Tíminn - 04.03.1984, Blaðsíða 14

Tíminn - 04.03.1984, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 4. MARS 1984 ■ Hún er aðeins tvítug að aldri, afar smávaxin og fínleg en með járnvilja og hefur haslað sér völl á sviði þar sem karlmenn hafa verið næstum einráðir til þessa. Pia Cramling, sænska skákdrottning- in eins og hún er gjarna kölluð hefur þegar náð meiri styrkleika í skák en nokkur önnur kona í heiminum og líklega nokkur önnur kona i skáksögunni. Árangur hennar á Búnaðarbankamótinu á dögunum var líka sennilega sá besti sem nokkur kona hef ur náð. Hún hefur nú yfirgefið landið, en hefur tekið ástfóstri við Reykjavík og ætlar að koma aftur við fyrsta tækifæri og tefla, „det har jo varit toppen hár,“ segir hún er spurð hvernig henni hafi líkað dvölin. Við spjölluðum suttlega við hana, áður en hún fór og fyrsta spurningin var hvort Búnaðarbankamótið hefði verið fyrsta sterka lokaða mótið sem henni hafi verið boðið að taka þátti. „Eg hef uðcins einu sinni áður tekið j)átt i lokuðu móti af svipuðum stvrk- leika og Búnaðarhankamótið." seg- ii ria. „KiO ei meO jiessi lokuðu inoi, að þangiið kernsl maður ekki nema maður sc hoöinn persónulcga og ég hef einfaldlega ekki fengið slík tilhoð. Mótshaldarar vilja fá stcrka kcppend- ur og þekkt nöfn.“ Hcldurðu að árangur þinn í Búnað- arhankamótinu geti hreytt einhvcrju um þetta, aö þú cigir nú kost á aö komast á fleiri lokuð mót? Tímamynd Róbert. Pia Cramling. Islandi er eitthvað alveg einstakt. ég hef að vísu ekki teflt í Sovétríkjunum. ég get hugsað mér að það sé eitthvað svipað þar. Og ég tala nú ekki um það að koma frá Svíþjóð til íslands að tefla, munurinn er svo tröllaukinn, það er eins og nótt og dagur." Nú höfum við bara talað um Búnað- arbankamótið en þú varst líka með á Reykjavíkurmótinu, hvað viltu segja um árangur þinn þar? „Æ, ég var þreytt og gekk ekki vel. Ég var búin að taka á öllu mínu í Búnaðarbankamótinu og þetta var kannske orðið of mikið fyrir mig." Hvað tekur nú við hjá þér, þegar þú kemur heim til Svíþjóðar. Ferðu að vinna, ferðu í skóla, eða ætlarðu að fást einvörðungu við skák? „Þannig cr að síðasta árið hef ég verið við háskólanám, en nú er ég búin að vera svo mikið í burtu þetta misserið að það verður ckki mikið úr náminu. En ég ætla að lesa næsta mánuðinn og síðan ætla ég að fást við skák en eftir mánuð fer ég til London til að taka þátt í skákmóti þar, ég vcit unt einn Islending sem ætlar að tefla þar. Elvar Guðmundsson." Færðu einhvern stuðning frá ríkinu til að stunda skákina? ..Nei. ég fæ námslán vegna þcss að ég stunda háskólanám og á því sé ég fyrir mér." Geluröu hugsanlega lifað af því að skrifa um skák? „Nei, vegna þess hve skákáhuginn er lítill í Svíþjóð er ekki mikið upp úr því að hafa. Að vísu er einn skákmeist- Já ég kem á næsta Reykjavíkurmót — Spjall við skákdrottninguna Piu Cramling ari í Svíþjóð sem fær greidd full laun hjá dagblaði fyrir að skrifa um skák, Axel Ornstein, en reglan er sú að það er fjarri því að hægt sé að lifa af því að skrifa um skák.“ Úrslitin í mótunum hér. komu þau þér á óvart? „Já, þessi árangur hjá íslendingun- um. hann er alveg frábær. En hann kom mér ekkert sérstaklega á óvart. Ég hef þekkt Jóhann í nokkur ár og ég hef alltaf vitað að hann myndi ná góðum árangri og ég hafði búist við að hann yrði alþjóðameistari fyrir löngu. En svo eru svo margir góðir skákmenn á íslandi, Helgi, Karl Þorsteinsogallir hinir. Þetta hlýtur aö hafa mikil áhrif á skáklífið hérna. Það hafa ekki verið svo mörg góð mót hér þó að allir þessir skákmenrt hafi náð hessnm stvrk- leika. En nú hlýtur það að fara að breytast.” Það lítur út íyrir að styrkur Islend- inganna sé meiri en skákstigin segja til um og það stafar kannske af einangrun og of fáum tækifærum og manni dettur í hug að það sama gildi um þig, vegna þess að þú crt kona og frá landi sem sýnir skák ekki mikinn áhuga,hafir þú ekki fengið tækifæri til að sýna raun- verulegan styrk? „Ég held að þetta sé rétt hvað varðar íslcndingana, en ég hef nú teflt það mikið á mótum undanfariö að ég held að stigin mín segi nokkuð rétt til uni hvar ég stend. En þetta með stigin er mikilvægt vegna þess að því hærri stig sem skákmaður hcfur þeim mun meiri möguleika á hann á að fá boð á skákmót." Ég glcymdi að spyrja þig hvað þú ert að læra í háskólanum? „Já, ég er að læra rússnesku. Af hverju? Jú, ég hafði hana sem valfag í menntaskóla, ég valdi hana fyrst vcgna þess að það er gott fyrir skákmann að kunna rússnesku. En svo féll ég dálítið fyrir rússneskunni. mér finnst hún fallegt mál, þótt ég sé annars cngin sérstök