Tíminn - 14.03.1984, Blaðsíða 11
10
liiíílli
MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 1984
MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 1984
15
iþróttir
Úrslitakeppnin í körfuknattleiknum:
BARATTAN I HAMARKI
- VORNIN IFYRIRRUMI
— og Njarðvík vann Hauka 53-49
■ Baráttan var allsráöandi, og varnar-
leikurinn í fyrirrúmi í fyrsta leik efsta liðs
úrvalsdeildarinnar UMFN, gegn því
fjórða, Haukum, í úrslitakeppni úrvals-
deildarinnar í körfuknattleik. Stigaskor
var í lágmarki og lið Hauka setti met sem
líklega verður seint slegið í úrvalsdeild
inni, er það skoraði aðeins 16 stig í fyrri
hálfleik. Liðin lögðu aðaláherslu á vörn
ina, en sóknin var fumkennd og tauga
óstyrkur allsráðandi. Njarðvík sigrað
leiknum 53-49, eftir að staðan hafði verið
27-16 þeim i hag í liáltleik.
„Mínir menn töpuðu á taugaspenn-
unni, en eftir því hvernig þeir réttu við í
síðari háltleik og léku þá, er ég bjartsýnn
með framhaldið. Viö vinnum þá heima
á fimmtudaginn, og síðan aftur hér á
laugardag", sagði Einar Bollason þjálf-
ari Hauka eftir leikinn. - Og rétt var
orðið, Haukar voru taugaóstyrkir í fyrri
hálfleik. Þrátt fyrir aragrúa tækifæra
hittu þeir mjög illa, eins og skor liðsins
bcr með sér. Reyndar voru Njarðvíking-
ar ekki ýkja gæfulegir heldur, en þó
skárri. Njarðvíkingar tóku strax forystu
og héldu henni allan leikinn, minnstur
varð munurinn 8-9, og síðan jókst hann
í 27-16.
í síðari hálfleik komu Haukar tvíefldir
til leiks. Þeir minnkuðu muninn í 7 stig
strax í byrjun, en síðan náðu Njarðvík-
ingar aftur 11 stiga forskoti. Haukar
smásöxuðu þó á forskotið, og þegar tvær
mínútur voru til leiksloka var staðan
53-47. Njaðvíkingar reyndu eftir það að
hanga á boltanum, og tókst það framar
vonum. Þó fengu Haukar boltann og
Pálmar Sigurðsson, annars langbesti
maður Hauka, klúðraði þremur víta-
skotum tuttugu sekúndunt fyrir leikslok,
þegar staðan var 49-53.
Pálmar var eini maðurinn sem lék
sæmilega hjá Haukum í sókninni, þó
MENNTSKÆUNGAR
KOMNIR í ÚRSUT
í 2. deildinni í körfubolta
í Njarðvlk í gær
ekki af glæsibrag í fyrri hálfleik. Ólafur
og Kristinn áttu góða kafla í síðari
hálfleik. fsak Tómasson var bestur
Njarðvíkinga, og Sturla og Ingimar voru
sterkir.
Leikinn dæmdu Jón Otti Ólafsson og
Gunnar Bragi Guðmundsson og fórst
þeim það þokkalega úr hendi, leikurinn
var erfiður, og bónus á bæði lið í báðum
hálfleikjum, enda áherslan á vörninni. -
Troðfullt var á áhorfendabekkjum í
Njarðvík er leikurinn fór fram.
Stigin: Njarðvík: ísakTómasson 10,
Ingimar Jónsson 10, Arni Lárusson 9,
Sturla Örlygsson 8, Kristinn Einarsson
6, Hreiðar Hreiðarsson 4. Haukar:
Pálmar Sigurðsson 19, Ólafur Rafnsson
10, Kristinn Kristinsson 6, Hálfdán Mar*
kússon 6, Sveinn Sigurmundsson 4,
Reynir Kristjánsson 4.
- TÓP/SÖE.
■ Leifur Gúslafsson var bestur
Valsmanna gegn KR í gærkvöld.
