega hégóma- girndina að ná árangri og verða þekktur en síðan var dapurlegt að átta sig á því, að þessu fylgdi mikill kjaftagangur og það í landi kjaftasögunnar. Það var erfitt fyrir lítinn strák að taka við þessu slúðri, ég tók það oft býsna nærri mér og þetta gerði mig stundum einmana". Það er Hermann Gunnarsson, sem svo einlæg- lega segir frá, þegar við spurðum hann hvernig reynsla það hefði verið fyrir hann að verða þekktur. „Við erum með stöðugan samanburð, og ef einhver fer fram úr okkur getum við e.t.v. togað eitthvað í hann með því að slúðra um hann. Þetta er kannski bara mannlegt. í dag tek ég þessu allt öðru vísi, bara eins og ég held að eigi að taka því. Það eru jú margir, sem taka eftir manni, ég vinn þannig vinnu. Ég man eftir því, að þegar ég fór út á meðal fólks eða á skemmtistaði þá vildi það oft brenna við að maður rækist á fólk, sem var að ætlast til þess að ég væri einhver allt annar en ég í rauninni er. Þetta er þó öðru vísi núorðið eða þá að ég er hættur að gera mér grillu út af því. Ég var alltaf að reyna að þóknast fólki einfaldlega vegna þess að til þess var ætlast af mér. Þetta truflaði verulega líf mitt. Ég vissi í rauninni ekkert hver ég var og sveiflaðist á milli persóna enda- laust. Þetta truflar mig ekki eins mikið núorðið ég hef sjálfan mig meira á hreinu og ég á auðveldara með að koma til dyranna eins og ég er klæddur. Að vísu er oft verið að ætlast til þess, að ég sé stöðugt að segja einhverja fimmaura- brandara til að fíflast eins og í íþrótta- þáttunum. Já, vel á minnst geturðu kannski sagt okkur einn léttan svona í lokin? „Hann var góður þessi“, segir Her- mann og skellihlær. Steinunn Sigurðardóttir: „Ó fyrirgefðu, ég þekkti þig ekki með þessa nýju hárgreiðslu” „Ertu viss um að ég sé þekkt andlit“, spurði Steinunn Sigurðardóttir, þegar Þegar við spurðum Magdalenu Schram að því hvernig henni fyndist það að vera þekkt andlit þá taldi hún sig ekki vera svo ýkja-þekkta. Það að vera þekkt- ur hefði þó örugglega bæði kosti og ókosti í för með sér. Ég hef t.d. kynnst fólki, sem ég hefði ekki gert annars, fólki sem þekkti mig í gegnum sjónvarp við hringdum í hana og bárum upp erindi okkar. Ég er t.d. ekki alltaf viss um það, þegar fólk er að horfa á mig úti á götu, að það sé að horfa á mig vegna þess að ég sé svo voðalega þekkt eða fræg persóna. Það er kannski öllu frekar eins konar þjóðarósiður, það að glápa“, segir Steinunn og hlær. „Jú, jú, það kítlar eflaust svolítið hégómagirndina ef maður heldur að fólk taki eftir manni, en það hefur líka sínar neikvæðu hliðar að því leytinu að maður verður svolítið meðvitaður, ég fer að spekúlera í því hvort ekki sé kusk á kápunni, eða hvort stígvélin séu nógu vel burstuð", segir Steinunn og hlær ennþá hærra. „Annars getur það líka komið sér vel að vera svolítið þekkt þegar maður þarf á einhvers konar fyrirgreiðslu að halda. Einu sinni bað gjaldkeri í banka mig um passa en sagði svo þegar ég rétti fram skilríki mín „ó fyrrrgefðu ég þekkti þig ekki með þessa nýju hárgreiðslu". Það er líka visst aðhald að vera þekkt. Ég hef voðalega gaman af því að fíflast en þori stundum ekki að láta illa nema ég sé klár á því að enginn þekki mig, eða eins og stendur í vísunni... Þar sem enginn þekkir mann... Varstu virkilega að athuga hvort það væri svitalykt af þér í sjónvarpsauglýs- ingunni, sem sýnd var fyrir jólin? „Sumir halda því nú fram að ég hafi verið að leita að saumsprettu á skyrtunni minni“, segir Steinunn og hlær. „Nei, þetta var nú af djöfulsskap. Mér finnst vera komin svona mynd af mér sem penni konu, það er svo sorglegt að vera svona frúarleg og það er nauðsynlegt að vega upp á móti því. Heyrðu þú lofar mér nú að líta yfir þetta þegar þú ert búinn að hripa