Tíminn - 04.03.1984, Blaðsíða 23

Tíminn - 04.03.1984, Blaðsíða 23
SUNNUDAGUR 4. MARS 19M itnthm 23 kjörforeldra, Ijómandi góða lækna og þakklátar konur. Sumar þeirra líta stöðugt inn hjá henni og spyrja eftir barninu. Til dæmis var móðir hans Michaels hérna yfir sig ánægð er hún frétti hve vel honum liði og sá myndir af honum. Sagði „nei“ Maria Seifert trúði ekki á þetta og sagði „nei ' vio boði frú Lebert um að taka að sér 2000 marka skuld hennar. „Ég er ekki nein barneignamaskína," sagði þessi tvítuga frammistöðustúlka. „Ég læt ekki múta mér til þess að verða sífellt óhamingjusöm siðar." Ekki var Ellen Reger, 22ja ára, ánægðari. Hún segir svo frá: „Ég ætlaði að fara að heiman, af því að enginn mátti vita að ég var ólétt. Frú Lebert lét mig fá 400 mörk og sendi mig á mæðraheimili Schulz-fjölskyldunnar við Eystrasalt. Hún sagði að á heimilinu, sem var á afskekktum bóndabæ, mundi ntér líða vel. En þegar ég fór að gildna, byrjaði égað velta því fyrirmér hvort ég vildi nokkuð gefa barnið. En það mátti frú Schulz ekki heyra nefnt. Hún sagði að það albesta væri að fá barninu fósturforeldra. Ég þorði ekki að mót- mæla henni. Égátti líka að vera þakklát. Frú Lebert borgaði dvölina þarna og sendi mér að auki ávísun með 700 mörkum. Mér fannst ég vera skyld til að efna það sem ég hafði lofað. Svo kom herra Runde, sem ráðstafar kjörbörnum til nýrra foreldra. Frú Schulz var öskureið við hann, af því að hann sagði að ég skyldi hugsa málið að nýju í ró og næði. Hann sá að ég var í vafa. En frú Schulz reyndi að telja um fyrir mér. Hún sagði að ég væri ekki manneskja til þess að ala barnið upp og til þess að sýna mér hve vel barninu mundi líða, benti hún á sitt cigið kjörbarn, Miriam, en það hafði hún fengið hjá frú Lebert. Fékk sterk deyfilyf Þegar að fæðingunni kom var ég send á litla einkalæknisstofnun, sem frú Le- bcrt hafði útvegað mér. Ég fékk sterk deyfilyf sem urðu til þess að ég hvorki sá barnið né heyrði það gráta. En svo lá ég í rúminu mínu og skældi. Ég var sorgmædd, en treysti mér ekki til að ■ Frú Lebert: Með því að sýna stúlkunum óhugnanlegar myndir af lemstruðum fóstrum tókst henni að telja þeim hughvarf. biðja lækninn að lofa mér að sjá barnið og faðma það að mér. Ég vissi að það mundi valda miklu uppnámi. Frú Lebert settist á rúmstokkinn hjá mér og Ijómaði af ánægju. Hún sagði mérað kjörforeldr- arnir væru mikið afbragðsfólk og að þau hlökkuðu mikið til að fá barnið. Daginn eftir munu þau hafa sótt barnið mitt á heimilið. Lagalega hefði mér verið mögulegt að krefjast þess að fá barnið til baka, því fyrst átta vikum eftir fæðinguna er samningurinn um afhendingu barnsins til ættleiðingar gerður. En ég gat blátt áfram ekki sett mig gegn þessu, því ég var mjög niðurdregin og frú Schulz var sífellt að tala um fyrir mér og notaði sér ástand mitt. Sama máli gegndi um hinar mæðurnar þarna á heimilinu. Mér varð það allt of seint Ijóst hvað um var að ræða. Það voru peningar sem hér voru á ferðinni. Frú Schulz var afar gröm