Leifur skoraöi 27 stig og hirti 12
fráköst. Valsmenn unnu yfirburða-
sigur 76-61. Róðurinn verður því
erfiður fyrir KR-inga í leiknum á
fimmtudag.
■ íþróttafélag Menntaskólans á Egils-
stöðum er komið í úrsiit annarrar deildar
í körfuknattleik, en úrslitakeppnin verð-
ur haldin á Egilsstöðum helgina 23-25
Tyrkland vann
Lúxemborg
■ Tyrkland vann Lúxemborg 3-1 í
vináttulandsleik í knattspyrnu í Lúx-
emborg um helgina. Lúxemborgarar
skoruðu fyrsta markið í leiknum, en
síðan náðu Tyrkir að ná yfirhöndinni.
Ilias skoraði tvö mörk fyrir Tyrkjana.
-SÖE
mars næstkomandi í hinu nýja og stór-
giæsilega íþróttahúsi Egilsstaðabúa.
Síðari umferð austurlandsriðilsins í
körfubolta var leikin í nýja húsinu á
Egilsstöðum nýlega, og urðu úrslit
þau að Samvirkjafélag Eiðaþinghár sigr-
aði Sindra frá Höfn 83-79, og ÍME
sigraði síðan Sindra 111-57. I úrslitaleik
riðilsins sigraði SE ÍME 61-60 í afar
spennandi leik, en ÍME fer í úrslit engu
að síður, sigraði í fyrri leik liðanna með
12 stiga mun. Hörður frá Patreksfirði lék
einnig í riðlinum, en gaf leiki sína í síðari
umferð, og verða stig þeirra strikuð út.
-SÖE
i umsjón: Samúel Öm Erlingsson
Úrslitakeppnin f körfuknattleiknum:
Jl íl ISI LA I ISI IR M ;r -IN IGAI R
S E Elft IL Æ' 1 Gl u FV R ÍR VA L mm
— 61-76 í Seljaskólanum - KR-ingar vængbrotnir
SIGURMARKIÐ KOM TUTTUGU
FY
LEIKSLOK
■ „íslendingar eru erfiðir and-
stæðingar, og síður en svo auðunnir
á heimavelli" sagði sovéski landsliðs-
þjálfarinn í handknattieik Anatoli
Jevtushenko í samtali við sovésku
fréttastofuna APN í vikunni. „Is-
lenska liðið leikur harðan skipulagð-
an handbolta, sem þó er óvæntur og
frumlegur. Við lékum þrjá leiki við
íslendinga á Islandi 1982, og það
voru erfiðir leikir. Islenska liðið kom
okkur stöðugt á óvart“, sagði Jcvtus-
henko.
Anatoli Jevtushenko hefur þjálfað
sovéska landsliðið allt fráárinu 1968.
Hann hefur sífellt styrkt stöðu sína,
og liðiö hefur verið nánast ósigrandi
hin siðari ár. Sovétmcnn eru núver-
andi heimsmeistarar, og stefna að
því að verða ólympíumeistarar í
sumar, á Ólympíuleikunum í Los
W
- Frá Gísla Á. Gunnlaugssyni íþróttafrétta-
manni Tímans í V-Þýskalandi:
■ Þegar allir héldu að Stuttgart ætlaði
að hafa það, ná að knýja framlengingu í
bikarleiknum gegn YVerder Bremen í
Bremen í gærkvöld, gerðist það. Staðan
var 0-0. Rudi Völler geystist upp vinstri
kantinn, sendi háa sendingu fyrir og
Sitka skoraði með skalla óverjandi fyrir
Roleder markvörð Stuttgart, sem hafði
átt stdrleik. Þetta gerðist 20 sekúndum
fyrir leikslok, og leikmenn Stuttgart
voru að vonum niðurlútir þegar þeir
gengu til búningsklefans eftir leikinn.
Sigur Werder Bremen var þó fyllilega
verðskuldaður, þeir voru með betra
liðið af tveimur góðum í mjög góðum
leik, og þakkaði þulurinn í þýska útvarp-
inu leikmönnum beggja liða fyrir frábær-
an leik í lokin.
