Tíminn - 19.02.1984, Blaðsíða 3
SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1984
ÆGIR-
Rit Fiskifélags íslands
1. tbl. 1984 af tímaritinu Ægi er nýkomið út'.
Þar eru frásagnir af 42. Fiskiþingi í greinum
og skýrslum. Einnig ályktanir Fiskiþings
Reytingur heitir smáfréttaþáttur. Aflaskýrsl-
ur eru í blaðinu og skýrslur yfir ísfisksölur.
Sagt er frá nýju fiskiskipi: Jón Bjarnason SF
Skipstapar og slysfarir: Sandey II fórst á
Viðeyjarsundi. Greint er frá útfluttum sjá-
varafurðum í okt. (jan.-okt. 1983)
Forsíðumynd er frá Reykjavíkurhöfn,
ljósm. Rafn Hafnfjörð. Útgefandi er Fiski-
félag f slands, en ritstjórar Þorsteinn Gíslason
og Jónas Blöndal.
mO SSGATA OQ SKOP
!K. s» (ísxcja* vt«o n «g
Samúel fjallar um
„atvinnusniff'
f nýjasta hefti tímaritsins Samúels er fjallað
sérstaklega um svokallað „Atvinnusniff.“-
Talið er að um fjögur þúsund manns hér á
landi „sniffi" leysiefni meira og minna vegna
vinnu sinnar. f Samúel er meðal annars rætt
við bílamálara sem hefur hlotið varanlegt
heilsutjón vegna „sniffsins".
Af öðru efni febrúarheftis Samúels má
nefna ítarlegt viðtal við Rúnar Júlíusson um
bítlaárin sællar minningar. Þá er rætt við
meðlimi hljómsveitarinnar Kukl um Lun-
dúnaferð og plötuupptöku, rauður og renni-
legur Porsche sportbíll er kynntur, og lesend-
ur fá að sjá hvernig stjórnklefi í nýjustu
farþegaþotunum lítur út.
í Samúel er einnig viðtal við mann sem
hefur orðið fyrir því að ósekju að nafn hans
hefur verið dregið inn í frásagnir af umfangs-
miklum smyglmálum. Þá má einnig nefna
grein um Zippo kveikjarann fræga, sem
þykir svo traustur að framleiðandi hans selur
hann með lífstíðarábyrgð. Ef kveikjarinn
bilar, þá er gert frítt við hann.
NÚ SAUMUM VID
SAMAN LOFT OG VEGGI
MEÐTRE-X ÞiLJUM
Þeir sem hafa kynnt sér klæðningar innanhúss,
þekkja vel þiljur með nót og lausri fjöður.
Þessi hugmynd hefur nú verið einfölduð, þannig að
þiljurnar eru með áfastri fjöður, auk nótar að sjálfsögðu.
Uppsetning verður því bæði fljótleg og þægileg.Þú límir
og neglir með smáum saum og sníður af endum þar
sem við á, - einfaldara getur það varla verið.
■ Auk þess er verðið stærsti vinningur húsbyggjenda.
Þessar þiljur eru framleiddar tilbúnar undir málningu.
Stærðir: Veggplötur 38x253 cm 58x253 cm
— ii — Loftplötur 58x120 cm 28x120 cm 28x250 cm
HEILDSALA - SMASALA
TRÉSMIÐJA ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR Iðavöllum 6 Keflavík SÍMI: 92-3320
A VANTAR
LOFTRÆSTI-
KERFI
I GRIPAHUSIÐ?
Eigum fyrirliggjandi BRUVIK loftræstikerfi fyrir allar
gerðir gripahúsa.
Gott verð - Góð greiðslukjör
Við mœlum með BRUVIK og það gera
bœndur líka.
LAGMÚLI 5, SlMI 81555