Tíminn - 04.03.1984, Side 19
SUNNUDAGUR 4. MARS 1984
úr Þursunum, og fvlltu þeir vel út í
annars pottþétta mynd.
Líkfega eru þaö aðeins Vonbrigði
og Kukl sem staðið geta Bara-flokkn-
um á sporði af íslenskum hljómsveit-
um. Og hvað varðar melódíur og sans
fyrir popptónlist er engin hljómsveit
sem hefur tærnar þar sem Bara-flokk-
urinn hefur hælana.
Meðalmennska
Þursarnir ollu vonhrigðum. Þeir
voru með nýtt prógramm, tóku hæg
lög í byrjun og spiluðu síðan nokkur
hraðari lög. Núverandi prógram þeirra
er nokkuð í ætt við lögin á síðustu
plötu þeirra, Gæti eins verið, en er öllu
þungmeltara og erfiðara á að hlusta.
Egill Ólafsson söngvari lýsti því yfir
að von væri á plötu frá hljómsveitinni
mcð þessu efni. líklega í endaðan júní.
„þegar þið eruð búin að eignast pen-
inga". Ég veit ekki hvort endurtekin
hlustun myndi bæta úr, mér fannst
tónlistin flöt.Tiugmyndasnauð og hálf-
leiðinleg. Þursarnir þurfa að gera
miklu betur cn þetta efþcir ætla að ná
sömu stöðu og þcir höfðu í upphafi
feriis síns. Það brá nær aldrci fyrir
danshæfum takti, né sæmilegum lag-
línum. Þrátt fyrir þetta ætlaöi fagnað-
arlátum áhorfcnda aldrci að linna, það
lá við jaröskjálfta þegar.áhorfendur
reyndu að stappa hljómsveitina fram á
sviðiö aftur. Óskiljanlegt.
Valgcir kynnir sagði að Þursarnir
væru grátandi í búningsklefunum yt'ir
móttökúnum, cn ég get hctur trúað
því að þeir hafi verið að gráta lélega
frammistöðu sína.
Síðastir þetta kvöld voru þeir EGÓ-
istar, með Ásgeir Þurs á trommur og
óþekktan hljómborðslcikara. Bubbi
lýsti því yfir aö nú væru í hljómsveit-
inni aðeins þrír menn, hann sjálfur.
Bergþór bróðir hans og Rúnar bassa-
leikari. Session menn yröu notaðir
framvcgis á plötum og hljómlcikum á
trommur og hljómborö. Fyrsta lagið
var mjög gott, skemmtilegur bassa-
leikur Rúnars setti svip á það. Önnur
lög sem ég heyrði voru síðri. Egóið
kom í heild út cins og það hefur
löngum gert. scnt sæmilcg rokkgrúppa
sem hvorki hefur glæsilcika Bara-
flokksins né kraft Vonbrigða.Þeir geta
búiö til stöku perlur, en í heild er
prógramm þeirra mcðalmennskúlegt.
Bubbi var í stuði. talaði mikið og
mest um Berta blanká. Flann lýstuþví
einnig yfir að fyrir sér væri músík
pólitík. pójjjjík og eingöngu pólitík.
Mjög hressilcgt.
í heild má segja að þetta hafi verið
sæmilegir tónleikar. Það var leitt að
hljómsvcitir eins og Vonbrigði og
Frakkarnir skyldu ckki vcra meö,
líklegá mætti cfna til annarra eins
hljómleika með öðrum hljómsvcitum
og þcir yrðu jafngööir. cf ckki bctri.
Bara-flokkurinn þyrfti þó að vera með
til að tryggja gæðin. Hann er frábær
hljómsveit.
12.250,-
(leyft verð 14.080,-)
ÞVOTTAVEL
14.730,
(leyft verð 16.734,-)
SPARI
við kaup á þessum
ntjarasamninijar
1/3 verðs greiðist við móttöku.
Afgangur greiðist á 6-8 mánuðum.
ZEROWATT
eru hagkvæmar - úrvalsvélar,
sterkar og umfram allt - mjög ódýrar
WSXMBANDSINS
ÁRMÚLA3 5IMAR 38900-38 903
Caterpillar 6D og B
Til sölu varahlutir í Caterpiilar
6D og B.
Ýmislegt í mótora, grjót-
spyrnur á 6B, o.m.fl. Einnig \
Cat. 8D.
Upplýsingar í síma 32101.
ÖLL ALMENN PRENTUN
LITPRENTUN
TÖLVUEYÐUBLÖÐ
• Hönnun
• Setning
• Filmu- og plötugerð
• Prentun
• Bókband
PRENTSMIÐJAN
£dch
Cl H F.
SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGUR
SÍMI 45000
Auglýsing um laus störf
Hjá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli eru eftir-
farandi störf laus til umsóknar:
Yfirmatreiðslumaður
í veitingastað liðsforingjaklúbbs.
Viðkomandi verður að vera faglærður, og hafa
minnst þriggja ára starfsreynslu á hóteli og/eða
veitingastað.
Reynsla við verkstjórn æskileg. Mjög góð ensku-
kunnátta nauðsynleg.
Félagsmálafulltrúi
í félagsmálastofnun varnarliðsins. Umsækjandi
hafi mjög góða þekkingu á íslenskum og banda-
rískum félags- og menningarmálum, og hafi
starfað eða stundað nám í Bandaríkjunum. Mjög
góð enskukunnátta skilyrði, þar sem starfið krefst
þess að viðkomandi haldi fyrirlestra og gefi út
auglýsingabæklinga á ensku.
Umsóknir sendist
Ráðningarskrifstofu varnamáladeildar
Keflavíkurflugvelli
eigi síðar en 9. mars nk. Nánari upplýsingar
veittar í síma 92-1973.