Þýski þulurinn sagði, að bæði liðin
ættu heiður skilinn fyrir frábæran leik,
þetta hefði verið sannkölluð bikar-
stemmning sem tæplega 50 þúsund
— og Ásgeir Sigurvinsson
og félagar eru fallnir úr
bikarkeppninni
bróðir hans skoraði tvö mörk, Norbert
Nachtwei, Pflúgler og Höness eitt hver.
-GÁG/SÖE.
■ Valsmenn báru sigurorð af hálf
vængbrotnu liði KR í leik liðanna í
urslitakeppni úrvalsdeildarinnar í Selja-
skóla í gærkvöld. Lokatölur leiksins
76-61, eftir að Valsmenn höfðu á tímabili
i síðari hálfleik 24 stiga forskot 62-38. í
hálfleik var staðan 33-28 Valsmönnum í
vil.
Það breytti miklu fyrir KR-inga að
þeirra besti maður Jón Sigurðsson, gat
ekki leikið með liðinu í gærkvöld. Jón er
meiddur í baki, en hann stjórnaði þess í
stað liði sínu frá varamannabekknum.
Annar lykilmaður í KR-liðinu, Kristján
Rafnsson gat heldur ekki leikið með
vegna lasleika.
Það var Ijóst strax í upphafi hvert
stefndi. Ekkert gat komið í veg fyrir
sigur Valsmanna sem sýndu það strax á
upphafsmínútunum að þeir voru komnir
til að sigra. KR-ingar voru þó ekki langt
undan í fyrri hálfleiknum, en staðan í
hálfleik, var 33-28, Valsmönnum í vil.
Það vareinkum stórleikur Páls Kolbeins-
sonar í hálfleiknum sem kom í veg fyrir
að munurinn væri meiri. Páll hafði þá
skorað 13 stig. f síðari hálfleik tóku
Valsmenn leikinn gjörsamlega í sínar
hendur og þegar hálfleikurinn var hálfn-
aður höfðu þeir 20 stiga forskot 56-36.
Þegar 7 mínútur voru til leiksloka var
staðan 62-38 og höfðu KR-ingar því
aðeins skorað 10 stig á þeim 13 mínútum
sem liðnar voru af hálfleiknum. KR-ing-
um tókst að minnka þennan 24 stiga mun
niður í 15 stig áður en leiktíminn var á
enda. Lokatölurnar 76-61. Öruggur og
sanngjarn sigur Valsmanna því í höfn.
í góðu Valsliði bar Leifur Gústafsson
af. Hann skoraði 27 stig og hirti 12
fráköst, meira en nokkur annar leikmað-
ur á vellinum. Leifur tók 15 skot í
leiknum, ef frá eru talin vítaskot, og hitti
úr 12 þeirra. Sannarlega frábær skotnýt-
ing. Þeir Torfi Magnússon, Kristján
Agústsson og Jón Steingrímsson voru
einnig traustir að vanda. Aðrir stóðu
einnig vel fyrir sínu þann tíma sem þeir
léku.
Hjá KR-ingum var Páll Kolbeinsson
áhorfendur fengu að njóta, „og með
tilliti til vandamála okkar í þýskri knatt-
spyrnu að undanförnu, þá eru það svona
leikir sem okkur vatnar til að rífa
knattspyrnuna upp úr þeirri lægð sem
hún hefur verið í,“ sagði þulurinn.
Sigur Bremen var fyllilega sanngjarn.
Eftir að Stuttgart hafði sótt meira framan
af fyrri hálfleik, tóku heimamenn af
skarið og hófu stanslausa sókn. Bremen
fékk dæmda vafasama vítaspyrnu í fyrri
hálfleik, eftir að Völler féll í vítateign-
um, en Roleder markvörður, besti mað-
ur Stuttgart ásamt Ásgeiri Sigurvinssyni,
varði af snilld hjá Uwe Reinders.
