Tíminn - 06.03.1984, Side 7

Tíminn - 06.03.1984, Side 7
ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 19M 7 ■ Vinir Frank Sinatra segja að hann hafi hætt öllu ralli þegar hann fyrir sjö árum giftist Barböru, hinni fallegu og ungu eiginkonu sinni. NEYÐIST FRANK SINATRA NÚ TIL AÐ HÆTTA AÐ SYNGJA? —Hefur aflýst söngferðalagi ■ Það eru nokkuð mörg ár síðan Frank Sinatra hélt fyrst „kveðjukonsert" og síðan alltaf öðru hverju heyrðist að nú væri Sinatra að hætta að koma fram á söngskemmtunum og þessi og hin væri sú síðasta. En nú óttast vinir hans að hann verði að hætta að syngja, - og geti ekki einu sinni haldið sinn kveðju- konsert, því að nú hefur hann fengið slæman hálssjúkdóm. Hefur Sinatra orðið að aflýsa tónleikaferð sinni, en hann ætl- aði að ferðast um flest öll Banda- ríkin og syngja. Nýlega söng Frank til að halda upp á 68 ára afmælisdaginn sinn í All-Star Variety Club Special og gekk það hálfbrösulega. „Hann gat alis ekki nema rétt raulað", sagði einn vinurinn og bætti því við, að greinilega hefði Frank verið illa haldinn af óþæg- indum í hálsi. Sinatra hefur þegar verið á spítala í Palm Springs til rann- sóknar, en er ákveðinn í að fara til sérfræðinga í YVashington D.C. Blaðafulltrúi hans hefur þó sagt opinberlega, að Sinatra sé miklu betri af hálsbólgunni og hefði aðeins frestað söngferða- laginu, en ekki aflýst því, eins og hafi komið fram í blöðum." Fyrir 7 árum kvæntist Sinatra konu, sem er töluvert yngri en hann, en hún hefur haft þau áhrif á lifnaðarhætti hans, að drykkjan hefur minnkað niður í sem sagt ekkert og næturlíf og það sem því fylgdi er úr sögunni. „Barbara hugsar vel um mig, og það er fyrir bestu", segir söngv- arinn. Nánir vinir segja að það hafi ýmislegt komið upp á í lífi hans nú síðustu árin, sem hann hafl tekið afar nærri sér. Dauði Grace prinsessu í Mónakó olli honum mikillar sorgar, en þau voru góðir vinir frá því að hún lék í kvikmyndum í gamla daga. Síðan varð hann mjög sár og reiður yflr ævisögu, sem Kitty Kelley tók sér bessaleyfí að skrifa um hann að honum for- spurðum og þar segir frá ýmsu, sem hann hefði kosið að lægi í þagnargildi. Frank Sinatra dregur ekki fjöður yfir það, að hann hafl lifaö nokkuð villtu lífl, en hann hefur alveg snúið við blaðinu. Nú í mörg ár hefur hann aðallega sungið á góðgerðarskemmtun- um, og gefið stórgjaflr til góðra málefna. fíkniefnasjúkling í fjölskyldunni að stríða." „Það sem við viljum núna aðallega koma á framfæri er að hingað geta leitað foreldrar ungl- inga sem lent hafa í áfengi eða fíkniefnúm. Við viljum koma til móts við þá þörf sem virðist vera orðin á slíkri aðstoð ef marka má þá umræðu sem farið hefur fram um þessi mál að undan- förnu. Það vill oft brenna við að foreldrar fyllast skelfingu þegar þeir uppgötva að börn þeirra hafa ánetjast vímuefnum og grípa þá til mjög harkalegra ráða, þannig að unglingarnir komast í andstöðu við foreldr- ana. Það sem þarf er hins vegar raunsæisleg afstaða, hvorki að of hart sé gripið á málunum eða augunum lokað fyrir vandamál- inu. Þarna getum við komið inn í með aðstoð og leiðbeiningar. því fyrr sem foreldrar leita til okkar, því betra. Starf okkar fclst bæði í einka- viðtölum og svo fjölskyldunám- skeiðum, sem standa