Tíminn - 14.03.1984, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 1984
7
■ Elvis og Priscilla Presley sýndu
heiminum frumburð sinn full af
stolti. Fjórum árum síðar var hjóna-
bandið búið að vera, en Lisa Marie
hafði alltaf gott og náið samband við
föður sinn, þar til hann dó, en það
var einmitt hún, sem kom að honum
látnum.
k ÁSTIN
hennar, Priscillu Presley, sé ekki
alveg rótt yfír þessum samdrætti,
hefur hún fallist á að þau taki
bæði þátt í kvikmynd, þar sem
rauði þráðurinn verður ástar-
ævintýri tveggja unglinga.
Eldskírn sína fyrir framan kvik-
myndavélarnar fékk Lisa Marie,
þegar hún fékk að taka þátt í
einum Dallasþætti undir vernd-
árvæng móður sinnar, en hún
hefur sem kunnugt er verið þátt-
takandi í þeim þáttum að undan-
förnu við talsverð læti, þar sem
henni hefur tekist að ýfa skap
Lindu Gray (Sue Ellen) svo, að
upptökur, sem þær tvær eiga að
taka þátt í, geta alls ekki farið
fram á sama tíma. Annars fljúga
þær hvor á aðra.
háþrýstitæki og kassaþvottavél-
ar. Einnig verða þarna ljósastýrð-
ir vaskar. í þeim er skrúfað frá
og lokað fyrir með ljósrofa, sem
eykur hreinlætið, því þá þarf
ekki alltaf að vera að káfa á
krananum. Síðast má nefna tæki
sem sjá um sjálfvirkan verðaflest-
ur í verslunum. Margir hafa
kannski tekið eftir reitum á
ýmsum innfluttum vörum þar
sem eru línur í mismunandi
þykktum, kallað bar-code á er-
lendu máli. Þetta eru verðmerk-
ingar, og á sýningunni verða
tækin sem lesa þetta af. Þróunin
er sú að verslanir eru alltaf að
stækka, einingarnar stækka og
meiri hraði verður nauðsynlegur
í flokkun, meðferð og sölu allri.
Þetta kerfi auðveldar það.“
- Og hver er ástæðan fyrir
sýningunni?
„Ástæðan er sú að við vildum
taka saman á einu bretti, kynna
og koma umræðu af stað um þau
vandamál sem eru í kring um
matvælaiðnaðinn. Kröfurnareru
að aukast bæði innanlands og
utan. Þarna er upplagt tækifæri
fyrir fólk að kynna sér það sem
fyrirtæki á þessu sviði eru að fást
við.“
Sýningin er haldin í Gerðu-
bergi. Eg spurði Hákon hvort
þetta væri framtíðarsýningar-
staður.
„Nei, það er nú ekki svo.
Ástæðan fyrir því að hægt er að
halda sýninguna þarna er sú að
þarna er stór ónotaður salur sem
á næsta ári verður tekinn undir
bókasafn. Þetta eru því síðustu
forvöð á að sjá stóra kaupstefnu
í Gerðubergi."
Hákon sagði að lokum að
sýningin og ráðstefnan væri
ölium opin.
-ÁDJ
erlent yfírlit
■ ÞAÐ HEFUR verið sagt, að
tveir seinheppnir stjórnmála-
menn hafi tryggt Margaret
Thatcher sigur í þingkosningun-
um á síðastliðnu sumri. Annar
þeirra var Galtieri hershöfðingi,
sem þá var forseti Argentínu.
Hinn var Tony Benn, leiðtogi
vinstri arms Verkamannaflokks-
ins.
Galtieri studdi að kosninga-
sigri Thatchers með hinni van-
hugsuðu hertöku Falklandseyja,
sem veitti Thatcher tækifæri til
að fullnægja brezkum metnaði
með sigri í Falklandseyjastyrjöld-
inni.
Tony Benn studdi að sigri
Thatchers með því að knýja
Verkamannaflokkinn til þess að
taka upp svo róttæka vinstri
stefnu, að kjósendur sneru baki
við flokknum í svo stórum stíl,
að hann hefur ekki beðið meiri
ósigur eftir síðari heimsstyrjöld-
ina.
Kosningasigurinn tryggði
■ Tony Benn og Caroline kona hans
Verður Tony Benn hjálpsam
ur Thatcher í annað sinn?
Líklegra þykir að hann hafi lært af reynslunni
íhaldsflokknum undir foru'tu
Thatchers 397 þingsæti eða 144
þingsæti umfram aðra flokka
samanlagt. Thatcher hefur því
sterkari stöðu á þingi en flestir
fyrirrennarar hennar í sæti forsæt-
isráðherra.
Sitthvað þykir nú benda til, að
þessi mikli sigur geti reýnst henni
bjarnargreiði.
Reynslan er oft sú að það
reynist erfitt að halda flokki
saman sem hefur yfirgnæfandi
þingmeirihluta. Sérlundaðir
þingmenn taka sér þá meira
sjálfstæði og láta stjórnast meira
af vissum þrýstihópum. Þeir
treysta á að nógu margir þing-
menn verði samt til að styðja
stjórnina og stefnu hennar.
Þetta hefur farið þannig hjá
Thatcher. í ýmsum málum hafa
fleiri eða færri þingmenn stjórn-
arflokksins tekið sér bessaleyfí
til að vera á móti eða sitja hjá.
Þeir láta varnaðarorð forsætis-
ráðherrans eins og vind um eyru
þjóta. I mörgum flokksfélögum
virðist svipað uppi á teningnum.
