Tíminn - 15.03.1984, Síða 8
8
FIMMTUDAGUR 15. MARS 1984
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Gísli Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gíslason.
Skrifstofustjóri: Ragnar Snorri Magnússon. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson.
Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elías Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V.
Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrimsson.
Umsjónarmaður Helgar-Tímans: Atli Magnússon. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir,
Bjarghildur Stefánsdóttir, Baldur Kristjánsson, Friðrik Indriðason, Guðmundur Sv .
Hermannsson, Heiður Helgadóttir, Jón Guðni Kristjánsson,
Jón Ólafsson, Kristín Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (íþróttir), Skafti Jónsson.
Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnssson.
Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn:
Eygló Stefánsdóttir.
Prófarkir: Kristín Þorbjarnardóttir, Flosi Kristjánsson, Guðný Jónsdóttir
Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar: Síðumúla 15, Reykjavík. Sími: 86300. Auglýsingasími
18300. Kvöldsimar: 86387 og 86306.
Verð í lausasólu 20.00, en 22.00 um helgar. Áskrift á mánuði kr. 250.00.
Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent hf.
Skattabyrdin þyngist
á Reykvíkingum
■ Það er laukrétt, sem haldið hefur verið fram í
Morgunblaðinu, að nauðsynlegt er að skattabyrðin, sem
lögð er á einstaklinga, léttist á tímum, þegar veruleg
kjaraskerðing hefur orðið.
Pað má segja um þessa réttmætu fullyrðingu Morgun-
blaðsins að hægara er að kenna heilræðin en halda þau.
Flokkur þess, Sjálfstæðisflokkurinn, fer a.m.k. ekki eftir
þeim, þar sem hann ræður einsamall. Þar léttist ekki
skattbyrðin á einstaklingum, heldur þvert á móti þyngist.
Gleggsta dæmið um þetta er álagning útsvaranna í
Reykjavík.
Nokkru áður en bæjar- og sveitarfélög fóru að fjalla um
útsvarsálagningu á þessu ári, birti Þjóðhagsstofnun glögga
útreikninga, sem sýndu fram á, að ekki væri nauðsynlegt
fyrir þessa aðila að nota eins háa prósentuálagningu og
áður. Ástæðan væri sú, að verulega hefði dregið úr
verðbólgu og eitt frumskilyrði þess, að það gæti haldist
áfram væri að draga úr útsvarsálagningunni.
Stærsta bæjarfélagið, Reykjavík, sem raunverulega
mótar stefnu bæjar- og sveitarfélaganna í þessum efnum,
hafði þessa viðvörun að engu.
Meirihluti Sjálfstæðisflokksins í borgarráði og borgar-
stjórn ákvað að hækka útsvarsálagningu frá fyrra ári um
42%, enda þótt ekki væri reiknað með nema 22.5%
hækkun á útgjöldunum miðað við fyrra ár.
Samkvæmt útreikningum Þjóðhagsstofnunar þýðir
þetta aukna skattbyrði, miðað við fyrra ár, sem nemur
sextán þúsund krónum á hverja fjögurra manna fjölskyldu
í höfuðborginni.
En þetta er ekki öll sagan. Nær öll gjöld þjónustustofn-
ana borgarinnar hafa verið hækkuð umfram augljósar
þarfir. Þannig voru gjöld Hitaveitunnar hækkuð um 25%,
enda þótt sérfræðingar viðskiptamálaráðherra hefðu
reiknað út, að þau þyrftu ekki að hækka nema um 10-12%.
Það var þessi mikla umframskattlagning borgarstjórn-
armeirihlutans í Reykjavík, sem átti mestan þátt í því að
sprengja4% rammann, sem hafði verið settur í fjárlögin.
Fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar var það aðallof-
orð Sjálfstæðisflokksins, að skattarnir yrðu lækkaðir.
Þetta eru efndirnar. Um þær steinþegir Morgunblaðið.
Á ríkið að keppa
við einkaf ramtakið?
Fjármálaráðherra hefur verið gagnrýndur fyrir það í
flokksblöðum sínum að ganga ekki nógu rösklega fram í
því að selja ríkisfyrirtæki eða hluta ríkisins í sameignarfyr-
irtækjum.
Með réttu verður fjármálaráðherra þó ekki sakfelldur
fyrir þetta. Hann hefur vissulega gengið eins langt í þessu
og frekast var hægt, ef ekki átti að láta þessar eignir fyrir
gjafverð.
Fjármálaráðherra verður einnig að taka tillit til þess, að
einstaklingar og félög, sem eru að stækka fyrirtæki sín eða
að koma nýjum fyrirtækjum á fót, skortir stórlega
fjármagn til að koma fyrirætlunum sínum í framkvæmd.
Ríkið má vissulega ekki með sölu á fyrirtækjum ganga
of langt í því að keppa við einkaframtakið um það
takmarkaða fjármagn, sem á boðstólum er. Slíkt vinnur
gegn einkaframtakinu og aðkallandi uppbyggingu.