málamanneskja. Svo var ég svolítið óákveðin í því hvað ég ætti að fara í þegar að háskólanum kom. svo að ég valdi rússneskuna. En ég hef ekki stundað námið af fullum krafti vegna skákarinnar svo að ég kann nú engin ósköp." Ætlarðu að koma á næsta Reykja- víkurskákmót? ...lá. það vona ég svo sannarlega. Ég vil gjarna koma aftur til Reykjavíkur. það hefur verið stórkostlegt að vcra hér". JGK „Það má vera. Mér gekk vel í fyrri hluta mótsins, í seinni hlutanum gaf ég eftir og tapaði meira en ég hcfði átt aö þurfa. En ég vona þaö, að mótið geti hjálpað mér í þá vcru sem þú varst að tala um." Hjálpaði þetta mót þér til þess að meta þína eigin stöðu, veikleika og styrk? „Já, þaðer áreiðanlegt. I byrjun hélt ég að mér myndi reynast crfitt að fá vinning yfir höfuð. En mér gekk þvert á móti ntjög vel. Ég heföi átt að geta náð betri árangri ef ég hefði heitt mér rétt. Ég missti niður vinninga að nauö- synjalausu. ég er alla vega þeirrar skoðunar eftir á. Ég eyddi miklum tíma, komst oft í tímahrak og það er hlutur sem ég vcrð að sigrast á. Ég finn það líka að ég verð að auka byrjana- forðann ef svo má segja. Þetta liggur alveg Ijóst fyrir eftir mótið og það hcfur því orðið mjög dýrmæt reynsla fvrir mig Fti held að revnslulevsiðhafi valdið því fvrst og frcmst að mér tókst ekki að nalda lengnum Itlut. þegar eg var efst fram yfir mitt mót." Það vakti athygli okkar sem fylgd- umst með að þú eyddir geysimiklum tíma í byrjanirnar og þurftir að fara að ■ „Rússneski bangsinn", Efim Geller leikur fyrsta leiknum i skák sinni vð Piu Cramling á Reykjavíkurmötinu. Geller er ekki mæltur á vesturlandamál, en það hefur varla hindrað þau í að ræða skákina á eftir þvi að Pia er mælt á rússnesku. Tímamynd Róbert. eitt truflandi.cn ég er vön því að vekja athygli, þar sém ég er yfirleitt eina konan sem tek þátt í skákmótum. En mestan part var þetta jákvætt fyrir mig og hvetjandi. En nú ertu örugglega ckki vön að tefla fyrir framan svo marga áhorfend- ur eins og hérna. Hvernig virkaði það á þig? „Nei. ég er ekki vön því. I fyrstu t'annst mér þetta mjög skrítið að tcfla fyrir framan fullan sal af áhorfendum. sem fylgjast með hverjum leik og ræða ganginn í skákunum, en svo fór mér að þykja þetta þægilegt. og hafa gaman af því. Ég vil að skák sé almenningsíþrótt en ekki fvrir örfáa meistara og þess vegna var þægileg tilfinning að verða vör við þennan mikla áhuga. svona þegar maður fór að venjast því. Nei. ég hef aldrei teflt áður þar sem hefur verið svona mikill áhugi, skák á ■ Pia teflir við bandariska skákmeistarann Nick de Firmian á Búnaðar- bankamótinu. Hann var stigahæsti maður mótsins ásamt Alburt, en mátti þakka fyrir jafnteflið i þessari skák. Alburt þurfti hins vegar ekki að kemba hærurnar eftir viðureignina við skákdrottninguna. Tímamynd Árni Sæberg. tefla hratt jafnvel strax í miðtaflinu. Líka það aö þú sast við borðið og hugsaðir jafnt í þínunt tíma og and- stæðingsins og maður velti fyrir sér hvort þú cyddir ekki alltof mikilli orku í hverja skák og þreyttir þig þannig snemma í mótinu. Stafar þetta af því að þig vanti teóretíska undirstöðu og þurfir að hugsa skákina meira yfir borðinu. en aðrir? „Það er árciðanlegt aö ég vcrð að læra miklu mcira í teóriu. Og þaö ei satt að það er einn af mínum stóru veikleikum að ég hota inikinn tíma í byrjanirnar og kannske mikla orku líka. Það er satt að ég sit mikið yfir skákinni, en ég verð að ná mikilli cinbeitingu. ég tefli þannig. Og ég tefldi einfaldlega miklu betur þegar ég sat við borðið allan tímann. ég fór einhvern veginn út úr taktinum þegar ég fór að ganga um og slappa af milli leikja. Þegar ég sit við og einbeiti mér að skákinni, þá kcmst ég einfaldlega miklu betur inn í hana, jafnvel þótt það kosti orku. Það að standa upp og ganga um rýfur einbeitinguna. Auðvit- að er þetta ákveðinn veikleiki. það kemur fram í því að í lok mótsins var ég orðin þrevttari en hinir keppend- urnir. Þaðsegir mér að ég noti of mikla orku. en ég kemst ekki í gegnum inól nema með mikilli áreynslu. Ég verð að finna einhvern milliveg. Þetta stafar kannske líka af ákveðnu öryggisleysi. Ég vissi að allir mótherjar mínir voru mjög sterkir skákmenn, sem tefla byrjanirnar vel. Ég óttaðist þess vegna alítaf að fá verra út úr byrjununum og eiga þar af leiðandi enga möguleika í skákinni." Þú vaktir mikla athygli í byrjun mótsins, og blöðin voru full af fréttum af því hvernig þér gengi. Truflaöi þessi athygli þig, eða verkaði hún hvetjandi? „í byrjun þá þurftu öll blöð að ræða við mig í einu og það var kannske lítið

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.