vegna þess að fólkið sem tók mitt barn að sér tregðaðist við að greiða henni og frú Lebert. Áður en barnið fæddist sagði hún iðulega. „Þau munu fá að vita hvað það kostar ef þau ekki borga." Forstöðumaður ættlciðingarskrif- stofunnar í Slésvík Diter Rundi segir: „Þetta er rétt. Hinum verðandi kjör- ■ Kaþólski presturinn Winfried Pi- etrek hefur hlotið dóm fyrir að líkja tilteknum yfirlækni er fæst við fóst- ureyðingar, við Höss, fangabúða- stjóra í Auschwitz. foreldrum var ótvírætt gefið til kynna að þau þyrftu að láta fé af hendi rakna. Frú Lebert sagði þeim að koma til Kölnar, einkum til þess að þau kynntust kynfor- eldrum barnsins sem þau skyldu ætt- lciða. En raunar fóru þau aðeins til Kölnar vegna þess að þau töldu að ella mundi frú Lebert hafa þau áhrif á móðurina að hún hætti við að fá þeim barnið." Hjónin segja: „Frú Lebert spurði um cfnahagslegar ástæður okkar. En okkur þótti það hart cf viö ættum að þurfa að kaupa hamingju okkar í þessu efni fyrir fé. “ Þau hjónin greiddu frú Lebert heldur ekki grænan eyri. Dietcr Rundi hvatti þau og til þess. Frú Hedi Lebert hefur brugðist rétt við slíkum leka. Hún hefur fundið leið sem gerir henni kleift að komast fram hjá öllum ættleiðingastofnunum. Er hún nú komin í tygi við félagsskap t Múnster, sem helgar sig ýmsum félagsntálalegum efnum. Snörur lagðar í forsæti þessa félagsskapar, sem nýtur opinberrar viðurkenningar og byggist á frjálsum framlögum, situr gamall kunn- ingi frú Lebert, Hans Dieter Schink. Sá er fyrrum Fransiskana-munkur og fé- lagsmálastofnanastarfsmaður, sem gerst hefur sekur um kynferðislegt samneyti við börn og hlotið dóm fyrir. Þau frú Lebert hafa gert mæðraheimili frú Schulz að sérstöku dvalarheimili á veg- um félagsskapar þessa. Þannig hafa þau skipt með sér verkum: Frú Lebert leggur snörur fyrir þungaðar konur og Hans Dieter Schink sér um formsatriðin. Rolf Bach, lögmaður og yfirmaður ættleiðingastofnunarinnar í N-Þýska- landi segir: „Frú Lebert fer ólöglega að ráði sínu við valið á kjörforeldrum. Hún og félagið sem hún starfar með mega eiga von á kæru fyrir brot á löggjöfinni um ættleiðingu." Hér verður rætt nánar um ólögmætar aðferðir frú Lebert. „Ég þekki svo mörg hjón, sem ekki eiga aðra ósk heitari en að eignast barn," segir hún við vanfærar konur. Hún liggur heldur ekki á því að „á undanförnum tíu árum hefur fjöldi af ágætu fólki stutt starf mitt með fram- lögum." Foreldrarnir sem hún útvegar börnin eru henni „ævinlega þakklátir og hafa orðið ágætir vinir mínir upp frá því." Hún segir við unga atvinnulausa stúlku, Sabinu Schmidt: „Ég hef sam- band við dasamleg læknishjón sem vilja taka að sér barnið þitt. Hún lét ungu stúlkuna fá ávísun á 1200 mörk og bar henni „hjartanlegar kveðjur" verðandi kjörforeldra. Eftir fæðinguna átti Sabina Schmidt að fá 3000 mörk í viðbót, en ckki vildi frú Lebert gefa henni skriflega staðfestingu á því. „Þá yrði ég ásökuð um sölu á fólki, sagði hún. En fyrir þráheiðni ungu stúlkunnar gerði hún það samt og