Tíminn - 04.03.1984, Síða 11
SUNNUDAGUR 4. MARS 1984
11
■ Mér finnst að það þurfi að vera stórfiskar í öllum myndum. Eggert Magnússon, listmálari, að störfum á vinnustofu sinni. (Tímamyndir Árni Sæberg)
mega kalla þetta
sem þeir vilja”
M Eggert Magnusson er einn þeirra
manna sem víða hafa farið og margt er til
lista lagt. Hann býr nú að Bjargi við
Nesveg og hefur dregið saman seglin í
þeirri merkingu að hann er hættur sjó-
mennsku, en sjoinn stundaði hann í
fjöldamörg ár. í stað þess að hnýta
pokahnúta á trolli og splæsa víra með
melspíru, hefur hann nú tekið sér pensil
í hönd og fæst við að mála myndir.
..Mcr finnst aö í góöri mvnd veröi að
vera stórir fiskar og sterkir litir", sagöi
listantaöurinn. þegar Helgartíminn tók
á honum hús.
..Ég byrjaði að fást við að.niála í
kringum 1960 og hef verið að dútla við
þetta síðan. Ég held að það sé í ættinni
að hafa ánægju af þessu, systur mínar
teikna og mála og eru í Batík t.d. hún
Hrefna. Við erum af ætt Guðmundar í
Miðdal og þetta er eitthvað í blóðinu.
blessaður vertu. Annars hef ég alltaf
verið með annan fótinn á sjónum. Ég
byrjaði 16 ára scm hjálparkokkur á
Skúla fógeta og var svo líka á Hannesi
ráðherra í niörg ár. Þetta var nú í þá
daga þegar gufuvélar voru í skipum og
ég komst snemma upp á lagið með að
halda'þeim gangandi."
I íbúð sinni hefur Eggert stóra stafla
af myndum og allir veggir eru þaktir
verkum eftir listamanninn. Þar cr og að
finna ýmsa sérkennilega og skcmmtilega
muni sem hann hefur safnað á ferðum
sínum í þremur heimsálfum. Við hliðina
á stórum kuðungi, úrsuðurhöfum, liggur
strútsegg sem einhvern tímann hefur
verið ætlað annað hlutverk. í bústað
Eggerts. sem jafnframt er vinnustofa
hans, ber þó mest á myndum hans,
stórum verkum. máluðum meðolíulitum
í skríkjandi sterkum litum. Myndefnið
sækir Eggert mikiö í sjóð minninganna
en þar er af nógu að taka. Honum cr
ekki gefið um að tala alltof mikið um
sjálfan sig og sína hagi, en þegar hann
fer að fletta blöðum albúmanna, sem
hann hefur fyllt með ljósmyndum og
kortum. þá hýrnar yfir honum og mál-
beinið liðkast. Þarna eru m.a. myndir af
fjölskyldu hans auk fjölda mynda úr
ferðum hans til Ameríku og Rússlands.
Þarna er líkaað finna gamlar ljósmyndir
frá Afríku, en þar dvaldist Eggert um
tíma og stundaöi útgerð.
„Ég bjó í litlu þorpi sem heitir Gunjur
og er í SencGambíu í Vestur Afríku.
Það var allt umlukið skógi og langt til
strandarinnar þar sem við höföum bát-
ana. Ég var þarna ásamt skoskum
manni, og við höfðum með okkur svert-
ingja sem hafði verið í Frakklandi og
hann eldaði ofaní okkur. Svo vorum viö
mcð innfædda menn scm háseta og
gerðum út á síld og markríl auk þess sem
við stunduðum hákarlaveiðar og lögðum
gildrur fyrir krabba. Bitvargurinn var
svo mikill um regntímann. skal ég scgja
þér, að það var hreint hroöalegt. Þaö var
ekki hægt að setja mata.rdisk á borð
nema þá helst að sópa af því fyrst bæði
bitvarg og skriðdýrum. Það getur vcrið
erfitt fyrir hvíta menn að vera þarna. og
menn verða þreyttir þegar til lengdar
lætur. Annars kunni ég vel við mig og
fólkið var ágætt. Við höfðum nægan mat
bæöi úr skóginum og af því sem við
fiskuðum. Krabbann steiktum við oft á
glóandi heitum steinum, sem hitaðir
höfðu verið í cldi, og það þykir herra-
manns matur. Það verðmætasta af há-
karlinum voru uggarnir en þeir voru
saltaðir og síðan hcrtir og scldir til Kína.
