Tíminn - 19.02.1984, Blaðsíða 18

Tíminn - 19.02.1984, Blaðsíða 18
SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1984 ■ Hljómsveitin Dúkku- lísurnar hefur vakið mikla athygli undanfarnar vikur, eða síðan þær komust á blað hér í Reykjavík með því að sigra í Músíktilraun- um SATT og Tónabæjar. Tónlist þeirra er létt og frískt millirokk og hafa þær fengið þá umsögn hjá Bubba Morthens að þær séu eins og Grýlurnar hefðu getað orðið, hvorki meira né minna. Hljómsveitina skipa fímmk kvenmenn, þær Guðbjörg Pálsdóttir, Hild- ur Viggósdóttir, Erla Ingva- dóttir, Gréta Sigurjóns- dóttir og Erla Ragnars- dóttir en allar koma þær frá Egilsstöðum eða sveit- inni þar í kring. Þær hafa allar flutt í bæinn þar sem þær stunda nú nám í menntaskólum eða vinna og þeim hefur boðist samningur hjá Skíf- unni um útgáfu þriggja platna, raunar er vinna þegar hafín við eina þeirra, sex laga 12 tommu plötu. Sem stendur eru þær með æfíngaaðstöðu í kjallara Tónabæjar er eru að svip- ast um eftir hentugum „bflskúr“. Nútíminn brá sér í heimsókn í æfinga- aðstöðu þeirra í vikunni, svona til að athuga fyrirbærið Dúkkulísurnar og fyrst forvitnuðumst við um hvort blómlegt tónlistarlíf væri á Egilsstöðum. „Já, ætli það séu ekki einar 7 hljóm- sveitir starfandi þar núna auk nokkurra gömlu dansa hljómsveita. Hljómsveitir frá Egilsstöðum fara út um alla friði og spila þar á böllum en nýlega er svo farið að halda sérstaka tónleika á stöðunum með balli á eftir“ segja Dúkkulísurnar En hvað veldur þessum áhuga? „Það er hresst fólk sem býr þarna. Menntaskólinn hefur sennilega töluverð áhrif á þetta en svo er jú líka mikið til af bílskúrum á Egilsstöðum og ekkert mál að redda einum slíkum". Hvað olli því að þið fóruð út í þetta? „Þetta var draumur. Að vísu má segja að sumar okkar hafi byrjað svona upp úr 10 ára aldri við að berja á pottlok og þessháttar. Tvær okkar voru að vísu búnar að vera í hljómsveitum á Egils- stöðum áður en Dúkkulísurnar sem slíkar byrjuðu er við vorum allar saman í Egilsstaðaskóla. Þar vorum við á kafi i' flestum skemmtunum, við að leika og syngja, og höfðum gaman af. Hljómsveitin byrjaði þannig að Guð- björg keypti sér trommusett og Hildur og Erla (Ingvad.) fóru að læra gítarleik og hljómborðsleik" segja þær. Fljótlega upp úr þessu fóru þær að koma fram á böllum á og við Egilsstaði og síðan tóku þær þátt í hljómsveita: keppninni í Atlavík í fyrra og urðu þar í öðru sæti. Árið áður hafði nafnið komið á hljómsveitina en þaðvarðþannig til að æfingarhúsnæðið sem þær höfðu til umráða 1982 var fremur sóðalegt og mikið ryk í því. Þær voru oft að kvarta undan þessu, enda að eigin sögn mjög pjattaðar, og einhver sagði þeim að þær væru bara alveg eins og dúkkulísur. Þetta nafn festist svo við þær. En hver er munurinn á því að vera í bænum og sveitinni? „Það eru skiptar skoðanir á þessum innan hljómsveitarinnar. Það er náttur- lega mun meira að gerast hérna í tónlistinni en hinsvegar finnst okkur gott að vera heima og við förum sennilega allar austur í sumar.