Ásgeir Sigurvinsson fékk mjög góða
dóma fyrir leikinn, hann var talinn besti
maður Stuttgart ásamt Roleder, og þul-
urinn talaði um hann sem „mann með
ótrúlega yfirsýn".
Bayern Miinchen vann 9-0
■ Leikmenn Bayern Múnchen voru
heldur betur á skotskónum í gærkvöld,
er þeir léku gegn Kickers Offenbach í
Búndeslígunni. Bayern vann 9-0 í
leiknum. Karl Heinz Rummenigge lék
við hvern sinn fingur eftir að skýrt hafði
verið frá félagaskiptum hans opinber-
lega, og skoraði 4 mörk í leiknum, hefur
nú skorað 18mörkí23 leikjum. Michael
,ISLENDINGÁR ÉRFÍÐIR ANÍ^TÆÐFNGAR’
segir landslidsþjálfari Sovétmanna — Island-Sovét fimmtudag,
föstudag og laugardag
■ Anatoli Jcvtushenko-landsliðs-
þjálfari Sovétmanna í handknattleik.
Angeles.
„Þessir leikir á Islandi eru mjög
mikilvægir fyrir okkur, eins og allir
þeir leikir sem við leikum fram að
Ólympíulcikunum", segir Jevtus-
henko. „Við þurfum að kanna styrk-
leika okkar manna, halda þeim í
æfingu og samhæfa þá enn betur en
hingað tU. Það getum við gert í
leikjum gegn sterkum andstæðingum
eins og Isiendingum, því pressan
verður að vera mikil. Það er hún á
Islandi. Við erum mjög hrifnir af því
hve dagskráin á íslandi er stíf, því
þannig verður hún í Bandaríkjunum
í sumar. Við munum leika þrjá erfiða
leiki, hinn fyrsta eftir erfitt ferðalag,
og síðan á hverjum degi. - Við
höfum sterkan kjarna, Gagin, YY'assi-
liev, Below, Novitski, Schetzov,
Kusnirjuk, Karshakevic og Ryman-
ov, svo og marga efnilega menn, ekki
síst Andris Kípens sem er ungur og
mjög efnilegur", sagði Jcvtushenko.
Leikirnir við Sovétmenn eru á
morgun, föstudag og laugardag.
Fyrsti leikurinn, á morgun er seint,
kíukkan 21.30 í Laugardalshöll. Síð-
an er leikið á Akureyri klukkan 20 á
föstudag, og klukkan 14 í Laugar-
dalshöll á laugardag.
-SÖE
mjög góður í fyrri hálfleik en í síðari
hálfleik dofnaði hins vegar mikið yfir
Páli og skot hans rötuðu ekki í körfuna.
Guðni Guðnason og Ólafur Guð-
mundsson komust nokkuð vel frá sínu
hlutverki í leiknum og Garðar Jóhanns-
son var seigur þótt skotnýting hans væri
afleit. Stig Valsskoruðu: LeifurGústafs-
son 27, Torfi Magnússon, Kristján Ág-
ústsson og Jón Steingrímsson 10 hver,
Valdemar Guðlaugsson 6, Tómas Holt-
on 5, Björn Zoéga og Einar Ólafsson 4
hvor.
Stig KR skoruðu: Páll Kolbeinsson
15, Guðni Guðnason 13, Garðar Jó-
hannsson 11, Ólafur Guðmundsson og
Ágúst Líndal 8 hvor, Birgir Jóhannsson
4 og Ómar Scheving 2.
Dómarar voru þeir Sigurður Valur
Halldórsson og Kristbjörn Albertsson
og dæmdu þeir mjög vel.