Svcrtingjarnir voru nú satt best að segja
ekki miklir sjómenn. Þeir voru sjóvcikir
margir og sögöu oft við okkur: „Þetta er
ekki okkar business, við viljum frekar
vera í landi, við viljum vcra í skógun-
um." Eggert brosirgóðlátlega aðþessum
minningabrotum. „Annars var nú faðir
minn. Magnús Jónsson frá Breiðholti,
líka í Afríku en það var löngu áður. Þcir
voru ráðnir einir tíu saman af norskum
manni. Ellertsen að nafni, og voru
sendir til vinnu sunnarlega í Afríku,
Einn dó á leiðinni og annar varð eftir þar
syöra. Um þetta hefur veriðskrifuð bók.
Það er svo margt sem hcfur vcriö
skrifaö."
Talið berst að málverkum Eggcrts.
„Er það rétt hjá mér að það gæti
afríkanskra áhrifa í myndunum?"
„Ég vcit nú ekki alveg um það". segir
Eggert og brosir út í annað. „Ætli það
sé þá ekki helst að finna þaö í mótívun-
um. Ja, ég cr nú svo sérkcnnilegur í mér
að ég vil helst hafa stóra fiska í myndun-
um mínum. Mér finnst að það vcrði hclst
að vera stórfiskar í öllum myndum. Það
líkar ekki illa. Annars mála ég bara þaö
sem mér dettur í hug hverju sinni og cf
ég er vel upplagður þá get ég vcriö
eldsnöggur að koma einhvcrju á
strigann, já eldsnöggur ef vel liggur á
mér. Mótívið fer bara beint á strigann.
Ég vil hafa fábrotnar línur og frckar
grófar. Það kemur ekki illa út. Svo er
það nú þannig með málverkin að þau
þurfa nú helst aö vera svolftið gömul.
Það cr cins og þau lagi sig til ef þau eru
orðin nógu gömul. Þau mega ekki vera
ný. Maður þarf að fara svo oft ofan í þau
til að hressa upp á línurnarog litina. Það
má ckki spara ef myndin á að vera góð.
Myndir verða líka hclst að vcra sögu-
legar", heldur Eggert áfram. „Allar
þessar myndir sem ég er að mála eru
sögulegar, Þessi mynd hérna t.d. er af
töluvcrt sögulegum atburði." Hann
bendir á stóra mynd, sem hangir á einum
veggnum. Á myndinni eru tveir menn
með reiddar axir og standa, að því cr
virðist, í vatni upp í hendur. „Já þetta cr
af laxakistubrotinu. þegar laxakisturnar
voru brotnar upp í Elliðaánum. Úr því
varð mikiö má1 á sínum tínia en upp frá
því hafa ekki veriö laxakistur i ám á
Islandi. Já, já, þetta eru allt sögulcgar
myndir. Ég lield mig líka mest við þetta
náttúrulega. Ég hcf t.d. gaman af því að
mála snjó og ís. Það geta veriö þó
nokkuö margir litir í snjónum. Eggert
frændi minn Guðmundsson var málari
og hann var líka mikið fyrir þetta bjarta.
Ilann hafði snjó í sínum myndum og
seldi mikið." Eggert tekur sér málhvíld
og fer að blaða í albúntinu sem hefur
lcgiö í kjöltu hans.
„Annars er þetta ekki orðinn vinnandi
vegur að fást við það að niála í dag.
Sannlcikurinn er sá að þetta er svo
skattlagt. Smá túba af lit kostar 1(10
krónur og þetta er ekki nenta tvö cða
þrjú pensilför. Það er þrjúhundruö prós-
ent álag á þessu. Ég er að gefast upp.
þetta er svo skattlagt."
„Nei ertu nokkuö af hætta?" spyr
blm. og kyngir. Eggert Magnússon lítur
upp og brosir kankvíslega. „Nei ætli það
en þctta er orðið afskaplega dýrt. Það
hefur stórversnað að kaupa bæði striga
og liti.“
Myndir þær sem Eggert málar eru á
margan hátt sérstakar. Það sem strax
vekur athygli manns eru stcrkir litir, sem
blandað er saman á allt að því óvæginn
hátt. Myndefnið er líka óvanalegt þar
sem listamaðurinn blandar oft saman
lilutum sem á stundum virðast lítið ciga
annað sameiginlegt en að vera ættaðir úr
hugarheimi Eggcrts.
„Það var einhver listgagnrýnandinn
sem kallaði mig „naivista", ég held það
hafi verið hann Bragi. Það er allt í lagi
með það", segir Eggert og hlær. „Þeir
mega kalla þetta það sem þeir vilja."