þetta niður. Ég er farin að passa svo upp á „immeidsið" í seinni tíð... Ha, þversögn... jú, jú það getur þar sem engir Islendingar voru. Mér fannst að fólk gengi að mér algjörlega fordómalaust og það veitti mér meira svigrúm en mér finnst stundum ég hafa haft seinna í lífinu. Það kemur t.d. fyrir að ég hugsa mcð mér að nú sé best að ég þcgi, maður er jú alltaf að rífa kjaft. Þannig getur það, að vera ofurlítið þekkt, dregið úr manni. Fordómar cru kannski ekki rétta orðið en ég hef stundum á tilfjnningunni að horft sé á mann í gegnum ákveðin gleraugu. Stundum fer maður að efast um sjált'a sig, hver maður sé o.s.frv. þegar ég kannast ckki við þá persónu, sem aðrir sjá í mér. Fólk heldur jafhvel að ég sé karlahatari og ofboðslega ómyndarleg __en því fer víðs fjarri", segir Magdalena og hlær. eða dagblöð. A hinn bóginn verð ég líka vör við það að fólk gefur sér það fyrirfram hvernig ég er og hefur hug- myndir um mig, sem hljóta að vera rangar, ég kannast a.m.k. oft ckkert við þá manneskju, sem fólki finnst ég vera. Það heldur alltaf að maður sé miklu merkilegri persóna en maður er í raun og veru", bætir Magdalena við. „Jú, það er kannski eitt af því góða við að vcra ofurlítið þekkt, maður áttar sig á því að þekkt fólk er ekkert merkilegra en annað fólk. Það eru e.t.v. svolítið sér- stakar aðstæður, sem ég bý við þar sem skyldfólk mitt hefur verið töluvert í sviðsljósinu. Fólk reiknar því með að ég sé svona og svona, hafi ákveðnar pólit- ískar skoðanir og búi við svo og svo mikil efni. Ég minnist þess þegar ég var í skóla í litlu þorpi í Englandi eftir stúdentspróf, vel verið. Blessaður góði heldurðu að ég sé ekki fyrir löngu búin að gefast upp á því að vera sjálfri mér samkvæm". maður jafnvel vildi vera einfaldlega vegna þess að maður er orðinn þekktur eða alræmdur, eftir því hvernig þú vilt hafa það. Mér finnst líka á stundum fólk vera full-almennilegt við mig og ég fæ oft á tilfinninguna að ég njóti meiri fyrir- greiðslu, en aðrir út á andlitið á mér, varla er það út á vaxtarlagið. Annars finnst mér afskaplega notalegt að vera svolítinn tíma þar sem enginn þekkir mig, ekki kannski bara til að fremja einhvers konaródæði eða illvirki, heldur bara til að hvíla mig og slappa af. Ég er að eðlisfari svona frekar feiminn, þó enginn trúi því, en þetta kemur upp í vana eins og hvað annað. Það kemur stundum fyrir að krakkar æpa á eftir manni, heldur góðlátlega þó. Svo er maður náttúrlega búinn áð vera milli tannanna á landslýð, svona dálítið mikið eins og eðlilegt er“, segir Flosi í alvarlega gamansömum tón. Edda Andrésdóttir: „Svolítið lík konunni í Skonrokki” „Heyrðu bíddu aðeins, ég ætla að ná mér í öskubakka." Þannig brást Edda Andrésdóttir við þegar við bárum sp.urn- inguna undir hana. „Ha, hvernig mér finnst að vera þekkt andlit, þú segir nokkuð, sko ég mundi kannski segja að venjulega þá verði ég ekki svo mikið vör við það en þó rek ég mig á það. Stundum er það til góðs en stundum líka svona frekar bagalegt”, segir Edda og hlær. Það kemur fyrir að maður sleppur billega ef maður þarf t.d. að sýna einhver skilríki og hefur gleymt þeim heima. Það gerði mér líka auðveld- ara fyrir þegar ég var að byrja að vinna með unglingum að margir þeirra könn- uðust við mig í gegnum Skonrokkið í sjónvarpinu. Annars held ég að engum finnist neitt þægilegt að láta mikið vera að horfa á sig, en ég er ekki viss um að það sé verið að horfa á mig vegna þess að ég sé svo fræg. Reykjavík er jú ekki stór og hér horfa allir á alla. Nú svo lendir maður í ýmsu, trúlega vegna þess að ég er orðinn þekkt í gegnum sjónvarp- Hvernig er að vera þekkt andlit? Bubói Mortens: „Oft kynnt mig sem Ásbjörn Kristinssson” „Er það ekki Bubbi Mortens sjálfur". „Ha, hvernig