Tíminn - 26.02.1984, Síða 9

Tíminn - 26.02.1984, Síða 9
SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1984 9 menn og málefni Framtíðarvonimar getnm vér byggt á f ortíðarreynslunni ■ Jón Aðils - sögumeistari aldamótakynslóðarinnar. Jón Aðils ■ Að undanförnu hafa orðið veruleg- ar umræður um sögukennslu í skólum. í tilefni af því er ekki úr vegi að rifja upp þátt þess manns, sem vafalítið hefur haft mest áhrif á sögukennslu og sagnfræði á Islandi á þessari öld. Hér er átt við Jón Aðils, sem ótvírætt er einhver snjailasti sagnfræðingur, sem þjóðin hefur átt. Það má fullyrða, að Jón Aðils hafi verið sögumeistari aldamótakynslóð- arinnar, sem sett hefur meginsvipinn á sögu íslendinga á tuttugustu öld. Jón Aðils kemur fram á sjónarsviðið á fyrstu árum aldarinnar og kveður sér hljóðs á hinn eftirminnilegasta hátt. Jón Aðils var Seltirningur að upp- runa, fæddur 1869. Hann lauk stúd- entsprófi um tvítugt og hélt þá til náms við Kaupmannahafnarháskóla. Fyrst lagði hann stund á læknisfræði, en síðar sagnfræði og fann sér þar hinn rétta vettvang. Við það nám kom brátt í ljós, að hann var gæddur frábærum rannsóknar- og rithöfundarhæfi- leikum. Ritgerð, sem hann samdi um bændaánauð á íslandi á 18. öld, vakti mikla athygli. Af henni var Ijóst, að íslendingar höfðu hér eignazt efni í mikinn vísindamann. Rannsóknir Jóns Aðils töfðu hann við námið, en fleira kom til. Hann var afburðasöngmaður og gæddur miklum leikarahæfileikum. Hann var eftirsótt- ur í samkvæmum, en fór þó oft ein- förum, þegar hann fékkst við vísinda- störf. Þá komst hann í snertingu við Grundtvigshreyfinguna og var eftir- sóttur fyrirlesari á vegum hennar um forn fræði. Þegar leið að aldamótum, hafði Jón ekki lokið prófi. Alþingi þótti samt mikilsvert að fá hann heim og veitti honum styrk með því skilyrði, að hann flytti opinbera fyrirlestra um söguleg og þjóðleg efni. Hann hafði þá unnið sér mikið álit með fyrirlestrum sínum erlendis. Ahrifamiklir fyrirlestrar Með hinum svonefndu alþýðufyrir- lestrum, sem Jón Aðils flutti í Reykja- vík á fyrstu árum aldarinnar, var brotið blað í íslenzkri sögu. Þessu er vel lýst í grein, sem einn af aðdáendum hans frá þessum tíma, Jónas Jónsson frá Hriflu, skrifaði um hann löngu síðar. Þar segir: „Jóni hefur vafalaust verið ljóst, áður en hann hóf þetta starf, að það mundi láta honum mæta vel. Saga landsins lá fyrir sjónum hans eins og opið landabréf. Hann var æfður fyrir- lestrarmaður. Rödd hans var djúp, skýr og breytileg. Framburður glöggur og framkoma hans í ræðustól áhrifa- mikil. Jón tók nú til óspilltra mála. Vetur eftir vetur hélt hann almenna sögufyrirlestra í Reykjavík. Um ræðustól hans fylkti sér í hvert sinn fjölmennur söfnuður. Jón talaði um þau efni, sem æska landsins vildi fræðast um á vakninga- og umbrota - tímum. Hann hélt þessa fyrirlestra í 10 ár. Sigurður Kristjánsson gaf fyrirlestr- ana út í þrem bókum: „íslenzkt þjóð- erni", „Gullöld íslendinga" og „Dag- renning". í þessum þrem bókum tók Jón Aðils til meðferðar þá þætti í sögu landsins, sem bezt voru fallnir til að hita um hjartarætur þjóð, sem hafði átt glæsilega fornöld, en síðan verið beygð og bæld undir erlent kúgunarvald, en reist sig upp til hálfs eftir fallið og ásett sér að verða frjáls að nýju. í fyrstu bók sinni gerir Jón Aðils yfirlit um megin- þætti í sögu landsins, frá því land byggðist, og þar til lokið er sjálfstæðis- baráttu Jóns Sigurðssonar. I „Gullöld íslendinga" lýsir hann megindráttum íslenzkrar menningar á