Tíminn - 26.02.1984, Blaðsíða 2

Tíminn - 26.02.1984, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1984 Fegrun í ■ „Það eru þrír megin farvegir sem þetta mál er í núna. Við ætlum að ræða við sveitarfélögin um samstarf. Það hafa þegar verið haldnir fundir með samtökum bænda, það er að segja Stéttar- sambandinu og Búnaðarfélaginu, og það má segja að kominn sé á samstarfsgrundvöllur við þessa aðila. Og siðast en ekki síst er verið að frumvinna hugmyndir um fegrun á nágrenni Keflavíkurveg- ar, sem má kalla forstofu landsins," sagði Heimir Hannes- son, formaður Ferðamálaráðs, þegar hann var spurður hvað liði átaki sem ráðið kynnti nýlega um umhverfisvernd og betri um- gengni við landið. Heimir sagði að Ferðamálaráð myndi á næstunni kynna sveitarfé- lögum í nágrenni við Keflavíkurflug- völl og Keflavíkurveg hugmyndir sínar varðandi þessi mál. Þá sagði hann að ekki væri ólíklegt að talað yrði við forráðamenn ýmissa fyrirtækja í nám- unda við þessa staði. „Við leggjum áherslu á að þessi mál verði sett í gang fyrir sumarið þannig að eitthvað hafi verið gert þegar ferða- mannatímabilið hefst," sagði Heimir Hannesson. -Sjó ■ Átak Ferðamálaráðs felur í sér meðal annars að koma i veg fyrir að menn komist upp með að spilla umhverfi sínu líkt og sést á myndinni. Umsjón Agnes Bragadóttir „Alltaf einhverjar nýjungar að finna” — segir Þórunn Þórðardóttir, starfsmaður félagsins Sumaráætlun IJtivistars — segir Kristján M. Baldursson, skrifstofustjóri ■ „Við leggjum megináhersluna á útiveru og gönguf erðir fyrir almenn- ing eins og endranær. Áætlun okkar fyrir sumarið er all viðamikil og það er úr miklum fjölda lengri og skemmri ferða að velja þannig að allir sem á annað borð hafa áhuga á að ferðast hér heima ættu að geta fundið eftthvað við sitt hæfi,“ sagði Kristján M. Baldursson, skrifstofu- stjóri ferðafélagsins Útivistar, þeg- ar blaðið spurðist fyrir um sumar- áætlunina. „Við erum stöðugt með sumarleyfis- ferðir í gangi allt sumarið og helgarferðir um hverja helgi. Við leggjum eins og áður mikla áherslu á Þórsmörkina. Þar höfum við yfir að ráða góðri gistiað- stöðu, í Básum. Ég býst við að Horn- strandaferðir verði vinsælastar hjá þeim sem eru reiðubúnir að takast á hendur nokkuð erfið ferðalög. Fyrir aðra kemur fjölmargt til greina. Ég vil nefna Hálend- ishring sem farinn verður í byrjun ágúst.“ Hann sagði ennfremur að í sumar yrði meiri áhersla lögð á ferðir um Vestfirði en oftast áður. Hann nefndi tvær sumar- leyfisferðir á Vestfirðina. I byrjun júlí verður farið sex daga ferð um suðurhluta kjálkans, um Barðaströndina, Rauða- sand, Látrabjarg og inn í Selárdal og Ketildaíi. Þá verður farin gönguferð á svæðið milli Arnarfjarðar og Dýrafjarð- ■Kristján M. Baldursson, skrif- stofustjórí Útivistar. ar. „Þar er hrikalegt landslag. Við förum aðallega með ströndinni, að Lokinhömr- um meðal annars," sagði Kristján. - Þið hafið kynnt eitthvert svæði í nágrenni Reykjavíkur á hverju ári? „Svæðiskynningin í ár er við Esju og nágrenni. Það eru ótal margar göngu- ferðir bæði á fjallinu sjálfu og í námunda við það. Þetta verða eingöngu dags- og kvöldferðir,*1 sagði Kristján. Hann nefndi að meðal nýjunga í starfseminni væru fjöruferðir á stór- straumsfjöru einu sinni í mánuði. Sam- hliða væri gefinn kostur á svokölluðum morgunferðum fyrir þá sem vildu fá sér hressandi morgungöngu og koma aftur heim strax eftir hádegið. Loks talaði Kristján um hestaferðir á Arnarvatnsheiði og snjóbílaferðir á Vatnajökul. Alls voru þátttakendur í