Tíminn - 26.02.1984, Qupperneq 22
22
SUNNUDÁéÍlR 26: FÉBRÚAR 19^4
■ Castro 25 ára gamall. Enn er skeggið fræga ekki komið til sögunnar, en
hann er í óðaönn af efla stuðning við byltingaráform sín.
■ Spyrjið einhverja þrjá Kúbumenn um það
hvernig leiðtogi þeirra, Fidel Castro, hagar
einkalífi sínu. Án vafa verða svörin all ólík —
en þau munu sýna fram á eitt: Fidel Castro er
átrúnaðargoð þjóðar sinnar, meirihlutans að
minnsta kosti, og hann þykir setja svip sinn á
allt kúbanska þjóðlífið. En öll þau 25 ár sem
hann hefur setið við völd hefur honum tekist
að sveipa einkalífsitt dularhjúpi. Aldrei hefur
hann komið á mannamót með konu sér við hlið
og þrátt fyrir orðróm um kvenhylli hans, hefur
það aldrei hent að nokkur kona hafi gerst
lausmál um kynni sín afhonum.
Enginn fastur bústaður
Einkalíf hans er það mikilli rnóðu
hulið að enginn almennur Kúbubúi veit
hvar hann býr. Upplýsingar sem menn
fá um það efni stangast að minnsta kosti
mjög á. í rauninni á Castro sér engan
fastan samastað. Af því sem hann sjálfur
hefur sagt, þó má ráða að í 25 ár hafi
hann ekki sofið tvær nætur í röð undir
sama þaki. Til þess að forðast hugsan-
lega launmorðingja flytur hann í sífeliu
á milli rammgerðs virkis í Havanna og
tveggja vel varinna bygginga í úthverfun-
um og loks sveitaseturs utan borgarinn-
ar. Sá staður sem hann velur sér hverju
sinni er jafnan vel varinn og vaktaður og
dvalarstaðnum er haldið leyndum svo
lengi sem kostur er.
Slíkar öryggisráðstafanir má vera að
mönnum þyki yfirdrifnar, en þá er því til
að svara að óvinir Castro hafa gert
margar tilraunir til þess að komast að
honum, einmitt þeir menn sem honum
stendur mestur stuggur af, - útsendarar
CIA. Hjá Sameinuðu þjóðunum hafa
þeir fengið að sjá gögn um fjölda
áætlana CIA um að koma Castro fyrir
kattarnef og eru áætlanirnar margar
hinar fáránlegustu. Menn hafa ætlað sér
að nota vindla með sprengiefni í,
sjampó, sem yrði til að hið fræga skegg
hryndi af leiðtoganum, leigumorðingjar
hafa verið gerðir út af örkin'ni og alls
konar eitri hefur átt að blanda í mat
hans. Það er því ef til vill skynsamlegt
hjá Castro að vera á verði.
Sterkur Ijómi
Hann heldur áætlun hvers dags jafnan
vel leyndri og að minnsta kosti hin fyrstu
árin gerði hann sér engar starfsáætlanir.
Hann var vanur að birtast án alls fyrir-
vara, - koma fljúgandi í þyrlu sinni eins
og óvæntur engill af himni eða stökkva
út úr jeppabifreið sinni inn á skólaleik-
völl og gerast þátttakandi í körfubolta-
leik. Nú er hann settlegri þegar hann
kemur fram meðal fólks og dagurinn
skipulagðari, en ljóminn af persónu
hans er ekki minni en var.
En þótt menn þykist greina nærveru
Castro hvarvetna á Kúbu, þá hefur hann
ekki beitt við það sömu aðferðum og
margir einræðisherrar aðrir hafa gert, til
þess að varpa ljóma yfir eigin persónu.
Menn sjá engar risastyttur af honum á
torgum Havanía, engar götur hafa verið
skýrðar eftir honum og víst er um að af
opinberri hálfu er ekki hvatt til þess að
dreift sé myndum af honum og sam-
verkamönnum hans..
En þó þykir best fara á því til alls vara
á heimilum og helstu skrifstofum á Kúbu
að hafa mynd leiðtogans hangandi á
áberandi stað og borðar hanga uppi með
tilvitnunum í orð hans.