í mánuð." „Hvað með samstarf við aðrar stofnanir?” „Nú er á döfinni kerfisbreyting á heilbrigðisþjónustu borgarinn- ar. Sú þjónusta sem veitt var í Heilsuverndarstöðinni verður færð út í heilsugæslustöðvar í hverfunum. Það er spurning hvað verður um þessa þjónustu, áfengisvarnardeildina. Það hefur verið rætt um að SÁÁ taki yfir, en það er á skjön við aðrar tilfærslur. þar sem heimilislækn- ar og tannlæknar t.d. eru að komast inn í kerfið." „Við viljum að mynduð verði heildarstefna í þessum málum, að áfengisvarnadeild vinni með heilsuverndarstöðvunum á skipulegan hátt. Það er ekki eðlilegt að SÁÁ komi allt í einu og Liki þessa þjónustu yfir, það er eðlilegraað hún verði boðin út á almennum markaði ef á annað borð á að færa þetta til einkaaðila. „Deildin hefur verið í fjár- svelti vegna þessarar óvissu um framtíðina, og hefur því ekki getað annað ýmsum verkefnum. t.d. fræðslu í skólum. En við vonum að sú stefnumótun sem nú fer fram í þessum málum leiði til eflingar deildarinnar." -ÁDJ. erlent yfirlit ■ Gary Hart, Lec kona hans og Andrea dóttir þeirra. Kvennaljóminn Gary Hart í kastljósi fjölmiðlanna Glenn er enn ekki úr sögunni GARY Hart vann óvæntan sigur í prófkjöri í New Hamps- hire á þriðjudaginn var, en hann vann þó enn óvæntari sigur á kjörfundunum, sem fóru fram í Maine á sunudaginn. Sigurinn í New Hampshire kom ekki að öllu leyti á óvart. Þar höfðu Hart og fylgismenn hans haft mikinn viðbúnað, því að samkvæmt gamalli hefð, þykja úrslitin þar miklu skipta. Hins vegar hafa úrslit í Maine aldrei vakið verulega athygli fyrr en nú. Kjörfundirnir í Maine fara fram með þeim hætti, að þar eru kosnir fulltrúar á eins konar fylkisþing, sem síðan velur full- trúa á landsfundinn, sem útnefn- ir forsetaefnið. Á kjörfundunum er venjulega valið milli fulltrúa, sem frambjóðendur til forseta- framboðs hafa tilnefnt. Þannig kemur það í Ijós, hvert fylgi forsetaefnanna er. Gary Hart hafði haft lítinn viðbúnað í Maine, því að aðal- vinnunni hafði verið beint að Iowa og New Hampshire. Kosn- ingavinnan þar hófst ekki að ráði fyrr en eftir prófkjörið í New Hampshire, sem var á þriðjudag- inn, svo að Hart hafði ekki nema fjóra daga til stefnu. Sigur hans í Maine virðist helzt mega túlka þannig, að úrslitin í New Hampshire hafi vakið slíka athygli á honum, að fylgi hans hafi stóraukizt í Ma- ine, en aðrir frambjóðendur tap- að að sama skapi og þó einkum Mondale. Gerist sama sagan í prófkjör- inu, sem fer fram í Vermont í dag, mun staða Garys Hart enn styrkjast. ÞETTA þýðir þó engan veginn það, að Gary Hart sé búinn að tryggja sér útnefninguna á lands- fundi demókrata. New Hamps- hire. Maine og Vermont eru með fámennustu fylkjum Banda- ríkjanna. Það skýrist fyrst, þegar fulltrúar eru valdir í fjölmenn- ustu fylkjunum, hvert straumur- inn raunverulega liggur. Gary Hart hefur hingað til notið þess, að hann hefur ekki verið talinn sigurvænlegur. Önnur forsetaefni hafa því látið ■ Glenn iðkar íþróttir til að styrkja taugarnar. hann að mestu afskiptalausan og hann hefur því getað skipulagt starf sitt í kyrrþey. Nú er þetta breytt. Hér eftir munu þeir keppi- nautar háns, sem ekki hafa dreg- ið sig í hlé, ekki síður beina skeytum sínum að honum enn Mondale, en þeir