Tíminn - 14.03.1984, Síða 20
Opiö virka daga / 9-19. V Laugardaga 10-16 HEDD” , Skemmuveg' 20 Kopavogi l Simar (91)7 75 51 & 7 80 30 V H Varahlutir Mikiö úrval Sendum um land allt Ábyrgö á öllu \ Kaupum nýlega J bila til niðurrifs SAMVINNUr^f'l tryggingarLtxJ & ANDVAKA ARMULA3 SIMI81411
Ritstjórn 86300 - Auglýsingar 18300 - Afgreiðsla og áskrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86306
,ha«á:
w
abriel
HÖGGDEYFAR
<JJvarahlutir .Sí!5”’
Midvikudagur 14. mars 1984
Sjötíu íbúðir fbúðarvals í Garðabæ:
BRUNAVðRNUM OG HUÓD-
□NANGRUN ER ABðTAVANT
— MAbyrgdin liggur hjá byggingameisturunum’% segir
byggingarfulltrúinn í Garðabæ
■ „Það er ljóst að samkvæmt byggingarreglugerð liggur ábyrgðin
hjá byggingarmeisturunum og hætt við að það komi á þá að greiða
þann kostnað sem þetta mál hefur í för með sér,“ sagði Agnar
Ástráðsson byggingarfulltrúi Garðabæjar um mál sem upp hefur
komið vegna ófullnægjandi brunaþols og hljóðeinangrunar í veggjum
í 45 íbúðum og 24 raðhúsum í Brekkubyggð í Garðabæ. Hús þessi eru
byggð á síðustu árum af byggingarfyrirtækinu íbúöarval í Garðabæ.
Samkvæmt mælingum sem
Brunamálastofnun hefur gert í
umræddum húsum er brunaþol
eldvarnasperru milli íbúða undir
þeim brunaþolsmörkum sem
krafa ergerð til í lögum frá 1969.
Þá er hljóðeinangrun þessara
sömu veggja undir þeim mörkum
sem vera á í raðhúsum.
Aðspurður sagði Agnar að
hér væri ekki um að ræða galla
sem komu fram í teikningum
sem byggingarnefnd fjallaði um.
Þessir gallar sjást einungis á
sérteikningum sem ekki koma til
umfjöllunar bygginganefnda.
„Hvort að þetta verða alfarið
mál byggingaraðilans og þeirra
eigenda sem þarna eru núna,
þori ég ekki að segja um en mér
sýnist allt stefna í það. Hitt er
svo annað mál að byggingar-
nefnd hefur borist bréf varðandi
þessi mál og ég býst við að
einhver bókun verði allavega
gerð um þessi mál. Hvort það
verður eitthvað meira af hálfu
bæjarins get ég ekki sagt neitt
um", sagði Agnar Ástráðsson
byggingarfulltrúi Garðabæjar.
Þá kom það fram hjá Agnari
að honum bárust þessi gögn fyrst
seinnipartinn í gær og að hann
hefði ekkert fjallað um þessi mál
fyrr. Fundur er í byggingarnefnd
Garðabæjar í dag þar sem þessi
mál verða tekin fyrir.
■ Þessir bogar eru tilkomnir
þarna við Hafnarstrætið í
tvennum tilgangi. Á öðrum
staðnum cr um það að ræða að
Strætó er með tímajöfnun og
þykir nauðsynlegt að afmarka
pláss vegna þess, það hefur
verið gert áður með búkkum
sem settir hafa verið út í miðja
götuna, en i samráði við SVR
og lögregluna hefur verið á-
kveðið að steypa þessa boga
niður. Þeir hafa einnig verið
settir niður við Seðlabankann
og sú ákvörðun var tekin i
framhaldi af bankaránunum
sem framin voru á dögunum. I
Seðlabankann koma daglega
menn frá ýmsum peninga-og
lánastofnunum og sækja pen-
inga, oft á tíðum stórar upp-
hæðir, og það er óeðlilegt að
þeir þurfi að ganga með þessar
fjárfúlgur iangar ieiðir að þeim
bílastæðum sem þeir kynnu að
hafa fundið í nágrenninu. Þctta
svæði sem afmarkað er við
Seðlabankann er einvörðungu
fyrri þá sem þurfa að sækja i
Seðlabankann þessara er-
inda“, sagði Guttormur Þor-
mar verkfræðingur hjá gatna-
málastjóra í samtali við blaðið
í gær, aðspurður um hvers
vegna nýjar umferðar hindr-
anir hefðu veriðsettar upp í
Hafnarstrætil Rcykjavík.
Afsósfalisering
þjóðfélagsins!
— segir Albert um skipulagsbreytingu
í menntamálaráduneytinu
■ Menntamálaráðherra á heið-
urskilinn fyrirað gera skipulags-
breytingu á því sem kallað hefur
verið „hreiður Alþýðubandalags-
ins“. Það er tími til kominn að
afsósíalisera þjóðfélagið. Á
þessa lcið mæltist Albert Guð-
mundssyni fjármálaráðherra í
snörpum umræðum um
þingsköp, sem fram fóru í sam-
einuðu þingi í gær. Hann lýsti
yfir að hann sem fjármálaráð-
herra og ríkisstjórnin í heild
væru samþykk breytingunni.
„Hér er ég búinn að koma uni-
ræðunni niður á það plan sem
þið viljið“, sagði Albert.
Ranghildur Helgadóttir hafði
ekki annað um þetta að segja en
að Albert Guðmundsson væri
góður humoristi, sem alþýðu-
bandalagsmenn létu hleypa sér
upp.