I stórum glerskáp í miðborg Havana
má sjá einn merkasta minjagripinn um
byltinguna, - bátinn „Granma“, en hann
er 19 metra langur og flutti Castro og 82
áhangendur hans frá Mexico til Kúbu
1956. „í augum flestra Kúbumanna er
Fidel sjálfur tákn byltingarinnar og hann
þarf ekki ^ð minna á sig með neinum
hamagangi," segir gamall Kúbubúi.
Ekki er vafi á því að Fidel Castro
hefur flesta þá eiginleika sem stjórn-
málamaður þarf að hafa til þess að koma
ár sinni vel fyrir borð og það þótt hann
væri ekki byltingarmaður. Faðir hans,
Angel Castro, kom til Kúbu um 1890
■ Á fyrri ríkisstjórnarárum sinum átti Castro til að birtast fyrirvaralaust á hinum ólíkustu stöðum og blanda
sér í hóp almennings.
sem kúbanskur hermaður í því skyni að
bæla niður frelsishreyfinguna á eynni í
þann tíð. Hann afréð að setjast um kyrrt
og kom sér upp veglegum búgarði á
austurhluta eyjunnar. Þar hóf hann rækt-
un á sykurreyr. Hann kvæntist kennslu-
konu og átti með henni tvö börn, en
sýndi brátt sömu athafnasemina í kvenna-
málum sem við búskapinn. Hann tók
eldastúlku fjölskyldunnar í sæng til sín
og gat við henni fimm börn.
Eitt þeirra barna, hið næstelsta, var
Fiedel Castro Rux, fæddur hinn 13.
ágúst 1927. Fyrstu tólf árin ólst hann upp
meðal annarra systkina sinna og gekk í
þorpsskólann, þar sem öllum var hrúgað
saman í einni lítilli stofu. En eftir því
sem efni föður hans uxu, vildi sá gamli
sjá eitthvað verða meira úr börnunum.
Á jesúítaskóla
Á þessum t íma voru það skólar jesúita
sem buðu upp á besta menntun, en þeir
hleyptu ekki í skóla sinn öðrum börnum
en þeim þar sem foreldrarnir sannanlega
voru í löglegu hjónaþandi. Angelo
Castro, sem nú var orðinn ekkjumaður,
beygði sig fyrir þessari kröfu og kvæntist
Linu, eldabuskunni. Fidel var fyrst send-
ur í Jesúitaskólann í Santiago og síðan í
enn betri skóla jesúita í Havanna. Að
því námi loknu hóf hann laganám við
háskólann í Havana.
Þessi trausti bakgrunnur, ásamt miklu
vinnuþreki og góðum ræðumannshæfi-
leikum, hefði getað skilað honum áleiðis
í stjórnmálaferli í hvaða þjóðfélagskerfi
sem var. Voru það þessar góðu framtíð-
arhorfur sem menn telja að hafi ráðið
þeirri ákvörðun Mirtu Dias Balart, ungr-
ar millistéttarstúlku, að giftast Fidel,
þrátt fyrir andstöðu foreldra sinna. Þau
giftust í október 1948. Sagan greinir ekki
frá því hvort Mirtu hafi orðið órótt er
Fidel eignaðist eintak af „Auðmagninu"
eftir Marx á brúðkaupsferðinni í Banda-
ríkjunum, en víst er um að hann brást
skjótt þeim vonum sem hún, faðir hans
og jesúitarnir höfðu bundið við hann.
Ríkisstjórn sú sem Castro tókst um
síðir að steypa, stjórn Fulgencio Batista,
var orðin gegnrotin hið innra. Batista
hafði sett forseta landsins af og skipað
nýja áratugum saman, þegar hann loks
tók sjálfur alræðisvöld árið 1953. Hann
tryggði sér valdatökin með samhræringi
af spillingu og ofbeldi.
■ „Fidel Castro er burðarásinn sem allt hvílir á,“ segir flokksfélagi nokkur. Kúba án Castros er mynd sem
fæstir Kúbanir vilja virða fyrir sér.