eru Glenn, Jackson og McGovern. Mond- ale, sem hefur hingað til aðallega deilt á Glenn, mun nú snúa sér aðallega að Hart. Það skiptir þó sennilega enn meira máli, að fjölmiðlarnir munu snúa sér að Hart í stór- auknum mæli. Að vissu leyti getur það orðið jákvætt, því að það vekur meiri athygli á honunt. En það getur líka reynzt nei- kvætt. Nú verður allt grafið upp, sem þykir fréttnæmt í sambandi við lífsferil hans. Það mun t.d. verða mikið rannsóknarefni, hversvegna þau Harthjónin slitu samvistum um skeið, en tóku svo saman aftur. Nú virðist santbúð þeirra hin bezta og frúin tekur fullan þátt í kosningabaráttu hans, ásamt lú ára dóttur þeirra, Andreu. Þá munu fjölmiðlarnir taka það til meðferðar, hvort Hart hafi eitthvað notfært sér það, að hann hefur þótt ntikið kvenna- gull, eins og ráða má af því, að kvennablaðið Play Girl valdi hann fyrir nokkurm árum einn af þeim 10 Bandaríkjamönnum, sem væru gæddir mestum kyn- töfrum. Þá mun Hart verða að svara því nánara, hvað hann eigi raun- verulega við, þegar hann heldur því fram, að hann sé öðrum frambjóendum frernur maður framtíðarinnar og nýrra hug- mynda. Hann hefur aldrei út- skýrt þetta, nema í mjög stórum dráttum, og telja andstæðingar hans því, að v'íða sé að finna miklar eyður í ntálflutningi hans. Þær verði hann að fylla. Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri, skrifar Hart hefur lofað að útlista þetta allt nánara, þegar út í aðalbaráttuna kvemur, en segja má, að hún hafi hvað hann snertir raunverulega hafizt með sigri hans í New Hampshire. Standi Hart sig vel í öllunt þessum prófum, verður erfitt fyrir keppinauta hans í próf- kjörunum að fást við hann og sama gæti gilt um Rcagan, ef þcir yrðu keppinautarnir í for- sctakosningunum. EF BARÁTTAN vcrður hörð og tvísýn milli þeirra Mondales og Harts og þeir koma báðir meira og minna sárir út úr hcnni, gæti hlutur Glenns farið að batna á nýjan leik. Hann og ráðunautar hans hafa hingað til þótt seinheppnir og klaufskir í kosningabaráttunni og hann því hrapað úröðru sæti. sem hclzti keppinautur Mon- dales. Þó virðist hann enn njóta álits og vera talinn líklegur til að rcynast traustur forseti, þótt pcrsóna hans gangi ekki í augu fólksins. Oft hefur það gerzt í próf- kjörum fyrir forstetakosningarn- ar, að frambjóðandi, sem stóð illa framan af kosningabarátt- unni og virtist jafnvel úr lcik, sótti sig þegar á leið og varð sigurvcgarinn að lokum. Það hefur m.a. stafað af þvi', að þeir, sem þóttu sigurvænlegastir í prófkjörunum, hafa gengið frá hvorum öðrum óvígum. Þessi saga gæti gerzt nú. Ef þeir Mondale og Hart vcrða fyrir miklum áföllunt í kosningabar- áttunni, gæti hlutur Glenns átt eftir að koma upp. Fyrir hann mun miklu skipta, hvaða útkomu hann fær í þeim fylkjum, þar sem prófkosningar fara fram á þriðjudaginn kemur. Sleppi hann sæmilega frá þeim, erhannenganveginn úrsögunni. Sagan segir, að hann hafi nú um mánaðamótin fengið tvær milljónir dollara að láni hjá bönkum í Ohio, en Itann er fulltrúi Ohio í öldungadeildinni. Þessar milljónir hyggst hann nota vel í kosningabaráttunni næstu daga. Það sésí eftir þriðju- daginn, hvort árangurinn verður í samræmi við kostnaðinn.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.