“ 30 lög á prógrammi Dúkkulísurnar eiga nú í fórum sínum 30 lög á prógrammi og er um þriðjungur ■ Dúkkulísurnar, f.v. Guðbjörg Pálsdóttir, trommur, dóttir söngur. Hildur Viggósdóttir hljómborð, Erla Ingvadóttir, bassa, Gréta Sigurjónsdóttir, gítar, og Erla Ragnars- Nú-Tímamynd Árni Sæberg DÚKKULÍSURN- ad CKVFTTA ítll JAVEilIA ÚR KLAUFUNUM þessfrumsaminn.þær semja sjálfar lögin en hafa fengið hjálp frá vinum og vandamönnum við textagerðina og fjalla textar þeirra, að eigin sögn, um allt og ekkert. Þær spila ekki sérstaklega inn á það að þær eru allar stelpur í hljómsveitinni og þær eiga ekki, að eigin sögn, við nein. grúpíuvandamál að stríða..“ það eru alltaf svona 2-3 strákar fyrir framan Nýtt ís- landsmet í mara- þonleik ■ Nýtt íslandsmet í maraþonleik var sett í vikunni en það var hljómsveitin „Felan“ sem það gerði og spiluðu þeir samfellt í 30 klukkustundir og 5 mínútur, hvorki meira né minna. Hljómsveitina skipa nemendur í Menntaskólanum við Sund, þar sem metið var slegið, og heita þeir Jón Eyþórsson, á gítar, Alfreð Alfreðsson á trommur og Jón Harry Óskarsson á bassa. Á myndinni er Alfreð raunar að plokka á gítarinn en myndin var tekin við upphaf leiksins. Trommuleikarinn datt út úr myndinni er nokkuð var liðið á íslandsmetstilraunina. Nútímamynd Árni Sæberg. sviðið“... Sjálfar telja þær sig hafa víðan tónlist- arsmekk, hlusta á allt og ekkert en mestur tími fer þó í að hlusta á rokk, á svipuðum bylgjulengdum og hjá Pret- enders og Kinks. Á næstunni munu þær væntanlega koma fram í Tónabæ, Klúbbnum og Safari en svo er ætlunin að koma fram á Egilsstöðum 3. mars n.k. -FRI ■ Peter Kowald, einn fremsti bassa- Icikari Evrópu, var hér á ferð fyrir fjórurn árum og hélt hcr þá tvenna tónleika sem seint munu gleym- ast þeim er heyrðu. Hann mun endur- nýja kynni sín af íslenskum áheyrend- um með því að haida tónleika í Norræna húsinu föstudagskvöldið 24. febrúar kl. 21.00. Þeir sem voru svo lánsamir að heyra í Kowald síðast geta borið vitni um það að hér er á ferðinni feikilega fjölhæfur og kraftmikill hljóðfæraleikari. Enda þótt íslending- ar hafi á liðnum árum heyrt í fjölmörg- um af fremstu bassaleikurum okkar tíma er óhætt að segja að Kowald skipi sérstakan sess í þeim hópi. Hann er ■ Peter Kowald Peter Kowald í Norræna húsinu Vestur-Þjóðverji og hefur leikið með fjölda heimsþekktra tónlistarmanna í gegnum árin. Má þar nefna Evan Parker, Albert Mangelsdorff, Carla Bley, John McLaughlin, Leo Smith og John Cage. Síðustu 2 árin hefur Kow- ald mikið leikið með hljómsveitinni Jazz Doctors en hana skipa auk hans Frank Lowe. Billy Bang og Rashied Ali. Þá eru orðnar margar hljómplöturn ar sem hann hefur leikið inn á, bæði undir eigin nafni og með öðrum. Á 20 ára ferli sínum sem hljóðfæra- leikari hefur Kowald jafnt og þétt áunnið sér mikla virðingu sem tónlistarmaður sem býr yfir mikilli hugmyndaauðgi og hefur rutt nýjar brautir í notkun hljóðfæris síns. Það er hljómplötuútgáfan Gramm, sem stendur að þessum tónleikum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.