þjóðveldistím- anum, og í síðustu bókinni bregður hann upp myndum af frjálsræðishetj- um íslendinga á viðreisnaröldinni. Þar ganga fram í fylkingu Eggert Ólafsson, Skúli fógeti, Magnús Stephensen, Baldvin Einarsson, Fjölnismenn og Jón Sigurðsson. Þessi þrjú rit mynda samfellda vakn- ingaskrá. Þar er brugðið ljósi yfir sögu þjóðarinnar, líkt og landfræðingur lýs- ir frá háum fjallstindi eðli og útliti landsins, sem blasir við fyrir augum hans. Þjóðin leit á „Gullöld íslend- inga“ réttilega sem handbók við forn- ritaútgáfu Sigurðar Kristjánssonar. Þeir íslendingar, sem áttu fornritin og lásu þau með athygli, fengu í „Gullöld íslendinga" skýringu á því merkilega fyrribæri að á þjóðveldistímanum tókst afskekktri og fámennri þjóð á íslandi að skapa þjóðskipulag og þjóðmenn- ingu, sem mun ætíð verða talin meðal afreka í menningarsögu Vesturlanda. Síðan fylgdu stuttar og glöggar ævi- sögur nokkurra hinna ágætustu braut ryðjenda, sem voru í fararbroddi frelsi og frama á 18. og 19. öld. í þessum þremur vakningaritum Jóns Aðils frá fyrstu árum tuttugustu aldar- innar höfðu hugsjónamenn íslendinga lampa og leiðarljós á erfiðum leiðum. Ekki þurfti lengi að bíða mikils árang- urs. Árið 1908 svaraði yfirgnæfandi meiri hluti íslenzkra kjósenda spurn- ingunni um viðhorfið til Dana á þann veg, að skilnaðurog lýðveldi væru eina lausnin á frelsismáli þjóðarinnar. Sú ákvörðun, sem tekin var við kjörborð- ið árið 1908, var endanlega fram- kvæmd á Þingvöllum 1944. Margir unnu að þeim málalokum, en svo mikið er víst, að Jón Aðils hafði á aldamótaárunum með ræðum og ritum um íslenzka sögu haft stórmikil áhrif á sókn skilnaðarmanna." (Aldamótamenn II bls. 48-49) Það er ekki ofsögum sagt, að fyrirlestr- ar Jóns Aðils í upphafi aldarinnar hafi skipt sköpum, eins og rakið er í frásögn Jónasar Jónssonar hér á undan. Hin uppvaxandi aldamótakynslóð hreifst af sögukenningum hans. Hann varð átrún- aðargoð ungmennafélaganna, enda ti- leinkaði hann þeim eina bók sína (Dag- renning). Einn af leiðtogum ungmennafélag- anna, Jónas Jónsson, skrifaði undir áhrifum af fyrirlestrum Jóns Aðils þá kennslubók í íslandssögu, sem langlífust hefur orðið í íslenzkum skólum. Senni- lega hafa engir menn haft meiri áhrif á söguskoðun íslendinga á þessari öld en Jón Aðils og Jónas Jónsson. Framtíð og fortíð Fyrsta safn fyrirlestra Jóns Aðils, - „íslenzkt þjóðerni", kom út 1903 og hefst það á formálsorðum, þar sem höfundur lýsir efni þeirra og þar með söguskoðun sinni. Þar segir í úpphafi á þessa leið: „Það er efni þessara fyrirlestra, að rekia í stuttu máli helztu þættina í lífi og sögu íslendinga frá upphafi og fram á vora daga, en þó um leið sérstaklega að ræða þá hliðina, sem snertir þjóð- ernið sjálft og þjóðernistilfinninguna. Skal þá fyrst byrjað með því að skýra frá uppruna þess og grafast fyrir ræt- urnar að því, að svo miklu leyti sem unnt er í stuttum og takmörkuðum fyrirlestrum. Því næst skal bent á aðaleinkenni hins íslenzka þjóðernis á söguöldinni, sérstaklega að því leyti, sem þau koma fram í tveim hliðum þjóðlífsins, sem hafa borið nafn íslend- inga út um víða veröld, en þessar tvær hliðar eru: forníslenzkar bókmenntir og forníslenzk stjórnarskipun. Enn fremur mun ég leitast við að sýna fram á, hvernig ættjarðarástin og þjóðern- istilfinningin vakna hjá íslendingum með stofnun allsherjarríkis á íslandi, hvernig þær þroskast og dafna við sjálfstjórnina og sporna lengi vel á móti öllum tilraunum Noregskonunga til að ná yfirráðum á íslandi, þar