Tíminn - 15.03.1984, Síða 1

Tíminn - 15.03.1984, Síða 1
Rússarnir koma..og maeta Islendingum f Höllinni í kvöld FJÖLBREYTTARA OG BETRA BLAÐ! Fimmtudagur 15. mars 1984 64. tölublað - 68. árgangur Siðumúia 15-Pósttiótf 370Reykjavík-Ritstjórn86300- Augtýsingar 18300- Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86306 SH stoppar lodnuhrognafrystingu: STANDAST EKKISAMAN- BURÐ VIÐ ÞAU NORSKU Verðlagsrað ÞRJÁRVERÐ- HÆKKANIR ■ Þrjár verðhækkanir á vöru og þjónustu voru heimilaðar á fundi Verðlagsráðs í gær. í kjölfarið hækkar verð á möl og sandi frá Björgun hf. um 12%, taxtar vinnuvéla um 8% og taxti vöruflutníngabifreiða á langleiðum um 5%. Georg Ólafsson, verðlags- Stjóri, sagði að fleiri hækkana- beiðnir hefðu verið ræddar á fundinum, en ákvörðun um þær hefði verið frestað. -Sjó ■ Sölumiðstöð hradfrystihús- anna hefur sent loðnuhrogna- verkendum innan sinna vébanda skeyti og ráðlagt þeim að hætta að taka á móti hrognum til frystingar frá og með hádegi í dag. „Okkar kaupendur, sem eru nokkuð margir, voru sammála um það að ráðlegt væri fyrir okkur að stoppa frystingu núna“, sagði Hjalti Einarsson, fram- kvæmdastjóri SH, í samtali við Tímann í gær. Hann sagði að Japanirnir teldu að hrognin héð- an stæðust ekki samanburð við norsk hrogn þegar komið væri svona nálægt hrygningu og þess vegna vildu þeir ekki skuldbinda sig að kaupa meira en þegar er komið á land, en Hjalti bjóst við að frystihús innan SH væru búin að fá um 1500 tonn af hrognum. Hann sagði að þetta væru vissu- lega ekki góð tíðindi því fyrir- fram hefði SH áætlað að frysta helmingi rneira, eða um 3000 tonn. Verðið á hverju kílói af loðnu- hrognum er um 50 krónur og má því búast við að SH selji loðnu- hrogn fyrir um 75 milljónir eftir verðtíðina. UFEYRISSIÓDUR FYRIR HÚSMÆÐUR — og sameining allra líf- eyrissjóða fyrir 1995 ■ Páll Pétursson hefur lagt fram þingsályktunartillögu sem gerir ráð fyrir að stjórnin láti semja lagafrumvarp um lífeyrissjóð fyrir þær húsmæður sem ekki hafa þegar öðlast rétt til aðildar að lífeyrissjóði. Hann segir að húsmæður sé einn stærsti hópurinn sem stendur utan lífeyrissjóða og njóti ekki annars lífeyris en ellilauna. I greinargerð segir: „Eitt alvarlegasta misrétti í þjóðfélaginu er hve misjafn eftir- launaréttur manna er. Allflestir landsmenn hafa þó öðlast rétt til aðildar að lífeyrissjóðum þótt kjörin séu mjög misjöfn, sumir verðtryggðir en aðrir ekki. Einn stærsti hópurinn sem enn þá stendur utan lífeyrissjóða og nýt- ur ekki annars lífeyris en elli- launa, sem engan veginn nægja til framfærslu, eru þær húsmæð- ur sem hafa unnið á heimilum sínum og fjölskyldna án þess að taka formleg laun úr hendi ein- hvers atvinnurekenda. Störf þessara húsmæðra hafa verið og eru síst minna virði fyrir þjóðfé- lagið en störf þeirra sem launaða vinnu hafa stúndað. Fjölskyldan er hornsteinn þjóðfélagsins og vinna við barna- uppeldi og heimilisstörf eru mjög mikilvæg, ekki síður en hliðstæð störf sem innt eru af hendi utan heimilis gegn launagreiðslum. Telja verður réttmætt að allar þær húsfreyjur, sem þegar eru komnar á eftirlaunaaldur, fái strax rétt til greiðslna úr sjóðnum. Þess vegna er senni- lega óhjákvæmilegt að ríkið leggi fram stofn að sjóðnum. Það er að vissu leyti eðlilegt þar sem þessar húsfreyjur hafa í mörgum tilfellum sparað ríki og sveitar- félögum mjög verulegar fjárhæð- ir með því að gæta barna sinna sjálfar. Hins vegar verður að gera ráð fyrir að heimavinnandi húsmæður greiði til sjóðsins framvegis