-BL
JBV LEIKUR ÞRJA
STÓRLEIKI í SUMAR’
■ Dregið hefur verið í fyrstu og aðra
umferð Bikarkeppni Knattspyrnusam-
bands íslands á næsta sumri. Það sem
eftirtektarverðast er í því er að þriðju-
deildarlið ÍK í Kópavogi fær það hlut-
verk að leika fyrsta leik sinn í keppninni
í ár í Vestmannaeyjum, gegn annarrar
deildarliði heimamanna, sem að auki
leikur í Meistarakeppni KSÍ og Evrópu-
keppni bikarhafa í ár. -Segja Kópavogs-
menn að ÍBV leiki að minnsta kosti þrjá
stórleiki í sumar, í meistarakeppninni,
Evrópukeppninni og bikarkeppninni,
hvað sem liðið nú komist langt í þessum
keppnum. - Þá fá glímumenn Víkverja,
sem urðu svo frægir að komast í 8 liða
úrslit bikarkeppninnar í fyrra, það erfiða
hlutverk að leika á ísafirði í fyrstu
umferð.
Eftirtalin lið leika saman í 1. og 2.
umferð:
1. umferð
Suðvesturiand:
Reynir S.-Njarðvik
Ármann-Grindavík
Víðir-Hafnir
Stokkseyri-Fylkir
FH-ÍR
Selfoss-Haukar
Ísafjörður-Víkverji
Léttir-Augnablik
Árvakur-Víkingur Ó
Norðurland:
Magni-Tindastóll
Völsungur-Leiftur
Vorboðinn-Vaskur
Austurland:
Hrafnkell-Austri
Huginn-Sindri
ÞrótturN.-LeiknirF.
Valur Rf.-Einherji
2. umferð
Suðurland:
Leiknir R.-Árv./Vik.Ól.
Stokks/Fylkir-Afturelding
FH/ÍR-SnæfelI
Self./Haukar-ReynirS./Njarv.
Ísaf./Víkv.-Léttir/Augnabl.
Víðir/Hafnir-Árm./Grindavík
ÍBV-ÍK
Skallagrimur-Stjarnan
Norðurland:
Vorboðinn/Vaskur-KS
Völs./Leiftur-Magni/Tindast.
Austurland:
Hrafnk./Austri-Einh./Valur
Þróttur/Leiknir-Huginn/Sindri
Bikarkeppni kvenna
1. umferð
KR-Keflavik
Fram-Viðir
Valur-Breiðablik
FH-Akranes
Fyrsta' umferð í keppninni verður
leikin 23-24. maí, og önnur umferð 5.
júní. 1. umferð í kvennaflokki er 14.
júní. - SÖE
■ Ásgeir Sigurvinsson átti góðan leik með Stuttgart í gær í Bremen. En þrátt fyrir
að hann léki vel, og Roeleder markvörður væri vel á verði, tókst ekki að koma í veg
fyrir tap. Bremen er komið í undanúrslit bikarkeppninnar. Tímamynd Róbert
ERFHHR AÐSTÆWIR
■ Erfiðar aðstæður voru á Bikarmóti
Skíðasambands íslands í unglingafiokk-
um, sem haldið var á Akureyri um
síðustu helgi. Mótið átti að vera á
Húsavík, en var fiutt til Akureyrar.
Veður var erfitt, og setti svip sinn á
mótahaldið, til dæmis tókst ekki að
Ijúka keppni í stórsvigi drengja 13-14
ára.
í öllum flokkum voru verðlaun fleiri
en gengur og gerist, og voru veitt sex
verðlaun í tveimur fjölmennustu flokk-
unum, og í hinum fimm. Eftir þátttöku
að dæma í mótinu virðist nú talsverð
gróska vera í skíðastarfi í öllum héruð-
um.
í flokki 13-14 ára drengja, þar sem
hætta varð keppni eftir fyrri ferð.voru
þeir fyrstir eftir fyrri ferð, þeir Valdemar
Valdemarsson Akureyri, annar Kristinn
Svanbergsson Akureyri og þriðji Krist-
inn Grétarsson ísafirði.
Úrslit urðu annars þessi:
Laugardagur
Svig.13-14 ára stúlkur:
1. Þórdís Hjörleifsdóttir R.