til flokkadrættir og ósamlyndi, persónu- leg valdfýsn einstakra manna og taum- lausar ástríður bera þær að lokum ofurliði og knýja íslendinga til að ofurselja sjálfa sig og frelsi sitt útlendu stjórnarvaldi. En um leið mun verða bent á, hvernig enn lifir þó eftir sjálfstæðisneisti í brjósti þjóðarinnar, sem hamlar henni frá að ofurselja sig skilyrðislaust og örvar hana til að halda fast við og vernda í lengstu lög sín fornu landsréttindi, að svo miklu leyti sem unnt var með hinu nýja stjórnarfyrirkomulagi. Þessi sjálf- stæðisneisti slokknar aldrei til fulls. Hann blossar upp öðru hvoru og knýr þjóðina til að streitast á móti kúgun og valdboði hinna útlendu höfðíngja öld eftir öld. Þjóðernistilfinningin deyr aldrei út. Hún rénar að vísu og dofnar annað veifið' og lætur aðeins örlítið á sér bera, en reisir þó stöðugt höfuðið á milli og lætur heyra sína gjallandi viðvörunarröddu, þegar sem mestur voði vofir yfir þjóðinni. Þá mun enn verða sýnt, hvemig mesta niðurlæg- ingartímabilið í lífi þjóðarinnar ein- mitt um leið er það tímabilið, þegar þjóðernistilfinningin er daufust og lætur sem minnst á sér bera, - og svo aftur hitt, hvernig þá fyrst tekur að marki að rofa fyrir sól og sumri í lífi hennar, þegar sú tilfinning raknar við, mínnist uppruna vorrar fornu frægðar og knýr þjóðina til að rækja tungu sína og fornbókmenntir. Þar eru vegamótin í lífi íslenzku þjóðarinnar. Þá hættir hún að reika á villigötum og víkur inn á þá braut, sem liggur til framsóknar og farsældar. Að lokum mun svo skýrt frá því, hvernig þjóðernistilfinningin ryður sér meir og meir til rúms, hvernig hún læsir sig inn í hug og hjörtu þjóðarinnar með ljóðum skáld- anna, með orðum og áheitum ættjarð- arvinanna og með endurfæddum bók- menntum þjóðarinnar. Þetta mun svo að síðustu gefa tilefni til að fara nokkrum orðum um, hverjar framtíð- arvonir vér getum byggt á vorri fortíð- arreynslu." Þáttur vidburðanna Jón Aðils lýsir því ennfremur í formálanum, hvernig hann hefur undirbúið fyrirlestrana. Hann segir: „í þessu stutta og takmarkaða yfirliti verður lögð minni áherzla á að skýra frá viðburðunum sjálfum en frá or- sökum þeirra og afleiðingum, því það er og verður jafnan aðalkjarni sögunn- ar. Viðburðirnir koma þá fyrst fram í fullri og réttri þýðingu, þegar þeir eru settir í innra samband hvor við annan og skoðaðir sem liðir í einni óslitinni heild. Það eru aðalstraumarnir í sögu landsins, örlagaþátturinn í lífi þjóðar- innar, sem hér verður leitazt við að einkenna og rekja. Það er að sönnu við því búið, að ekki verði hægt rúmsins vegna að rökstyðja til hlítar allar þær skoðanir, sem hér verða fram settar og kunna í sumum atriðum að brjóta í bág við eldri skoðanir. Það verður varla unnt að gera meira en rétt að tæpa á þeim. En hins vildi ég geta mér til réttlætingar, að ég er reiðubúinn að verja þær með oddi og eggju, eins og menn segja, ef til þess kemur, því þær eru sprottnar af langri og ítarlegri rannsókn og íhugun.“ Aðalkjarni sögunnar verður vissu- lega alltaf sá, eins og Jón Aðils tekur hér fram, að skýra og skilja orsakir og afteiðingar viðburðanna og samhengið milli þeirra. Til þess hins vegar að geta skilið þessar orsakir, afleiðingar og sam- hengi, þurfa menn að þekkjaatburðina og kunna skil á þeim einstaklingum, sem þar koma við sögu. Umrædd erindi sín hefur Jón Aðils samið með hliðsjón af því, að áheyrendur hans væru svo áhugasamir og fróðir sögu- menn, að þeir þekktu viðburðina í megindráttum, og því gat hann aðal- lega