reynsla það sé að vera þekktur, sko hún getur verið „negatíf" og hún getur verið „pósitíf". Það fer eftir því með hvaða hugarfari hluturinn er tekinn en stundum getur þetta verið meiri baggi en gleðin, sem það veitir. Frægð er jú æðislega afstæð hugmynd. Það eru fleiri þúsund manns, sem allir hafa sína eigin hugmynd um það hvernig þú ert. Það skiptir mig engu máli þó að hver einasti kjaftur snúi sér við til að glápa á mann eða að fólk pískri um mig. Erfiðleikarnir eru kannski í því fólgnir að það getur verið erfitt að standa undir þeirri ímynd, sem fólk hefur af þér. En á heildina litið skiptir þetta litlu máli. Það er ekki meiri baggi en að vera með víxil á bakinu eða eitthvað í þá áttina. Ég meina það að vera þekktur er ekki hlutur sem liggur á sálinni á mér. Svona spurningu er auðvitað ekki hægt að svara ncma gagnvart sjálfum sér. Til að byrja með kítlar þetta mann en svo lærir maður að taka það ekki of hátíðlega og fyrir rest hættir það að skipta máli. Erlendis hef ég oft kynnt mig sem Ásbjörn Kristinsson, það getur verið mjög notalegt að vera þar sem enginn þekkir til manns. Oft á tíðum er nafnið Bubbi Mortens bara irriterandi", segir Bubbi og glottir í gegnum símann. Hrafn Gunnlaugsson: „Lítillátur, en f er dult með það Þegar Hrafn Gunnlaugsson kom fljúg- andi í símann var hann móður. „Jú, stundum finnst mér að það geti liðkað fyrir samskiptum að ég er þekktur", sagði hann og blés. „Það er þó helst ef fólki hefur líkað við verk mín. Svo hef ég t'undið fyrir því líka að andrúmsloftið hefur kólnað all-snögglega þegar sá, sem cg á í viðskiptum við, hefur uppgötvað hver ég er. Það er þó frekar sjaldgæft í seinni tíð. Ég varð meira var við slíkt í gamla daga. Að öðru leyti finnst mér það frekar hjálpa mér að ég er orðinn svolítið þekktur. Einu vandræðin, sem ég lendi í, hvað þetta snertir, er þegarég fer út að skemmta mér. Þá hafa stundum komið menn sem vilja frelsa mig, segja mér allt um sjálfan mig og anda ofaní hálsmálið hjá mér. En þetta er bara eins og hver og einn verður fyrir, held ég. Ég er yfirleitt það frakkur, sem einstakling- ur, að það skiptir voðalega litlu máli en auðveldar e.t.v. stundum viss samskipti. Mín sálgerð er þannig að ég á yfirleitt auðvelt með að umgangast fólk. Éinhver vinur minn sagði einu sinni að ég væri lítillátur en færi dult með það. Ég held að það hafi verið annar hvor bræðra minna úr Matthildi. Það að vera þekkt andlit hefur hjálpað mér mest í sam- skiptum við fólk úti á landi en þar hefur fólk kunnað að meta kvikmyndina „Óðal feðranna" miklu meira en ég gerði mér sjálfur grein fyrir. Þegar fólk hefur komist að því að ég væri höfundur myndarinnar, hefur mér oft verið tekið með mikilli elsku. Jafnvel miklu betur en ég hef talið mig eiga inni. Það var náttúrulega út af myndum eins og „Blóð- rautt sólarlag", sem ég varð var við mikinn kulda á eftir. ■ Það að öðlast f rægð hef ur löngum þótt eftirsóknarvert og virðist, sem að sú löngun hafi fylgt manninum frá ómunatíð. Sérstaklega hefur það auðvitað þótt eftirsóknarvert að verða þekktur af afrekum sínum eða góðum gjörðum. Aðrir hafa orðið frægir að endemum. Forfeður okkar álitu, að með góðum orðstír mætti jafnvel sigrast á dauðanum eins og sjá má af hinni þekktu stöku i Hávamálum, sem sögð er geyma kjarna heiðinnar heimspeki, en þar segir m.a. „... orðstírr deyr aldrigi...“ En hvernig er þá að búa við f rægð? Hvernig er að vera þekktur? A þessari síðu og hinni næstu munum við sjá hvað ýmsir kunnir íslendingar hafa um málið að segja. Við hringdum í nokkra þeirra, sem segja mætti að væru „þekkt andlit“ eins og það er stundum orðað og spurðum einfaldlega: Hvernig er að vera þekkt andlit?

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.