2. Kristín Jóhannsdóttir A.
3. Gerður Guðmundsd. Nesk.
Svig. 15-16 ára stúlkur:
1. Guðrún H. Kristjánsdóttir A.
2. Snædís Úlriksdóttir R.
3. Bryndís Ýr Viggósdóttir R.
Stórsvig. 15-16 ára drengir:
1. Guðmundur Sigurjónsson A.
2. Brynjar Bragason A.
3. Þór Omar Jónsson R.
Á sunnudegi stóð til að Ijúka keppni í
því sem frestað var á laugardag, svo og
keppa í svigi drengja og stórsvigi
stúlkna. En veður var vont, og einungis
tókst að Ijúka svigi drengja. Öðru var
frestað.
Úrslit urðu þessi:
Svig. 15-16 ára drengir:
1. Bryniar Bragason A. 86,86
2. Þór Ómar Jónsson R. 88,70
3. Sigurður Bjarnason H. 90,30
Svig. 13-14 ára drengir:
1. Jón Ingvi Árnason A.
2. Kristinn Svanbergsson A.
3. Jón Ragnarsson A.
Ingi Þór með
íslandsmet
■ lngi Þór Jónsson, sundmaður frá Akranesi
setti nýtt íslandsmet í 50 nietru flugsundi karla
í fyrrakvöld á innanfélagsmóti hjá Ármanni.
lngi synti vegalengdina á 27,5 sekúndum, og
bætti gamla metið sitt um 1/10 úr sekúndu.
Innanfélagsntót Árnianns var haldið í Sundhöll
Reykjavíkur.
-SÖE
Lokakeppnin
áfram í kvöld
■ Úrslitakeppnin í ncðri hluta 2. dcildar karla
í handknattlcik heldur áfrant í kvöld í Sand-
gerði. Klukkan 20.00 keppa Reynir og ÍR og
klukkan 21.15 HK og Fylkir. Frí veröur í fyrstu
umferð á morgun vegna landsleiksins við Sovét-
menn í Höllinni, en á föstudagskvöld verður
leikið, ÍR leikur við HK klukkan 20.00, og
Fylkir og Reynir klukkan 21.15 í Sandgerði.
-SÖE
FH sigraði
- Víking í 1. deild kvenna
■ FH vann Víking í 1. dcild kvenna í
handknattleik í fyrrakvöld. 26-12. Eftir þennan
mikla ósigur er staða Víkings bág í keppninni.
Leikurinn var nokkuö jafn í fyrri háltleik,
staðan 12-8 í háifleik. En í síðari hálfleik brast
vörn Víkingsstúlknanna, og sóknin náði ckki
að skora að ráði.
-SÖE
Þorvaldur jafnaði
íslandmetið
■ Þorvaldur Þórsson, frjálsíþróttamaður úr
ÍR, jafnaði um helgina íslandsmct sitt í 110
metra grindahlaupi á móti í Bandaríkjunum.
Þorvaldur hljóp á 14,3 sekúndum, og virðist
vera kontinn í hörkuform. Kristján Harðarson
stökk 7,58 metra i langstökki á mótinu.
-SÖE
Enn jafntefli
hjá Karli og co
■ Laval, lið Karls Þórðarsonar í Frakklandi
gerði enn eitt jafnteflið um helgina, er liöið
mætti Strasbourg á heintavelli. Úrslit leiksins
urðu 1-1. Karl lék með. LiðTeits Þórðarsonar,.
Cannes, sigraði í leik gegn Lyon á útivelli 1-0,
Teitur kom inn á í leiknum.
-SÖE
Staðan í kvenna
deildinni í körfu
■ í blaðinu í gær féll niður staðan í 1. dcild
kvcnna í körfuknattleik vegna þrcngsla. Staðan
og úrslit helgarinnar líta þannig út:
Njarðvflt-ÍS .............50-34
KR-Haukar ................40-54
Staðan
ÍR............. 15 12 3 772-638 24
ÍS............. 14 10 4 637-567 20
Haukar......... 15 9 6 737-648 18
Njarðvík....... 14 3 11 553-634 6
KR ........... 14 2 12 474-639 4
-BL/SÖE