Tíminn - 14.03.1984, Page 5

Tíminn - 14.03.1984, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 1984 fréttir Birna Gunnlaugsdóttir efsti maður B-listans: „LÁNASJÓÐURINN í BRENNI- DEPLI, - BARÁTTA OKKAR HLIÐSTÆÐ VIÐ KJARABAR- ÁnU LÁGLAUNAFÓLKS“ ■ „Lánasjóðurinn er í brennidepli í þessum kosningum og þar munum við berjast af alefli gegn nýjustu hugmynd- um úr menntamálaráðuneytinu sem miða að því að eyðileggja allt starf námsmannahreyfingarinnar undanfarin ár,“ segir Birna Gunnlaugsdóttir efsti maður Félags vinstri manna til stúdenta- ráðs. „Þá leggjumst við gegn fyrirhug- aðri framfærsluskerðingu í frumvarpi til lánsfjárlaga þar sem gert er ráð fyrir að fresta fullri greiðslu umframfjárþarfar um eitt ár. Varðandi Félagsstofnun stúdenta þá eru byggingarmálin þarefst á lista. Félag vinstri manna er eina fylkingin sem er á móti því að fjármagnskostnaður lendi alfarið á herðum stúdenta. Fyrir því sjónarmiði munum við berjast af alefli. Stúdentar hafa ekki nægjanlega breið bök til þess að standa undir slíku. Við leggjum áherslu á að barátta stúdenta er algjörlega hliðstæð við kjara- baráttu láglaunafólks og þegar við berj- umst á okkar vígstöðvum verður það ekki slitið úr samhengi við annað sem er að gerast í þjóðfélaginu. Hér er við sama andstæðing; sömu ríkisstjórn að etja.“ Varðandi úrslit kosninganna kvaðst Birna þess fullviss að fylgi hreyfingarinn- ar myndi aukast að nýju í þessum kosningum. Staða stúdenta og alls al- mennings í landinu stuðlaði að því að svo yrði. -b. G. Pétur Matthíasson, fulltrúi SHÍ í stjórn LÍN: „Tillögurnar eru stórhættulegar’ ’ ■ „Við lítum á flestar þessar tillögur sem stórhættulegar og erum á móti þeim öllum nema þá því að efla Háskólann," sagði G. Pétur Matthíasson fulltrúi stú- denta við Háskóla íslands í stjórn Lána- sjóðsins þegar Tíminn bar undir hann úttektina sem menntamálaráðherra hef- ur látið gera á sjóðnum. „Annars teljum við að efling Háskólans eigi að snúast um flest annað en að bjarga við fjárhag Lánasjóðsins. Lánamálapólitík okkar undanfarin 20 ár hefur miðað að því að koma námslánakerfinu í núverandi horf. Og þó við teljum að þar megi margt betur fara munum við bregðast hart við ef kasta á þessu kerfi fyrir róða. Fyrsta skrefið verður að kynna þessar tillögur fyrir okkar fólki“. Eru deilurnar um afrennsli í Apavatn á enda? UIXELDISSTÖD LAUGARLAX HEFUR HAFID STARFSEMINA ■ „Við höfum fengið starfsleyfi frá heilbrigðisnefndinni fyrir austan og hreppsnefndinni, og höfum því tekið formlega til starfa", sagði Eyjólfur Frið- geirsson, stjórnarformaður Laugarlax hf. sem nú hefur hafið starfrækslu á laxeldisstöð við Apavatn í landi Úteyj- ar, en mikill styrr hefur staðið um það í vetur hvort eigendur laxeldisstöðvarinn- ar hefðu rétt til þess að láta afrennsli frá laxeldisstöðinni renna í Apavatn. Eyjólf- ur sagði að starfsleyfið hefði fengist í kjölfar rannsóknar sem Jón Ólafsson haffræðingur gerði á súrefnismagni Apavatns. í niðurstöðum Jóns segir að vatninu stafi ekki hætta af frárennsli fyrirhugaðrar laxeldisstöðvar Laugarlax hf., og á þeim forsendum hefur Náttúruverndarráð nú lýst því yfir að það leggist ekki gegn áformum um byggingu fiskeldisstöðvar við Apavatn, og tilgreinir einnig að það telji mengunarvarnir stöðvarinnar full- nægjandi. Eyjólfur sagði í samtali viðTímann að þeir Laugarlaxmenn litu nú þannig á máliö að deilur við bændur og landeig- endur væru úr sögunni. Hann sagði að starfsemin væri rétt hafin, og þegar búið að flytja hluta þeirra seiða í stöðina sem þangað á að flytja. Eyjólfur sagði að 3 til 4 menn myndu starfa við stöðina, þegar reksturinn væri kominn í fullan gang. - AB. Megas krefst 813 þúsunda f skadabætur ■ Við krefjumst í fyrsta lagi staðfest- ingar á lögbanninu og síðan gerum við kröfu til hagnaðar af sölu, sem við höfum áætlað 613 þúsund krónur. Þar að auki krefyumst við 200 þúsund króna miskabóta, einnig krefjumst við þess að fá þau eintök af plötunni sem enn eru í eigu Steina hf ella verði þau eyðilögð", sagði Skúli Thoroddsen, lögmaður Megasar, Magnúsar Þórs Jónssonar, tón- listarmanns, þegar hann var spurður um kröfur umbjóðanda síns í lögbannsmál- inu gegn Steinum hf vegna meintrar ólögmætrar útgáfu á laginu Fatlafól, en mál til staðfestingar lögbanninu verið þingfest i Borgardómi i dag. „Við tökum það einnig fram í okkar greinargerð, að við teljum, að plötunni hafi verið dreift á ólögmætan hátt eftir að búið var að leggja fram lögbanns- kröfu, það er að segja meðan málið var til meðferðar í fógetarétti. Við ætlum að búið hafi verið að dreifa milli 500 og 1000 eintökum þegar lögbannskrafan kom fram og síðan teljum við að selst hafi um 6000 eintök. Við byggjum það meðal annars á því, að í blöðum hefur komið fram að þetta hefur verið sölu- hæsta platan nú um skeið“, sagði Skúli. - Sjó. Sjómenn ÓSÁTTIR VIÐ BREYT- INGAR Á LÖGUM UM AFLATRYGGINGASJÓÐ ■ Sjómennerumjögósáttirviðfrum- varp tU laga uni breytingu á lögum um Aflatryggingasjóð, sem nú liggur fyrir Alþingi. Á formannafundi Sjómanna- sambandsins, sem haldinn var í vikunni sem leið, var samþykkt ályktun, þar sero minnt var á, að upphaflegt markmið sjóðsins hafi eingöngu verið að tryggja sjómönnum laun sín, ef um aflabrest væri að ræða eða ef útgerð brygðist fjárhagslegum skuldbinding- um sínum gagnvart sjómönnum. „Með frumvarpinu sem nú Kggur fyrir Alþingi er ætlunin að bóta- greiðslur Aflatryggingasjóðs gangi inn tU Stofnfjársjóðs fiskiskipa, en hann hefur allt öðru hlutverki að gegna en því, að tryggja sjómönnum laun sín, „segir í ályktun fundarins meðal annars. - _ Sjó. Opel er vestur-þýskur fram í felgur. Þér nægir ekkert minna, þegar þú velur fjölskyldubílinn. HOFÐABAKKA 9 SIMI 687300 GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVORUM

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.