Upptök þessa máls er að
menntamálaráðuneytið hefur
auglýst tvær stöður skrifstofu-
stjóra lausar til umsóknar til
viðbótar stöðu núverandi skrif-
stofustjóra. í fyrradag lögðu þeir
Ingvar Gíslason og Ragnar Arn-
alds fram fyrirspurn utan dag-
skrár til menntamálaráðherra,
en þá var málið ekki tekið fyrir.
í gær kvaddi Ragnar sér hljóðs
um þingsköp og lagði fyrirspurn-
ina fram að nýju, en Ingvar hafði
þá leyfi frá þingstörfum. Mennta-
málaráðherra var krafin svara
um það hvort það samræmdist
lögum um Stjórnarráð íslands
að ráða í tvær stöður til viðbótar
stöðu núverandi skrifstofustjóra.
Hvort ekki væri ljóst að sam-
kvæmt lögum ber að ráða skrif-
stofustjóra úr röðum deildar-
stjóra ráðuneytisins. Þávarspurt
hvort það kæmi til álita að, ef
aðstoðarmaður ráðherra sækir
um stöðu skrifstofustjóra, hvort
henni verði veitt hún og hvort
ráðherra hefði í hyggju að ráða
nýjan aðstoðarmann ef svo væri.
Menntamálaráðherra neitaði
að svara spurningunum efnislega
enda væri slíkl ekki innan ramma
þingskapa, og fyrirspurnin væri
ekki þinglega lögð fram. _OÓ
Leitin að skipverj-
unum sem fórust
með Hellisey ekki
borið árangur:
■ Bankaránin á dögunum urðu til þess að ákveðið var að afmarka bflastæði við Seðlabankann svo að þeir
sem þangað koma að sækja stórar fúlgur fyrir peningastofnanir þurfi ekki að bera þær langar leiðir í bfla sína.
Tímamynd GE.
SIÓPRÓF HALMN Á FÖSTUMG
Frá Guðmundi Hermannssyni,
fréttamanni Tímans í Vest-
mannaeyjum:
■ Leit að mönnunum fjórum
sem fórust með Hellisey VE 503
rétt austan við Heimaey á sunnu-
dagskvöldið var haldið áfram í
gær en án árangurs. j
Líðan Guðlaugs Friðþórsson-
ar, er eftir atvikum góð. Hann
liggur enn á Sjúkrahúsi Vest-
mannaeyja, en er óðum að jafna
sig.
Sjópróf vegna slyssins verða
haldin hjá bæjarfógetanum í
Vestmannaeyjum strax og heilsa
Guðlaugs leyfir, en ekki er búist
við að það verði fyrr en á
föstudag í fyrsta lagi.
Eins og komið hefur fram
áður, gafst skipverjum hvorki
tími til að senda út neyðarkall
né setja út björgunarbáta áður
en Hellisey sökk. Að sögn Sig-
urðar Einarssonar, útgerðar-
manns, átti að setja svokallaðan
Sigmundargálga, sleppibúnað
— ef heilsa
Guðlaugs Friðþórs-
sonar leyfir
fyrir gúmbjörgunarbáta, í skipið
innan skamms. Sigurður sagði,
að slíkur búnaður hefði verið
settur í alla báta fyrirtækisins um
áramótin 1982/1983. Hellisey
hefði hins vegar ekki verið keypt
fyrr en í marsmánuði í fyrra og
síðan hefði farist fyrir að koma
slíkum búnaði fyrir um borð -Sjó
dropar
Skammist þið
ykkar!
■ Hjón voru að hnakkrífast
úti á götu.
Lögregluþjónn gengur til
þeirra og segir: Skammist þið
ykkar ekki fyrir að vera að
rífast hér úti á götu í stað þess
að gera það heima hjá ykkur
eins og siðprúðu fólki sæmir?“
100 ára einveldi
■ Mælskan flæddi um þing-
sali er Ólafur Ragnar lýsti
hneykslan sinni og forundran
á skipulagsbreytingum sem
menntamátaráðherra ráðgerir
í ráðuneyti sínu. Hann talaði
um einsdæmi í gjörvallri þing-
sögunni og fleira í þeim dúr og
hóf að telja upp forvera Ragn-
hildar i embætti og byrjaði
Gylfi Þ. Gíslason í 15 ár,
Magnús Torfi svo lengi og svo
framvegis, en fataðist í tilburð-
unum miklu þegar Guðrún
Helgardóttir kallaði fram í:
„Birgir Thorlacius
og þingheimur lá
hlátri.
100 ár,“
krampa-
Stúdentspróf til
að barna
■ Pétur sjómaður átti varla
orð til að lýsa og fordæma það
að veita yrði fjölda yfirmanna
á skipum undanþágur og að
sjómannastéttin væri vanmetin
og lítt fýsilegt fyrir unga menn
að menntast í þeim fræðum
sem að sjómennsku lúta. Enda
væru ekki gerðar miklar kröfur
til þeirra sem undanþágurnar
fengju. Hins vegar væri hann
og aðrir þingmenn að leggja
blessun sína yfir lagafrumvörp
þar sem sífellt væri krafist
rneiri og meiri menntunar til
að fá að vinna tiltekin störf.
Nefndi hann að hjúkrunarkon-
ur og Ijósmæður þyrftu nú að
fara í háskóla.
Máli sínu um menntun lauk
hann á þessa leið: „Ég sé ekki
*
betur en að þeir sem skikkaðir
eru til að útvega Ijósmæðrum
atvinnu verði lika að hafa stúd-
entspróf.“
Krummi . . .
...er bara að vona að einvald-
arnir séu menntaðir í ráðuneyt-
inu.