Tíminn - 04.03.1984, Blaðsíða 6

Tíminn - 04.03.1984, Blaðsíða 6
Á DAUÐA- STUNDINNI ■ í hinni timdcildu íþrótt. nuutaatinu, ef íþrótt skyldi kalla. standa mcnn oft andsp;cnisd;iuóanuni Stundum má vart á milli sja liyor liclui bctur tarfurcða maður en svo fer þó vanalegast að lokum að maðurinn stendur yfir dýrinu dauðu og áhorfcndur klappa sigurvcgaranum lof í tófa. Þaö má meðsanni segja að það sé stund dauðans þegar nautabaninn víkur sér undan nautinu á broti úr sckúndu og gefur því náðarstunguna. Engu má skeiká á þessu augnabliki ef svo á að fara sem til cr stofnað. Óvarkárni kostaði nautabanann Enrique Delgado frá Mcxiko næstum því lííið á þcssari stundu. Með því uð hnykkja hausnum örlítið til náði tarfurinn að krækja horni sínu í læri nautabanansog þeyta honum í loft upp. Það fór þó ekki svo að þessi óvarkárni kostaði hann lífið því honum tókst að koma standandi niður og lagði nautið að velli samkvæmt kúnstarinnar reglunt. Þcssi sérstæða mynd cr tekin á því augnabliki þegar nautið nær að krækja horninu í manninn og rífa hann upp. Ef heppnin hcfði ekki verið með Enriquc Dþlgado í þetta skiptið hefði það oröið hans dauöastund. (Úr Polilikcn) Hugmynda- samkeppni um aukna hagsýni í opinberum rekstri Ríkið og Samband íslenskra sveitarfélaga vilja auka hagsýni í opinberum rekstri. Markmiðið er að bæta þjónustu hins opinbera við borgarana en lækka kostnað við hana. Málið varðar alla landsmenn. Þess vegna hefur verið ákveðið að efnatil hugmynda- samkeppni, þar sem öllum er heimil þátttaka og veita þrenn verðlaun fyrir áhugaverðustu tillögurnar sem nefndinni þerast. Verðlaunin verða að fjárhæð 10.000 kr., 7.500 kr. og 5000 kr. Skilafrestur er til 1. júní nk. Hagræðingartillögurnar skal senda: Samstarfsnefnd um hagræðingu í opinberum rekstri pósthólf 10015130 Reykjavík eða í Fjármálaráðuneytið, Fjárlaga- og hagsýslustofnun Arnarhvoli 101 Reykjavík. Dallas- fregnir ■ Charlene Tilton sem betur er þekkt á íslandi undir nafninu Lucy Ewing úr Dallas-þáttunum í sjónyarpinu hefur nú ákveðið að söðla um og gerast söngkona. Eins og fleiri kvikmynda- og sjónvarpsstjörnur hefur hún átt við . sambúðarerfiðleika að stríða og nú mun hjónaband hennar og manns hennar vera komið í hönk. Tilton hefur nú þegar gert samning við vesturþýskt plötuútgáfufyrirtæki og mun fyrsta hljómplatan koma út þar í landi nú á næstunni. Ef vel gengur á að reyna dreifingu í öðrum löndum cn það verður tíminn að leiða í Ijós. Tilton lét þess getið nýlega að undirbúningsvinna væri á lokastigi og búið væri að ákveða flest lögin á plötuna. Hún vonast til að verða með eigin tónsmíðar að stórum hluta og nú cr bara að bíða og vona að söngurinn gangi eins vel og fyrirsætustörfin í Dallasþáttunum. Laust embætti: Annað embætti farprests þjóðkirkjunnar er laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 28. mars 1984. Reykjavík, 28. mars 1984 Biskup íslands Pétur Sigurgeirsson Tilkynning til skattgreiðenda Dráttarvextir vegna vangreiddra þinggjalda verða reiknaðirfimmtudaginn 8. mars n.k. Vinsamlegast gerið skil fyrir þann tíma. Fjármálaráðuneytið, 29. febrúar 1984 Tæknifræðingur/ Trétæknir Iðntæknistofnun íslands óskar eftir að ráða tæknifræð- ing eða trétækni til starfa við Trétæknideild stofnunarinn- ar. Starfið er fólgið í tæknilegri ráðgjöf og kennslu í tréiönaðarfyrirtækjum. Nánari upplýsingar hjá Iðntæknistofnun í síma 68-7000. Umsóknir þurfa að hafa borist fyrir 10. mars. M Iðntæknistofnun Islands

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.