ferðum Úti- vistar í fyrra 4671, en árið 1982 voru þeir 5150, sem var metfjöldi. Fækkunin kom aðeins fram í styttri ferðunum og talið er að tíðarfar síðasta árs hafi átt þar stærstan þátt. Hins vegar varð fjölgun í helgarferðunum, til dæmis 20% í ferðir í Þórsmörk. * A faralds- fæti ■ „Það má segja að áætlunin hjá okkur í sumar sé nokkuð hefðbund- in. Þó eru auðvitað einhverjar nýj- ungar að finna. Ég minnist í fljótu bragði 9 daga rútuferðar um Vest- firði, 14. til 22. júlí. Við höfum undanfarin ár verið með ferðir á- Hornstrandir og þær hafa notið mikilla vinsælda þótt sumum hafi óneitanlega þótt þær erfiðar. Vest- fjarðaferðin er meira svona ökuferð en gönguferð þó að auðvitað verði fólki gefinn kostur á að hreyfa sig líka. Við förum Þorskafjarðarheið- ina vestur, um Djúpið bæði sunnan- og norðanmegin og síðan suður firðina," sagði Þórunn Þórðardóttir hjá Ferðafélagi íslands þegar Far- aldsfótur forvitnaðist um sumar- aætlun félagsins. ■ Þórunn býst við að bókanir í ferðir Ferðafélags íslands hefjist fyrír alvöru næstu daga. Sumaráætlun Ferðafélags Islands: Þá sagði Þórunn að Ferðafélagið myndi skipuleggja göngul'erðir á Austur- land. Fólk ætti að gista í svefnpokaplássi á Egilsstöðum og síðan yrði gengið í næsta nágrenni. Þessi ferð verður 4. til 11. ágúst. „Svo munum við vera með eina göngu- ferð frá Borgarfirði eystra til Seyðis- fjarðar. en sú leið hefur ekki verið á áætlun hjá okkur áður. í þeirri ferð þarf fólk aö vera með viðleguútbúnað," sagði Þórunn. I ferðaáætlun félagsins, sem nýlega kom út, er auk áðurnefndra ferða að finna fjölda dagsferða, helgarferða og sumarle) ;iVrða. í dagsferðunufn er um mjög m. , ’.osti að velja. Þær eru skipulagöat á hverjum sunnudegi og frídegi allt áriö um kring ýmist á fjöll, fjöru eða ftglepdi. Aðaláherslan er lögð á ferðir í nágrenni Reykjavíkur. 1 ár er 6. göngudagur Ferðafélagsins og hefur hann vcrið færður til og verður nú 27. maí. Þessir sérstöku dagar eru að sögn Þórunnar til að vekja athygli fólks á létturn gönguferðum sér til hvíldar og hressingar. Þórunn vildi vekja sérstaka athygli á einni dagsferð 21. apríl næst komandi suður á Reykjanes, en fyrir 55 árum, 21. apríl 1929, var fyrsta skemmtiferð félags- ins farin. Þátttakendurvoru31 talsinsog ekið var svo langt sem bílar komust. Nú á sem sagt að endurtaka þessa ferð og minnast þessara tímamóta. Næsta sumar eru skipulaðar í allt rúmlega 30 sumarleyfisferðir og eins og áður eru það ýmist öku- og gönguferðir eða einungis gönguferðir. Sumarleyfis- ferðir eru frá 4 til 10 daga langar og ná til allra landshluta og sérstaklega óbyggðanna. Helgarferðir verða til fjögurra staða á hálendinu yfir sumarið þar sem Ferðafé- lagið hefur sæluhús og einnig til annarra staða, en þá er gist í svefnpokaplássi eða tjöldum. - En hvenær hefjast sumarleyfisferð- irnar fyrir alvöru? „Reynslan hefur nú kennt okkur það að það þýðir ekki að fara af stað með þær fyrr en undir mánaðamótin júní/júlí. Sú fyrsta hjá okkur núna verður 23. júní og síðan koma þær hver af annarri,** sagði Þórunn. Þórunn sagði að þróunin væri sú að fólk bókaði sig fyrr en var fyrir aðeins örfáum árum, sem kæmi til af því að fólk yfirleitt vissi fyrr en áður hvenær það fengi sumarfrí. Hún sagði að þegar væri komið mikið af bókunum í Landmanna- laugar og Þórsmörk. „Annars er þetta allt að fara af stað núna og ég reikna með að margir bóki sig í næsta mánuði," sagði Þórunn. -Sjó „Allir ættu að finna eitthvað”

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.