Þ.Þ.
skrifað og skrafað
LAM8A6KEj:KKáR 'l HÉIUI óí H'ALFH
LDA/PCWiLAMU
HPD&Tía. Zl'00 — LIFIA& 2.1,00
W&AZ £ÚUUpyi,-5Mí2. '52.3ÍS
Wó ?? TIL ToP\£$m?lAVS 0&
Vte íi TlL OKKAR ^
Fagurt mannlíf
í gömlu
höfuðborginni
Um 500 ára skeið var
Kaupmannahöfn höfuðborg
Islendinga og þótt margt mis-
jafnt megi segja um þá til-
högun hefur mörlandinn
löngum litið þangað í dag-
draumum sínum um heimsins
lystisemdir. Sumum tókst að
komast þangað og undu vel
við glys og glaum á meðan
skotsilfur og jarðeignir uppi
á íslandi entust.
Enn freistar Kaupmanna-
höfn margra Frónbúa og eru
þeir jafnan fjölmennir við
nám, störf eða á sósíalnum
og er allt þetta nokkuð gott.
Sukksamt hefur löngum ver-
ið í borginni við Sundið og
Islendingar ekki eftirbátar
heimamanna í þeim efnum.
Alvörubjór og danskur
matur hefur löngum borið af
þeim kosti sem heima fyrir er
boðið upp á þótt nokkur
breyting sé nú að verða á
með tilkomu Gauks á Stöng,
verðlækkunar á svínakjöti og
rauðkál að verða hvunndags-
matur.
íslendingar í Kaupmanna-
höfn hafa með sér styrkan
félagsskap og gefa út tímarit,
sem Pjóðhildur nefnist. Par
er fjallað um áhugamál og
hagsmuni íslendinganýlend-
unnar. Róttækni, kvennaæði
og námslánaskortur hafa
verið fyrirferðarmikil bar-
áttumál i málgögnum Hafn-
aríslendinga. Fréttir hafa
borist af glæsilegum fundum
og samkomum alls konar þar
sem athyglin hefur ekki síður
beinst að danska ölinu góða
en öðru því sem á dagskrá
var.
En í síðasta tölublaði Þjóð-
hildar er heldur betur annað
uppi á teningnum en sumbl
og danskar krásir. Mynda-
síða er látin duga undir náms-
lánavandræðin.
Helstu fréttir af fslending-
um eru að dugnaðarkonurnar
Vilborg Ingvarsdóttir og
Sigríður Þorsteinsdóttir hafa
um skeið rekið verslunina
Grænar tómstundir, sem er
náttúrulækningabúð. Forretn-
inguna hafa þær rekið í ár og
gengur vel og í viðtali við þær
Villu og Siggu segir að leik-
fimi þurfi maður ekki að
stunda til að leggja af, bara
borða hollan mat og sleppa
brösuðu, sósum og suili, enda
er miklu ódýrara að borða
ekki kjöt, bara grænmeti,
ávexti og brauð. Mestan
áhuga hafa þær á blómameð-
ulum og áhrifum þeirra á fólk
og dýr, en áhuginn á áfengi
og tóbaki hefur horfið og
löngunin með.
„Þessir undradropar koma
frá Dr. Bach, sem uppgötvaði
í 38 draumum um 38 mismun-
andi blóm, sem læknuðu
sjúkdóma sem hann átti eng-
in ráð við“.
Jurtamatur og
AA-kvöld
í Þjóðhildi er birt dagskrá-
in í Jónshúsi í tvo mánuði.
Þar gefur á að líta. Jurta-
matur er þar á boðstólum
marga daga í viku hverri og
tekið er fram að þeir sem
hyggjast súpa kálið verði að
muna að panta fyrirfram.
Soðin ýsa er á boðstólum og
stundum svið og baunir. Svo
er barnabíó, konukvöld og
haldið ykkur nú, karlakvöld
(Aften for mænd). Svo er
messað.
En mesta athygli hlýtur að
vekja, að fslendingar í Kaup-
mannahöfn halda AA-fundi
einu sinni og tvisvar í viku.
„Nú er hún Snorrabúð
stekkur“ sagði Árni Pálsson
þegar áfengisversluninni var
breytt í lampabúð. Við lestur
Þjóðhildar dettur manni svip-
að í hug. AA-fundir og græn-
metisveislur virðist orðið
helsta frístundagaman ís-
lendinga í sjálfri Kaup-
mannahöfn. Kannski voru
það ekkert slæm býti að gera
Reykjavík að höfuðbæ í stað
Kaupmannahafnar.
En svolítinn dám dregur
Kaupmannahöfn af Reykja-
vík. f Þjóðhildi er auglýsing
frá Vigerslev Ködforsying,
sem býður upp á íslenskt
lambakjöt. Fylgir hún hér
með og verðið í dönskum
krónum, en sölugengið er
rúmar þrjár krónur íslenskar
fyrir hverja eina danska.