Skoðanakannanir ganga orðið
á móti Thatcher.
í aukakosningu sem fór fram
í Chesterfield um mánaðamótin,
beið frambjóðandi íhaldsflokks-
ins stórfelldan ósigur. Kjósendur
flokksins fóru í stórum stíl yfir á
frambjóðanda Frjálslynda
flokksins, enda þótt sýnt væri,
að hann hefði enga möguleika til
að fella frambjóðanda Verka-
mannaflokksins.
SAMT bindur Thatcher vonir
sínar um endurheimt fylgi ekki
sízt við úrslitin í þessu kjördæmi.
Ástæðan er sú, að frambjóðandi
Verkamannaflokksins, sem bar
sigur úr býtum, var enginn annar
en Tony Benn.
Benn féll í þingkosningunum
í fyrra vegna þess, að kjördæmi
hans hafði verið skipt. Sá hluti
þess, þar sem fylgi hans var
mest, hafði verið sameinað öðru
kjördæmi. Til viðbótar kom svo
vaxandi andstaða gegn stefnu
hans.
Benn vildi samt ekki gefazt
upp. Þegar einn af hægrisinnuð-
um þingmönnum Verkamanna-
flokksins, Eric Varley, lét af
þingmennsku í Chesterfield-
kjördæminu, ákvað Tony Benn
að freista stríðsgæfunnar. Vegna
klofnings flokkssystkina hans í
kjördæminu, var hann valinn til
framboðs.
Fyrst eftir að Tony Benn var
valinn til framboðs, þótti kosn-
■ Neil Kinnock og Tony Benn
ing hans engan vegin viss. Þetta
breyttist hins vegar, þegar hinn
nýi Ieiðtogi Verkamannaflokks-
ins, Neil Kinnock, kom til liðs
við hann og síðan til viðbótar
aðalleiðtogar hægri arms
flokksins, Healey og Hattersley.
Allir þessir menn mættu á kosn-
ingafundum með Tony Benn og
mæltu eindregið með kosningu
hans.
Eftir þennan skilning þótti
kosning Benns nokkuð örugg,
enda urðu úrslitin á þá leið.
Hann vann þó ekki sigur með
neinum glæsibrag. Hann fékk
46.5% greiddra atkvæða, en
Varley hafði fengið 52% í kosn-
ingunum á síðastliðnu sumri. í
þeim tólf þingkosningum, sem
hafa farið fram í Chesterfield
síðan síðari heimsstyrjöldinni
lauk, er þetta lélegasta útkoma,
sem frambjóðandi Verkamanna-
flokksins hefur fengið í Chester-
field.
í kosningabaráttunni hampaði
Benn ekki sérsjónarmiðum
sínum, heldur lagði megin-
áherzlu á að deila á ríkisstjórnina
og stefnu hennar og nefndi at-
vinnuleysið einkum sem dæmi
þess, að henni hefði mistekizt.
Þetta sama gerði Benn, þegar
hann mætti í þinginu og hélt
jómfrúræðu sína í annað sinn.
Fyrstu jómfrúræðuna hélt hann,
þegar hann var fyrst kosinn á
þing.
ÞAÐ ER nú von Thatchers og
raunar annarra leiðtoga íhalds-
flokksins, að Tony Benn muni
taka til fyrri iðju sinnar, þegar
hann er kominn á þing aftur, og
reyni að vinna hinum róttæku
sjónarmiðum sínum fyigi, bæði
innan og utan flokksins.
Þetta gæti veikt þá einingu,
sem Kinnock hefur tekizt að
skapa innan flokksins og bersýni-
lega á mikinn þátt í því, að fylgi
hans er tekið að aukast að nýju.
Reynslan ein getur átt eftir að
skera úr því, hvort þessar vonir
eiga eftir að rætast. Ýmsirfrétta-
skýrendur telja, að Thatcher eigi
eftir að verða hér fyrir vonbrigð-
um.
Tony Benn hafi lært af óför-
um á síðasta ári og nú sé það
helzta markmið hans að fella
stjórn Thatchers og tryggja
Verkamannaflokknum völd að
nýju, því að það sé vænlegasta
leiðin til að koma fram einhverj-
um af stefnumálum hans.
Það verður því vafalaust
hyggilegast fyrir Thatcher að!
reyna að vinna upp glatað traust
með því að haga stjórnarstefnu
sinni á þann veg, að fylgi íhalds-
flokksins eflist án stuðnings
Benns. Fjárlagafrumvarpið, sem
stjórnin leggur fram í þessari
viku, getur reynzt henni stuðn-
ingur, ef það verður þannig úr
garði gert.
Fréttaskýrendur vilja þó ekki
spá því. Þeir spá því frekar að
eftir fimm ára valdasetu fari
vegur Thatchers frekar minnk-
andi en vaxandi. Þesssjáist orðið
ýmis merki að hún sé orðin
þreytf og að hún þoli ekki nema
jábræður kringum sig. í flokkn-
um eru menn farnir að stinga
saman nefjum um það hver eigi
að taka við af henni og hafa
leiðsöguna í næstu kosningum.
Thatcher ætlar það hins vegar
engum öðrum, en sjálfri sér.
Hún ætlar að sigra í kosningun-
um eftir 3-4 ár, þótt hún hafi þá
engan Galtieri eða Tony Benn til
að styðjast við. Margt getur hins
vegar gerst á þessum tíma, sem
breytir slíkri áætlun.
Þórarinn
Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar mSu