snúið sér að orsökum þeirra, afleiðingum og samhengi. Jón Aðils skrifaði síðar íslandssögu, þar sem viðburðir eru raktir. Orsakir þeirra, afleiðingar og samhengi verða þar enn skýrari en áður. íslandssögu Jónasar Jónssonar var ætlað sama hlutverk. Sagan missir undirstöðu sína, ef menn þekkja ekki viðburðina og helztu persónur. Það er t.d. tjón að því, sem áhuga - samar konur unt sagnfræði mættu íhuga, að kvenskörungar eins og Grundar-Helga og Ólöf ríka virðast óðum vera að gleymast, en oft var til þeirra vitnað, þegar sjálfstæðisbarátt- an stóð í mestum blóma. Báðar gegndu þær þýðingarmiklu hlutverki á sínum tíma í frelsisbaráttu kúgaðrar þjóðar. Grundar-Helga átti mikinn þátt í að brjóta niður þá óvenju, að ísland væri selt harðstjórum á leigu, en sjaldan hefur erlent vald reynzt íslendingum verr en þá. Ólöf ríka átti mikinn þátt í að brjóta á bak aftur ofbeldi og ránsskap Englendinga, sem ella hefði getað leitt til þess, að ísland hefði orðið ensk nýlenda og færi þannig úr öskunni í eldinn. Það væri skaði, ef þáttur þeirra Grundar-Helgu og Ólafar ríku félli úr íslenzkri sögu, eins og verulegar horfur eru nú á. Fleira getur þá glatazt, sem er mikilvægt frelsisbaráttu þjóðarinn- ar. Þegar kallið kemur Eftir að Jón Aðils hefur í „íslénzku þjóðerni'' rakið söguþráðinn í sam- ræmi við það, sem hann rakti í formálanum, lýkur hann bókinni mcð þessum orðum: „Á þessum þjóðlega grundvelli verða íslendingar að byggja sína fram- tíðarmenningu, og geri þeir það, þá mun þjóðinni vel borgið. Á þessum grundvelli verða öll landsins börn að mætast og taka höndum saman, til að verja þjóðerni sitt, ekki einungis gegn yfirgnæfandi útlendum áhrifum, held- ur einnig gegn sínu eigin tómlæti og hirðuleysi, því þaðan er engu minni hætta búin. Á þennan hátt mun þeim veita léttast að fullnægja þjóðernislög- málsins fyrsta og æðsta boðorði, - að vera sjálfum sér tryggir, sínu innsta eðli, og varðveita það ungt og óspillt í framfiðinni. Sú var tíðin einu sinni, þótt nú sé hún löngu liðin, að íslend- ingar stóðu í fremstu röð í menningar- legu tilliti. Þeir lifðu, hugsuðu og rituðu eins og sjálfstæðum mönnum sæmir, sem þekkja sitt gildi og sínar kröfur. Hver veit nema þeir eigi eftir ennþá einu sinni að láta til sín taka í menningarsögu veraldarinnar? Það sem þjóðin áður var, það getur hún að vonum aftur orðið. Hún hefur öll skilyrði til þess, ef hún fer vel að ráði sínu. Hún getur enn komizt í fremstu röðina og lagt sinn drjúgan skerf til alheimsmenningarinnar, því enn lifir andi feðranna innst í brjóstum landsins barna. Það er allt undir því komið, að þjóðin verði viðbúin þegar kallið kemur, - og hennar kall kemur fyrr eða síðar, það er ekki hætt við öðru. Á því verður hún að byggja trú sína og von, - og sú von lætur sér ekki til skammar verða. Það eru ekki ætíð þær þjóðirnar, sem mestar eru fyrir sér og glæsilegastar í heimsins augum, sem lífsins fegurstu gæði birta sína dýrð, heldur fullt eins oft hinar, sem fátækar eru og fámennar, - ef þær aðeins eru sjálfum sér tryggar. Ég fyrir mitt leyti hef þá föstu og óbifanlegu trú, að þjóð, sem hefur haft staðfestu til að þreyja og þola í svo margar aldir, án þess að glata sínum eðliseinkennum, hafi einn- ig í framtíðinni þrek og dug til að stríða og sigra, því Sú þjóð, sem veit sitt hlutverk, á helgast afl um heim, eins hátt og lágt má falla fyrir kraftinum þeim.” Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri skrifar

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.