og fái þær eldri einnig heimild til að kaupa sér aukin rétt. Flutningsmaður telur sjálfsagt að stefna að einum sameigin- legum lífeyrissjóði fyrir alla landsmenn. Því máli hefur nokkrum sinnum verið hreyft á Alþingi en ekki orðið úr fram- kvæmdum. Þessi lífeyrissjóður gæti síðar orðið stofn að sameig- inlegum lífeyrissjóði allra landsmanna. Flutningsmaður telur að til þess að einum lífeyris- sjóði verði komið á þurfi nokk- urra ára aðlögunartíma, en leysa verður hinn bráða vanda þeirra sem eru réttlausir. Til greina kemur að dómi flutningsmanns að ákveða með lögum að allir lífeyrissjóðir skuli sameinaðir fyrir árið 1995. Undirbúningur gæti orðið þannig að frá ákveðn- um degi greiddu allir landsmenn á starfsaldri tillag í lífeyrissjóð allra landsmanna og þeir sem þess óskuðu gætu fært réttindi sín úr sérlífeyrissjóði til þessa sjóðs um nokkurra ára skeið til baka. Eldri sjóðirnir störfuðu áfram til þess að greiða lífeyri til þeirra sem eiga þar réttindi með- an þeim endast fjármunir eða þar til samkomulag næðist um inngöngu sérsjóða í lífeyrissjóð allra landsmanna. Réttleysi hinnar heimavinn- andi húsmóður í lífeyrismálum má ekki láta viðgangast, því er þessi tiliaga flutt." -OÓ ■ Þó að vor sé í lofti i nágrenni höfuðborgarinnar að minnsta kosti þarf ekki að fara langt til að komast í snjó þannig að skíðamenn þurfa ekki að örvænta. Byggingaáætl- un Buseta: 1000 ÍBÚÐIR ÁSJÖÁRUM ■ Húsnæðissamvinnufélagið Búseti hefur nú lagt fram bygg- ingaáællun sína. Aætlað er að liefja framkvæmdir vorið 1985, og fram til 1990 verða byggðar 1000 íbúðir. Það vcrða þVí byggðar 200 íbúðir á ári. Af öllum 1000 íbúðuhum verða 220 tveggja herbergja íbúðir, 400 þriggja herbergja, 230 4-5 herbergja. 130 íbúðir í raðhúsum og 20 íbúðir í einbýlishúsum. Eins og kunnugt er er hér um að ræöa húseturéttaríbúðir á mjög hagstæðum kjörum. Bú- seturétturinn cr algjörlega bundinn við félagaskrána, ekki er möguíeiki á að framleigja íbúðirnar né versla með núm- erin sem félagsmenn fcngu, er dregið vaT um forgangsröð stofnfélaga. Stofnfélagar cru 1448 og til gamans má geta þess að einn stjórnarmanna í Búseta, Gísli Hjaltason fékk númerið 1443. Ástæðan fyrir þvf að ekki eru áætlaðar nema 1000 íbúðir í bili cr sú að fjöldi þeirra scm þurfa íbúðir er í raun minni, margir stofnfélaga eru hjón eða þá börn. Búseti ntun halda stórfund í Háskólabíói þ. 8. apríl til að reka á eftir því að húsnæðis- frumvarpið scm gerir ráð fyrir búscturéttaríbúðunum og lán- um til þeirra verði ýtt í gegn um þingið fyrir vorið. Fimmtudagsum- ræda útvarpsins i kvöid: SEND BEINT FRÁ KAUPMANNAHÖFN! ■ „Hugmyndin er nú þannig til komin, að við Kári Jónasson vorum búnir að ákveða að fjalla um ferðamál í þættinum. Svo þegar farið var að kanna málin kom í ijós, að margir helstu forvígismenn ferðamáia hér á landi voru staddir í Kaupmannahöfn, en þar fcr fram stór ferðakaupstefna um þessar mundir. Þess vegna varð það úr, að ég færi til Kaup- mannahafnar og stjórnaði þættinum þaðan,“ sagði He'lgi Pctursson, fréttamaður á út- varpinu. cn hann mun í kyöld stjórna umræðuþætti í beinni útsendingu til ísláhds úr studio 40 í Danmarks Radio, og mun það vera í fyrsta skipti sem umræðuþætti f beinni útsend- ingu frá útlöndum er útvarpað hér á landi. Jafnframt verður þættinum útvarpað frá Ríkisútvarpinu við Skúlagötu, en þar mun Kári Jónasson sitja við stjórn- völinn og fá gesti í heimsókn. -Sjó Sjá útvarpskynningu á bls. 19

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.