ritaði viðurkenningu á bréfsefni samtakanna „Lífsvon," þar sem féð var nefnt „styrkur til þess að koma sér af stað á ný." Einn af sjö fær barn lledi Lebert hefur því vissulega ekki reiknað með að Sabine Schmidt mundi setja fótinn fyrir ráðagerðir hennar og hinna „dásamlcgu læknishjóna." Sím- lciðis tilkynnti unga stúlkan að hún ntundi ckki láta barn sitt af hendi. Þar með var „styrkurinn" orðinn aftur- kræfur. Að áliti Rolf Bach eru öll laun, „styrkir" og því um líkt ekki annað en dulbúin sala á tólki. „En okkur hcfur ckki tekist að fyrirbyggja það að fólk hagnýti scr ncyð einstæðra, verðandi mæðra, þar sem þeir foreldrar sem ættlciða börnin þegja. Konurnar sem gefa börnin fyrirvcrða sig og eru hræddar. Þessi viöskipti viðgangast því aðeins vegna þcss að eftirspurnin er meiri en framboðið. Af 'sjö umsækjend- um fær aðeins einn barn. Nær allir vilja hclst ættleiða nýfætt barn. meira aö segja eru þess dæmi að fólk greiöir 30 þúsund mörk fyrir barn frá þriðja heim- inum." Þaö var aðcins tilviljun að uppvíst var um athafnir læknisins Heinrich Upmeier, cn hann rak þjóðþrifafyrirtæk- ið „Hamingjubörn" og jafnframt fæði- ngarheimilið „Roscmarie" í Bad Dri- burg við Paderborn. Með smáauglýsing- um lokkaði hann til sín örvæntingarfullar vcrðandi mæður hvaðanæva að. Opin- berlega hældi Upmeier starfsemi sinni sem „síðasta úrræði örvæntingarfullra kvenna" og sagðist tryggja að konurnar gæti innan sinna vcggja átt barn sitt án utanaðkomandi athygli og gefið það harnlausum forcldrum, eftir rækilega umhugsun. En í rauninni var hér aðeins vcrið að nota stúlkurnar sem barnsburð- arvélar. Dr. Upmcicr hagnaðist ágæt- lcga á þessu. Viðkomandi barnaverndaryfirvöld lögðu blessun sína yfir þá kjörforeldra sem læknirinn benti á - allt þar til væntanlegir foreldrar einir höfðu sam- band við yfirvöld og kvörtuðu yfir því háa gjaldi sem þeim var ætlað að greiða. Endalokin urðu þau að „Rosemarie" heimilinu var lokað. Ekki er að sjá scm þeir er í þessum viðskiptum standa séu í fjárhagsvand- ræðum, því frá því árinu 1976 hafa risið upp ótal „ráðleggingastöðvar, þar sem unnið er eftir reglum frú Lebert. Það eru cinkum mjög ungar, ósjálfstæðar og snauðar stúlkur sem falla fyrir þessum tilboðum. Hreyfingin sem að baki stöðvunum stendur dreifir áróðursbæklingum þar sem konur er láta eyöa fóstri eru ákærðar sem morðingjar og þeir læknar sem fóstureyðingar framkvæma eru kallaðir „fósturdráparar." Lýst er andstöðu við taumlausa frekju kvenna til frelsis og minnt á siðræna hrörnun Vesturlanda. Þá er ótti látinn í Ijós um fækkun þjóðarinnar. Helst vildu samtökin láta banna bæði pilluna og lykkjuna. Rituðu þau Kohl kanslara bréf í þessa veru fyrir skömmu. í bæklingi sem þau gáfu út fyrir skömmu segir: „Enn er okkar þjóð legið á hálsi fyrir manndrápin á dögum þriðja ríkisins. En samt er nú á dögum veriö að útrýma 90 þúsundum ófæddra barna með styrk trygginga og sjúkrasamlags." (Þýtt úr ,,Stern“-stytt)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.