Vantraust
á stjórnar-
andstöðuna
Haukur Helgason fjallar
um niðurstöður skoðana-
könnunar DV um fylgi
stjórnmálaflokkanna í for-
ystugrein og segir m.a.:
„Niðurstöður skoðana-
kannana DV eru vantraust á
stjórnarandstöðuna, ekki
síður en þær eru traustsyfir-
lýsing við ríkisstjórnina.
Kannanirnar sýna að al-
menningur kýs stöðugleika í
efnahagsmálum og gerir sér
vonir um að ríkisstjórnin
spjari sig áfram. Jafnframt
refsar almenningur stjórnar-
andstöðunni, sem oft á tíð-
um vill bregða fæti fyrir að-
gerðir stjórnarinnar. Ljóst er
að um þessar mundir eru
kjósendur hrifnastir af því,
að stjórnmálamenn sýni
ábyrgð.
Útkoma Alþýðubanda-
lagsins er til dæmis harla
merkileg.
Forysta Alþýðubandalags-
ins hefur að undanförnu helzt
vakið á sér athygli fyrir bar-
áttu gegn kjarasamningun-
um.
Sennilega hefur forystan
álitið, að með því mætti vinna
fylgi. Almenningurværi lang-
þreyttur á kjaraskerðingu og
vildi fá mun hærra kaup.
Alþýðubandalagið hefur haft
forystu í stjórnarandstöðu,
allt frá því að núverandi ríkis-
stjórn var mynduð, og
stundum barið bumbur.
En hvað uppsker Alþýðu-
bandalagið? Samkvæmt
skoðanakönnuninni hefur
flokkurinn tapað töluverðu
fylgi.
Það er rétt, sem Steingrím-
ur Hermannsson forsætisráð-
herra sagði í viðtali í DV í
gær um niðurstöður skoðana-
könnunarinnar: „Frammi-
stöðu stjórnarandstöðunnar
má rekja til ábyrgðarleysis...
Málflutningur stjórnarand-
stæðinga er ekki sannfær-
andi, og sérstaklega hefur
málflutningur Alþýðubanda-
lagsins verið óábyrgur.“
Samkvæmt skoðana-
könnuninni er fylgi Alþýðu-
flokksins talsvert undir því
sem var í kosningunum í
fyrra. En staða Alþýðu-
flokksins hefur skánað að
undanförnu, ef saman eru
bornar niðurstöður könnun-
arinnar nú og skoðana-
könnunar DV í október síð-
astliðinum.
Alþýðuflokksmenn hafa
verið miklu ábyrgari í kjara-
samningunum en forysta Al-
þýðubandalagsins. Vel má
vera, að Alþýðuflokkurinn
njóti góðs af því í þessari
skoðanakönnun."
OÓ
á vettvangi dagsins
SJONVARPIÐ MEÐ
VILLANDI FRÉTTIR
■ Sjónvarpið sýndi landsmönnum fyrir skömmu fréttamynd
af hrossahóp og eignaði hestamönnum í Grundarfirði bæði
hrossahópinn og aðbúnað þeirra, þótt sennilega hafi myndin
verið tekin á freðmýrum sunnaniands. Meðíréttinni var látið
fylgja álit einhverra búfræðinga á að hrossin hefðu haft mjög
slæma beit síðast liðið haust.
Þar sem fyrrnefnd frétt er alröng vilja hestaeigendur í
Grundarfirði koma eftirfarandi á framfæri:
Við hestamenn í Grundarfirði eigum jú allnokkuð af
hrossum. Þau voru öll með tölu komin á hús fyrir jól, enda
eigum við nóg af góðum nýlegum hesthúsum og ennfremur
nægjanlegt og gott fóður, að mati forðagæslumanna, enda hafa
verið hér jarðbönn síðan um vetrarsólhvörf og varla að
tittlingur fengi í nef sitt, nema það sem góðhjartaðar konur
hafa gefið þeim á hjarnið.
Hesthús okkar eru byggð á skipulögðu svæði kauptúnsins.
Þau eru öll raflýst og í þeim rennandi vatn. Aðal skeiðvöllur
okkar er Kirkjufellsleirar, margir ferkílómetrar rennisléttir
sjávarsandar. Við höfum úrvals góða sumar- oghausthaga, sem
eru vafðir kjarngresi enda ábornir eftir milljónir máva og
múkka, sem byggja Kirkjufell, Stöð, Mýrarhyrnu og Lárdal og
sérlega skjólsamir þótt Kári gamli nísti Helgrindur og Máva-
hnjúk.
Hjálmar Gunnarsson
■ Hjálmar Gunnarsson liðkar sjálfan sig og tryppin sín þegar
stundir gefast til þess.
Mynd Ari Libermann.